Fleiri fréttir Indverjar hækka stýrivexti Indverski seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 25 punkta. Þetta er þriðja vaxtahækkun bankans á síðastliðnum fjórum mánuðum og standa vextirnir í 6 prósentum. 25.7.2006 11:08 Lánadrottnar ræða örlög Rosneft Lánadrottnar Yukos funda í dag til að skera úr um örlög olíurisans fyrrverandi. Á fundinum verður ákveðið hvort hagrætt verði í starfsemi Yukos, sem eitt sinn var eitt stærsta olíufyrirtæki heims í einkaeigu, eða það verði úrskurðað gjaldþrota. 25.7.2006 10:08 Stjórnendur vinna lengur en aðrir Eigendur og framkvæmdastjórar lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Bretlandi vinna oft frameftir á virkum dögum til að eiga frí um helgar. Í fyrra unnu þeir að meðaltali í um 61,1 klukkustund í hverri viku en það er 23,7 klukkustundum meira en meðal Breti vann á sama tíma. 24.7.2006 18:24 Eldsneytisverð í hámarki Eldsneytisverð á bensínstöðvum í Bandaríkjunum er komið í rúma 3 bandaríkjadali á gallonið og hefur aldrei verið hærra. Þetta jafngildir því að lítrinn af bensíni í Bandaríkjunum kosti um 56 krónur. 24.7.2006 16:21 Velta í dagvöruverslun jókst um 5,3 prósent Velta í dagvöruverslun var 5,3 prósentum meiri í júní en á sama tíma í fyrra miðað við fast verðlag. Á hlaupandi verðlagi nam hækkunin 17,5 prósentum á milli ára, samkvæmt útreikningum Rannsóknaseturs verslunarinnar við Bifröst fyrir Samtök verslunar og þjónustu. 24.7.2006 15:14 Uppgjörin að renna í hlað Nokkur af stærstu fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands birta uppgjör sín fyrir annan ársfjórðung í vikunni. Greiningardeild Glitnis banka spáir því að hagnaður Kaupþings banka muni nema 10 milljörðum króna, hagnaður Landsbanka Íslands muni nema 3 milljörðum króna en hagnaður Bakkavarar muni verða rúmir 1,6 milljarðar króna. 24.7.2006 10:24 AMD kaupir ATI Bandaríski örgjörvaframleiðandinn AMD, sem er annar umsvifamesti framleiðandinn á þessu sviði í heiminum, ætlar að kaupa skjákortafyrirtækið ATI Technologies. Kaupverðið nemur 5,4 milljörðum bandaríkjadala, eða 399 milljörðum íslenskra króna. Að sögn forsvarsmanna AMD er markmiðið að auka markaðshlutdeild fyrirtækisins á íhlutamarkaði fyrir tölvur og saxa á forskot keppinautarins Intel. 24.7.2006 10:10 Hagnaður Nintendo jókst á milli ára Hagnaður japanska leikjatölvuframleiðandans Nintendu jókst um 10,2 prósent á öðrum ársfjórðungi vegna aukinnar sölu á Nintendo DS Lite leikjatölvunni. Karlmenn í yngri kantinum hafa fram til þessa hafa verið helstu viðskiptavinir Nintendo. Leikir fyrir Nintendo DS Lite eru sagðir reyna fremur á vitsmuni en hraða og höfða þeir fremur til kvenna. Kaup kvenna eru sögð helsta ástæða hagnaðarins. 24.7.2006 09:42 Olíuverð lækkaði vegna viðbragða Rice Olíuverð lækkaði á markaði í Bretlandi í dag. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fer til ófriðarsvæðanna fyrir botni Miðjarðarhafs í dag en hún hefur krafist þess að Ísraelsmenn og liðsmenn Hizbollah-samtakanna lýsi yfir vopnahléi hið snarasta. 24.7.2006 09:24 Arsenal hleður fallbyssuna Arsenal hefur fengið 35 milljarða í aðra hönd eftir að félagið seldi skuldabréf með veði í tekjum af miðasölu næstu þrettán árin. Félagið tekur í notkun á næstu leiktíð nýjan leikvang, Emirates Stadium, sem rúmar sextíu þúsund áhorfendur. 