Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stofna banka í Lúxemborg Íslandsbanki hefur sótt um leyfi til að stofna og reka banka í Lúxemborg. Fyrir hefur bankinn rekið útibú í Lúxemborg. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, segir tilgang stofnunar bankans vera að útvíkka starfsemi bankans í landinu og bjóða alþjóðlega einkabankaþjónustu 7.12.2004 00:01
Vísar ásökunum á bug Valgerður Sverrisdóttir telur umfjöllun danska blaðsins Berlingske Tidende um íslenska fjárfesta í Danmörku ekki að öllu leyti sanngjarna. Þar hefur því verið haldið fram að hætta steðji að íslenska efnahagskerfinu vegna flókinna innbyrðis eignatengsla. 7.12.2004 00:01
Hætta vegna hagstjórnarblöndu Greiningardeild Íslandsbanka gagnrýnir hagstjórn á Íslandi í Morgunkorni sínu í gær. Þar segir að aðhald í ríkisfjármálum sé langt frá því að vera fullnægjandi. Þetta hefur í för með sér að mikill þungi fellur á Seðlabankann sem þarf að grípa til harðra aðgerða sem haft geta slæm áhrif á samkeppnisatvinnuvegina. 6.12.2004 00:01
Bakvinnslusvið KB banka hefur starfsemi á Akureyri KB banki hefur tekið í notkun nýja deild á Akureyri og er hún hluti af bakvinnslusviði bankans. Nú þegar hafa átta nýir starfsmenn tekið til starfa við deildina og munu þeir annast ýmis bakvinnslustörf fyrir höfuðstöðvar bankans og útibú hans. Gert er ráð fyrir að þeim fjölgi í allt að 15 manns á árinu 2005. 6.12.2004 00:01
Umfjöllun fjölmiðla vitleysa Stjórnarformaður KB banka segir að gagnrýnin umfjöllun danskra fjölmiðla, um innbyrðis tengsl íslenskra fjárfesta og fjármálafyrirtækja, byggi á sögusögnum og vitleysu. 5.12.2004 00:01
Samstarf um íbúðarlán Sparisjóðirnir eru komnir í samstarf við Íbúðalánasjóð um fjármögnun húsnæðis en jafnframt hafa þeir tekið höndum saman um framkvæmd greiðslumats. Aðrar lánastofnanir eru boðnar velkomnar gangist þær undir skilyrði Íbúðalánasjóðs. 5.12.2004 00:01
Bankarnir spáðu minni hækkun Greiningardeildir bankanna höfðu allar gert ráð fyrir vaxtahækkun en hún var meiri en þær spáðu. Greiningardeild Landsbankans sagði í Vegvísi í gær að vaxtahækkunin væri "nauðsynleg leiðrétting á vaxtaferlinum." Greiningardeildin segir að hækkunin í gær hafi verið nauðsynleg til þess að stýrivextir Seðlabankans hafi þau áhrif sem þeim sé ætlað. 3.12.2004 00:01
Frekari aðhaldsaðgerðir mögulegar Seðlabankinn útilokar ekki enn frekari aðhaldsaðgerðir í peningamálum á næstu mánuðum til að hemja verðbólguna. Með stýrivaxtahækkun sem bankinn boðaði í gær hafa þeir hækkað um tæp þrjú prósentustig síðan í maí. 3.12.2004 00:01
Skeljungur og Esso lækka Olíuverð heldur áfram að lækka hratt á heimsmarkaði og náði lækkunin til íslenskra neytenda í morgun. Skeljungur lækkaði bensínverðið um eina krónu í morgun og dísillítrann um 1,50 krónur. Þá tilkynnti Esso um lækkun á tólfta tímanum og gagnstætt venju er lækkunin þar meiri en hjá Skeljungi. 3.12.2004 00:01
BNbank taki tilboði Íslandsbanka Stjórn BNbank sendi í morgun frá sér yfirlýsingu til kauphallarinnar í Osló um yfirtökutilboð Íslandsbanka þar sem mælt er með því við hluthafa að þeir taki tilboðinu. Í yfirlýsingunni kemur fram að bæði stjórn bankans og fulltrúi starfsmanna telji að vel sé hugsað fyrir hagsmunum starfsmanna með yfirtökunni. 3.12.2004 00:01
Kennitöluflakk eykst Samtök iðnaðarins rekja í pistli á vef sínum raunir fyrirtækis sem margsinnis varð fyrir því að tapa tekjum vegna gjaldþrota viðskiptavina sinna. Vakin er athygli á því í pistlinum að mörg fyrirtækjanna hafi samt sem áður haldið áfram störfum undir svipuðu nafni, með sömu stjórn og sömu símanúmer þrátt fyrir gjaldþrotið. 3.12.2004 00:01
