Fleiri fréttir

Verslunarmenn lækka vexti

Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur ákveðið að bjóða upp ný húsnæðislán með 4,3 prósenta vöxtum. Þetta eru 0,1 prósentustigi lægri vextir en íbúðalán viðskiptabankanna og 0,05 prósentustigum lægra en vextir Íbúðalánasjóðs.

Vanskil lækka

Vanskil einstaklinga og fyrirsækja hjá innlánsstofnunum hafa lækkað á þessu ári, samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu. Vanskil einstaklinga lækkuðu úr 5,5 prósentum um síðustu áramót í 4,6 prósent eftir fyrstu 6 mánuði ársins. Þá lækkuðu vanskil fyrirtækja úr 2,5 prósentum í 1,7 prósent, á sama tímabili. Vanskil lækkuðu í heild úr 3,1 prósenti í 2,2 prósent.

Greiðslukortavelta eykst

Greiðslukortavelta heimilanna hefur aukist verulega á þessu ári, á sama tíma og vanskil einstaklinga og fyrirtækja hjá bönkum og sparisjóðum hafa minnkað. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu hafa heildarvanskil hjá innlánastofnunum minnkað úr 3,1 prósenti um síðustu áramót í 2,2 prósent eftir fyrstu sex mánuði ársins.

Hagnaður ÍAV nam 214 milljónum

Hagnaður af rekstri Íslenskra Aðalverktaka á fyrstu sex mánuðum ársins 2004 að teknu tilliti til skatta nam 214 milljónum króna.

Tillögur um bætt viðskiptaumhverfi

Nefnd um íslenskt viðskiptaumhverfi sem viðskiptaráðherra skipaði í janúar hefur lokið störfum, en henni var ætlað að taka fyrir hvernig bregðast mætti við aukinni samþjöppun í íslensku viðskiptalífi og með hvaða hætti þróa ætti reglur þannig að viðskiptalífið væri skilvirkt og nyti trausts.

Varar við óðagoti í sölu Símans

Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður sendi frá sér ályktun í dag þar sem það varar við óðagoti við sölu Landssímans. Þá sé algert lykilatriði ef hann verður seldur að eignaraðild verði dreifð þannig að fólkið í landinu geti átt hlut í fyrirtækinu.

KB banki lækkar vexti enn frekar

KBbanki hefur ákveðið að lækka vexti á íbúðalánum niður í fjögur komma tvö prósent, og gildir það líka fyrir þá sem tekið hafa lán hjá bankanum með fjögurra komma fjögurra prósenta vöxtum.

SPRON og SPV lækka vexti

Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis og Sparisjóður Vélstjóra hafa báðir lækkarð vexti á íbúðalánum sínum niður í 4,2%.

Landsbankinn bætist í hópinn

Landsbankinn hefur bæst í hóp þeirra viðskiptabanka í dag sem lækkað hafa vexti íbúðalána úr 4,4% í 4,2%. Vaxtalækkun þessi gildir einnig fyrir þá sem undanfarna daga hafa tekið lán með 4,4% vöxtum.

Fjármálaeftirlit fær gögn

Fjármálaeftirlitið hefur fengið gögn frá Landsbankanum vegna rannsóknar á viðskiptum Burðaráss með hlutabréf í Íslandsbanka.

Bankar lækka vexti enn frekar

Langflestir viðskiptabankanna hafa nú lækkað vexti af lánum til íbúðakaupa niður í 4,2 prósent. Lækkunin kom í kjölfar þess að Lífeyrissjóður verslunarmanna hellti sér í slaginn um lántakendur og bauð lán með 4,3 prósenta vöxtum.

Bætir mjög stöðu hluthafa

Samkeppnisstofnun verður skipt upp, stjórnarformanni hlutafélags verður bannað að starfa jafnframt að framkvæmdastjórn sama fyrirtækis og réttur minnihluta verður efldur, samkvæmt tillögum sem viðskiptaráðherra hyggst setja í lagafrumvörp í því skyni að auka traust á íslensku viðskiptalífi.

Gjaldeyrislánin hefðu borgað sig

Hópur háskólanema á Bifröst segir að það hefði borgað sig fyrir lántakendur að vera með gjaldeyrislán fremur en verðtryggð íslensk lán á síðustu tíu árum. Þeir sem nýta sér þann kost þurfa þó að fylgjast vel með þróun lánanna.

Uppoð á útlánamarkaði

KB banki ýtti nýrri skriðu lækkana af stað í gær þegar hann lækkaði vexti sína í 4,2 prósent. Sífellt erfiðara verður fyrir smærri fjármálafyrirtæki að fylgja eftir. Aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík telur rökin fyrir tilvist Íbúðalánasjóðs farin.

