Óákveðið hverjir fá kauprétt hjá Eimskip Magnús Halldórsson skrifar 5. júní 2012 12:24
Ekki hefur endanlega verið ákveðið hvaða lykilstjórnendur Eimskipafélagsins munu fá kauprétt á hlutum í félaginu. Virði þessa fornfrægafélags er metið á tugi milljarða, ríflega þremur mánuðum áður en það verður skráð á markað. Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í gær munu lykilstjórnendur Eimskipafélags Íslands fá kauprétt í félaginu sem nemur um þremur og hálfu prósenti af heildarhlutafé. Miðað við það virði sem hluthafar í félaginu, sem eru ríflega 70, hafa fengið kynningu á að undanförnu þá er virði félagsins metið á bilinu 25 til 39 milljarðar króna. Reksturinn hefur tekið algjörum stakkaskiptum eftir að endurskipulagningu lauk, en eiginfjárhlutfall félagsins er nú ríflega 60 prósent og var rekstrarhagnaðurinn ríflega milljarður króna á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta fornfræga félag, sem stundum hefur verið nefnt flaggskip íslensks atvinnulífs, verður skráð á markað á nýjan leik í septembermánuði, gangi áform stjórnar Eimskipafélagsins eftir. Ekki liggur enn fyrir hvaða lykilstjórnendur munu fá kauprétt á hlutum í félaginu, né heldur hvernig kaupin verða útfærð, þ.e. á hvaða gengi stjórnendurnir fá að kaupa hlutina eða hvort þeir fá hlutina jafnvel án greiðslu, eins og dæmi eru um. Frekari útlistun á þessu kaupréttarkerfi, og fleiri þáttum í rekstri félagsins, mun þó liggja fyrir þegar skráningarlýsingargögn verða lögð fram, skömmu áður en félagið verður skráð á markað, í septembermánuði.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira