Viðskipti innlent

Sprengja inn á lánamarkaðinn

Verðstríð er í uppsiglingu á lánamarkaði til einstaklinga. Ný lán KB banka með 4,4 prósenta vöxtum munu ýta af stað skriðu sem ekki er séð fyrir endann á . "Þetta er sprengja inn á lánamarkaðinn," segir Jafet Ólafsson, forstjóri Verðbréfastofunnar. Fundir voru í öllum helstu fjármálastofnunum í gær til þess að skoða viðbrögð við nýju útspili. Stjórnendur Íbúðalánasjóðs héldu fund sama dag og KB banki kynnti lánin. Innan Íbúðalánasjóðs eru ekki teljandi áhyggjur af þróuninni. Þar telja menn þessa óvæntu samkeppni tímabundna. KB banki haf einfaldlega nýtt sér bilið fram til þess að 90% lán taki gildi, auk þess að hafa veðjað á að vextir muni áfram fara lækkandi. Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði segir hlutverk Íbúðalánasjóðs að veita bönkunum aðhald á markaði. Hjá sjóðnum gráti menn ekki þótt markaðshlutdeildin minnki eitthvað. "Okkur líst mjög vel á það að íslenskir bankar treysti sér núna til þess að bjóða vexti sem nálgast íbúðalánasjóð. KB banki veðjar á það að vextir almennt muni lækka. Það er alveg ljóst að langtímavextir á skuldabréfum hafa lækkað vegna breytinga og endurskipulagningar á skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs. Við erum að sjá þennan árangur af vinnu okkar undanfarna sex til átta mánuði." Hann segir Íbúðalánasjóð ekki grípa til sérstakra ráðstafana vegna þessa, heldur muni sjóðurinn fylgja ávöxtunarkröfu markaðarins. Jafet segir þegar merki þess að útspil KB banka sé farið að hafa áhrif á markaðinn til lækkunar. "Þetta er mjög ánægjuleg þróun og með þessu áframhaldi munum við sjá svipaða ávöxtunarkröfu á íbúðalán og gerist í nágrannalöndunum." Ávöxtunarkröfu sem er víða á bilinu 3 til 3,5 prósent. KB banki hefur skilgreint markhópinn sinn í þessum lánum. Margir sem keyptu íbúðahúsnæði á fyrrihluta hækkunartímabilsins hafa myndað yfir 20 prósenta eign í henni, þrátt fyrir 100 prósent lántöku í upphafi. Mismunurinn var fjármagnaður með dýrari lánum. Fyrir þennan hóp er hagkvæmt að sameina lánin í eitt lán með 4,4 prósenta vöxtum og spara töluverðan vaxtakostnað. Þótt miðað sé við fyrsta veðrétt íbúðarhúsnæðis, skiptir bankinn sér ekki af því hvað gert er við peningana. "Ég sé fyrir mér að eldra fólk sem á dýrar skuldlausar eignir muni nýta sér þetta til þess að losa um fé, án þess að flytja úr húsnæðinu," segir Jafet. Samkeppninni verður svarað. Stíf fundahöld hafa verið í Landsbankanum og Íslandsbanka vegna útspils KB banka. KB banki nýtir stærð sína með nýju lánunum. Flestir sérfræðingar telja að ávöxtunarkrafa sé á niðurleið. Bankinn getur því nýtt innlán og eigið fé til að mæta nýjum útlánum. Síðan getur hann sótt sér fé á móti þeim lánum þegar það hentar með skuldabréfaútboði. Með nýju lánunum gefst viðskiptavinum í fyrsta sinn tækifæri til þess að endurfjármagna húsnæðislán sín. Menn geta því nú þegar lækkað greiðslubyrði sína og vaxtakostnað. Á móti eru vextirnir fastir til langs tíma og menn geta ekki stokkið út úr lestinni á ferð, þótt vextir lækki enn frekar. Sama gildir auðvitað um hækkun. Endurfjármögnun íbúðalána er vel þekkt erlendis. Hér á landi tekur ríkið stimpilgjöld af lánum einstaklinga. Fyrirtæki fara í kringum þetta með lánasamningum. Ef lánamarkaður einstaklinga er að verða virkari, þá eru stimpilgjöldin farin að vinna á móti þróun í átt að hagstæðari kjörum. Íslandsbanki stendur betur að vígi í að svara KB banka en Landsbankinn. Landsbankinn er með verra lánshæfismat en Íslandsbanki og markaðurinn setur hærra álag á þeirra bréf. Báðir munu þó verja hlutdeild sína með kjafti og klóm og elta lánakjör KB banka. Harðnandi samkeppni mun bitna á afkomu bankanna og þjónustu við einstaklinga. Jafet segir að bankarnir verði að svara KB banka. Því lengur sem þeir dragi að svara því verra fyrir þá. Sparisjóðirnir munu eiga erfitt uppdráttar í kjölfarið. Þeir þurfa að borga hærra verð fyrir grunnfjármagn sitt en bankarnir munu bjóða bestu viðskiptavinum. Spron er þeirra stærstur og Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri segir að sparisjóðurinn muni bjóða sínum viðskiptavinum sambærileg kjör. Harðnandi samkeppni mun ýta á eftir hagræðingarþróun í fjármálakerfinu. Aftur eru menn farnir að ræða upphátt um hugsanlega sameiningu Íslandsbanka og Landsbankans. Þá munu sparisjóðirnir ekki lifa þessa þróun af nema leita leiða til þess að hagræða og sameinast.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×