Fleiri fréttir Reynt hefur á þanþol hagstjórnarinnar Forsætisráðherra hafnar túlkunum á nýrri hagspá Seðlabankans í þá veru að hörð lending sé um það bil að eiga sér stað í efnahagslífinu. Þá segir hann ekki annað á boðstólum en að viðhalda krónunni sem gjaldmiðli, hvað sem síðar kunni að verða. 4.4.2007 00:01 Litháen er Ítalía Eystrasaltsins Áhugi Söndru Bruneikaité á norrænni menningu og tungumálum leiddi hana til Íslands um síðustu aldamót. Hún hafði hlotið styrk til að nema íslensku við Háskóla Íslands frá íslenska menntamálaráðuneytinu. Þegar hún hafði lokið tveimur önnum, og styrkurinn uppurinn, tók hún ákvörðun um að verða um kyrrt. Tveimur árum síðar útskrifaðist hún með BA-próf í íslensku. 4.4.2007 00:01 Stórt skref stigið í samrunaferlinu Félögin 25 sem hér eru skráð í Kauphöll fóru inn á samnorrænan lista OMX-kauphallasamstæðunnar við opnun markaðarins á mánudag og verða eftirleiðis kynnt með sænskum, finnskum og dönskum félögum á aðalmarkaði Nordic Exchange. 4.4.2007 00:01 Búist við lækkun á lánshæfismati íslensku bankanna Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir að Moody's Investors Service lækki lánshæfismat íslensku bankanna í dag. Moodys var gagnrýnt í febrúarmánuði þegar það kynnti breytta aðferðarfræði við mat banka. Þá hækkaði lánshæfismat íslensku bankanna í hæstu mögulega einkunn fyrir langtímaskuldbindingar eða í Aaa. 3.4.2007 17:32 Viðsnúningur á fasteignamarkaði vestra Sala á fasteignamarkaði jókst um 0,7 prósent á milli mánaða í febrúar. Þetta er þvert á spár greinenda, sem gerður ráð fyrir því því að sala myndi dragast saman annan mánuðinn í röð. Til samanburðar féll sala á fasteignamarkaði um 4,2 prósent í Bandaríkjunum í janúar. Tölurnar eiga ekki við um kaup á nýrri fasteign heldur kaup á eldri íbúðum. 3.4.2007 16:25 Rússar vilja Alitalia Rússneska flugfélagið Aeroflot, sem er að stærstum hlut í eigu rússneska ríkisins, er sagt ætla að leggja fram kauptilboð í 39,9 prósenta hlut ítalska ríkisins í ítalska flugfélaginu Alitalia. Ítalski bankinn Unicredit er sagður standa að kaupunum ásamt Aeroflot. 3.4.2007 15:37 Glitnir spáir 37 prósenta hækkun Úrvalsvísitölunnar Horfur í rekstri félaga í Kauphöllinni eru almennt ágætar og má gera ráð fyrir að áframhald verði á hækkun hlutabréfaverðs í ár, jafnvel meira en í fyrra. Gangi þetta eftir hækkar Úrvalsvísitalan um 37 prósent árinu. Þetta kemur fram í nýrri afkomuspá greiningardeildar Glitnis fyrir árið, sem kom út í dag. 3.4.2007 15:06 Festa skilaði 18,8 prósenta ávöxtun Nafnávöxtun Festu lífeyrissjóðs var 18,8 prósent á árinu 2006, sem jafngildir 11,3 prósenta raunávöxtun. Í árslok 2006 var hrein eign til greiðslu lífeyris rúmir 48,6 milljarðar og hækkaði hún um 23,4 prósent á milli ára. Stjórn lífeyrissjóðsins mun á næsta aðalfundi leggja til að áunnin réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega verði aukin um 4 prósentum frá og með 1. janúar á þessu ári. 3.4.2007 13:26 Eignastaða heimilanna aldrei betri Heildarskuldir heimilanna við lánakerfið allt námu 1.325 milljörðum króna í lok síðasta árs. Þar af námu skuldir við innlánsstofnanir 708 milljónum króna. Þetta er 241 milljón meira en heimilin skulduðu við árslok árið 2005. Greiningardeild Glitnis segir hreina eignastöðu heimilanna aldrei hafa verið betri en nú. 3.4.2007 11:05 7.000 manns sagt upp í Hollandi Hollenska póstfyrirtækið TNT Post ætlar að segja upp 7.000 manns. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja ekki annan kost í stöðunni til að bregðast við aukinni samkeppni sem hafi skilað sér í samdrætti hjá fyrirtækinu. 3.4.2007 09:20 Kjarrhólmi eignast 37 prósent í TM Kjarrhólmi hefur keypt alla eignarhluti Fjárfestingarfélagsins Grettis og Landsbankans í TM, alls 35,37 prósent. Kjarrhólmi eignaðist til viðbótar 2,2 prósenta hlut og fer því með 37,57 prósenta hlut í tryggingafélaginu. Kaupverð allra bréfanna nam tæpum 19,4 milljörðum króna. 