Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tækifærin fólgin í að fá ferðamenn til þess að eyða meira Háannatímabil ferðaþjónustunnar er nú að hefjast en næstum helmingur allra ferðamanna sem heimsækir Ísland ár hvert kemur til landsins yfir sumarmánuðina. Gögn frá Datamarket sýna að tækifærin í ferðaþjónustunni séu ekki endilega fólgin fjölgun ferðamanna, heldur frekar að fá þá til þess að eyða meiru. 5.6.2012 20:30
Óákveðið hverjir fá kauprétt hjá Eimskip Ekki hefur endanlega verið ákveðið hvaða lykilstjórnendur Eimskipafélagsins munu fá kauprétt á hlutum í félaginu. Virði þessa fornfrægafélags er metið á tugi milljarða, ríflega þremur mánuðum áður en það verður skráð á markað. 5.6.2012 12:24
Microsoft frumsýnir Xbox SmartGlass Hin árlega E3 tölvuleikjaráðstefna stendur nú sem hæst í Los Angeles. Þar gefst tölvuleikjaframleiðendum tækifæri á að ræða við viðskiptavini sína og spilara og kynna helstu nýjungar sínar. 5.6.2012 11:37
FME samþykkir ferli WDI um kaup á hlutafé Össurar hf. Fjármálaeftirlitið (FME) hefur samþykkt það ferli sem danska félagið William Demant Invest (WDI) ætlar að nota til að gera öðrum hluthöfum í Össuri hf. valfrjálst tilboð í alla hluti þeirra. 5.6.2012 10:34
Afgangur af vöruskiptum hrundi í maí Afgangur af vöruskiptum landsins hrundi í maí s.l. Afgangurinn nam aðeins 200 milljónum króna en í maí í fyrra nam hann 6,8 milljörðum króna. Frá hruni hefur afgangur af vöruskiptum ætíð mælst í milljörðum en ekki milljónum í hverjum mánuði. 5.6.2012 09:07
Valitor vísitalan hækkaði um 5,2% milli ára í maí Valitor vísitalan hækkaði um 5,2% í maí s.l. samanborið við maí í fyrra. Valitor birtir mánaðarlega samanburð á veltutölum milli ára sem sýna breytingar á tilteknu tímabili á notkun íslenskra Visa kreditkorta. 5.6.2012 09:31
Landsbankinn selur 2% hlut í Hampiðjunni Landsbankinn hefur selt 2% hlut í Hampiðjunni að undangengnu útboði sem lauk í gærdag að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. 5.6.2012 08:59
Gjaldeyrisveltan tæpir 15 milljarðar í maí Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam nær 14,8 milljörðum kr. í maí s.l. sem er 145,6% aukning frá fyrra mánuði. 5.6.2012 07:58
Hlutabréf, olíuverð og evran í uppsveiflu Vísitölur á mörkuðum í Asíu í nótt hækkuðu í fyrsta sinn í fimm daga. Nikkei vísitalan í Tókýó og Hang Seng vísitalan í Hong Kong hækkðu báðar um tæplega 0,9%. 5.6.2012 06:45
91 samningi þinglýst á viku Alls var 91 kaupsamningi þinglýst á höfuðborgarsvæðinu á milli 25. og 31. maí. Á vef Þjóðskrár segir að 65 samningar hafi verið um eignir í fjölbýli, 23 um sérbýli og þrír um aðrar eignir en íbúðarhúsnæði. 5.6.2012 04:30
Facebook gæti lækkað lágmarksaldur Talið er að samskiptamiðillinn Facebook muni brátt lækka lágmarksaldur notenda sinna. Þannig munu börn yngri en 13 ára fá aðgang að síðunni, þó aðeins undir eftirliti forráðamanns. 4.6.2012 22:15
Lagaleg umgjörð endurskoðunar óljós Lagaleg staða endurskoðunar er um margt óljós þar sem alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hafa ekki verið innleiddir í íslensk lög. ,,Þetta er óheppilegt, svo vægt sé til orða tekið," sagði Óttar Pálsson hæstaréttarlögmaður á fundi um ábyrgð endurskoðenda á föstudag. 4.6.2012 19:00
Lykilstjórnendur fá hundruð milljóna í vasann Lykilstjórnendur Eimskipafélagsins fá kauprétt að hlut í félaginu sem nemur þremur og hálfu prósenti af heildarhlutafé félagsins. Virði þess hlutar hleypur a.m.k. á hundruðum milljóna króna, en til stendur að skrá félagið á markað síðar á þessu ári. 4.6.2012 18:30