22.7.2006 07:45 Hagvöxtur í Bretlandi eykst Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent á öðrum ársfjórðungi en var 1,8 prósent á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í gær. Hagvöxturinn var meiri en spáð hafði verið en hann má að mestu leyti rekja til aukningar í þjónustu á fjórðungnum. 22.7.2006 07:15 Hefur lækkað um 22 prósent Félög úrvalsvísitölunnar hafa rýrnað um tuttugu prósent á nokkrum mánuðum. Gengi alþjóðlegra vísitalna er misjafnt. 22.7.2006 07:00 Velta Juventus gæti lækkað um tíu milljarða króna. Sérfræðingar áætla að tekjur ítalska stórliðsins Juventus, eða "Gömlu konunnar", hrynji um helming við það að félagið falli niður úr efstu deild í þá næstefstu en forráðamenn Juve og nokkurra annarra liða hafa verið fundnir sekir um að hafa hagrætt úrslitum leikja. 22.7.2006 06:45 Laun hækka enn Laun hækkuðu um 0,4 prósent í júní samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Ekki hefur orðið viðlíka hækkun milli mánaða síðan snemma árs 2002. Tólf mánaða hækkun nemur 8,8 prósentum. 22.7.2006 06:30 Of snemmt að spá Undirstöður íslensku bankanna eru ekki jafn traustar og væntanleg uppgjör fyrir annan ársfjórðung gefa til kynna, segir í nýrri skýrslu alþjóðlega fjárfestingarbankans Merrill Lynch um íslensku bankana. 22.7.2006 06:15 Skilaði hagnaði: Sóknarfæri fyrir Lýsingu Eignarleigu- og fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf., dótturfélag Exista hf., skilaði 455 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrri helmingi ársins. Útlán jukust um 45,8 prósent og námu þau tæpum 54 milljörðum króna í lok tímabilsins. 22.7.2006 06:00 Hagnaður jókst á milli ára 21.7.2006 16:05 Enn hækkar olíuverðið 21.7.2006 15:41 Hagnaður Caterpillar umfram væntingar 21.7.2006 12:44 Sala eykst hjá Airbus 21.7.2006 12:13 2,6 prósenta hagvöxtur í Bretlandi Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent á öðrum ársfjórðungi en var 1,8 prósent á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í dag. Greiningardeild Glitnis banka segir aukinn hagvöxt í Bretlandi koma sér ágætlega fyrir íslenska hagkerfið vegna mikilla viðskipta á milli Bretlands og Íslands. 21.7.2006 11:10 Launavísitalan hækkaði um 0,4 prósent Launavísitalan í júní hækkaði um 0,4 prósent frá maí og er 290,4 stig. Vísitalan hefur hækkað um 8,8 prósent síðastliðna 12 mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. 21.7.2006 10:20 Hagnaður Google tvöfaldast 21.7.2006 10:12 Aflaverðmæti fiskiskipa minnkar milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Þetta er einum milljarði minna en á sama tíma í fyrra og nemur samdrátturinn 3,8 prósentum, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. 21.7.2006 09:45 Auka hlut sinn í Kursua Linija 21.7.2006 06:30 Skiptar skoðanir um málfrelsi hluthafa á hluthafafundi Í 3. mgr 80. gr laga um hlutafélög segir Öllum hluthöfum er heimilt að sækja hluthafafund og taka þar til máls. 21.7.2006 06:15 Glitnir mátti kaupa 21.7.2006 06:15 Spáir 8,6 prósenta verðbólgu í ágúst Greiningardeild KB banka spáir 0,4 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs í ágúst. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga úr 8,4 prósentum í 8,6 prósent. Útsöluáhrif draga verulega úr hækkun vísitölunnar og er búist við að útsölur hafi um 0,3 til 0,4 prósent áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Án útsöluáhrifa hefði hækkun á milli mánaða numið 0,7 til 0,8 prósentum. 