Krónan hækkað um 2,76% Gengi krónunnar hefur hækkað um 2,76% í dag og hefur sjaldan eða aldrei hækkað meira á einum degi. Bandaríkjadollar hélt áfram að lækka og er nú kominn niður í 62 krónur og 50 aura. Miklar sveiflur voru á gjaldeyrismarkaði í dag og var gjaldeyrisveltan á millibankamarkaði 17,7 milljarðar króna. 3.12.2004 00:01
Mikil viðskipti með krónuna í dag Krónan hækkaði um 2,73% í miklum viðskiptum í dag og stendur gengisvísitalan nú í 114,3 samkvæmt háffimmfréttum KB banka. Að sögn bankans má hér greina áhrif 1% vaxtahækkunar Seðlabanka sem boðuð var við útgáfu Peningamála í gær. 3.12.2004 00:01
Með seðlaprentsmiðju í kjallaranum Íslenskir bankar hafa tekið þyngdaraflið úr sambandi og stefna beint til himins. Þetta hafa danskir fjölmiðlar eftir heimildarmönnum sem þekkja vel til íslensks viðskiptalífs og þeir segja ennfremur að miðað við vöxt þeirra mætti halda að bankarnir væru með seðlaprentsmiðju í kjallaranum. 3.12.2004 00:01
Vaxtahækkun Seðlabankans gagnrýnd Einar Oddur Kristjánsson, oddviti sjálfstæðismanna í fjárlaganefnd Alþingis, gagnrýndi vaxtahækkun Seðlabankans frá því í gær harðlega á þingi í dag. Fjármálaráðherra segir hana myndarlegt inngrip og gerir ekki athugasemdir við hækkunina. Seðlabankastjóri segir enga gagnrýni á stjórnvöld felast í hækkuninni. 3.12.2004 00:01
Gengi krónunnar styrkist Gengi krónunnar styrktist um 2,73 prósent í miklum viðskiptum í gær og var gengisvísitalan 114,3 í lok dags. Greiningardeildir banka telja margar hverjar að í styrkingunni megi greina áhrif hækkunar stýrivaxta Seðlabankans á fimmtudag, en hún var umfram væntingar á markaði. 3.12.2004 00:01
Stýrivextir Seðlabankans hækka um 1% Stýrivextir Seðlabankans hækka um eitt próesentustig og verða 8,25% frá 7. desember n.k. Þetta er mun meiri hækun en greiningardeildir viðskiptabankanna höfðu spáð fyrir um. Seðlabankinn telur að grípa þurfi hratt til aðgerða því þensla er meiri en talið var áður. Hagvöxtur á næsta ári verður 6,1 prósent samkvæmt spá bankans. </font /></b /> 2.12.2004 00:01
Ráðstöfunarfé eykst hröðum skrefum Landsbankinn gerir ráð fyrir að lánaveisla bankanna leiði til þess að einkaneysla hækki um 0,5-1 prósent næstu tvö ár og að veislan endi með verðbólguskoti allt að sex prósentum um áramótin 2006-2007. </font /></b /> 2.12.2004 00:01
Selja aðgang að sjúkrasögum Bandaríska líftæknifyrirtækið ACLARA mun borga Urði, Verðandi, Skuld fyrir að nota blóð og æxlissýni úr íslenska krabbameinsverkefninu. Einnig mun ACLARA fá aðgang að sjúkrasögum krabbameinssjúklinga. 2.12.2004 00:01
Samkomulag um verð fyrir Big Food Baugur hefur lýst sig tilbúinn að greiða 95 pens fyrir hvern hlut í Big Food Group. Verðmæti Big Food er samkvæmt þessu verði ríflega 40 milljarðar króna. Með fjármögnun skulda yrði heildarumfang viðskiptanna milli 85 og 90 milljarðar króna. Baugur á fyrir 22 prósenta hlut í Big Food. Stjórn Big Food hefur lýst sig samþykka yfirtökuverðinu. 1.12.2004 00:01
Bankarnir spá hækkandi verðbólgu Bæði KB banki og Íslandsbanki hafa hækkað verðbólguspár sínar fyrir desember. Íslandsbanki spáir að hún hækki um 0,2%, meðal annars vegna hækkunar á áfengisskatti, og KB banki spáir að hún hækki um 0,3% vegna áfengisskattsins og óvæntrar hækkunar á bensíni hér á landi. Tólf mánaða verðbólguspá KB banka er nú komin upp í 3,7% en var 3,5%. 1.12.2004 00:01
Neitar meintu samráði Framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja vísar því á bug að viðskiptabankarnir hafi skipulagt samráð um hámark íbúðalána. Hann segir óeðlilegt að líkja starfi innan samtakanna við ólöglegt samráð olíufélaganna. 1.12.2004 00:01
