Fleiri fréttir Samdráttur hjá Íbúðalánasjóði Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 3,2 milljörðum króna í ágúst. Þar af telst 3,1 milljarður króna til almennra lána en 100 milljónir til leiguíbúðalána.Þetta er talsverður samdráttur frá júlí en þá námu heildarútlán sjóðsins 5,1 milljarði króna. 8.9.2006 12:37 Pliva lýst vel á tilboð Actavis Stjórn króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva segir yfirtökutilboð Actavis í fyrirtækið endurspegla sanngjarnt verðmat. Fréttaveita Reuters bendir á að stjórninni lítist þrátt fyrir það betur á samruna við bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr. Barr greinir frá því í dag hvort fyrirtækið ætli að hækka tilboð sitt eður ei. 8.9.2006 11:29 Glitnir og LÍ ósammála um útboðsgengi Exista. 8.9.2006 09:10 Hagstjórnin gagnrýnd 8.9.2006 09:10 Æ fleiri fyrirtæki bókfæra í dollurum 8.9.2006 09:10 Barr svarar í dag 8.9.2006 09:10 Tveir af þekktustu hagfræðingum heims heiðraðir Tveir af þekktustu núlifandi hagfræðingum heims fá heiðursdoktorsnafnbót frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 21. október. Annar þeirra, Robert Mundell, hefur verið kallaður faðir evrunnar en hann er talinn upphafsmaður kenningarinnar um hagkvæm myntsvæði. 8.9.2006 01:30 Níunda mesta frelsið á Íslandi Ísland er í 9. sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi þjóða en frelsi af þessum toga er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum að flýja fátæktina. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu um efnahagsfrelsi í heiminum, sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) birti í dag. 7.9.2006 11:35 Dótturfélag Baugs eykur umfang sitt 7.9.2006 09:04 Vistor skipt í aðskilin félög 7.9.2006 09:04 Mögulegur stuðpúði ólíkra viðskiptaheima 7.9.2006 09:04 Tjónahlutfall 90% Afkoma helstu tryggingafélaga var borin uppi af fjárfestingatekjum en tjónahlutfall var hátt. 6.9.2006 00:01 Útboð breyta væginu Nýskráning Exista og hlutafjáraukning í Marel veldur breytingum á úrvalsvísitölunni. Vægi Exista í iCEX-15 tæp níu prósent. 6.9.2006 00:01 Bláa lónið opnar verslun Ný Blue Lagoon verslun var formlega opnuð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á fimmtudaginn var. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að í versluninni séu Blue Lagoon húðvörur fáanlegar og boðið sé upp á orkumeðferðir á spa-svæði verslunarinnar. Spa svæði sem þessi sé að finna í mörgum helstu flugstöðvum heims og njóti þessi þjónusta aukinna vinsælda. 6.9.2006 00:01 Neikvæð umfjöllun hafði engin áhrif Karl Otto Eidem, starfandi framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Fischer Partners, sem er í eigu Glitnis, telur að neikvæð umfjöllun um íslenskt efnahagslíf á fyrri hluta árs hafi ekki haft teljandi áhrif á starfsemi Fischer Partners. 6.9.2006 00:01 Samskip selur Tschudi TECO Samkomulag hefur náðst milli Samskipa og norska skipafélagsins Tschudi Shipping Company AS um kaup norska félagsins á helmingshlut Samskipa í eistneska skipafélaginu TECO LINES AS. Kaupverðið er sagt trúnaðarmál. 6.9.2006 00:01 Danir veðja á sterkari krónu og mjúka lendingu Danskt fjárfestingafélag býður upp á "íslenskan krónusjóð". Verði mjúk lending má búast við góðri ávöxtun. 