20.7.2006 14:46 Ford tapaði 9 milljörðum króna Bandaríski bílaframleiðandinn Ford tapaði 123 milljónum Bandaríkjadala, rúmum 9 milljörðum íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins. Helsta ástæða tapsins er samdráttur í sölu á sportjeppum vegna verðhækkana á eldsneyti. 20.7.2006 13:31 Eimskip eykur hlut sinn í Kirsiu Linija Eimskip hefur gengið frá kaupum á auknum hlut í skipafélaginu Kursiu Linija Eimskip átti 50 prósenta hlut í félaginu en á eftir kaupin 70 prósenta hlut og er heildarkaupverð hans 5 milljónir evra, jafnvirði tæpra 465 milljóna króna. Kursiu Linija er eitt stæsta skipafélag í Eystrasaltsríkjunum í einkaeigu. 20.7.2006 12:09 Olíuverðið hærra í dag en í gær 20.7.2006 11:44 Forstjóri Yukos sagði upp Steven Theede, forstjóri fallna rússneska olíurisans Yukos, sagði af sér í gær en í dag fundar stjórn fyrirtækisins með lánadrottnum fyrirtækisins. Búist er við að með fundinum færist fyrirtækið nær barmi gjaldþrots en nokkru sinni. 20.7.2006 10:52 Japanir verða að fara varlega Tíu ára kyrrstöðu efnahagslífsins í Japan er senn að ljúka en stjórnvöld verða að fara varlega í stýrivaxtahækkunum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um stöðu efnahagsmála í Japan og mælt með því að stjórnvöld bíði eftir frekari hækkun verðlags í landinu áður en þau hækka stýrivexti á nýjan leik. 20.7.2006 09:29 75 prósenta samdráttur íbúðalána Gríðarlegur samdráttur hefur orðið á íbúðalánum viðskiptabankanna síðan þeir hófu innreið sína á lánamarkað. Helstu orsakavaldar eru versnandi efnahagsástand, hægari fasteignamarkaður og óhagstæðari lánsskilyrði. 20.7.2006 07:00 Hannes kosinn varaformaður stjórnar Straums Burðaráss 20.7.2006 06:30 Lítill munur á því að kaupa og byggja 20.7.2006 06:15 Metfjöldi á vinnumarkaði 20.7.2006 06:00 Hagnaður Lýsingar hf. 455 milljónir króna Eignarleigu- og fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf., dótturfélag Exista hf., skilaði 455 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Útlán jukust um 45,8 prósent og námu þau tæpum 54 milljörðum króna í lok tímabilsins. Viðskiptamönnum Lýsingar, bæði fyrirtækjum og einstaklingum, fjölgaði verulega á tímabilinu. 19.7.2006 15:52 Gengi bréfa í Rosneft undir væntingum Gengi hlutabréfa í rússneska ríkisolíufyrirtæki Rosneft lækkuðu um 1 sent á hlut þegar viðskipti með 10 prósenta hlut í félaginu hófst í kauphöll Lundúna í Bretlandi í dag. 19.7.2006 15:22 EADS landar stórum samningi EADS, móðurfélag flugvélaframleiðandans Airbus, hefur náð samningum um þróun og framleiðslu á ratsjá fyrir þýska herinn. Ekkert hefur verið gefið upp um virði samningsins að öðru leyti en því að hann er sagður nema nálægt einum milljarði evra, jafnvirði tæpra hundrað milljarða íslenskra króna. En vel má vera að hann geti verið hærri. 19.7.2006 14:11 Olíuverðið lækkar 19.7.2006 13:01 Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi 19.7.2006 11:48 Gengi Yahoo féll vegna minni hagnaðar Gengi hlutabréfa í bandaríska netleitarfyrirtækinu Yahoo lækkaði um 13 prósent við lokun markaða í gær í kjölfar þess að fyrirtækið greindi frá minni hagnaði á öðrum ársfjórðungi en spár kváðu á um. Ástæðan fyrir því eru tafir á uppfærslu á leitarvél fyrirtækisins sem gera átti á þriðja fjórðungi ársins. Þær dragast fram á þrjá síðustu mánuði ársins. 19.7.2006 09:58 Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 4,14 prósent Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan þennan mánuði og gildir fyrir ágúst, hækkaði um 4,14 prósent frá júní, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. 19.7.2006 09:47 Afkoma Straums Burðaráss vel yfir spám Straumur Burðarás skilaði þrjúhundruð milljóna króna hagnaði en spár gerðu ráð fyrir milljarða tapi. Hagnaður það sem af er ári er liðlega nítján milljarðar. 19.7.2006 08:30 Sjá næstu 50 fréttir
