Fleiri fréttir

Vöruskiptin óhagstæð um 13,4 milljarða

Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 13,4 milljarða króna í mars. Vörur voru fluttar út fyrir 19,9 milljarða króna en inn fyrir 33,3 milljarða króna. Í mars í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 6,3 milljarða á föstu gengi.

Uppgjör Bakkavarar í takt við væntingar

Hagnaður Bakkavarar Group nam 715 milljónum króna á fyrsta fjórðungi ársins en hagnaður fyrir skatta nam 985 milljónum króna. Heildartekjur námu 31,8 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður Bakkavarar Group nam 2,3 milljörðum króna en það er 159 prósenta aukning. Hagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði nam 3,4 milljörðum króna en það er aukning um 236 prósentur frá sama tíma á síðasta ári.

Bakkavör Group kaupir brauðvöruframleiðanda

Bakkavör Group hefur náð samkomulagi við Primebake Limited um kaup á dótturfélagi þess, New Primebake Limited, sem er stærsti framleiðandi á kældum brauðvörum í Bretlandi. Eftir kaupin verður Bakkavör Group stærsti framleiðandi kældra brauðvara í Bretlandi.

Hagnaður DaimlerChrysler 299 milljón evrur

Hagnaður bílaframleiðandans DaimlerChrysler nam 299 milljónum evra, jafnvirði 27,5 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársinis. Þetta er 11 milljónum evrum meira en á sama tímabili fyrir ári.

Auknum hagvexti spáð í Þýskalandi

Þýskir hagfræðingar spá 1,8 prósenta hagvexti í endurskoðaðri spá sinni fyrir árið. Segja þeir útflutning vera að aukast og merki vera á lofti um aukna neyslu. Hins vegar segja þeir að dragi úr hagvexti á næsta ári. Þá minnkaði atvinnuleysi í Þýskalandi og er nú 11,5 prósent. Hagfræðingarnir spáðu 1,2 prósenta hagvexti á þessu ári í spá sem birt var í október á síðasta ári.

Tekjur Reuter umfram væntingar

Tekjur fjölmiðlafyrirtækisins Reuters námu 633 milljónum punda, jafnvirði tæplega 85 milljörðum krónum, á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þetta er 16 milljón pundum meira en búist var við.

Methagnaður hjá Kaupþing banka

Hagnaður Kaupþing banka nam 18,8 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2006. Á sama tíma á síðasta ári nam hagnaðurinn 11,1 milljarði og er aukningin 69,5 prósent á milli ára. Hagnaður á hlut var 28,3 krónur en hann var 17 krónur á fyrsta ársfjórðungi 2005. Þetta er methagnaður í sögu bankans.

Atvinnuleysi í Danmörku í sögulegu lágmarki

Atvinnuleysi í Danmörku mældist 4,8 prósent í síðasta mánuði. Samkvæmt upplýsingum dönsku hagstofunnar hefur atvinnuleysi aldrei verið minna í landinu í 30 ár.Þetta merkir að 133.500 hafi verið án atvinnu.

Hagnaður Nýherja 54 milljónir króna

Hagnaður Nýherja hf. nam 54 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi eða 0,27 krónur á hlut. Þetta er 28 milljónum meira en á sama tímabili á síðasta ári. Þá jukust tekjur fyrirtækisins um 34 prósent á milli ára en þær námu 1,9 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir nam 158 milljónum króna á tímabilinu.

Sala Roche jókst um 22 prósent

Svissneski lyfjaframleiðandinn Roche greindi frá því í dag að sala fyrirtækisins hefði aukist um 22 prósent á fyrsta fjórðungi ársins. Sala á flensulyfinu Tamiflu hefur stóraukist en það er af mörgum talið geta komið í veg fyrir að fólk smitist af fuglaflensu.

Hagnaður Boeing jókst um 29 prósent

Hagnaður flugvélaframleiðandans Boeing jukust um 29 prósent á fyrsta ársfjórðungi og tekjur jukust um 48 prósent. Helsta ástæða aukningarinnar er meiri sala á flugvélum en fyrirtækið seldi 28 fleiri flugvélar á fjórðungnum en á sama tíma á síðasta ári.

Frumvarpið gæti tekið breytingum í nefnd

Frumvarp til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti gæti átt eftir að taka breytingum á þingi. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir ákvæði í frumvarpinu íþyngjandi.

