Viðskipti innlent

Kortaveltan jókst um 6,7% á fyrri helmingi ársins

Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar til júní í ár um 6,7% miðað við sama tímabil í fyrra.

Kreditkortavelta heimila jókst um 8,5% í janúar-júní í ár miðað við sama tímabil í fyrra. Debetkortavelta jókst um 4,8% á sama tíma.

Þetta kemur fram í hagvísum Hagstofunnar. Greiðslukortavelta Íslendinga erlendis jókst um 23,3% en erlend greiðslukortavelta hérlendis jókst um 13,3% í janúar- júní í ár miðað við sömu mánuði árið áður.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 2,8% sem veldur 3,8% raunhækkun á innlendri greiðslukortaveltu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×