Indverjar hækka stýrivexti Indverski seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 25 punkta. Þetta er þriðja vaxtahækkun bankans á síðastliðnum fjórum mánuðum og standa vextirnir í 6 prósentum. 25.7.2006 11:08
Lánadrottnar ræða örlög Rosneft Lánadrottnar Yukos funda í dag til að skera úr um örlög olíurisans fyrrverandi. Á fundinum verður ákveðið hvort hagrætt verði í starfsemi Yukos, sem eitt sinn var eitt stærsta olíufyrirtæki heims í einkaeigu, eða það verði úrskurðað gjaldþrota. 25.7.2006 10:08
Stjórnendur vinna lengur en aðrir Eigendur og framkvæmdastjórar lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Bretlandi vinna oft frameftir á virkum dögum til að eiga frí um helgar. Í fyrra unnu þeir að meðaltali í um 61,1 klukkustund í hverri viku en það er 23,7 klukkustundum meira en meðal Breti vann á sama tíma. 24.7.2006 18:24
Eldsneytisverð í hámarki Eldsneytisverð á bensínstöðvum í Bandaríkjunum er komið í rúma 3 bandaríkjadali á gallonið og hefur aldrei verið hærra. Þetta jafngildir því að lítrinn af bensíni í Bandaríkjunum kosti um 56 krónur. 24.7.2006 16:21
Velta í dagvöruverslun jókst um 5,3 prósent Velta í dagvöruverslun var 5,3 prósentum meiri í júní en á sama tíma í fyrra miðað við fast verðlag. Á hlaupandi verðlagi nam hækkunin 17,5 prósentum á milli ára, samkvæmt útreikningum Rannsóknaseturs verslunarinnar við Bifröst fyrir Samtök verslunar og þjónustu. 24.7.2006 15:14
Uppgjörin að renna í hlað Nokkur af stærstu fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöll Íslands birta uppgjör sín fyrir annan ársfjórðung í vikunni. Greiningardeild Glitnis banka spáir því að hagnaður Kaupþings banka muni nema 10 milljörðum króna, hagnaður Landsbanka Íslands muni nema 3 milljörðum króna en hagnaður Bakkavarar muni verða rúmir 1,6 milljarðar króna. 24.7.2006 10:24
AMD kaupir ATI Bandaríski örgjörvaframleiðandinn AMD, sem er annar umsvifamesti framleiðandinn á þessu sviði í heiminum, ætlar að kaupa skjákortafyrirtækið ATI Technologies. Kaupverðið nemur 5,4 milljörðum bandaríkjadala, eða 399 milljörðum íslenskra króna. Að sögn forsvarsmanna AMD er markmiðið að auka markaðshlutdeild fyrirtækisins á íhlutamarkaði fyrir tölvur og saxa á forskot keppinautarins Intel. 24.7.2006 10:10
Hagnaður Nintendo jókst á milli ára Hagnaður japanska leikjatölvuframleiðandans Nintendu jókst um 10,2 prósent á öðrum ársfjórðungi vegna aukinnar sölu á Nintendo DS Lite leikjatölvunni. Karlmenn í yngri kantinum hafa fram til þessa hafa verið helstu viðskiptavinir Nintendo. Leikir fyrir Nintendo DS Lite eru sagðir reyna fremur á vitsmuni en hraða og höfða þeir fremur til kvenna. Kaup kvenna eru sögð helsta ástæða hagnaðarins. 24.7.2006 09:42
Olíuverð lækkaði vegna viðbragða Rice Olíuverð lækkaði á markaði í Bretlandi í dag. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fer til ófriðarsvæðanna fyrir botni Miðjarðarhafs í dag en hún hefur krafist þess að Ísraelsmenn og liðsmenn Hizbollah-samtakanna lýsi yfir vopnahléi hið snarasta. 24.7.2006 09:24