Búist við vaxtahækkun Líklegt er að Seðlabankinn hækki stýrivexti í dag. Bankinn hefur gjarnan tilkynnt um hækkanir samhliða útgáfu á Peningamálum. Stýrivextir hafa hækkað um 1,95 prósentustig á þessu ári og eru nú 7,25 prósent. 1.12.2004 00:01
Bankarnir neita samráði Bankarnir eru í hatrammri samkeppni og ræða aldrei nokkurn tíman verð til viðskiptavina á sameiginlegum fundum sínum, fullyrðir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja og býðst til að sýna fundargerðir því til sönnunar. Bankastjórar fjögurra banka sitja saman í stjórn samtakanna. 1.12.2004 00:01
Nýtt boð styrkir stöðu Íslandsbank Íslandsbanki hefur hækkað boð sitt til hluthafa Bolig og Næringsbankans í Noregi. Íslandsbanki bauð upprunalega 320 krónur á hlut í bankanum, en hækkaði í gær boð sitt í 340 krónur á hlut. Með hærra boði tryggði Íslandsbanki sér stuðning 14 prósent hlutahafa í viðbót við þau 46 prósent sem þegar höfðu samþykkt. 30.11.2004 00:01
Jón stjórnarformaður Magasin du N. Jón Ásgeir Jóhannesson verður nýr formaður stjórnar dönsku verslunarkeðjunnar Magasin du Nord. Tillaga um nýja stjórn fyrirtækisins var kynnt í dönskum fjölmiðlum í morgun. Samkvæmt henni taka fimm Íslendingar sæti í stjórn þessarar rótgrónu 136 ára gömlu dönsku verslunarkeðju. 30.11.2004 00:01
Kaupin á Kredittbanken samþykkt Norska fjármálaeftirlitið hefur samþykkt kaup Íslandsbanka á norska bankanum Kredittbanken og á Íslandsbanki nú tæplega hundrað prósent í honum. Kredittbanken er ekki stór banki í Noregi en eins og fram er komið er Íslandsbanki líka að reyna að eignast BN bankann í Noregi sem er fjórði stærsti viðskiptabanki þar í landi. 30.11.2004 00:01
Tilboði Baugs verði tekið Stjórn bresku verslunarkeðjunnar Big Food Group ætlar að leggja til að tilboði Baugs í keðjuna verði tekið, jafnvel þótt það hafi verið lækkað umtalsvert frá upphaflega tilboðinu. Baugur bauð upphaflega 110 pens á hlut en eftir að hafa skoðað bókhald keðjunnar nánar var tilboðið lækkað niður í 95 pens á hlut. 30.11.2004 00:01
Verðhugmyndir upp á 40 milljarða Baugur komst skrefinu nær því að eignast breska stórfyrirtækið Big Food Group í dag. Stjórn fyrirtækisins lýsti því yfir opinberlega að kæmi tilboð upp á 95 pens á hlut yrði mælt með því og er Baugi gefinn frestur til 17. desember til að gera formlegt tilboð. Verðhugmyndirnar eru sem sagt rúmlega 40 milljarðar króna. 30.11.2004 00:01
Ríkið eignast Landsvirkjun Ríkið eignast hlut Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun á næsta ári gangi áætlanir sérstakrar eigendanefndar eftir. Hlutur Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun er að minnsta kosti þrjátíu milljarða króna virði. Samkvæmt heimildum fréttastofu gera áætlanir ráð fyrir því að Landsvirkjun verði að fullu komin í eigu ríkisins um þarnæstu áramót. 30.11.2004 00:01
Óvissa háir útveginum Óvissa um pólitísk afdrif kvótakerfisins eru meðal ástæðna þess að sjávarútvegsfyrirtækjum í Kauphöll Íslands hefur fækkað hratt á síðustu árum. Þetta segja sérfræðingar sem ávörpuðu ráðstefnu Kauphallarinnar í gær. 30.11.2004 00:01
Gengið sterkt Gengi íslensku krónunnar hefur ekki verið sterkara síðan í lok ársins 2000. Gengisvísitala krónunnar var 118 við lokun markaða í gær. Þetta er lægsta gildið frá því 6. nóvember árið 2000. 30.11.2004 00:01
Bankarnir höfðu samráð Viðskiptabankarnir höfðu samráð í fyrra um að hámarkslán til íbúðakaupa mætti ekki fara yfir 12 milljónir króna, annars væri hætta á verulegri ofþenslu. Þeir sammæltust einnig um gjaldskrá. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telur óeðlilegt að fjórir bankastjórar viðskiptabankanna sitji saman í stjórn Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja. 30.11.2004 00:01