Vextir á lánum ennþá hærri hér

Vextir á íbúðalánum hér á landi eru enn mun hærri en í nágrannalöndunum, þrátt fyrir vaxtalækkun síðustu viku, sé mið tekið af verðtryggingu lána. Vaxtalækkun á húsnæðislánum síðustu vikuna hefur mælst vel fyrir og hefur verið nóg að gera hjá viðskiptabönkunum við að afgreiða umsóknir um húsnæðislán.

Tekjur af þjónustu aukast

Þjónustugreinarnar eru farnar að nálgast hlutfall gjaldeyristekna sem sjávarútvegur aflar. 3,7 prósentustiga aukning varð á gjaldeyristekjum þjóðarinnar af þjónustustarfsemi í fyrra og var þá 36,6% af heildargjaldeyristekjum. Gjaldeyristekjur sjávarútvegs var 39,5% af heildargjaldeyristekjum á síðasta ári.

Hagnaður Flugstöðvar eykst

Hagnaður Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. eftir skatta var 176 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2004, sem er veruleg hækkun frá sama tímabili í fyrra, þegar hagnaðurinn nam 101 milljón króna.

Íslandsbanki lækkar vexti

Íslandsbanki lækkar verðtryggða vexti helstu inn- og útlánaforma um 0,5 prósentustig frá og með 1. september.

Skoða Fróða

Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, segir að óformlegar viðræður hafi átt sér stað milli Norðurljósa og Fróða áður en Prentsmiðjan Oddi keypti Fróða.

Skriðan ekki farin af stað

Svo virðist sem nýir lánakostir viðskiptabankanna hafi orðið til þess að fólk íhugi nánar en áður þá möguleika sem í boði eru. Að mati Hákons Róberts Jónssonar fasteignasala er þó engin uppsveifla komin af stað í sölu eigna.

Vanskil minnka

Vanskil í íslenska lánakerfinu voru 2,2 prósent af heildarútlánum í lok júní í ár. Um áramót var vanskilahlutfallið 3,1 prósent.

Vextir þeir hæstu í Evrópu

Þrátt fyrir vaxtalækkanir fullyrðir formaður Neytendasamtakanna að vextir á lánum til íbúðarkaupa hér á landi séu þeir hæstu í Evrópu. Hann kennir verðtryggingu um.

Fengu 400 milljónir í milli

Orkuveitan seldi sjötíu prósenta hlut sinn í Línu.net á 280 milljónir til Og Vodafone. Orkuveitan keypti síðan sex prósenta hlut Og Vodafone í ljósleiðarakerfinu á milli sjö og átta hundruð milljónir króna. Og Vodafone fékk því milli fjögur og fimm hundruð milljónir króna þegar gengið var frá viðskiptunum.

Skulda skýringar á viðskiptunum

Viðskipti Orra Vigfússonar og Burðaráss með ríflega fimm prósenta hlut í Íslandsbanka voru undir núverandi gengi bankans. Viðskiptin voru gerð upp á grundvelli framvirks samnings frá því í febrúar.

Hagnaður MP 420 milljónir

Hagnaður MP Fjárfestingarbanka á fyrri hluta ársins nam 511,7 milljónum króna miðað við 247,7 milljónir allt árið í fyrra. Hagnaður eftir skatta var 421,4 milljónir króna.

Vextir Íbúðalánasjóðs lækka

Vextir Íbúðalánasjóðs lækka nú um mánaðamótin niður í 4,35 prósent, sem eru 0,05 prósentustigum lægri vextir en viðskiptabankarnir hafa boðið síðustu daga, og 0,15 prósentustigum lægra en vextir Íbúðalánasjóðs eru nú.

Hagnaður Samherja

Hagnaður Samherja á fyrri helmingi ársins nam um 1.100 milljónum króna, en hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 460 milljónir króna. Hagnaður án afskrifta og fjármagnsliða nam 1.120 milljónum króna, afskrifaðar voru 554 milljónir, en hlutur í hagnaði annarra félaga nam 573 milljónum króna.

Vextir lífeyrissjóða lækka einnig

Lægri vextir Íbúðalánsjóðs og viðskiptankanna verða til þess að lífeyrissjóðirnir lækka vexti til sinna sjóðsfélaga.

KB banki gagnrýnir Íbúðalánasjóð

KB banki gagnrýnir Íbúðalánasjóð harkalega fyrir að hafa íbúðabréfaútboð sín lokuð. Bankinn segir að þetta minnki trúverðugleika sjóðsins og fæli frá erlenda fjárfesta. 

Lífeyrissjóður lækkar vexti

Stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna hefur ákveðið að lækka vexti af lánum til sjóðfélaga í 4,3% úr 4,83% að því er fram kemur á heimasíðu Landsamtaka lífeyrissjóða. Vaxtabreytingin tekur bæði til nýrri sem eldri lána. Í tilkynningunni segir að ákvörðun þessi sé tekin í kjölfar lækkunar á langtímalánum bankanna. 