6.9.2006 00:01 Flugstöðin stækkar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra tók í gær formlega í notkun nýja þriðju hæð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Heildarstærð hæðarinnar er rúmlega 4.100 fermetrar en þar af eru um 3.500 fermetrar af nýju skrifstofuhúsnæði og starfsmannaaðstöðu. Breyting og innrétting á 3. hæð flugstöðvarinnar er liður í umfangsmiklum framkvæmdum um framtíðarþróun mannvirkja Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. sem hófust árið 2003 og sem gert er ráð fyrir að ljúki árið 2007. 6.9.2006 00:01 Enn fjölgar gistinóttum Gistinóttum á hótelum fjölgaði um ellefu prósent í júlí miðað við árið á undan, samkvæmt nýjum upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Voru gistinæturnar 175.900 miðað við 158 þúsund í sama mánuði í fyrra. Fjölgunin, sem má bæði rekja til Íslendinga og útlendinga, nam tíu prósentum frá fyrra ári sé litið á fyrstu sjö mánuði ársins. 6.9.2006 00:01 Námskeið fyrir miðlara Í þessari viku stendur yfir námskeið sem Kauphöll Íslands heldur fyrir nýja miðlara í SAXESS-viðskiptakerfinu. Þá er búið að ákveða tvö námskeið til viðbótar fram að áramótum, að því er fram kemur í nýjasta hefti Kauphallartíðinda. Þau verða haldin dagana 25. til 27. október og 1. til 5. desember. "Á námskeiðunum verður farið yfir virkni og viðskiptahætti í SAXESS og reglur er lúta að viðskiptunum," segir Kauphöllin, en skráning á námskeiðin fer fram á heimasíðu hennar, www.icex.is/is/courses. 6.9.2006 00:01 Innflutningur dregst saman Útlit er fyrir að vöruskiptahalli hafi dregist töluvert saman milli mánaða, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofunni. Verðmæti vöruútflutnings í ágúst var 16,6 milljarðar króna en innflutningur á vörum nam alls 28,3 milljörðum. Halli á vöruskiptum var því tæplega tólf milljarðar króna í mánuðinum, sem er þriðjungi minni halli en í júlí þegar methalli var á vöruskiptum. 6.9.2006 00:01 Sitja eftir í séreigninni Almennir lífeyrissjóðir eru í mikilli baráttu við aðra vörsluaðila, eins og banka, um séreignarsparnað einstaklinga. Sjóðsfélagar í séreignardeildum lífeyrissjóða eru aðeins þriðjungur af fjölda sjóðsfélaga sameignardeilda. 6.9.2006 00:01 Ósamræmi í krónuspám: Mikið ber á milli í krónuspám greiningardeilda. Greining Glitnis les ekki rétt í minnkandi vaxtamun í þjóðhagsspá sinni, að mati Björns Rúnars Guðmundssonar, sérfræðings greiningardeildar Landsbankans. Hann telur að ekki bresti flótti á fjárfesta þótt minni munur verði á vaxtastigi hér og í viðskiptalöndum landsins. 6.9.2006 00:01 Ágæt afkoma Alfesca Alfesca tapaði 603 þúsundum evra, sem nemur um 58,5 milljónum íslenskra króna, á síðasta fjórðungi fjárhagsársins, sem lauk þann 30. júní. Var tapið nokkuð minna en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir, en þær spáðu 46 til 243 milljóna króna tapi á ársfjórðungnum. 6.9.2006 00:01 Kaupa Draumahús Bergur Steingrímsson, fjármálastjóri Draumahúsa, og Hjalti Pálmason, löggiltur fasteignasali, hafa keypt Draumahús, eina stærstu fasteignasölu landsins, af stofnendunum Helga Bjarnasyni og Ólafi Jóhannssyni. 6.9.2006 00:01 Bjóða veðurspá frá Theyr.net í símann Sú nýbreytni hefur verið tekin í gagnið hjá OgVodafone að notendur svonefndrar Vodafone live! þjónustu geta fengið nákvæma og myndræna framsetningu á veðurspá í símtækið sitt. "Hægt er að skoða þriggja daga veðurspá í símanum með ítarlegum hætti hvort sem er fyrir þéttbýlisstaði, ferðamannastaði eða miðin í kringum landið," segir í tilkynningu fyrirtækisins. Veðurþjónustan er unnin í samstarfi við Theyr.net veðurspárvefinn. 