Samið um verð á Big Food Group Samstaða hefur náðst milli Baugs og stjórnar Big Food Group um verð fyrir breska fyrirtækið. Baugur náði að lækka verðið umtalsvert. Helstu hindrunum sem stóðu í vegi kaupa Baugs hefur með samkomulaginu verið rutt úr vegi. </font /></b /> 30.11.2004 00:01
Eignast meirihluta í BN-bankanum Íslandsbanki hefur hækkað tilboð sitt í BN-bankann í Noregi og virðist hafa tryggt sér meirihluta hlutafjár, samkvæmt tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér í morgun. Þar segir að bankinn hafi nú þegar tryggt sér 46% hlutafjár og að hluthafar, sem ráði yfir 14% til viðbótar, ætli að samþykkja tilboð Íslandsbanka. 29.11.2004 00:01
Fastir vextir LSR-lána lækka Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga hafa lækkað fasta vexti LSR-lána í 4,15%, frá og með deginum í dag. Eftir sem áður er ekki gerð krafa um fyrsta veðrétt, ekki er krafist uppgreiðslugjalds þó lán sé greitt upp að hluta eða öllu leyti fyrir umsamda gjalddaga og vaxtakjör lánanna eru ótengd öðrum viðskiptum. 29.11.2004 00:01
Verðbólgan enn yfir markmiði SÍ Verðbólga er nú meiri hér á landi en í helstu viðskiptalöndum og hefur frá því í maí verið yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands, að því er fram kemur í markaðsyfirliti greiningardeildar Íslandsbanka. Verðbólgan mælist nú 3,8% samanborið við 2,5% á sama tíma í fyrra. 29.11.2004 00:01
Lánin verða að hækka Fasteignasalar búast við að útlánaþak Íbúðalánasjóðs hækki í minnst 13 milljónir króna um næstu áramót um leið og nýtt lánshlutfall upp á 90 prósent tekur gildi. 29.11.2004 00:01
Samstarf vegna ljósleiðaravæðingar Og Vodafone og Orkuveita Reykjavíkur hafa skrifað undir samning um samstarf vegna ljósleiðaravæðingar heimila og fyrirtækja í landinu. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að samningurinn feli í sér að Og Vodafone kaupi 67,76% hlut Orkuveitunnar í Línu.Neti en á sama tíma kaupir Orkuveitan ljósleiðaralagnir Og Vodafone. 29.11.2004 00:01
Latibær greiði í hlutabréfum Latibær ehf. var í dag dæmdur til að greiða Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins hlutabréf í fyrirtækinu að nafnvirði rúmlega 300 þúsund krónur. Sjóðurinn byggði kröfu sína á 20 milljóna króna láni til Latabæjarverkefnisins en í lánssamningnum voru ákvæði um að sjóðurinn hefði heimild til að krefjast hlutafjár í stað endurgreiðslu lánsins. 29.11.2004 00:01
Vodafone og OR í samstarfi Fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone, móðurfélag Norðurljósa og Fréttar, hefur keypt hlut Orkuveitu Reykjavíkur í Línu.neti og Orkuveitan hefur keypt ljósleiðarakerfi Og Vodafone. 29.11.2004 00:01
VÍS kaupir Vörð Vátryggingafélag Íslands hefur keypt Vörð Vátryggingafélag hf. og tekur við rekstri þess í dag. Kaupsamningar voru undirritaðir í gær og er kaupverðið trúnaðarmál. Seljandi Varðar er Hringur hf. en aðaleigandi þess félags er Baugur Group. 29.11.2004 00:01
Hætta við sameiningu Formenn stjórna Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) og Sparisjóðs vélstjóra (SPV) sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að hugmyndum um sameiningu sjóðanna hefði verið frestað. 26.11.2004 00:01
Slitnað gæti upp úr Ekki er ólíklegt að stjórnendur Big Food Group slíti viðræðum um yfirtöku Baugs á félaginu. Mikill ágreiningur er um yfirtökuverð á félaginu en í kjölfar áreiðaneikakönnunar. 26.11.2004 00:01
Vikuveltan 4,4 milljarðar Íbúðarlán bankanna virðist hafa kynnt all hressilega undir fasteignamarkaðinn en veltan í viðskiptinum með húsnæði á höfuðborgarsvæðinu hefur stóraukist. Samkvæmt morgunkorni greiningar Íslandsbanka var vikuveltan komin í 4,4 milljarða króna um miðjan mánuðinn en var um þrír milljarðar í lok ágúst. 25.11.2004 00:01