Umboðsmaður skuldara myndi fagna breytingum sem hraða málum "Að sjálfsögðu vildi ég sjálf að þetta gengi hraðar fyrir sig," segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara um verkefni embættisins. Jóhanna Sigurðardóttir lýsti yfir ákveðnum vonbrigðum með hægagang hjá umboðsmanni skuldara á Alþingi í dag og taldi fulla ástæðu til að kanna hvort mætti endurskoða starfsemi embættisins. 4.6.2012 16:29
Lægsta atvinnuleysið í Austurríki Atvinnuleysið í Evrópu mælst minnst í Austurríki um þessar mundir, en það mælist nú 3,9 prósent. Það á eftir koma Lúxemborg og Holland en þar mælist atvinnuleysið 5,2 prósent, samkvæmt nýjum opinberum upplýsingum Hagstofu Evrópu, Eurostat. 4.6.2012 14:52
Friðfinnur Ragnar neitar sök í innherjamáli Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárstýringar Glitnis, lýsti yfir sakleysi sínu í dag, þegar mál sérstaks saksóknara gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Friðfinnur er ákærður fyrir innherjasvik, en honum er gefið að sök í ákæru að hafa selt hlutabréf sín í Glitni fyrir um 20 milljónir, er hann vissi um að bága stöðu bankans. 4.6.2012 14:16
„Þrír mánuðir til að bjarga evrunni.“ Viðskiptajöfurinn og góðgerðamaðurinn George Soros segir þjóðarleiðtoga ESB hafa þrjá mánuði til að bjarga evrunni. Hann telur að efnahagur Þýskalands muni byrja að veikjast í haust. Þar með verði erfiðara fyrir Angelu Merkel að beita sér og styðja aðrar þjóðir. 4.6.2012 13:43
ÍLS býður upp á óverðtryggð lán síðsumars Íbúðalánasjóður hyggst hefja lánveitingar á óverðtryggðum lánum í lok sumars, en endanleg útfærsla á þeim lánum liggur ekki fyrir. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir að fólk þurfi að vera meðvitað um að óverðtryggð geti reynst þung í skauti fyrir þá sem hafa spennt bogann hátt. 4.6.2012 12:15
Skúli: Bensínlækkunin skref í rétta átt Íslensk olíufélög hafa lækkað verð á bensínu um allt að 5 krónur síðan fyrir helgi. "Það er skref í rétta átt, en þetta brúar engan veginn það bil sem ég var að tala um," segir Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingar, sem hefur bent á að álagning íslenskra olíufélaga sé allt að tvöfalt hærri en þekkist á norðurlöndunum. 4.6.2012 11:43
Ein hola stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja Olíuborun sem er að hefjast í færeysku lögsögunni eftir tíu daga verður stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja til þessa. Mikil spenna ríkir meðal Færeyinga og ríkir bjartsýni um að nú hylli loksins undir að þeir verði olíuþjóð enda hefur aldrei verið lagt jafn mikið undir og nú. Áætlað er að borun einnar holu kosti yfir 20 milljarða króna og á verkið að taka fjóra til fimm mánuði, 4.6.2012 11:30
Endurskipulagning hjá Fasteign, leiga lækkar um 50% Hluthafafundur Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. hefur samþykkt samkomulag milli félagsins og kröfuhafa þess er varðar fjárhagslega endurskipulagningu. Leigugreiðslur munu lækka um allt að 50% fyrstu árin eftir Þessa endurskipulagningu. 4.6.2012 10:05
Iceland Express á réttum tíma Allar ferðir Iceland Express voru á réttum tíma í fyrri hluta maímánaðar. Seinni tvær vikurnar voru allar brottfarir á tíma og aðeins einni komu seinkaði, eftir því sem fram kemur á vef Túrista. 4.6.2012 09:06
