Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framleiðni í heiminum mest í Noregi Norðmenn eru á toppnum í framleiðni meðal þjóða heims, samkvæmt rannsókn Alþjóða vinnumálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þar er miðað við vinnu per klukkustund. Norðmenn eru talsvert ofar en Bandaríkjamenn og Frakkar, sem koma næst á eftir þeim. Bandaríkjamenn vinna hinsvegar flestar klukkustundir á ári. 4.9.2007 11:03
Lækkun á evrópskum mörkuðum Lækkun varð á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í morgun eftir samfelldar hækkanir í fjóra daga í röð. Fréttastofa Reuters segir að fjárfestar haldi að sér höndum þar sem von er á nýjum upplýsingum um ástand bandaríska hagkerfisins. 4.9.2007 10:33
Candover framlengir yfirtökutilboð í Stork Breska fjárfestingafélagið Candover hefur framlengt samþykkisfrest hluthafa í hollenska félaginu Stork vegna yfirtökutilboðs Candover í allt hlutafé Stork. Tilboð Candover-manna hljóðar upp á 1,5 milljarða evra og gildir framlengt tilboð til 18. september. 4.9.2007 09:59
Þriðja kynslóð farsíma tekin í notkun Þriðju kynslóðar farsímakerfi var formlega tekið í notkun á Íslandi þegar Síminn kynnti 3G-þjónustu sína í gær. Helstu nýjungarnar sem 3G-tæknin felur í sér eru þríþættar: Móttaka sjónvarpsútsendinga, tenging við internet með allt að 7,2 megabita hraða og myndsímtöl þar sem viðmælendur sjá hvor annan meðan á símtali stendur. 4.9.2007 00:01
Stærsti banki Evrópu kaupir ráðandi hlut í kóreskum banka Stjórn HSBC Holdings banka, stærsta banka Evrópu, ákvað í dag að kaupa 51 prósenta hlut í kóreska bankanum Korea Exchange Bank. Fyrir hlutinn greiðir HSBC rúma 400 milljarða króna. 3.9.2007 21:52
Hagnaður Alfesca jókst um 87 prósent Hagnaður Alfesca nam 22,4 milljónum evra, jafnvirði tæpra tveggja milljarða íslenskra króna, á síðasta ári, sem lauk í enda júní. Árið þar á undan nam hagnaðurinn 12 milljónum evra og jafngildir þetta að hann hafi aukist um 87 prósent á milli ára. 3.9.2007 20:50
Straumur skráir hlutafé í evrum fyrst íslenskra fyrirtækja Stjórn Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka ákvað á fundi sínum í dag að skrá hlutafé bankans í evrum í stað íslenskra króna frá og með 20. september. Með þessu verður Straumur fyrsta íslenska fyrirtækið til að skrá hlutafé sitt í erlendri mynt. 3.9.2007 17:15
Úrvalsvísitalan lækkaði í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan lækkaði lítillega við lokun viðskipta í Kauphöllinni í dag. Þetta er takti við þróun á erlendum hlutabréfamörkuðum sem legið hafa beggja vegna núllsins. Gengi bréfa í Icelandair Group hækkaði verulega fyrri hluta dagsins, um rúm fimm prósent þegar mest lét, en tók að dala eftir því sem leið á. Gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri hækkaði mest, eða um 1,99 prósent. 3.9.2007 16:06
Sjónvarpsfrelsi Sjónvarps- eða vídeóflakkari kallast heitasta heimilistækið í dag. Hvern langar ekki til að fylgjast með framhaldsþáttaröð án þess að þurfa að bíða í viku eftir næsta þætti? Ansi marga… og það er þess vegna sem svokallaðir vídeóflakkarar verða vinsælli með hverjum mánuðinum sem líður. 3.9.2007 15:15
NBC slítur samstarfi við Apple NBC Universal hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Apple iTunes um sölu á stafrænu niðurhali sjónvarpsþátta þar sem ekki náðist samkomulag um verðlag. 3.9.2007 14:45
Digital-tónlist í Nokia Símarisinn Nokia svipti hulunni af eigin tónlistarverslun á dögunum, en hægt verður að heimsækja búðina í gegnum nýjan netaðgang, sem kallast Ovi, sem þýðir „dyr“ á finnsku. Nokia hyggur einnig á framboð leikja í gegnum aðganginn. 3.9.2007 14:30
Mús og fjarstýring Logitech hefur framleitt tölvumús sem er líka fjarstýring. Eftir því sem hlutverk tölvunnar verður viðameira í lífi fólks fleygir tækninni fram og allt er reynt til að hafa hlutina sem einfaldasta fyrir notandann. 3.9.2007 14:15
Apple og Volkswagen í samstarf við iCar Heyrst hefur að Apple-tölvufyrirtækið og bílaframleiðandinn Volkswagen séu í viðræðum um að búa til iCar sem myndi vera búinn ýmsum tæknikostum frá Apple. Talsmaður Volkswagen staðfesti að framkvæmdastjórar fyrirtækjanna hefðu hist í Kaliforníu á dögunum og kastað á milli sín hugmyndum en ekkert væri ákveðið enn. 3.9.2007 13:51
Metmánuður hjá OMX í óróanum Nýliðinn ágústmánuður var metmánuður hjá norrænu OMX-kauphöllinni en Kauphöll Íslands heyrir undir hana. Eftir því sem fram kemur á danska viðskiptafréttavefnum Börsen urðu rúmlega 214 þúsund viðskipti að meðaltali á dag í OMX-kauphöllinni á ágúst. 3.9.2007 13:34