6.9.2006 00:01 Síminn vill ekki í fjölmiðla Exista leitar að tækifærum í Bretlandi og á meginlandi Evrópu fyrir VÍS og Lýsingu. Síminn verður settur á markað í lok næsta árs. 6.9.2006 00:01 Saga Existu í stuttu máli 6.9.2006 00:01 Aukinn áhugi á Actavis í kjölfar PLIVA-slagsins Actavis hefur náð athygli stórra fjárfestingarsjóða. Slagurinn við Barr um Pliva hefur einnig vakið eftirtekt. Von er á úttekt erlendra greiningarfyrirtækja á félaginu. 6.9.2006 00:01 Hreinn Jakobsson tekur við ANZA Hreinn Jakobsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ANZA hf. í stað Guðna B. Guðnasonar sem lét af störfum núna um mánaðamótin. Hreinn er viðskiptafræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu bæði í upplýsingatækni og fjármálastarfsemi. 6.9.2006 00:01 Magnús tekur við Magnús Þorsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Group, tekur við stjórnarformennsku í Excel Airways Group af Eamonn Mullaney, fyrrum stjórnarformanni og eins af stofnendum breska leiguflugfélagsins Excel Airways, sem er tíunda stærsta leiguflugfélag í heimi. Mullaney hefur tilkynnt um starfslok sín sem mun taka gildi í lok október. 6.9.2006 00:01 Helmingi minni velta Veltulitlum mánuðum á fasteignamarkaði fylgja verðlækkanir. Helmingssamdráttur hefur orðið á hálfu ári. 6.9.2006 00:01 Spá minni vöruskiptahalla Greiningardeild Glitnis segir útlit fyrir að innflutningur hafi dregist verulega saman í ágúst og útflutningur aukist nokkuð frá fyrri mánuði. Megi því búast við því að vöruskiptahalli hafi dregist töluvert saman milli mánaða. Methalli varð á vöruskiptum í júlí. 5.9.2006 11:25 Nýr stjórnarformaður Excel Airways Group Magnús Þorsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Group, mun taka við stjórnarformennsku í Excel Airways Group af Eamonn Mullaney, fyrrum stjórnarformanni og eins af stofnendum breska flugfélagsins Excel Airways. Mullaney hefur tilkynnt um starfslok sín sem taka gildi í lok október. 5.9.2006 09:48 Hagnaður Alfesca 1,1 milljarður króna Hagnaður af rekstri Alfesca á síðasta ári, sem lauk í júní, nam 12 milljón evrum eða eða tæplega 1,1 milljarði króna. Á fjórða fjárhagsári fyrirtækisins tapaði það hins vegar 603.000 evra eða 53,6 milljónum íslenskra króna. 5.9.2006 09:23 Segir rétta tímann til krónukaupa Núna gæti verið rétti tíminn til að kaupa íslenskar krónur þar sem gengi krónunnar er hagstætt um þessar mundir. Þetta er haft eftir Momtchil Pojarliev, sérfræðingi hjá svissneska bankans Pictet & Cie, í frétt á vefsíðu Bloomberg í gær þar sem fjallað var um íslensku krónuna. 5.9.2006 00:01 Spá talsverðri lækkun á verðbólgu Útlit er fyrir 0,8 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs milli ágúst og september og allt bendir til þess að verðbólga hafi þegar náð hámarki og muni minnka á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í endurskoðaðri verðbólguspá Greiningardeildar Glitnis. 5.9.2006 00:01 Spá óbreyttum stýrivöxtum Stjórn Englandsbanka fundar á fimmtudag til að ákveða hvort breytingar verði gerðar á stýrivöxtum í Bretlandi. Vextirnir voru hækkaðir í byrjun ágúst og standa nú í 4,75 prósentum. Greiningardeild Glitnis hefur eftir fréttaveitunni Bloomberg að líkur séu á óbreyttum stýrivöxtum. 4.9.2006 10:55 VÍS hagnaðist um 468 milljónir króna Vátryggingafélag Íslands hagnaðist um 468 milljónir króna á fyrri árshelmingi og nam eigið fé félagsins 15,7 milljörðum króna. Allt árið í fyrra hagnaðist VÍS um 8,4 milljarða króna. 