Útflutningur tekur við af skuldasöfnun

Í nýrri þjóðhagsspá til ársins 2010 er hagkerfið sagt leita jafnvægis. Ófyrirséðar breytingar höfðu töluverð áhrif. Spáð er stuttu verðbólguskoti og hraðri aðlögun hagkerfisins. Hagvöxtur í fyrra var heldur meiri en fyrri spár gerðu ráð fyrir, 5,5 prósent í stað 5,2 prósenta, vegna ört vaxandi þjóðarútgjalda.

Hagnaður Tesco jókst um 17 prósent

Breska verslunarkeðjan Tesco PLC skilaði 17 prósenta hagnaði á síðasta ári. Keðjan hefur í bígerð að hagræða í rekstri og spara þannig 5 milljarða punda á næstu 5 árum.

Viðsnúningur á markaði

Greiningardeild KB banka segir mikla lækkun hafa átt sér stað á með mikilli gengisveikingu krónunnar og lækkunum á verði skulda- og hlutabréfa á mörkuðum að undanförnu. Í hálf fimm fréttum bankans segir að frá byrjun síðasta mánar hafi krónan veikst um tæp 19 prósent á sama tíma og Úrvalsvísitalan hafi lækkað um tæp 15 prósent. Viðsnúningur hafi hins vegar orðið á þróuninni á föstudag þegar krónan styrktist um 2,1 prósent í metviðskiptum, sem námu 63,2 milljörðum króna.

Hættir við kaup á Liverpool

Norsku viðskiptajöfrarnir Øystein Stray Spetalen og Petter Stordalen eru sagðir hættir við að gera tilboð í ráðandi hlut í breska knattspyrnufélagið Liverpool. Að sögn norska viðskiptablaðsins Dagens Næringsliv þótti þeim félagið ekki álitlegur kostur í bili.

Einkaneysla jókst í mars

Svo virðist sem einkaneysla hafi aukist töluvert í síðasta mánuði að því er fram kemur í upplýsingum um greiðslukortaveltu á vef Seðlabankans, að mati greiningardeildar Glitnis. Deildin bendir á að á vefnum komi fram að heildarvelta kreditkorta hafi numið 18,8 milljörðum króna í mars, sem sé 16 prósenta aukning miðað við sama mánuð í fyrra.

Gengi hlutabréfa lækkaði í Japan

Gengi hlutabréfabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 2,8 prósent og er það mesta lækkun vísitölunnar á einum degi síðan í janúar á þessu ári. 18. janúar sl. lækkaði vísitalan um 2,9 prósent.

Vísitala byggingarkostnaðar 329,4 stig

Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan apríl, er 329,4 stig og hefur hún hækkað um 1,07 prósent frá síðasta mánuði. Vísitalan gildir fyrir maí. Að sögn Hagstofunnar hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,3 prósent síðastliðna 12 mánuði.

Vill konur í stjórn A. P. Møller-Mærsk

Jess Søderberg, forstjóri dönsku fyrirtækjasamteypunnar A. P. Møller-Mærsk, er sagður hafa á takteinum að fjölga konum í stjórn fyrirtækisins. Danskir karlar hafa frá upphafi verið einráðir í stjórninni og hafa konur þar aldrei átt sæti.

Minni hagnaður hjá McDonald´s

Hagnaður bandarísku skyndibitakeðjunnar McDonald´s dróst saman um 14 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þetta er mesti samdráttur keðjunnar í fjögur ár. Hagnaðurinn nam 625,3 milljónum Bandaríkjadala eða 49 sentum á hlut. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn 727,9 milljónum eða 56 sentum á hlut.

Hlutabréf hækkuðu í Evrópu

Gengi hlutabréfa hækkaði á mörkuðum í Evrópu í dag í kjölfar hækkunar á Dow Jones hlutabréfavísitölunni í gær, sem hefur ekki verið hærri í sex ár. Gengi bréfa í ítalska bifreiðaframleiðandanum Fiat hækkaði um 2 prósent í eftir að greint var frá góðri afkomu fyrirtækisins á árinu. Þá hækkaði gengi finnska farsímaframleiðandans Nokia um 1,5 prósent.

Olíuverð nálægt sögulegu hámarki

Olíuverð fór í sögulegt hámark í helstu mörkuðum í dag þegar það fór yfir 73 dollara á tunnu. Sérfræðingar spá því að olíuverð haldi áfram að hækka á næstu vikum vegna minni olíubirgða í Bandaríkjunum og óvissu um aðgerðir gegn kjarnorkuáætlun Írana, en það er næststærsta olíuframleiðsluríkið innan OPEC. Þá hafa árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu dregið mikið úr olíuframleiðslu þar í landi.