Engin samkeppni án Íbúðalánasjóðs

Íbúðalánasjóður lækkaði í gær vexti niður fyrir tilboð bankanna. Hallur Magnússon segir að samkeppnin á lánamarkaði í dag sé vegna tilvistar Íbúðalánasjóðs. Sjóðurinn sé því ekki óþarfur.

Efast um bolmagn bankanna

Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði efast um getu bankanna til að bjóða 4,4 prósent vexti. Nefnir sérstaklega Sparisjóðinn. Sparisjóðsstjóri undrast ummælin. </font /></b />

Bréf lækkuðu um 9 prósent

Hlutabréf í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, féllu hratt í viðskiptum fyrir opnun markaða í gær. Þetta gerðist í kjölfar yfirlýsingar um að endurskoðunarfyrirtækið Pricewaterhouse Coopers væri hætt að starfa fyrir DeCode.

Vextir Íbúðalánasjóðs lækka

Vextir á lánum Íbúðalánasjóðs lækka um mánaðarmótin og það stefnir í að þeir verði lægri en 4,4 prósenta vextirnir, sem viðskiptabankarnir bjóða. Óvíst er hvort bankarnir grípa til vaxtalækkana í kjölfarið.

Sprengja inn á lánamarkaðinn

Hafinn er harður slagur um viðskipti einstaklinga við bankana. Lántakendur hafa nú tækifæri til þess að endurfjármagna lán sín á betri kjörum. Ný lán KB banka hafa sett lánamarkað einstaklinga á annan endann

Sparisjóður Hfn í slaginn

Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur nú bæst í slaginn um þá sem þurfa lán til íbúðakaupa. Í fréttatilkynningu frá Sparisjóðnum kemur fram að hann bjóði nú viðskiptavinum sínum íbúðarlán með 4,4% föstum, verðtryggðum vöxtum til allt að 40 ára.

Hagnaður Kögunar

Hagnaður Kögunar eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins nemur því 174 m.kr. Hagnaður Kögunar á öðrum ársfjórðungi nam 90 milljónum króna samanborið við 43 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra, skamkvæmt hálf fimm fréttum KB banka.

Óvíst um lækkun vaxta nýju lánanna

Ný lán bankanna hafa þegar haft áhrif á ávöxtunarkröfu á markaði til lækkunar. Hækkandi stýrivextir vinna á móti og ekki víst að vextir bankanna lækki frekar í bráð. Nýju lánin styðja við fasteignaverð og örva einkaneyslu.

Varar við lánafylleríi

Ráðgjafi hjá Fjármálum heimilanna varar við lánafylleríi í kjölfar nýrra íbúðalána viðskiptabankanna. Þá undrast hann að enn skuli bankarnir bjóða viðskiptavinum sínum verðtryggð neytendalán, og segir slíkt hvergi tíðkast nema hér á landi.

Fagnar lækkun vaxta langtímalána

Bankastjóri Seðlabankans segir það fagnaðarefni að vextir langtímalána lækki í landinu. Seðlabankinn hyggst þó fylgjast grannt með áhrifunum enda sé viss hætta á aukinni þenslu, viðskiptabankar gætu verið að taka áhættu og Íbúðalánasjóður lent í erfiðleikum.

Orri selur til Burðaráss

Eignarhaldsfélagið Urriði sem er í eigu Orra Vigfússonar hefur selt allan hlut sinn í Íslandsbanka. Kaupandi er Burðarás, en Orri keypti hlutinn af þeim með framvirkum samningi. Búið var að ganga frá samningnum, en um helgina var gengið frá kaupum Burðaráss á hlutnum á ný.

Kaupir Landsbankinn Íslandsbanka?

Grunur um að Landsbankamenn hafi áhuga á að kaupa Íslandsbanka þykir hafa styrkst eftir viðskipti morgunsins. Fjárfestingarfélagið Burðarás er nú fimmti stærsti hluthafi Íslandsbanka með fimm og hálfs prósents hlut.

Vextir endurskoðaðir í september

Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, segir ákvörðun verða tekna um það á næstunni hvort vöxtum á sjóðslánum verði breytt til samræmis við breytingar í húsbréfakerfinu. "Ég á heldur von á því að það verði í næsta mánuði sem við sjáum hvað tekur við í þessu," segir hann.

Launavísitalan hækkað um 5,1%

Hagstofan birti í dag launavísitölu fyrir júlí og hækkaði hún um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,1% en á sama tímabili hækkaði vísitala neysluverðs um 3,6%.

KB banki býður íbúðarlán

KB banki býður nú lán til íbúðarkaupa eða endurfjármögnunar eldri lána. Íbúðalán KB banka bera 4,4 prósent fasta vexti og er lánshlutfall á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri áttatíu prósent af verðmæti hinnar veðsettu eignar en sextíu prósent annars staðar á landinu. Lánin eru verðtryggð og bjóðast til 25 eða 40 ára.

Sjá næstu 50 fréttir