Arsenal hleður fallbyssuna Arsenal hefur fengið 35 milljarða í aðra hönd eftir að félagið seldi skuldabréf með veði í tekjum af miðasölu næstu þrettán árin. Félagið tekur í notkun á næstu leiktíð nýjan leikvang, Emirates Stadium, sem rúmar sextíu þúsund áhorfendur. 22.7.2006 07:45
Hagvöxtur í Bretlandi eykst Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent á öðrum ársfjórðungi en var 1,8 prósent á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í gær. Hagvöxturinn var meiri en spáð hafði verið en hann má að mestu leyti rekja til aukningar í þjónustu á fjórðungnum. 22.7.2006 07:15
Hefur lækkað um 22 prósent Félög úrvalsvísitölunnar hafa rýrnað um tuttugu prósent á nokkrum mánuðum. Gengi alþjóðlegra vísitalna er misjafnt. 22.7.2006 07:00
Velta Juventus gæti lækkað um tíu milljarða króna. Sérfræðingar áætla að tekjur ítalska stórliðsins Juventus, eða "Gömlu konunnar", hrynji um helming við það að félagið falli niður úr efstu deild í þá næstefstu en forráðamenn Juve og nokkurra annarra liða hafa verið fundnir sekir um að hafa hagrætt úrslitum leikja. 22.7.2006 06:45
Laun hækka enn Laun hækkuðu um 0,4 prósent í júní samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Ekki hefur orðið viðlíka hækkun milli mánaða síðan snemma árs 2002. Tólf mánaða hækkun nemur 8,8 prósentum. 22.7.2006 06:30
Of snemmt að spá Undirstöður íslensku bankanna eru ekki jafn traustar og væntanleg uppgjör fyrir annan ársfjórðung gefa til kynna, segir í nýrri skýrslu alþjóðlega fjárfestingarbankans Merrill Lynch um íslensku bankana. 22.7.2006 06:15
Skilaði hagnaði: Sóknarfæri fyrir Lýsingu Eignarleigu- og fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf., dótturfélag Exista hf., skilaði 455 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrri helmingi ársins. Útlán jukust um 45,8 prósent og námu þau tæpum 54 milljörðum króna í lok tímabilsins. 22.7.2006 06:00
2,6 prósenta hagvöxtur í Bretlandi Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent á öðrum ársfjórðungi en var 1,8 prósent á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í dag. Greiningardeild Glitnis banka segir aukinn hagvöxt í Bretlandi koma sér ágætlega fyrir íslenska hagkerfið vegna mikilla viðskipta á milli Bretlands og Íslands. 21.7.2006 11:10
Launavísitalan hækkaði um 0,4 prósent Launavísitalan í júní hækkaði um 0,4 prósent frá maí og er 290,4 stig. Vísitalan hefur hækkað um 8,8 prósent síðastliðna 12 mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. 21.7.2006 10:20
Aflaverðmæti fiskiskipa minnkar milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Þetta er einum milljarði minna en á sama tíma í fyrra og nemur samdrátturinn 3,8 prósentum, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. 21.7.2006 09:45
Skiptar skoðanir um málfrelsi hluthafa á hluthafafundi Í 3. mgr 80. gr laga um hlutafélög segir Öllum hluthöfum er heimilt að sækja hluthafafund og taka þar til máls. 21.7.2006 06:15
Spáir 8,6 prósenta verðbólgu í ágúst Greiningardeild KB banka spáir 0,4 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs í ágúst. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga úr 8,4 prósentum í 8,6 prósent. Útsöluáhrif draga verulega úr hækkun vísitölunnar og er búist við að útsölur hafi um 0,3 til 0,4 prósent áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Án útsöluáhrifa hefði hækkun á milli mánaða numið 0,7 til 0,8 prósentum. 20.7.2006 14:46
