Viðskipti innlent

Umboðsmaður skuldara myndi fagna breytingum sem hraða málum

BBI skrifar
Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, segir mörg ljón hafa verið í veginum í starfi umboðsmanns.
Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, segir mörg ljón hafa verið í veginum í starfi umboðsmanns.
„Að sjálfsögðu vildi ég sjálf að þetta gengi hraðar fyrir sig," segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara um verkefni embættisins. Jóhanna Sigurðardóttir lýsti yfir ákveðnum vonbrigðum með hægagang hjá umboðsmanni skuldara á Alþingi í dag og taldi fulla ástæðu til að kanna hvort mætti endurskoða starfsemi embættisins.

„Ég sjálf og allir mínir starfsmenn eru alla daga að leita lausna til að flýta málum," segir Ásta og bendir á að vandinn er gríðarlega mikill og flækjustig meira en hægt var að sjá fyrir í upphafi. Sömuleiðis minnir hún á að embættið er ekki orðið tveggja ára, vinni eftir nýrri löggjöf og það taki tíma að þjálfa upp starfsfólk.

„En ef það koma fram einhverjar breytingar sem flýta málum enn frekar mun ég bara fanga því," segir Ásta. „Glöggt er gests augað."

Greiðsluaðlögun er helsta verkefni Umboðsmanns skuldara. Það úrræði hefur aldrei verið til áður á Íslandi. Embættinu hafa borist yfir 4000 umsóknir um greiðsluaðlögun. „Þetta bara tekur sinn tíma," segir Ásta.

„Að sjálfsögðu búumst við við árangri fljótlega. Ég væri ekki í þessu starfi nema af því ég hef trú á því. En þetta hefur verið tafsamara en við bjuggumst við í upphafi," segir hún að lokum.

Bjarni Benediktsson spurði um skulda mál heimilanna í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Hann viðraði sérstaklega þá skoðun sína að Umboðsmaður skuldara væri ekki að skila nægum árangri miðað við það fjármagn sem lagt er í embættið.

„Embættinu eru veittar um 1000 milljónir af fjárlögum á ári hverju. Helst fréttist það af þeirri stofnun að þar séu langar raðir og það gerist allt afskaplega hægt," sagði Bjarni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×