2.9.2006 00:01 Verðmæti Exista á bilinu 211 til 233 milljarðar Markaðsvirði Exista liggur á bilinu 211 til 233 milljarðar króna, en endanlegt virði félagsins kemur í ljós þann 7. september næstkomandi, þegar útboð til fagfjárfesta hefst. Þetta gerir Exista að fjórða eða fimmta verðmætasta félagi í Kauphöll Íslands. 2.9.2006 00:01 Hreinn Jakobsson til Anza Hreinn Jakobsson, fyrrum forstjóri Skýrr, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Anza hf. Guðni B. Guðnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins, lætur af störfum í dag. 1.9.2006 16:25 Tap á rekstri Jeratúns Jeratún ehf., einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, sem sér um byggingu og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellings í Grundarfirði, tapaði tæpum 14 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði fyrirtæki tæplega 7,4 milljóna króna hagnaði. 1.9.2006 14:45 Hagnaður Landsafls rúm 241 milljón Landsafl hf., fasteignafélag í eigu Landsbankans og Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka, skilaði 241,4 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins samanborið við tæplega 1,4 milljarða króna hagnaðs á sama tímabili í fyrra. Afkoman er viðunandi, að mati stjórnenda félagsins. 1.9.2006 14:26 Fjöltækniskólinn kaupir Flugskóla Íslands Fjöltækniskóli Íslands hefur keypt allt hlutafé í Flugskóla Íslands og verður starfsemi Flugskólans að mestu flutt frá Reykjavíkurflugvelli í húsnæði Fjöltækniskólans. Með sameiningunni er horft til þess að nám flugmanna verði viðurkennt hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, að sögn skólastjóra Flugskólans. 1.9.2006 13:40 Tap á rekstri Leifsstöðvar Rétt rúmlega eins milljarðs krónu tap varð á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði rekstur flugstöðvarinnar 380 milljóna króna hagnaði. Hluti tapsins er kominn vegna gengistaps en stór hluti skulda FLE er í erlendri mynt. 1.9.2006 10:31 Sjá næstu 50 fréttir
Samdráttur hjá Íbúðalánasjóði Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 3,2 milljörðum króna í ágúst. Þar af telst 3,1 milljarður króna til almennra lána en 100 milljónir til leiguíbúðalána.Þetta er talsverður samdráttur frá júlí en þá námu heildarútlán sjóðsins 5,1 milljarði króna. 8.9.2006 12:37
Pliva lýst vel á tilboð Actavis Stjórn króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva segir yfirtökutilboð Actavis í fyrirtækið endurspegla sanngjarnt verðmat. Fréttaveita Reuters bendir á að stjórninni lítist þrátt fyrir það betur á samruna við bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr. Barr greinir frá því í dag hvort fyrirtækið ætli að hækka tilboð sitt eður ei. 8.9.2006 11:29
Tveir af þekktustu hagfræðingum heims heiðraðir Tveir af þekktustu núlifandi hagfræðingum heims fá heiðursdoktorsnafnbót frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 21. október. Annar þeirra, Robert Mundell, hefur verið kallaður faðir evrunnar en hann er talinn upphafsmaður kenningarinnar um hagkvæm myntsvæði. 8.9.2006 01:30
Níunda mesta frelsið á Íslandi Ísland er í 9. sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi þjóða en frelsi af þessum toga er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum að flýja fátæktina. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu um efnahagsfrelsi í heiminum, sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) birti í dag. 7.9.2006 11:35
Tjónahlutfall 90% Afkoma helstu tryggingafélaga var borin uppi af fjárfestingatekjum en tjónahlutfall var hátt. 6.9.2006 00:01