Íbúðalánasjóður verði bakhjarl á lánamarkaði

Í áfangaskýrslu stýrihóps félagsmálaráðherra um breytingar á Íbúðalánasjóði er gert ráð fyrir því að sjóðurinn breytist í lánabakhjarl banka og sparisjóða samkvæmt tillögum hópsins. Hugmyndir stýrihópsins um hugsanlegar breytingar á sjóðnum voru skoðaðar með það að leiðarljósi að skerða ekki félagslegt hlutverk hans, segir Sigurjón Þórsson, formaður stýrihópsins.

Botnlaus hlutabréfamarkaður

Úrvalsvísitalan lækkar niður fyrir áramótagildið í mikilli lækkun annan daginn í röð. Neikvæð stemmning ríkir á hlutabréfamarkaði og fáir vilja taka þá áhættu að kaupa hlutabréf.

Kaupmáttur launa fer minnkandi

Launavísitala í mars 2006 er 285,4 stig og hækkaði um 0,3 prósent frá fyrri mánuði, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Á sama tímabili jókst verðbólga um 1,1 prósent. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,6 prósent.

Vísitala neysluverðs hækkaði í Bandaríkjunum

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4 prósent í Bandaríkjunum í marsmánuði en það nemur 3,4 prósenta hækkun á ársgrundvelli. Þetta er meiri hækkun en fjármálasérfræðingar bjuggust við en helsta ástæðan er hækkun á eldsneyti og fatnaði. Þetta er engu að síður lækkun frá febrúarmánuði en þá nam hún 3,6 prósentum á ársgrundvelli.

Fimmta skrifstofan í Asíu

Samskip hafa opnað skrifstofu í Seoul í Suður-Kóreu. Skrifstofan er sú fimmta í röðinni í Asíu, en fyrir eru skrifstofur í Pusan í Suður-Kóreu, Dalian og Qingdao í Kína og Ho Chi Minh í Víetnam. Skrifstofur Samskipa eru þá orðnar 56 í 22 löndum.

Olíuverð lækkaði lítillega

Olíuverð lækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag eftir að hafa farið í sögulegt hámark í gær. Búist er við að upplýsingar bandarískra stjórnvalda, sem birtar verða í dag, sýni að olíubirgðir hafi aukist í Bandaríkjunum.

Atvinnuleysið 2,4 prósent á 1. ársfjórðungi

Atvinnuleysi mældist 2,4 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2006. Það táknar að 4.000 manns hafi verið án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist 2,2 prósent hjá körlum en 2,5 prósent hjá konum. Atvinnuleysi er mest á meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára eða 7,7 prósent.

Hlutabréf hækkuðu í Japan

Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Tókýó í Japan hækkuðu annan daginn í röð í dag m.a. vegna þess að fjárfestar telja stýrivaxtahækkun í Bandaríkjunum lokið í bili auk þess sem spáð er góðri afkomu tæknifyrirtækja.

Lækkanir eftir páskahelgina

Hlutabréf lækkuðu um tvö prósent á fyrsta viðskiptadegi eftir páska. Úrvalsvísitalan endaði í 5.535 stigum. Mest lækkuðu bréf í FL Group, um 4,8 prósent, og í Landsbankanum, eða um -4,2 prósent.

Hrávöruverð í hæstu hæðum

Verð á góðmálmum á borð við gull, kopar og silfur heldur áfram að hækka eins og olían. Únsan af gulli fór í 618 dali í gær og af silfri í 13,5 dali. Verð á gulli hefur ekki verið hærra á hrávörumarkaði í New York síðan árið 1980 og leita þarf aftur til ársins 1983 til að finna jafn hátt verð á silfri.

Lánastofnanir finna aukna ásókn í myntkörfulán

Útlánastofnanir merkja aukna ásókn almennings í húsnæðislán í erlendri mynt, hvort sem það er til endurfjármögnunar eða nýrra kaupa. Bankar ráðlögðu fólki til skamms tíma að taka frekar lán í krónum, en taka nú sumir hverjir hlutlausari afstöðu.

Rue de Net og Skýrr í samstarf

Rue de Net ehf. og Skýrr hf. hafa undirritað samning um almennt samstarf og sölu lausna hvor annars hvað snertir viðskiptalausnir og þróunarumhverfi Microsoft. Fyrirtækin hyggjast taka sameiginlega þátt í verkefnum og útboðum þar sem styrkleikar beggja nýtast.