Spá óbreyttum vöxtum hjá Seðlabankanum á fimmtudag Greiningardeild Glitnis spáir því að stjórn Seðlabanka Íslands breyti ekki stýrivöxtum á fimmtudag en þá verður ákvörðun þar um kynnt. Stýrivextir eru nú 13,3 prósent og hefur Seðlabankinn haldið þeim óbreyttum frá því í desember í fyrra. 3.9.2007 11:43
Grænt ljós á kaup Straums í Tékklandi Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt kaup Straums-Burðarássá 50 prósenta hlut í tékkneska fjárfestingabankanum Wood & Company. Straumur keypti hlutinn í júní með kauprétt að eftirstandandi hlutum eigi síðar en árið 2011. 3.9.2007 10:39
Nýr stjóri yfir bjórbrugginu Jørgen Buhl Rasmussen hefur ráðinn forstjóri danska bjórframleiðandans Carlsberg. Hann tekur við af Nils Smedegaard Andersen í byrjun næsta mánaðar en í júní var Andersen ráðinn yfir danska skiparisanum A.P. Möller-Mærsk, eins stærsta skipafélags í heimi. Jess Søderberg, fráfarandi forstjóri skipafélagsins, ætlar hins vegar að setjast í helgan stein. 3.9.2007 10:22
Storebrand kaupir líftryggingahluta Handelsbanken Norska tryggingafélagið Storebrand hefur keypt líftryggingahluta sænska bankans Handelsbanken. Kaupverð nemur 18 milljörðum sænskra króna, tæplega 166 milljörðum íslenskra króna. Kaupþing og Exista saman rúman fjórðungshlut í Storebrand.Storebrand stefnir að því að veita líftryggingar sænska bankans í Noregi. 3.9.2007 09:32
Stoðir eignast Keops Íslenska fasteignafélagið Stoðir Group hefur tryggt sér 96,7 prósent hlutabréfa í stærsta fasteignafélagi Danmerkur á markaði, Keops, eftir því sem segir í tilkynningu frá Keops. Stoðir gerðu tilboð í félagið fyrr í sumar og var hluthöfum í Keops boðið 24 danskar krónur á hlut í félaginu eða hlutabréf í Stoðum. 3.9.2007 09:28
Glitnir kaupir norskt fasteignafélag Glitnir Property Holding í Noregi hefur náð samkomulagi um kaup á norska fasteignafélaginu BSA og stefna félögin að því að verða leiðandi í ráðgjöf og fjármögnun í fasteignaviðskiptum í Noregi. BSA er jafnframt með starfsemi í Þýskalandi.Eignir sameinaðra fyrirtækja nema 2,7 milljörðum evra, jafnvirði tæpra 235 milljarða íslenskra króna. 3.9.2007 09:12
Heimsmarkaðsverð á hveiti hækkar um 30% Heimsmarkaðsverð á hveiti hefur hækkað um 30% í ágúst og segir blaðið The Financial Times að þetta sé mesta hækkun á hveiti í einum mánuði síðan í ágúst 1973. Það er einkum mikil eftirspurn í Bandaríkjunum eftir þessari vöru sem hefur keyrt verðið upp. 2.9.2007 11:41
Fjárfestar þurfa ekki einir að taka á vandanum Fjárfestar tóku við sér í Bandaríkjunum í gær eftir að Bush Bandaríkjaforseti og Bernanke seðlabankastjóri fullvissuðu þá um að þeir yrðu ekki látnir einir um að leysa vandamál sem skapast hafa á fjármálamörkuðum vegna vanskila húsnæðislána. 1.9.2007 12:01
FME í Svíþjóð rannsakar innherjaviðskipti í tengslum við slaginn um OMX Sænska Fjármálaeftirlitið hefur fundið sannanir fyrir hugsanlegum ólöglegum innherjaviðskiptum með hlutabréf í norrænu kauphöllinni OMX. Þetta kom upp við rannsókn á hinni fjandsamlegu yfirtökutilraun kauphallarinnar í Dubai á OMX. Upplýsingarnar hafa verið sendar efnahagsbrotadeild sænsku lögreglunnar að því er segir í blaðinu The Financial Times. 1.9.2007 10:49
Viðurkenning á fjárstyrk Existu Exista hefur tekið 500 milljóna evra sambankalán, eða sem nemur rúmum 43 milljörðum króna, til endurfjármögnunar á eldra láni. 1.9.2007 07:00
Rúmlega tvöfaldur hagnaður Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu nam tæpum 2,4 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Þetta er rúmlega tvöfalt meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra þegar hann nam 921 milljón króna. 1.9.2007 06:30
Frekara strandhögg hjá LÍ? Gengi hlutabréfa í Landsbankanum náði hæsta gildi frá upphafi í gær vegna orðróms á markaði um að bankinn ætli sér að kaupa írska sparisjóðinn Irish Nationwide sem er í söluferli. Markaðsvirði Landsbankans stendur í 464 milljörðum og er gengið 41,45 krónur á hlut. 1.9.2007 06:00
LME hefur náð 43,3 prósentum Eignarhlutur LME, eignarhaldsfélags Landsbankans, Marel og Eyris Invest, í Stork í Hollandi er nú 43,3 prósent. LME hefur markvisst aukið hlut sinn í Stork, en Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris, segir að með því sé sýnd langtímaskuldbinding gagnvart samstæðunni. 1.9.2007 05:45
SPRON komið yfir hagnað síðasta árs Sparisjóðurinn hagnaðist yfir tíu milljarða á fyrri hluta ársins. Hreinar rekstrartekjur þrefölduðust á milli ára en hreinar vaxtatekjur drógust saman um þriðjung. 1.9.2007 05:30