Útboð breyta væginu Nýskráning Exista og hlutafjáraukning í Marel veldur breytingum á úrvalsvísitölunni. Vægi Exista í iCEX-15 tæp níu prósent. 6.9.2006 00:01
Bláa lónið opnar verslun Ný Blue Lagoon verslun var formlega opnuð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á fimmtudaginn var. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að í versluninni séu Blue Lagoon húðvörur fáanlegar og boðið sé upp á orkumeðferðir á spa-svæði verslunarinnar. Spa svæði sem þessi sé að finna í mörgum helstu flugstöðvum heims og njóti þessi þjónusta aukinna vinsælda. 6.9.2006 00:01
Neikvæð umfjöllun hafði engin áhrif Karl Otto Eidem, starfandi framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Fischer Partners, sem er í eigu Glitnis, telur að neikvæð umfjöllun um íslenskt efnahagslíf á fyrri hluta árs hafi ekki haft teljandi áhrif á starfsemi Fischer Partners. 6.9.2006 00:01
Samskip selur Tschudi TECO Samkomulag hefur náðst milli Samskipa og norska skipafélagsins Tschudi Shipping Company AS um kaup norska félagsins á helmingshlut Samskipa í eistneska skipafélaginu TECO LINES AS. Kaupverðið er sagt trúnaðarmál. 6.9.2006 00:01
Danir veðja á sterkari krónu og mjúka lendingu Danskt fjárfestingafélag býður upp á "íslenskan krónusjóð". Verði mjúk lending má búast við góðri ávöxtun. 6.9.2006 00:01
Flugstöðin stækkar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra tók í gær formlega í notkun nýja þriðju hæð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Heildarstærð hæðarinnar er rúmlega 4.100 fermetrar en þar af eru um 3.500 fermetrar af nýju skrifstofuhúsnæði og starfsmannaaðstöðu. Breyting og innrétting á 3. hæð flugstöðvarinnar er liður í umfangsmiklum framkvæmdum um framtíðarþróun mannvirkja Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. sem hófust árið 2003 og sem gert er ráð fyrir að ljúki árið 2007. 6.9.2006 00:01
Enn fjölgar gistinóttum Gistinóttum á hótelum fjölgaði um ellefu prósent í júlí miðað við árið á undan, samkvæmt nýjum upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Voru gistinæturnar 175.900 miðað við 158 þúsund í sama mánuði í fyrra. Fjölgunin, sem má bæði rekja til Íslendinga og útlendinga, nam tíu prósentum frá fyrra ári sé litið á fyrstu sjö mánuði ársins. 6.9.2006 00:01
Námskeið fyrir miðlara Í þessari viku stendur yfir námskeið sem Kauphöll Íslands heldur fyrir nýja miðlara í SAXESS-viðskiptakerfinu. Þá er búið að ákveða tvö námskeið til viðbótar fram að áramótum, að því er fram kemur í nýjasta hefti Kauphallartíðinda. Þau verða haldin dagana 25. til 27. október og 1. til 5. desember. "Á námskeiðunum verður farið yfir virkni og viðskiptahætti í SAXESS og reglur er lúta að viðskiptunum," segir Kauphöllin, en skráning á námskeiðin fer fram á heimasíðu hennar, www.icex.is/is/courses. 6.9.2006 00:01
Innflutningur dregst saman Útlit er fyrir að vöruskiptahalli hafi dregist töluvert saman milli mánaða, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofunni. Verðmæti vöruútflutnings í ágúst var 16,6 milljarðar króna en innflutningur á vörum nam alls 28,3 milljörðum. Halli á vöruskiptum var því tæplega tólf milljarðar króna í mánuðinum, sem er þriðjungi minni halli en í júlí þegar methalli var á vöruskiptum. 6.9.2006 00:01