Nestlé mögulegur kaupandi McCartneys

Líkur eru sagðar á að svissneska matvælafyrirtækið Nestlé kaupi matvörufyrirtæki Lindu McCartney, sem fyrrum eiginkona bítilsins Pauls McCartneys stofnaði árið 1991. Fyrirtækið McCartney er nú í eigu bandaríska matvörufyrirtækisins Heinz.

Olíuverð hækkar enn

Olíuverð sveiflaðist nokkuð á mörkuðum í dag. Verðið stóð til skamms tíma í 70,85 dollurum á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum en lækkaði nokkuð og stendur nú í 70,75 sentum, sem er 35 sentum meira en í gær. Norðursjávarolía, sem afhent verður í júní, hækkaði um 5 sent í kauphöll Lundúna í Bretlandi. Til skamms tíma fór tunnan í 72,20 dollara, sem er metverð. Hún stendur nú í 71,51 dal.

Hagnaður Pepsi minnkar á milli ára

Bandaríska gosdrykkjafyrirtækið Pepsi Bottling Group Inc. skilaði 34 milljóna dollara hagnaði á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þetta er 5 milljónum minna en á sama tíma á síðasta ári. Gengi hlutabréfa í fyrirtækinu hækkaði um 14 sent eftir að greint var frá afkomu fyrirtækisins.

Nýr framkvæmdastjóri TM Software

Stefán Þór Stefánsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá TM Software – Custom Development (áður Origo) af Einari Gunnari Þórissyni sem tekið hefur við nýju starfi hjá TM Software Healthcare. Stefán hefur víðtæka reynslu af ábyrgðarstörfum tengdum fjármálum og sölu- og markaðsmálum fyrirtækja.

EDGE í notkun á fleiri stöðum

Og Vodafone hefur eflt farsímakerfi sitt en frekar í kringum höfuðborgarsvæðið með því að taka í notkun EDGE tækni sem gerir viðskiptavinum í farsímaþjónustu fyrirtækisins mögulegt að nota símtæki sín með fjölbreyttari og hraðvirkari hætti en áður. Nú hefur Og Vodafone lokið við uppsetningu á EDGE sambandi frá Úlfarsfelli við Mosfellsbæ og að Grundarhverfi á Kjalarnesi.

Adidas og NBA ná samningum

Samningar hafa náðst á milli þýska íþróttavöruframleiðandans Adidas og bandarísku körfuboltadeildarinnar NBA um notkun Adidas búninga í karla- og kvennadeildum næstu 11 árin. Gengi bréfa í Adidas hækkað um 3 prósent í kjölfarið.

Nasdaq íhugar aukin kaup í LSE

Stjórn Nasdaq-markaðarins útiloka ekki að fleiri hlutir verði keyptir í kauphöllinni í Lundúnum (LSE) í Bretlandi. Markaðurinn keypti tæp 15 prósent af tveimur stórum hluthöfum í kauphöllinni í gær og er nú stærsti einstaki hluthafinn í LSE. Gengi bréfa LSE hækkuðu um 13 prósent í kjölfar kaupanna.

FL Group og fleiri kaupa Refresco

FL Group hf. hefur í samstarfi við aðra fjárfesta keypt hollenska drykkjarvöruframleiðandann Refresco Holding B.V. (Refresco) af fjárfestingasjóðnum 3i Plc. Heildarkaupverð, ásamt skuldum, er um 461 milljón evra, 42 milljarðar íslenskra króna. FL Group verður stærsti hluthafi félagsins ásamt m.a. Vífilfelli og helstu stjórnendum Refresco.

Hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækka

Félagsmálaráðherra hefur ákveðið hækkun á hámarkslánum Íbúðalánasjóðs úr 15,9 milljónum í 18 milljónir króna og hefur undirritað reglugerð þar af lútandi. Þá hefur hann jafnframt undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um ILS-veðbréf en samkvæmt þeim verður ekki lengur krafist þess af byggingaraðilum að þeir leggi fram bankaábyrgð vegna láns til nýbygginga. Þá verður ekki einungis miðað við brunabótamat við ákvörðun hámarkslán.

Góð afkoma Lauru Ashley

Gengi hlutabréfa í bresku tísku- og húsgagnakeðjunni Lauru Ashley hækkuðu um 16 prósent í gær eftir að greint var frá því að afkoma keðjunnar hfafi verið umfram væntingar. Stjórn eignarhaldsfélags fyrirtækisins ákvað í kjölfarið að greiða hluthöfum arð í fyrsta skipti í átta ár.

Sjá næstu 50 fréttir