3.4.2007 09:17 Hætt við yfirtöku á þýsku raforkufyrirtæki Þýski orkurisinn E.On hefur dregið til baka yfirtökutilboð sitt í spænska raforkufyrirtækið Endesa. Yfirtökutilboðið, sem hljóðaði upp á 42,3 milljarða evrur, 3.740 milljarða íslenskra króna, var afar umdeilt og lenti meðal annars inni á borði framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 2.4.2007 20:23 Hráolíuverð lækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði í dag eftir nokkra hagnaðartöku fjárfesta á helstu mörkuðum. Olíuverðið er þó enn yfir 65 bandaríkjadölum á tunnu. Verðið tók kipp uppá við eftir að sjóliðar voru handteknir á Persaflóa á föstudaginn fyrir rúmri viku. 2.4.2007 16:33 Eimskip opnar nýja skrifstofu á Ítalíu Eimskip opnar aðra skrifstofu sína í Genúa á Ítalíu í dag, 2. apríl. Opnun skrifstofunnar er liður í markvissri uppbyggingu Eimskips í Evrópu og miðast að því að styrkja enn frekar stöðu félagsins á ítalska markaðnum, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 2.4.2007 16:24 Viðsnúningur hjá Nýsi Fasteignafélagið Nýsir hf og dótturfélög þess skiluðu 450,6 milljóna króna tapi á síðasta ári samanborið við 1.623 milljóna króna hagnað árið 2005. Helsta ástæðan eru gengisbreytingar og mikill vaxtakostnaður af framtíðarfjárfestingum á Íslandi og erlendis sem ekki eru farnar að skila fullri arðsemi, að því er segir í uppgjöri félagsins. 2.4.2007 12:56 Minna tap hjá Pliva Króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva tapaði rétt tæpum 35,2 milljónum dala, jafnvirði 2,3 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Til samanburðar nam tap fyrirtækisins tæpum 92 milljónum dala, tæplega 6,1 milljarði króna, árið á undan. Bandaríska lyfjafyrirtækið Barr keypti Pliva síðastliðið haust á 2,4 milljarða bandaríkjadali eða 170,5 milljarða íslenskra króna eftir harða samkeppni við Actavis um félagið. 2.4.2007 11:41 Fögnuðu inngöngu íslenskra fyrirtækja í OMX-kauphöllina Því var fagnað með formlegum hætti í Kauphöll Íslands nú um klukkan tíu að þau 25 fyrirtæki sem skráð eru á markað hér á landi yrðu hluti af hinum norræna OMX-hlutabréfamarkaði. Það þýðir meðal annars að félögin ganga inn í vísitölur OMX-hallarinnar, bæði hvað varðar almennan markað og einstakar greinar norræns atvinnulífs. 2.4.2007 10:40 Íslensk fyrirtæki verða hluti af OMX-markaðnum Frá og með deginum í dag verða þau 25 fyrirtæki sem skráð eru á markað hér á landi hluti af sameiginlegri skráningu á hinum norræna OMX-hlutabréfamarkaði. 2.4.2007 09:39 Tilboð í Sainsbury fyrir vikulok Fjárfestahópurinn CVC mun leggja fram að minnsta kosti 10 milljarða punda, jafnvirði um 1.300 milljarða íslenskra króna, yfirtökutilboð í bresku verslanakeðjuna Sainbury fyrir lok þessarar viku. Þetta staðhæfðu breskir fjölmiðlar um helgina. 2.4.2007 07:00 Indverjar hækka stýrivexti Seðlabanki Indlands ákvað undir lok síðustu viku að hækka stýrivexti um fjórðung úr prósentustigi og standa vextirnir nú í 7,75 prósentum. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem bankinn hækkar stýrivexti í þeim tilgangi að halda aftur af verðbólgu. Stýrivextir á Indlandi hafa ekki verið hærri í tæp fjögur og hálft ár. 2.4.2007 06:00 Veltan í Kauphöllinni nam 350 milljörðum Heildarvelta í Kauphöll Íslands í nýliðnum mánuði nam 350 milljörðum króna og nemur heildarvelta ársins nú 1.329 milljörðum. Þetta er þriggja prósenta aukning frá sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Hlutabréfavelta jókst um 18 prósent á milli ára en velta á skuldabréfamarkaði dróst saman. 2.4.2007 05:15 Kaplan handtekinn eftir sjö mánaða leit Gary Stephen Kaplan, stofnandi breska netveðmálafyrirtækisins BetonSports, var handtekinn í Dóminíska lýðveldinu í Karabíska hafinu á miðvikudag. Hann er í ellefu manna hópi sem sakaður er um fjárdrátt, svindl og skattundanskot. 