Vafi á fordæmisgildi gengislánadóms Hæstaréttar eykst 2. júní 2012 05:45 Dómur Héraðsdóms Vesturlands frá því 22. maí eykur vafa á fordæmisgildi gengislánadóms Hæstaréttar frá 15. febrúar. Málið kann þó að koma til kasta Hæstaréttar síðar.Fréttablaðið/GVA
Héraðsdómur Vesturlands komst 22. maí síðastliðinn að þeirri niðurstöðu að Arion banka hefði verið heimilt að endurreikna gengislán aftur í tímann samkvæmt vöxtum Seðlabankans þrátt fyrir að fullnaðarkvittanir hafi legið fyrir vegna afborgana. Lánið sem um ræðir var veitt til Borgarbyggðar en niðurstaða dómsins bendir til þess að fordæmisgildi gengislánadóms Hæstaréttar frá 15. febrúar kunni að vera lítið. Til skoðunar er hvort áfrýja á málinu til Hæstaréttar. Forsaga málsins er sú að Borgarbyggð tók gengislán hjá Sparisjóði Mýrasýslu í árslok 2006 en síðar tók Arion banki yfir skuldbindingar sparisjóðsins. Í kjölfar dóma Hæstaréttar um ólögmæti gengislána var lán Borgarbyggðar endurreiknað aftur í tímann eins og hagstæðustu vextir Seðlabankans hefðu gilt um það í stað samningsvaxta. Í málinu krafðist Borgarbyggð þess hins vegar að samningsvextir yrðu látnir gilda þar sem afborganir sveitarfélagsins hefðu talist fullnaðargreiðslur. Sem kunnugt er komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu í dómi frá 15. febrúar að Frjálsa fjárfestingarbankanum hefði í ákveðnu máli verið óheimilt að krefjast hærri vaxtagreiðslna en sem nam samningsvöxtum af gengislánum aftur í tímann þar sem fullnaðarkvittun vegna afborgana hefði legið fyrir. Dómur Hæstaréttar féll í máli einstaklinga gegn fjármálastofnun og við nokkuð sértæka málavexti. Þá fólst í honum undantekning frá þeirri meginreglu kröfuréttar að kröfuhafi, sem fengið hefur minna greitt en hann átti rétt til, eigi kröfu á hendur skuldara um það sem er vangreitt. Síðan dómurinn féll hefur því verið nokkur óvissa um fordæmisgildi hans og þá ekki síst með tilliti til lána fyrirtækja og opinberra aðila. Dómur Héraðsdóms Vesturlands varpar enn frekari vafa á fordæmisgildi dóms Hæstaréttar en þar sem málið hefur ekki verið tekið fyrir í Hæstarétti er óvarfærið að draga of margar ályktanir af honum. Mál Borgarbyggðar gegn Arion banka er það fyrsta þar sem reynt er á fordæmisgildi dómsins. Sérstaka athygli vekur að í niðurstöðu dóms Héraðsdóms Vesturlands er minnst á að líta verði til þess að stefnandi sé opinber aðili og því þyki ekki sá aðstöðumunur vera á milli aðila að efni séu til þess að bankinn beri einn áhættuna af ólögmæti gengislánanna. Að sögn Páls S. Brynjarssonar, sveitarstjóra Borgarbyggðar, er til skoðunar hjá sveitarfélaginu að áfrýja dómnum til Hæstaréttar en ekkert hefur verið ákveðið. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira