Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ábyrgur vegna skuldar - ekki kynnt greiðslumat Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að fasteignarveðsetning ábyrgðarmanns vegna skuldar fyrrverandi tengdarsonar síns væri ekki ógild þrátt fyrir að ábyrgðarmanninum hefði ekki verið kynnt greiðslumat á skuldara. 1.6.2012 21:38
Hiti á alþingi vegna kvótamálsins Þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu stjórnarliða um forkastanleg vinnubrögð í kvótamálinu á alþingi í morgun. Önnur umræða um frumvarp um breytingar á veiðigjöldum hófst í dag þrátt fyrir mótmæli framsóknar- og sjálfstæðismanna. Atvinnuveganefnd Alþingis afgreiddi frumvarp um breytingar á veiðgjöldum úr nefnd á þriðjudag. Önnur umræða um málið hófst svo á þriðja tímanum í dag. 1.6.2012 19:22
Jarðgangaframkvæmdum verði flýtt í krafti veiðigjalda Miðað við samgönguáætlun sem nú er til afgreiðslu á Alþingi verður framkvæmdum við Norðfjarðargöng flýtt um eitt og hálft ár og Dýrafjarðargöngum um tvö og hálft ár. Þetta verður mögulegt þar sem hluta sérstaks veiðigjalds verður varið til samgöngumála, nánar tiltekið 2,5 milljörðum króna á ári allt fram til ársins 2022. 1.6.2012 18:42
"Mótum framtíðina" - Kauphöllin opnar nýja vefsíðu Kauphöllin (NASDAQ OMX Iceland) hefur opnað nýja vefsíðu á bæði íslensku og ensku. Vefsíðan eru hluti af átakinu "Mótum framtíðina" en hún er ætluð sem upplýsingasíða fyrir innlenda sem erlenda fjárfesta, fyrirtæki og áhugafólk um íslenska markaðinn. 1.6.2012 16:41
Viðskiptajöfnuður neikvæður um 43,1 milljarð Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 43,1 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 46,7 ma.kr. fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 18,5 ma.kr. en 5,1 ma.kr. halli var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 56,5 ma.kr. 1.6.2012 16:25
Hlutabréfamarkaðir taka dýfu Hlutabréfamarkaðir í Evrópu og Bandaríkjunum hafa brugðist illa við nýjum atvinnuleysistölum sem birtar voru í dag. Í Evrópu er meðaltalsatvinnuleysi nú um 11 prósent og í Bandaríkjunum mælist það 8,2 prósent, en í apríl mældist það 8,1 prósent. 1.6.2012 16:13
Atvinnuleysi eykst í Bandaríkjunum Samkvæmt nýjustu tölum atvinnumálaráðuneytis Bandaríkjanna mældist atvinnuleysi í landinu 8.2 prósent í síðasta mánuði. Er þetta 0.1 prósentustigi meira en í apríl. 1.6.2012 14:02
Reginn ætlar sér að vaxa hratt Fasteignafélagið Reginn, sem er að fullu í eigu Landsbankans, verður skráð á hlutabréfamarkað um miðjan júní. Um er að ræða aðra nýskráningu félags frá bankahruni og fyrsta fasteignafélagið sem fer aftur á markað. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá miklum vaxtarmöguleikum, samkeppni og slæmum fjárfestingum í geiranum fyrir bankahrun. 1.6.2012 14:00
Röskun á þjónustu Facebook Röskun varð á þjónustu samskiptamiðilsins Facebook í dag. Fjöldi fólks hafði ekki aðgang að gögnum sínum í allt að tvær klukkustundir. 1.6.2012 12:54
Svigrúm til lækkunar eldsneytisverðs Talsmenn íslensku olíufélaganna segja að félögin hafi verið búin að lækka álagningu niður úr öllu valdi áður en heimsmarkaðsverðið fór að lækka í dag, þannig að það sé ekki fyrr en upp úr þessu að svigrúm skapist til lækkunar hér á landi. 1.6.2012 12:32
Óttar Pálsson: "Óheppilegt, svo vægt sé til orða tekið“ Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar fyrir endurskoðendur hafa í vegamiklum atriðum ekki verið innleiddir í íslensk lög, og það er vægt til orða tekið óheppilegt. Þetta kom fram í erindi Óttars Pálssonar hæstaréttarlögmanns á fundi í höfuðstöðvum Price Waterhouse Coopers í morgun. 1.6.2012 12:18
Tilraunaútgáfa Windows 8 opinberuð Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, fer í almenna sölu seint í haust, rúmum þremur árum eftir að Windows 7 fór á markað. Fyrirtækið hefur nú birt nýjustu útgáfu stýrikerfisins á heimasíðu sinni. 1.6.2012 12:03
Skuldatryggingaálag Íslands aftur yfir 300 punkta Skuldatryggingaálag Íslands fór yfir 300 punkta í morgun en slíkt gerðist síðast í janúar s.l. Mælist álagið nú 304 punktar. 1.6.2012 11:04
Íslendingar greiða mest allra þjóða með kortum og netinu Íslendingar eru sú þjóð í heiminum sem notar mest af greiðslukortum og netið til að borga reikninga sína. Íslendingar eru jafnframt í hópi þeirra þjóða sem nota hvað minnst af reiðufé í viðskiptum sínum. 1.6.2012 08:44
Mesta atvinnuleysi á evrusvæðinu frá því mælingar hófust Atvinnuleysi á evrusvæðinu mælist nú 11% og hefur ekki verið meira síðan að mælingar á því hófust árið 1995. 1.6.2012 10:09