31.3.2007 15:36 Hannes krafði Einar um formannsstólinn Þremur vikum eftir aðalfund gerði Hannes Smárason kröfu um að Einar Sveinsson viki fyrir sér sem stjórnarformaður Glitnis. Ágreiningur stærstu hluthafa snýst ekki um stefnu eða forstjóra bankans, sem vill valddreifingu í stjórninni. 31.3.2007 08:15 Gengið til kosninga 31.3.2007 06:00 Miklar breytingar kölluðu á viðbrögð Davíð Oddsson seðlabankastjóri fagnar því að aukin skuldsetning heimila hafi ekki skilað sér í þyngri greiðslubyrði og að vanskil séu í lágmarki. Um leið segir hann Seðlabankann hafa áhyggjur af því að ýmsir kunni að hafa reist sér hurðarás um öxl, eða teflt á mjög tæpt vað. 31.3.2007 05:45 Hækka áunnin réttindi Rekstur Almenna lífeyrissjóðsins gekk með miklum ágætum árið 2006 og hækkuðu áætlaðar eftirlaunagreiðslur sjóðsins að meðaltali um fjórðung á árinu og allt að þrjátíu prósent. Lagt er til að ellilífeyrisgreiðslur og áunnin réttindi í tryggingadeild hækki um fjögur prósent. Nafnávöxtun Ævisafns 1 nam um 22 prósentum en aðrar ávöxtunarleiðir voru með um 10-21 prósenta ávöxtun. 31.3.2007 05:30 Kista kaupir meira Kista-fjárfestingarfélag jók hlut sinn í Existu úr 2,67 prósentum í 6,25 prósent og er þar með orðið annar stærsti hluthafinn í fjármálaþjónustufyrirtækinu. Kaupverðið nam rúmum 10,8 milljörðum króna. 31.3.2007 05:15 Reynimelur ehf kaupir Kynnisferðir ehf Reynimelur ehf hefur nú gengið frá kaupum á Kynnisferðum ehf frá FL Group. Tilkynning þess efnis barst nú í kvöld. Reynimelur ehf er því eigandi alls hlutafjárs Kynnisferða ehf. 30.3.2007 22:05 Væntingavísitala lækkar í Bandaríkjunum Hátt verð á neysluvörum og laun sem hækka hægt eru helsta ástæða þess að væntingavísitala bandarískra neytenda hefur fallið. Hún hefur ekki verið lægri í hálft ár. Verðbólga hækkaði meira en búist var við í febrúar, eða um 0,3%, og er það mesta aukning síðan í ágúst á síðasta ári. 30.3.2007 21:15 RÚV tapaði 420 milljónum í fyrra Ríkisútvarpið tapaði 420 milljónum króna í fyrra. Þetta rúmlega tvisvar sinnum meira en árið 2005 þegar tapið nam 196 milljónum króna. Verri afkomu má rekja til hækkunar fjármagnsgjalda og hækkunar á dagskrárefni vegna óhagstæðrar gengisþróunar auk þess sem afnotagjöld hafa ekki fylgt verðlags- og launaþróun. Eigið fé stofnunarinnar var neikvætt annað árið í röð. Í uppgjöri stofnunarinnar segir að það verði ekki unað 30.3.2007 17:05 Gengi krónunnar styrktist um 8,4 prósent Gengi íslensku krónunnar styrktist um 8,4 prósenta á fyrstu þremur mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra veiktist gengi krónunnar um 12,2 prósent. Jöklabréf voru gefin út fyrir þrjá milljarða í dag en útgáfa sem þessi hefur áhrif á styrkingu krónunnar. Jöklabréf hafa verið gefin út fyrir 121 milljarð króna frá áramótum. Til samanburðar nam jöklabréfaútgáfan á öllu síðasta ári 175 milljörðum króna. 30.3.2007 16:39 Rarik í tapi á fyrsta rekstrarári Rarik ohf, skilaði 381 milljóna króna tapi á fyrsta rekstrarári sínu. Rekstrartímabil fyrirtækisins nær frá ágúst til loka síðasta árs. Þar á undan hét fyrirtækið Rafmagnsveitur ríkisins en breyting varð þar á í ágúst þegar Rarkik yfirtók alla eignir og skuldbindingar Rafmagnsveitanna. Bæði félögin skluðu 787 milljóna króna hagnaði á öllu síðasta ári. 30.3.2007 16:07 Minni hagnaður hjá Olíufélaginu Olíufélagið ehf skilaði 334,5 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Þetta er talsverður samdráttur á milli ára en félagið hagnaðist um 883,4 milljónir króna árið 2005. Afkoman er í samræmi við rekstraráætlanir. 30.3.2007 14:53 Afkoman batnar á Suðurnesjum Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum skilaði 6,8 milljóna króna tekjuafgangi á síðasta ári. Til samanburðar nam tekjuafgangur sambandsins rúmum 4,2 milljónum króna árið 2005. 30.3.2007 14:23 Vilja hækka ellilífeyrsgreiðslur vegna góðrar afkomu Lagt hefur verið til að ellilífeyrisgreiðslur úr Almenna lífeyrissjóðnum verði hækkaðar um fjögur prósent vegna góðrar stöðu lífeyrisdeildar en afkoma sjóðsins í fyrra var mjög góð eftir því sem segir í tilkynningu. Þar kemur jafnframt fram að heildareignir sjóðsins hafi verið um 83 milljarðar í lok árs og hafi aukist um 29 prósent á árinu. 