Sitja eftir í séreigninni Almennir lífeyrissjóðir eru í mikilli baráttu við aðra vörsluaðila, eins og banka, um séreignarsparnað einstaklinga. Sjóðsfélagar í séreignardeildum lífeyrissjóða eru aðeins þriðjungur af fjölda sjóðsfélaga sameignardeilda. 6.9.2006 00:01
Ósamræmi í krónuspám: Mikið ber á milli í krónuspám greiningardeilda. Greining Glitnis les ekki rétt í minnkandi vaxtamun í þjóðhagsspá sinni, að mati Björns Rúnars Guðmundssonar, sérfræðings greiningardeildar Landsbankans. Hann telur að ekki bresti flótti á fjárfesta þótt minni munur verði á vaxtastigi hér og í viðskiptalöndum landsins. 6.9.2006 00:01
Ágæt afkoma Alfesca Alfesca tapaði 603 þúsundum evra, sem nemur um 58,5 milljónum íslenskra króna, á síðasta fjórðungi fjárhagsársins, sem lauk þann 30. júní. Var tapið nokkuð minna en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir, en þær spáðu 46 til 243 milljóna króna tapi á ársfjórðungnum. 6.9.2006 00:01
Kaupa Draumahús Bergur Steingrímsson, fjármálastjóri Draumahúsa, og Hjalti Pálmason, löggiltur fasteignasali, hafa keypt Draumahús, eina stærstu fasteignasölu landsins, af stofnendunum Helga Bjarnasyni og Ólafi Jóhannssyni. 6.9.2006 00:01
Bjóða veðurspá frá Theyr.net í símann Sú nýbreytni hefur verið tekin í gagnið hjá OgVodafone að notendur svonefndrar Vodafone live! þjónustu geta fengið nákvæma og myndræna framsetningu á veðurspá í símtækið sitt. "Hægt er að skoða þriggja daga veðurspá í símanum með ítarlegum hætti hvort sem er fyrir þéttbýlisstaði, ferðamannastaði eða miðin í kringum landið," segir í tilkynningu fyrirtækisins. Veðurþjónustan er unnin í samstarfi við Theyr.net veðurspárvefinn. 6.9.2006 00:01
Síminn vill ekki í fjölmiðla Exista leitar að tækifærum í Bretlandi og á meginlandi Evrópu fyrir VÍS og Lýsingu. Síminn verður settur á markað í lok næsta árs. 6.9.2006 00:01
Aukinn áhugi á Actavis í kjölfar PLIVA-slagsins Actavis hefur náð athygli stórra fjárfestingarsjóða. Slagurinn við Barr um Pliva hefur einnig vakið eftirtekt. Von er á úttekt erlendra greiningarfyrirtækja á félaginu. 6.9.2006 00:01
Hreinn Jakobsson tekur við ANZA Hreinn Jakobsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ANZA hf. í stað Guðna B. Guðnasonar sem lét af störfum núna um mánaðamótin. Hreinn er viðskiptafræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu bæði í upplýsingatækni og fjármálastarfsemi. 6.9.2006 00:01
Magnús tekur við Magnús Þorsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Group, tekur við stjórnarformennsku í Excel Airways Group af Eamonn Mullaney, fyrrum stjórnarformanni og eins af stofnendum breska leiguflugfélagsins Excel Airways, sem er tíunda stærsta leiguflugfélag í heimi. Mullaney hefur tilkynnt um starfslok sín sem mun taka gildi í lok október. 6.9.2006 00:01
Helmingi minni velta Veltulitlum mánuðum á fasteignamarkaði fylgja verðlækkanir. Helmingssamdráttur hefur orðið á hálfu ári. 6.9.2006 00:01
Spá minni vöruskiptahalla Greiningardeild Glitnis segir útlit fyrir að innflutningur hafi dregist verulega saman í ágúst og útflutningur aukist nokkuð frá fyrri mánuði. Megi því búast við því að vöruskiptahalli hafi dregist töluvert saman milli mánaða. Methalli varð á vöruskiptum í júlí. 5.9.2006 11:25
Nýr stjórnarformaður Excel Airways Group Magnús Þorsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Group, mun taka við stjórnarformennsku í Excel Airways Group af Eamonn Mullaney, fyrrum stjórnarformanni og eins af stofnendum breska flugfélagsins Excel Airways. Mullaney hefur tilkynnt um starfslok sín sem taka gildi í lok október. 5.9.2006 09:48