Ford tapaði 9 milljörðum króna Bandaríski bílaframleiðandinn Ford tapaði 123 milljónum Bandaríkjadala, rúmum 9 milljörðum íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins. Helsta ástæða tapsins er samdráttur í sölu á sportjeppum vegna verðhækkana á eldsneyti. 20.7.2006 13:31
Eimskip eykur hlut sinn í Kirsiu Linija Eimskip hefur gengið frá kaupum á auknum hlut í skipafélaginu Kursiu Linija Eimskip átti 50 prósenta hlut í félaginu en á eftir kaupin 70 prósenta hlut og er heildarkaupverð hans 5 milljónir evra, jafnvirði tæpra 465 milljóna króna. Kursiu Linija er eitt stæsta skipafélag í Eystrasaltsríkjunum í einkaeigu. 20.7.2006 12:09
Forstjóri Yukos sagði upp Steven Theede, forstjóri fallna rússneska olíurisans Yukos, sagði af sér í gær en í dag fundar stjórn fyrirtækisins með lánadrottnum fyrirtækisins. Búist er við að með fundinum færist fyrirtækið nær barmi gjaldþrots en nokkru sinni. 20.7.2006 10:52
Japanir verða að fara varlega Tíu ára kyrrstöðu efnahagslífsins í Japan er senn að ljúka en stjórnvöld verða að fara varlega í stýrivaxtahækkunum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um stöðu efnahagsmála í Japan og mælt með því að stjórnvöld bíði eftir frekari hækkun verðlags í landinu áður en þau hækka stýrivexti á nýjan leik. 20.7.2006 09:29
75 prósenta samdráttur íbúðalána Gríðarlegur samdráttur hefur orðið á íbúðalánum viðskiptabankanna síðan þeir hófu innreið sína á lánamarkað. Helstu orsakavaldar eru versnandi efnahagsástand, hægari fasteignamarkaður og óhagstæðari lánsskilyrði. 20.7.2006 07:00
Hagnaður Lýsingar hf. 455 milljónir króna Eignarleigu- og fjármögnunarfyrirtækið Lýsing hf., dótturfélag Exista hf., skilaði 455 milljóna króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Útlán jukust um 45,8 prósent og námu þau tæpum 54 milljörðum króna í lok tímabilsins. Viðskiptamönnum Lýsingar, bæði fyrirtækjum og einstaklingum, fjölgaði verulega á tímabilinu. 19.7.2006 15:52
Gengi bréfa í Rosneft undir væntingum Gengi hlutabréfa í rússneska ríkisolíufyrirtæki Rosneft lækkuðu um 1 sent á hlut þegar viðskipti með 10 prósenta hlut í félaginu hófst í kauphöll Lundúna í Bretlandi í dag. 19.7.2006 15:22
EADS landar stórum samningi EADS, móðurfélag flugvélaframleiðandans Airbus, hefur náð samningum um þróun og framleiðslu á ratsjá fyrir þýska herinn. Ekkert hefur verið gefið upp um virði samningsins að öðru leyti en því að hann er sagður nema nálægt einum milljarði evra, jafnvirði tæpra hundrað milljarða íslenskra króna. En vel má vera að hann geti verið hærri. 19.7.2006 14:11
Gengi Yahoo féll vegna minni hagnaðar Gengi hlutabréfa í bandaríska netleitarfyrirtækinu Yahoo lækkaði um 13 prósent við lokun markaða í gær í kjölfar þess að fyrirtækið greindi frá minni hagnaði á öðrum ársfjórðungi en spár kváðu á um. Ástæðan fyrir því eru tafir á uppfærslu á leitarvél fyrirtækisins sem gera átti á þriðja fjórðungi ársins. Þær dragast fram á þrjá síðustu mánuði ársins. 19.7.2006 09:58
Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 4,14 prósent Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan þennan mánuði og gildir fyrir ágúst, hækkaði um 4,14 prósent frá júní, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. 19.7.2006 09:47
Afkoma Straums Burðaráss vel yfir spám Straumur Burðarás skilaði þrjúhundruð milljóna króna hagnaði en spár gerðu ráð fyrir milljarða tapi. Hagnaður það sem af er ári er liðlega nítján milljarðar. 19.7.2006 08:30