30.3.2007 14:15 Verðbólga 1,9 prósenta á evrusvæðinu Verðbólga mældist 1,9 prósent á evrusvæðinu í þessum mánuði, samkvæmt bráðabirgðaútreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Þetta er 0,1 prósentustigi meira en í febrúar. Evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti í byrjun mánaðar með það fyrir augum að halda aftur af verðbólguþrýstingi. Stýrivextir á evrusvæðinu hafa ekki verið hærri í fimm og hálft ár. 30.3.2007 12:51 Qantas stækkar flugflotann Ástralska lággjaldaflugfélagið Jetstar, dótturfélag ástralska flugfélagsins Qantas, hefur keypt níu farþegaflugvélar frá evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus. Kaupverð er ekki gefið upp. Qantas horfir til þess að halda markaðsráðandi stöðu sinni með kaupunum. 30.3.2007 12:13 Skoða kaup Vodafone á Indlandi Fjármálayfirvöld á Indlandi hefur ákveðið að skoða nánar kaup breska farsímarisanum Vodafone á 67 prósenta hlut í Hutchison Essar, fjórða stærsta farsímafélagi Indlands, áður en þau gefa græna ljósið á viðskiptin. Kaupsamningur Vodafone hljóða upp á 11,1 milljarð dala, jafnvirði 736,6 milljarða íslenskra króna. 30.3.2007 10:45 Windows Vista fyrir Makka. Það hefur verið hægt að ræsa Windows XP stýrikerfið á Mökkum í tæpt ár með hugbúnaðnum Boot Camp sem hægt er að sækja frítt á heimasíðu Apple. Þessi hugbúnaður notar tækni sem hefur verið kölluð “Dual Boot“, en hún virkar þannig að tölva getur haft tvö eða fleiri stýrikerfi uppsett, en aðeins eitt stýrikerfi getur verið virkt í einu. Þetta þýðir að það þarf að endurræsa tölvuna til að skipta úr einu kerfi í annað. 30.3.2007 10:17 Tchenguiz bætir enn við sig í Sainsbury R20, fjárfestingafélag Roberts Tchenguiz, breska fasteignamógúlsins, náins viðskiptafélaga Kaupþings og stjórnarmanns í Exista, hefur aukið enn frekar við hlut sinn í bresku matvörukeðjunni Sainsbury. Félag hans hefur aukið jafnt og þétt við hlut sinn og fer það nú með 4,6 prósenta hlut í þessari þriðju stærstu matvöruverslanakeðju Bretlands. 30.3.2007 09:30 Dregur úr vöruskiptahalla Vörur voru fluttar út fyrir 43,2 milljarða krónur á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs en inn fyrir 54,4 milljarða. Þetta merkir, að vöruskipti við útlönd voru neikvæð um 11,2 milljarða krónur. Til samanburðar voru viðskiptin neikvæð um 18,7 milljarða á sama tíma fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Þar af dróst vöruskiptahallinn saman um 3,8 milljarða krónur í febrúar. 30.3.2007 09:09 Peningaskápurinn ... Framleiðsla á nýjum bílum undir merkjum japanska bifreiðaframleiðandans Toyota jókst um 0,9 prósent á milli ára í febrúar. Þetta jafngildir því að Toyota hafi framleitt 680.968 nýja bíla í mánuðinum. 30.3.2007 00:01 Félag Atorku Group með meirihluta í Romag Renewable Energy Resources, félag í eigu Atorku Group, hefur eignast 22,1% í fyrirtækinu Romag, sem er leiðandi framleiðanda á sérhæfðum glerlausnum sem nýta birtu til rafmagnsframleiðslu og framleiðir auk þess skotheld öryggisgler fyrir byggingar og farartæki. 29.3.2007 15:42 Vísir sækir á Mogga Um þriðjungi fleiri netnotendur heimsækja mbl.is en visir.is, samkvæmt símakönnun Capacent í janúar og febrúar. Vefmælingar Modernus, sem telja raunverulegar heimsóknir, sýna á sama tíma að bilið milli risanna tveggja á vefnum minnkar stöðugt. 29.3.2007 14:13 Hráolíuverð enn á uppleið Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór yfir 64 dala á tunnu dag. Verðið skaust til skamms tíma í 68 dali á tunnu og hefur verðmiðinn á svartagullinu ekki verið hærri síðan síðastliðið haust. Olíuverðið hefur hækkað jafnt og þétt eftir að Íranar handtóku 15 breska sjóliða innan írönsku landhelginnar á Persaflóa á föstudag fyrir viku. 29.3.2007 12:50 Sjá næstu 50 fréttir