Hagnaður Alfesca 1,1 milljarður króna Hagnaður af rekstri Alfesca á síðasta ári, sem lauk í júní, nam 12 milljón evrum eða eða tæplega 1,1 milljarði króna. Á fjórða fjárhagsári fyrirtækisins tapaði það hins vegar 603.000 evra eða 53,6 milljónum íslenskra króna. 5.9.2006 09:23
Segir rétta tímann til krónukaupa Núna gæti verið rétti tíminn til að kaupa íslenskar krónur þar sem gengi krónunnar er hagstætt um þessar mundir. Þetta er haft eftir Momtchil Pojarliev, sérfræðingi hjá svissneska bankans Pictet & Cie, í frétt á vefsíðu Bloomberg í gær þar sem fjallað var um íslensku krónuna. 5.9.2006 00:01
Spá talsverðri lækkun á verðbólgu Útlit er fyrir 0,8 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs milli ágúst og september og allt bendir til þess að verðbólga hafi þegar náð hámarki og muni minnka á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í endurskoðaðri verðbólguspá Greiningardeildar Glitnis. 5.9.2006 00:01
Spá óbreyttum stýrivöxtum Stjórn Englandsbanka fundar á fimmtudag til að ákveða hvort breytingar verði gerðar á stýrivöxtum í Bretlandi. Vextirnir voru hækkaðir í byrjun ágúst og standa nú í 4,75 prósentum. Greiningardeild Glitnis hefur eftir fréttaveitunni Bloomberg að líkur séu á óbreyttum stýrivöxtum. 4.9.2006 10:55
VÍS hagnaðist um 468 milljónir króna Vátryggingafélag Íslands hagnaðist um 468 milljónir króna á fyrri árshelmingi og nam eigið fé félagsins 15,7 milljörðum króna. Allt árið í fyrra hagnaðist VÍS um 8,4 milljarða króna. 2.9.2006 00:01
Verðmæti Exista á bilinu 211 til 233 milljarðar Markaðsvirði Exista liggur á bilinu 211 til 233 milljarðar króna, en endanlegt virði félagsins kemur í ljós þann 7. september næstkomandi, þegar útboð til fagfjárfesta hefst. Þetta gerir Exista að fjórða eða fimmta verðmætasta félagi í Kauphöll Íslands. 2.9.2006 00:01
Hreinn Jakobsson til Anza Hreinn Jakobsson, fyrrum forstjóri Skýrr, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Anza hf. Guðni B. Guðnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins, lætur af störfum í dag. 1.9.2006 16:25
Tap á rekstri Jeratúns Jeratún ehf., einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, sem sér um byggingu og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellings í Grundarfirði, tapaði tæpum 14 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði fyrirtæki tæplega 7,4 milljóna króna hagnaði. 1.9.2006 14:45
Hagnaður Landsafls rúm 241 milljón Landsafl hf., fasteignafélag í eigu Landsbankans og Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka, skilaði 241,4 milljóna króna hagnaði á fyrri helmingi ársins samanborið við tæplega 1,4 milljarða króna hagnaðs á sama tímabili í fyrra. Afkoman er viðunandi, að mati stjórnenda félagsins. 1.9.2006 14:26
Fjöltækniskólinn kaupir Flugskóla Íslands Fjöltækniskóli Íslands hefur keypt allt hlutafé í Flugskóla Íslands og verður starfsemi Flugskólans að mestu flutt frá Reykjavíkurflugvelli í húsnæði Fjöltækniskólans. Með sameiningunni er horft til þess að nám flugmanna verði viðurkennt hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, að sögn skólastjóra Flugskólans. 1.9.2006 13:40
Tap á rekstri Leifsstöðvar Rétt rúmlega eins milljarðs krónu tap varð á rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári skilaði rekstur flugstöðvarinnar 380 milljóna króna hagnaði. Hluti tapsins er kominn vegna gengistaps en stór hluti skulda FLE er í erlendri mynt. 1.9.2006 10:31