Ferrari GTO frá 1962 er dýrasti bíll sögunnar Eplagrænn Ferrari 250 GTO frá árinu 1962 er orðinn dýrasti bíll sögunnar. Hann var seldur á uppboði um helgina fyrir rúmlega 4,5 milljarða króna. 4.6.2012 07:26
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka og er tunnan af Brent olíunni komin undir 97 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin undir 82 dollara. Hefur verðið á Brent olíunni ekki verið lægra síðan snemma á síðasta ári. 4.6.2012 06:56
Evrópumarkaðir opna með rauðum tölum Markaðir í Evrópu opnuðu í morgun með rauðum tölum og fylgdu þar með í fótspor Asíumarkaða í nótt. 4.6.2012 09:21
SUS vill að ríkið selji Landsvirkjun Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) vill að ríkið selji Landsvirkjun og hætti ekki frekari skattpeningum í áhættusamar fjárfestingar í orkugeiranum. 4.6.2012 09:04
Niðursveifla á mörkuðum í Asíu Hlutabréfaeigendur í Asíu hlutu skell á mörkuðum þar í nótt. Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um 2% og hefur gildi hennar ekki verið lægra í 28 ár en vísitalan hefur stöðugt lækkað undanfarnar níu vikur. Hang Seng vísitalan í Hong Kong lækkaði einnig um 2%. 4.6.2012 06:58
Kýpur í miklum efnahagsvanda Kýpur er í miklum efnahagsvanda og færist nær því að þiggja hjálp úr björungarsjóðum Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að því er greint var á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. 3.6.2012 22:49
Samningaviðræður um dýrasta hótel landsins langt komnar Samningaviðræður við forsvarsmenn svissnesks fjárfestingafélags um byggingu hótelbyggingar við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu eru langt komnar, en Marriot-hótelið sem rísa mun á svæðinu, verður langdýrasta hótel landsins. 3.6.2012 18:44
Íbúðalánasjóður á hausinn ef húsnæðislán verða lækkuð um 20 prósent Íbúðalánasjóður yrði gjaldþrota og ríkið þyrfti að leggja sjóðnum til meira en hundrað milljarða ef húsnæðislán yrðu lækkuð um tuttugu prósent. 2.6.2012 20:12
Skúli og Baldur ætla að þjóna farþegum Tveir helstu stjórnendur WOW Air, Skúli Mogensen stjórnarformaður og Baldur Oddur Baldursson forstjóri, þjónuðu flugfarþegum í jómfrúarflugi félagsins til Parísar á fimmtudagsmorgun. 2.6.2012 16:54
Vafi á fordæmisgildi gengislánadóms Hæstaréttar eykst Héraðsdómur Vesturlands komst 22. maí síðastliðinn að þeirri niðurstöðu að Arion banka hefði verið heimilt að endurreikna gengislán aftur í tímann samkvæmt vöxtum Seðlabankans þrátt fyrir að fullnaðarkvittanir hafi legið fyrir vegna afborgana. 2.6.2012 05:45
Kannast ekki við íhlutun ESB Efnahags- og viðskiptaráðuneyti kannast ekki við að ESB hafi blandað sér með beinum hætti "með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs“ í umræður um áhrif ESB-aðildar í hans málaflokkum. 2.6.2012 05:30
19 milljónir í ESB umfjöllun EvrópumálAlþingi hefur úthlutað styrkjum að upphæð 19 milljónir króna til að stuðla að „opinberri og upplýstri umræðu og fræðslu" um ESB. Styrkjum er skipt jafnt milli ESB-sinna og ESB-andstæðinga. 2.6.2012 05:00
Hættir milligöngu um meðlagsgreiðslur Tryggingastofnun ríkisins mun ekki lengur hafa milligöngu um greiðslu meðlags til einstaklinga sem eru búsettir í öðrum EES-ríkjum. Í frétt á vef Tryggingastofnunar segir að um 45 einstaklinga sé að ræða. 2.6.2012 03:30
Vendipunktur með hagvexti Efnahagslífið í Danmörku er á uppleið á ný eftir samdráttarskeið, en 0,3% hagvöxtur var í landinu á fyrsta fjórðungi, samkvæmt nýjum hagtölum. Vöxturinn er vissulega hóflegur og hefur ekki mikil áhrif á atvinnulífið, en sérfræðingar líta á þetta sem ákveðinn vendipunkt. Danskt efnahagslíf hefur verið í mikilli lægð síðustu misseri þar sem atvinnuleysi, skuldir heimila og hrun húsnæðismarkaðarins hafa valdið ugg. 2.6.2012 03:30