Reynt hefur á þanþol hagstjórnarinnar Forsætisráðherra hafnar túlkunum á nýrri hagspá Seðlabankans í þá veru að hörð lending sé um það bil að eiga sér stað í efnahagslífinu. Þá segir hann ekki annað á boðstólum en að viðhalda krónunni sem gjaldmiðli, hvað sem síðar kunni að verða. 4.4.2007 00:01
Litháen er Ítalía Eystrasaltsins Áhugi Söndru Bruneikaité á norrænni menningu og tungumálum leiddi hana til Íslands um síðustu aldamót. Hún hafði hlotið styrk til að nema íslensku við Háskóla Íslands frá íslenska menntamálaráðuneytinu. Þegar hún hafði lokið tveimur önnum, og styrkurinn uppurinn, tók hún ákvörðun um að verða um kyrrt. Tveimur árum síðar útskrifaðist hún með BA-próf í íslensku. 4.4.2007 00:01
Stórt skref stigið í samrunaferlinu Félögin 25 sem hér eru skráð í Kauphöll fóru inn á samnorrænan lista OMX-kauphallasamstæðunnar við opnun markaðarins á mánudag og verða eftirleiðis kynnt með sænskum, finnskum og dönskum félögum á aðalmarkaði Nordic Exchange. 4.4.2007 00:01
Búist við lækkun á lánshæfismati íslensku bankanna Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir að Moody's Investors Service lækki lánshæfismat íslensku bankanna í dag. Moodys var gagnrýnt í febrúarmánuði þegar það kynnti breytta aðferðarfræði við mat banka. Þá hækkaði lánshæfismat íslensku bankanna í hæstu mögulega einkunn fyrir langtímaskuldbindingar eða í Aaa. 3.4.2007 17:32
Viðsnúningur á fasteignamarkaði vestra Sala á fasteignamarkaði jókst um 0,7 prósent á milli mánaða í febrúar. Þetta er þvert á spár greinenda, sem gerður ráð fyrir því því að sala myndi dragast saman annan mánuðinn í röð. Til samanburðar féll sala á fasteignamarkaði um 4,2 prósent í Bandaríkjunum í janúar. Tölurnar eiga ekki við um kaup á nýrri fasteign heldur kaup á eldri íbúðum. 3.4.2007 16:25
Rússar vilja Alitalia Rússneska flugfélagið Aeroflot, sem er að stærstum hlut í eigu rússneska ríkisins, er sagt ætla að leggja fram kauptilboð í 39,9 prósenta hlut ítalska ríkisins í ítalska flugfélaginu Alitalia. Ítalski bankinn Unicredit er sagður standa að kaupunum ásamt Aeroflot. 3.4.2007 15:37
Glitnir spáir 37 prósenta hækkun Úrvalsvísitölunnar Horfur í rekstri félaga í Kauphöllinni eru almennt ágætar og má gera ráð fyrir að áframhald verði á hækkun hlutabréfaverðs í ár, jafnvel meira en í fyrra. Gangi þetta eftir hækkar Úrvalsvísitalan um 37 prósent árinu. Þetta kemur fram í nýrri afkomuspá greiningardeildar Glitnis fyrir árið, sem kom út í dag. 3.4.2007 15:06
Festa skilaði 18,8 prósenta ávöxtun Nafnávöxtun Festu lífeyrissjóðs var 18,8 prósent á árinu 2006, sem jafngildir 11,3 prósenta raunávöxtun. Í árslok 2006 var hrein eign til greiðslu lífeyris rúmir 48,6 milljarðar og hækkaði hún um 23,4 prósent á milli ára. Stjórn lífeyrissjóðsins mun á næsta aðalfundi leggja til að áunnin réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega verði aukin um 4 prósentum frá og með 1. janúar á þessu ári. 3.4.2007 13:26
Eignastaða heimilanna aldrei betri Heildarskuldir heimilanna við lánakerfið allt námu 1.325 milljörðum króna í lok síðasta árs. Þar af námu skuldir við innlánsstofnanir 708 milljónum króna. Þetta er 241 milljón meira en heimilin skulduðu við árslok árið 2005. Greiningardeild Glitnis segir hreina eignastöðu heimilanna aldrei hafa verið betri en nú. 3.4.2007 11:05
7.000 manns sagt upp í Hollandi Hollenska póstfyrirtækið TNT Post ætlar að segja upp 7.000 manns. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja ekki annan kost í stöðunni til að bregðast við aukinni samkeppni sem hafi skilað sér í samdrætti hjá fyrirtækinu. 3.4.2007 09:20
Kjarrhólmi eignast 37 prósent í TM Kjarrhólmi hefur keypt alla eignarhluti Fjárfestingarfélagsins Grettis og Landsbankans í TM, alls 35,37 prósent. Kjarrhólmi eignaðist til viðbótar 2,2 prósenta hlut og fer því með 37,57 prósenta hlut í tryggingafélaginu. Kaupverð allra bréfanna nam tæpum 19,4 milljörðum króna. 3.4.2007 09:17