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli Heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið í frjálsu falli í morgun. Verðið á Brent olíunni er komið rétt undir 100 dollara og hefur ekki verið lægra síðan í febrúar í fyrra. 1.6.2012 09:34
Viðskipti með atvinnuhúsnæði jukust um 3 milljarða Viðskipti með atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu jukust um rúma 3 milljarða kr. milli mars og apríl s.l. Kaupsamningum fækkaði hinsvegar töluvert. 1.6.2012 09:04
Ekkert lát er á verðlækkunum á olíu Ekkert lát er á verðlækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu. Sérfræðingar reikna með að sú þróun haldi áfram fram á sumarið. 1.6.2012 07:22
Töluverð lækkun á álverði síðustu mánuði Heimsmarkaðsverð á áli hefur lækkað töluvert undanfarna þrjá mánuði og stendur nú í rúmum 2.000 dollurum á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Í byrjun mars stóð verðið hinsvega í 2.350 dollurum á tonnið. 1.6.2012 07:04
Kostnaður við 10% niðurfellingu húsnæðislána er 124 milljarðar Verði farið í 10% niðurfellingu á höfuðstóli húsnæðislána mun það kosta 124 milljarða króna. 1.6.2012 06:52
Fjármagnsflóttinn frá Spáni nam 11.000 milljörðum í maí Spánverjar hafa sent tugi milljarða evra úr landi á undanförnum mánuði vegna ótta um að bankakerfi landsins sé að hruni komið. 1.6.2012 06:45
Húsleit Seðlabanka ekki ólögmæt Hæstiréttur hafnaði í gær kröfu Samherja og tengdra félaga um að húsleit og haldlagning Seðlabankans á gögnum á tveimur starfsstöðvum samstæðunnar yrðu dæmdar ólögmætar og að Seðlabankanum yrði gert að skila öllum haldlögðum og afrituðum gögnum. 1.6.2012 06:30
Búið að borga um helming af Icesave Þrotabú Landsbankans á 122 milljarða króna umfram forgangskröfur, sem nema 1.323 milljörðum króna. Þetta kom fram á kröfuhafafundi sem haldinn var í gærmorgun. Þar kynnti slitastjórn bankans kröfuhöfum stöðu eignasafns hans í lok fyrsta ársfjórðungs 2012. Matið miðast við gengi íslensku krónunnar 22. apríl 2009. Í kynningunni kom einnig fram að raunaukning á virði eigna búsins hafi verið tæpir 77 milljarðar króna frá lokum árs 2011. Sé veiking krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum heims tekin með í reikninginn nemur aukningin á þessu þriggja mánaða tímabili 117 milljörðum króna. 1.6.2012 06:15
Landsbankinn var á móti kaupum bræðranna Hópur hluthafa Í Bakkavör Group var á móti því að bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir myndu fá að kaupa allt að 25 prósenta hlut í félaginu í gegnum hlutafjáraukningu fyrir um fjóra milljarða króna. Kaupverðið er töluvert undir matsvirði Bakkavarar Group, en hlutafé félagsins er talið 20-40 milljarða króna virði. Á móti myndi hlutur annarra hluthafa þynnast út. 1.6.2012 04:30
Myndi kosta hundruð milljarða Tíu prósenta niðurfærsla allra húsnæðislána myndi kosta 124 milljarða króna og 25 prósenta niðurfærsla kostaði 310 milljarða. Stærstur hluti kostnaðarins myndi falla á Íbúðalánasjóð, eða 67 til 167 milljarðar eftir atvikum. Þá myndu innlánsstofnanir bera 40 til 99 milljarða kostnað og lífeyrissjóðirnir 18 til 44 milljarða. 1.6.2012 03:30
Slagurinn um stjórn fiskveiða enn eftir Frumvarp til heildarlaga um stjórn fiskveiða verður tekið fyrir í atvinnuveganefnd Alþingis í dag. Það hefur fallið nokkuð í skuggann af umræðunni um veiðigjaldafrumvarpið, en útlit er fyrir að engu minni ágreiningur verði að þessu sinni. „Ef ósætti er um veiðigjaldafrumvarpið, þá er enn meira ósætti um þetta stóra frumvarp,“ segir Einar K,. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í atvinnuveganefnd. 1.6.2012 02:30
Góður ársfjórðungur hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hagnaðist um 5,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi ársins. Til samanburðar var hagnaður bankans 3,6 milljarðar á sama ársfjórðungi síðasta árs en alls hagnaðist bankinn um 29,4 milljarða í fyrra. Rekstrarniðurstaða bankans verður að teljast góð í ljósi helstu arðsemishlutfalla. Var arðsemi eigin fjár á ársfjórðungnum þannig 17,7 prósent og arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi 15,1 prósent. Sömu hlutföll voru hvor tveggja 11,0 prósent á síðasta ári. Sérstaka athygli vekur að þóknanatekjur bankans jukust um 23 prósent miðað við sama fjórðung í fyrra en þóknanatekjur hafa verið hlutfallslega litlar hjá bönkunum frá bankahruni. 1.6.2012 02:15