Undrandi á að ullin sé send út til Kína Þórir N. Kjartansson fráfarandi framkvæmdastjóri Víkurprjóns er undrandi á því að íslensk ull sé send til útlanda til framleiðslu á lopapeysum. „Það er ekki vöntun á handprjónuðum lopapeysum á Íslandi,“ segir Þórir. Þórir telur að gróðavon og græðgi stjórni því að menn flytji ullina til útlanda til framleiðslu: 2.6.2012 03:15
Allir vildu hækka vexti Samhljómur var í peningastefnunefnd Seðlabankans um að myndarleg hækkun vaxta væri nauðsynleg við síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar þann 16. maí. Einn nefndarmaður vildi hækka vexti um 0,75 prósentur en fjórir um 0,5 prósentur. Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar vegna vaxtaákvörðunarinnar. Í fundargerðinni kemur einnig fram að versnandi verðbólguhorfur voru meginrökin fyrir hækkun vaxta. Hækkun myndi styðja við gengi krónunnar og stemma stigu við verðbólguþrýstingi frá vinnumarkaði.- mþl 2.6.2012 03:00
Írar samþykktu fjármálasáttmála ESB Almenningur á Írlandi hefur samþykkt fjármálasáttmála ESB. Yfir 60% þeirra sem greiddu atkvæði studdu sáttmálann, sem á að að koma á stöðuleika á evrusvæðinu. 1.6.2012 23:29
Ábyrgur vegna skuldar - ekki kynnt greiðslumat Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að fasteignarveðsetning ábyrgðarmanns vegna skuldar fyrrverandi tengdarsonar síns væri ekki ógild þrátt fyrir að ábyrgðarmanninum hefði ekki verið kynnt greiðslumat á skuldara. 1.6.2012 21:38
Hiti á alþingi vegna kvótamálsins Þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu stjórnarliða um forkastanleg vinnubrögð í kvótamálinu á alþingi í morgun. Önnur umræða um frumvarp um breytingar á veiðigjöldum hófst í dag þrátt fyrir mótmæli framsóknar- og sjálfstæðismanna. Atvinnuveganefnd Alþingis afgreiddi frumvarp um breytingar á veiðgjöldum úr nefnd á þriðjudag. Önnur umræða um málið hófst svo á þriðja tímanum í dag. 1.6.2012 19:22
Jarðgangaframkvæmdum verði flýtt í krafti veiðigjalda Miðað við samgönguáætlun sem nú er til afgreiðslu á Alþingi verður framkvæmdum við Norðfjarðargöng flýtt um eitt og hálft ár og Dýrafjarðargöngum um tvö og hálft ár. Þetta verður mögulegt þar sem hluta sérstaks veiðigjalds verður varið til samgöngumála, nánar tiltekið 2,5 milljörðum króna á ári allt fram til ársins 2022. 1.6.2012 18:42
"Mótum framtíðina" - Kauphöllin opnar nýja vefsíðu Kauphöllin (NASDAQ OMX Iceland) hefur opnað nýja vefsíðu á bæði íslensku og ensku. Vefsíðan eru hluti af átakinu "Mótum framtíðina" en hún er ætluð sem upplýsingasíða fyrir innlenda sem erlenda fjárfesta, fyrirtæki og áhugafólk um íslenska markaðinn. 1.6.2012 16:41
Viðskiptajöfnuður neikvæður um 43,1 milljarð Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 43,1 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 46,7 ma.kr. fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 18,5 ma.kr. en 5,1 ma.kr. halli var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 56,5 ma.kr. 1.6.2012 16:25
Hlutabréfamarkaðir taka dýfu Hlutabréfamarkaðir í Evrópu og Bandaríkjunum hafa brugðist illa við nýjum atvinnuleysistölum sem birtar voru í dag. Í Evrópu er meðaltalsatvinnuleysi nú um 11 prósent og í Bandaríkjunum mælist það 8,2 prósent, en í apríl mældist það 8,1 prósent. 1.6.2012 16:13