Hætt við yfirtöku á þýsku raforkufyrirtæki Þýski orkurisinn E.On hefur dregið til baka yfirtökutilboð sitt í spænska raforkufyrirtækið Endesa. Yfirtökutilboðið, sem hljóðaði upp á 42,3 milljarða evrur, 3.740 milljarða íslenskra króna, var afar umdeilt og lenti meðal annars inni á borði framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 2.4.2007 20:23
Hráolíuverð lækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði í dag eftir nokkra hagnaðartöku fjárfesta á helstu mörkuðum. Olíuverðið er þó enn yfir 65 bandaríkjadölum á tunnu. Verðið tók kipp uppá við eftir að sjóliðar voru handteknir á Persaflóa á föstudaginn fyrir rúmri viku. 2.4.2007 16:33
Eimskip opnar nýja skrifstofu á Ítalíu Eimskip opnar aðra skrifstofu sína í Genúa á Ítalíu í dag, 2. apríl. Opnun skrifstofunnar er liður í markvissri uppbyggingu Eimskips í Evrópu og miðast að því að styrkja enn frekar stöðu félagsins á ítalska markaðnum, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 2.4.2007 16:24
Viðsnúningur hjá Nýsi Fasteignafélagið Nýsir hf og dótturfélög þess skiluðu 450,6 milljóna króna tapi á síðasta ári samanborið við 1.623 milljóna króna hagnað árið 2005. Helsta ástæðan eru gengisbreytingar og mikill vaxtakostnaður af framtíðarfjárfestingum á Íslandi og erlendis sem ekki eru farnar að skila fullri arðsemi, að því er segir í uppgjöri félagsins. 2.4.2007 12:56
Minna tap hjá Pliva Króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva tapaði rétt tæpum 35,2 milljónum dala, jafnvirði 2,3 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Til samanburðar nam tap fyrirtækisins tæpum 92 milljónum dala, tæplega 6,1 milljarði króna, árið á undan. Bandaríska lyfjafyrirtækið Barr keypti Pliva síðastliðið haust á 2,4 milljarða bandaríkjadali eða 170,5 milljarða íslenskra króna eftir harða samkeppni við Actavis um félagið. 2.4.2007 11:41
Fögnuðu inngöngu íslenskra fyrirtækja í OMX-kauphöllina Því var fagnað með formlegum hætti í Kauphöll Íslands nú um klukkan tíu að þau 25 fyrirtæki sem skráð eru á markað hér á landi yrðu hluti af hinum norræna OMX-hlutabréfamarkaði. Það þýðir meðal annars að félögin ganga inn í vísitölur OMX-hallarinnar, bæði hvað varðar almennan markað og einstakar greinar norræns atvinnulífs. 2.4.2007 10:40
Íslensk fyrirtæki verða hluti af OMX-markaðnum Frá og með deginum í dag verða þau 25 fyrirtæki sem skráð eru á markað hér á landi hluti af sameiginlegri skráningu á hinum norræna OMX-hlutabréfamarkaði. 2.4.2007 09:39
Tilboð í Sainsbury fyrir vikulok Fjárfestahópurinn CVC mun leggja fram að minnsta kosti 10 milljarða punda, jafnvirði um 1.300 milljarða íslenskra króna, yfirtökutilboð í bresku verslanakeðjuna Sainbury fyrir lok þessarar viku. Þetta staðhæfðu breskir fjölmiðlar um helgina. 2.4.2007 07:00
Indverjar hækka stýrivexti Seðlabanki Indlands ákvað undir lok síðustu viku að hækka stýrivexti um fjórðung úr prósentustigi og standa vextirnir nú í 7,75 prósentum. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem bankinn hækkar stýrivexti í þeim tilgangi að halda aftur af verðbólgu. Stýrivextir á Indlandi hafa ekki verið hærri í tæp fjögur og hálft ár. 2.4.2007 06:00
Veltan í Kauphöllinni nam 350 milljörðum Heildarvelta í Kauphöll Íslands í nýliðnum mánuði nam 350 milljörðum króna og nemur heildarvelta ársins nú 1.329 milljörðum. Þetta er þriggja prósenta aukning frá sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Hlutabréfavelta jókst um 18 prósent á milli ára en velta á skuldabréfamarkaði dróst saman. 2.4.2007 05:15
Kaplan handtekinn eftir sjö mánaða leit Gary Stephen Kaplan, stofnandi breska netveðmálafyrirtækisins BetonSports, var handtekinn í Dóminíska lýðveldinu í Karabíska hafinu á miðvikudag. Hann er í ellefu manna hópi sem sakaður er um fjárdrátt, svindl og skattundanskot. 31.3.2007 15:36
Hannes krafði Einar um formannsstólinn Þremur vikum eftir aðalfund gerði Hannes Smárason kröfu um að Einar Sveinsson viki fyrir sér sem stjórnarformaður Glitnis. Ágreiningur stærstu hluthafa snýst ekki um stefnu eða forstjóra bankans, sem vill valddreifingu í stjórninni. 31.3.2007 08:15
Miklar breytingar kölluðu á viðbrögð Davíð Oddsson seðlabankastjóri fagnar því að aukin skuldsetning heimila hafi ekki skilað sér í þyngri greiðslubyrði og að vanskil séu í lágmarki. Um leið segir hann Seðlabankann hafa áhyggjur af því að ýmsir kunni að hafa reist sér hurðarás um öxl, eða teflt á mjög tæpt vað. 31.3.2007 05:45
Hækka áunnin réttindi Rekstur Almenna lífeyrissjóðsins gekk með miklum ágætum árið 2006 og hækkuðu áætlaðar eftirlaunagreiðslur sjóðsins að meðaltali um fjórðung á árinu og allt að þrjátíu prósent. Lagt er til að ellilífeyrisgreiðslur og áunnin réttindi í tryggingadeild hækki um fjögur prósent. Nafnávöxtun Ævisafns 1 nam um 22 prósentum en aðrar ávöxtunarleiðir voru með um 10-21 prósenta ávöxtun. 31.3.2007 05:30
Kista kaupir meira Kista-fjárfestingarfélag jók hlut sinn í Existu úr 2,67 prósentum í 6,25 prósent og er þar með orðið annar stærsti hluthafinn í fjármálaþjónustufyrirtækinu. Kaupverðið nam rúmum 10,8 milljörðum króna. 31.3.2007 05:15
Reynimelur ehf kaupir Kynnisferðir ehf Reynimelur ehf hefur nú gengið frá kaupum á Kynnisferðum ehf frá FL Group. Tilkynning þess efnis barst nú í kvöld. Reynimelur ehf er því eigandi alls hlutafjárs Kynnisferða ehf. 30.3.2007 22:05
Væntingavísitala lækkar í Bandaríkjunum Hátt verð á neysluvörum og laun sem hækka hægt eru helsta ástæða þess að væntingavísitala bandarískra neytenda hefur fallið. Hún hefur ekki verið lægri í hálft ár. Verðbólga hækkaði meira en búist var við í febrúar, eða um 0,3%, og er það mesta aukning síðan í ágúst á síðasta ári. 30.3.2007 21:15
RÚV tapaði 420 milljónum í fyrra Ríkisútvarpið tapaði 420 milljónum króna í fyrra. Þetta rúmlega tvisvar sinnum meira en árið 2005 þegar tapið nam 196 milljónum króna. Verri afkomu má rekja til hækkunar fjármagnsgjalda og hækkunar á dagskrárefni vegna óhagstæðrar gengisþróunar auk þess sem afnotagjöld hafa ekki fylgt verðlags- og launaþróun. Eigið fé stofnunarinnar var neikvætt annað árið í röð. Í uppgjöri stofnunarinnar segir að það verði ekki unað 30.3.2007 17:05
Gengi krónunnar styrktist um 8,4 prósent Gengi íslensku krónunnar styrktist um 8,4 prósenta á fyrstu þremur mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra veiktist gengi krónunnar um 12,2 prósent. Jöklabréf voru gefin út fyrir þrjá milljarða í dag en útgáfa sem þessi hefur áhrif á styrkingu krónunnar. Jöklabréf hafa verið gefin út fyrir 121 milljarð króna frá áramótum. Til samanburðar nam jöklabréfaútgáfan á öllu síðasta ári 175 milljörðum króna. 30.3.2007 16:39
Rarik í tapi á fyrsta rekstrarári Rarik ohf, skilaði 381 milljóna króna tapi á fyrsta rekstrarári sínu. Rekstrartímabil fyrirtækisins nær frá ágúst til loka síðasta árs. Þar á undan hét fyrirtækið Rafmagnsveitur ríkisins en breyting varð þar á í ágúst þegar Rarkik yfirtók alla eignir og skuldbindingar Rafmagnsveitanna. Bæði félögin skluðu 787 milljóna króna hagnaði á öllu síðasta ári. 30.3.2007 16:07
Minni hagnaður hjá Olíufélaginu Olíufélagið ehf skilaði 334,5 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Þetta er talsverður samdráttur á milli ára en félagið hagnaðist um 883,4 milljónir króna árið 2005. Afkoman er í samræmi við rekstraráætlanir. 30.3.2007 14:53
Afkoman batnar á Suðurnesjum Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum skilaði 6,8 milljóna króna tekjuafgangi á síðasta ári. Til samanburðar nam tekjuafgangur sambandsins rúmum 4,2 milljónum króna árið 2005. 30.3.2007 14:23
Vilja hækka ellilífeyrsgreiðslur vegna góðrar afkomu Lagt hefur verið til að ellilífeyrisgreiðslur úr Almenna lífeyrissjóðnum verði hækkaðar um fjögur prósent vegna góðrar stöðu lífeyrisdeildar en afkoma sjóðsins í fyrra var mjög góð eftir því sem segir í tilkynningu. Þar kemur jafnframt fram að heildareignir sjóðsins hafi verið um 83 milljarðar í lok árs og hafi aukist um 29 prósent á árinu. 30.3.2007 14:15
Verðbólga 1,9 prósenta á evrusvæðinu Verðbólga mældist 1,9 prósent á evrusvæðinu í þessum mánuði, samkvæmt bráðabirgðaútreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Þetta er 0,1 prósentustigi meira en í febrúar. Evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti í byrjun mánaðar með það fyrir augum að halda aftur af verðbólguþrýstingi. Stýrivextir á evrusvæðinu hafa ekki verið hærri í fimm og hálft ár. 30.3.2007 12:51
Qantas stækkar flugflotann Ástralska lággjaldaflugfélagið Jetstar, dótturfélag ástralska flugfélagsins Qantas, hefur keypt níu farþegaflugvélar frá evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus. Kaupverð er ekki gefið upp. Qantas horfir til þess að halda markaðsráðandi stöðu sinni með kaupunum. 30.3.2007 12:13
Skoða kaup Vodafone á Indlandi Fjármálayfirvöld á Indlandi hefur ákveðið að skoða nánar kaup breska farsímarisanum Vodafone á 67 prósenta hlut í Hutchison Essar, fjórða stærsta farsímafélagi Indlands, áður en þau gefa græna ljósið á viðskiptin. Kaupsamningur Vodafone hljóða upp á 11,1 milljarð dala, jafnvirði 736,6 milljarða íslenskra króna. 30.3.2007 10:45
Windows Vista fyrir Makka. Það hefur verið hægt að ræsa Windows XP stýrikerfið á Mökkum í tæpt ár með hugbúnaðnum Boot Camp sem hægt er að sækja frítt á heimasíðu Apple. Þessi hugbúnaður notar tækni sem hefur verið kölluð “Dual Boot“, en hún virkar þannig að tölva getur haft tvö eða fleiri stýrikerfi uppsett, en aðeins eitt stýrikerfi getur verið virkt í einu. Þetta þýðir að það þarf að endurræsa tölvuna til að skipta úr einu kerfi í annað. 30.3.2007 10:17
Tchenguiz bætir enn við sig í Sainsbury R20, fjárfestingafélag Roberts Tchenguiz, breska fasteignamógúlsins, náins viðskiptafélaga Kaupþings og stjórnarmanns í Exista, hefur aukið enn frekar við hlut sinn í bresku matvörukeðjunni Sainsbury. Félag hans hefur aukið jafnt og þétt við hlut sinn og fer það nú með 4,6 prósenta hlut í þessari þriðju stærstu matvöruverslanakeðju Bretlands. 30.3.2007 09:30
Dregur úr vöruskiptahalla Vörur voru fluttar út fyrir 43,2 milljarða krónur á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs en inn fyrir 54,4 milljarða. Þetta merkir, að vöruskipti við útlönd voru neikvæð um 11,2 milljarða krónur. Til samanburðar voru viðskiptin neikvæð um 18,7 milljarða á sama tíma fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Þar af dróst vöruskiptahallinn saman um 3,8 milljarða krónur í febrúar. 30.3.2007 09:09
Peningaskápurinn ... Framleiðsla á nýjum bílum undir merkjum japanska bifreiðaframleiðandans Toyota jókst um 0,9 prósent á milli ára í febrúar. Þetta jafngildir því að Toyota hafi framleitt 680.968 nýja bíla í mánuðinum. 30.3.2007 00:01
Félag Atorku Group með meirihluta í Romag Renewable Energy Resources, félag í eigu Atorku Group, hefur eignast 22,1% í fyrirtækinu Romag, sem er leiðandi framleiðanda á sérhæfðum glerlausnum sem nýta birtu til rafmagnsframleiðslu og framleiðir auk þess skotheld öryggisgler fyrir byggingar og farartæki. 29.3.2007 15:42
Vísir sækir á Mogga Um þriðjungi fleiri netnotendur heimsækja mbl.is en visir.is, samkvæmt símakönnun Capacent í janúar og febrúar. Vefmælingar Modernus, sem telja raunverulegar heimsóknir, sýna á sama tíma að bilið milli risanna tveggja á vefnum minnkar stöðugt. 29.3.2007 14:13
Hráolíuverð enn á uppleið Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór yfir 64 dala á tunnu dag. Verðið skaust til skamms tíma í 68 dali á tunnu og hefur verðmiðinn á svartagullinu ekki verið hærri síðan síðastliðið haust. Olíuverðið hefur hækkað jafnt og þétt eftir að Íranar handtóku 15 breska sjóliða innan írönsku landhelginnar á Persaflóa á föstudag fyrir viku. 29.3.2007 12:50
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent