Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Blaðaútgáfur sameinast í Bandaríkjunum Bandaríska útgáfufyrirtækið Knight Ridder Inc., sem er næststærsta dagblaðaútgáfa Bandaríkjanna, hefur samþykkt yfirtökutilboð samkeppnisaðilans McClatchy Co. sem er mun smærra fyrirtæki. Yfirtökutilboðið hljóðar upp á 4,5 milljarða Bandaríkjadali. Eftir sameiningu útgáfufyrirtækjanna á fyrirtækið 32 dagblöð og 50 önnur blöð. 13.3.2006 16:43
Gengi Schering hækkaði um fjórðung Gengi hlutabréfa í þýska lyfjafyrirtækinu Schering hækkaði um 25 prósent í dag eftir að fjárfestar bjuggust við að þýski lyfjarisinn Merck myndi gera nýtt yfirtökutilboð í fyrirtækið. Merk gerði óvinveitt yfirtökutilboð í Schering í gær og hljóðað tilboðið upp á 14,9 milljarða evrur eða 77 evrur á hlut. Forsvarsmenn Schering sögðu tilboðið of lágt og hvöttu hluthafa í lyfjafyrirtækinu til að hunsa það. 13.3.2006 16:10
Standard & Poor's staðfestir lánshæfismat á Íbúðalánasjóði Alþjóða matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest fyrra lánshæfismat sitt á Íbúðalánasjóði og segir horfur sjóðsins vera neikvæðar. Matsfyrirtækið gaf Íbúðalánasjóði lánshæfiseinkunnina AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt 10. mars síðastliðinn og setti sjóðinn á athugunarlista með neikvæðum horfum út annan ársfjórðung 2006. 13.3.2006 12:34
Hlutabréf hækkuðu í Asíu Gengi hlutabréfa hækkaði á flestum mörkuðum í Asíu í kjölfar hlutabréfahækkana á mörkuðum á Wall Street í Bandaríkjunum í síðustu viku. Gengi hlutabréfa hækkaði jafnframt á mörkuðum á Nýja-Sjálandi og hefur aldrei verið hærra. 13.3.2006 11:25
Bitist um Lundúnakauphöllina Verðið á Kauphöllinni í Lundúnum hækkaði um 22 prósent í morgun í kjölfar vangaveltna um hvort Nasdaq og Kauphöllin í New York taki að bítast um að kaup á kauphöllinni. Fréttavefur Breska ríkisútvarpsins greinir frá. 13.3.2006 09:44
Gjaldeyrisjöfnuður bankanna jákvæður Gjaldeyrisstaða bankanna var jákvæð um tæpa 83 milljarða króna í lok síðasta mánaðar. Þetta er hækkun um 21,7 milljarða króna á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. 10.3.2006 17:02
GM innkallar 900.000 pallbíla Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors Corp. tilkynnti í dag að fyrirtækið ætli að innkalla 900.000 pallbíla af gerðinni Chevrolet Silverado, Chevrolet Avalance, Cadillac Escalade EXT og GMS Sierra vegna galla í festingum sem styður við lok á palli bílanna. Bílarnir eru allir settir á markað á árunum 1999 til 2000. 10.3.2006 16:07
Hlutabréf lækkuðu í Evrópu Hlutabréf lækkuðu nokkuð á helstu mörkuðum í Evrópu í dag og hefur gengi bréfa á helstu mörkuðum álfunnar ekki verið lægra í þrjár vikur. Ástæðan er lækkuninni er sú að búist er við minni vexti fyrirtækja en væntingar spáðu fyrir um auk þess sem evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti í annað sinn á þremur mánuðunum í byrjun þessa mánaðar. 10.3.2006 15:28
FL Group stærsti hluthafinn í easyJet FL Group hefur aukið hlut sinn í easyJet í 16,9 prósent. Markaðsvirði hlutarins nam í gær um tæpum 31 milljarði króna. Með þessu á FL Group orðinn stærsti hluthafi easyJet en stofnandinn Stelios Haji-Ioannou á 16,5 prósent. 10.3.2006 14:55
Atvinnuleysi 4,8 prósent í Bandaríkjunum Atvinnuleysi mældist 4,8 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og er það 1,1 prósentustiga aukning frá janúarmánuði. Þrátt fyrir þetta urðu 243.000 ný störf urðu til í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Aukning atvinnuleysisins kemur fjármálasérfræðingum á óvart þar sem þeir spáðu óbreyttu atvinnuleysi á milli mánaða. 10.3.2006 14:45
Hagnaður FL Group 17,3 milljarðar Hagnaður FL Group fyrir skatta árið 2005 var rúmir 20,5 milljarðar króna samanborið við rúma 4,3 milljarða krónur árið áður. Eftir skatta var var hagnaður fyrirtækisins tæpir 17,3 milljarðar króna, samanborið við tæpa 3,6 milljarða króna árið áður. Þetta er besta afkoma fyrirtækisins fram til þessa. 10.3.2006 14:11
Óskað eftir gjaldþroti Yukos Nokkrir bankar, sem lánuðu rússneska olíufyrirtækinu Yukos fé, hafa farið fram að að fyrirtækið verði lýst gjaldþrota. Olíufyrirtækið hefur rambað á barmi gjaldþrots allt frá því það var dæmt til að greiða 32 milljarða Bandaríkjadala skattaskuld við ríkið. Bankarnir sem farið hafa fram á að Yukos verði lýst gjaldþrota lánuðu fyrirtækinu 480 milljónir dollara áður en Yukos lenti í fjárhagskröggum. 10.3.2006 13:42
Verðbóla eykst um 1,12 prósent Verðbólguvísitalan hækkaði um 1,12 prósent milli febrúar og mars samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Hækkunin er heldur meiri en greiningardeildir bankanna höfðu spáð. Verðbólga án húsnæðis hækkaði um 1,17 prósent frá því í febrúar. 10.3.2006 09:28
Hlutabréf hækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa hækkaði í kauphöllinni í Japan í dag, annan daginn í röð. Stjórn seðlabanka Japans ákvað í gær að gera breytingar á peningastefnu bankans til að auka þanþol fjármálastofnana í Japan gagnvart sveiflum á erlendum hlutabréfamörkuðum. 10.3.2006 09:26
Íslandspóstur hagnast vel Íslandspóstur hagnaðist um 237 milljónir króna á síðasta ári og var afkoman betri en stjórnendur félagsins reiknuðu með. Heildartekjur félagsins námu fimm milljörðum króna sem er um 400 milljóna króna aukning á milli ára. 10.3.2006 00:20
Styðja þarf bankana í kynningu á aðstæðum hér Mikilvægt er að lagst sé á árar með bönkunum í kynningarstarfi í útlöndum. Sérfræðingar segja lítinn mun á íslenskum bönkum og erlendum og undrast álit Merrill Lynch enda hafi matsstofnanir nýverið staðfest lánshæfismat sitt á bönkunum. 10.3.2006 00:20
Krefst 940 milljóna auk dráttarvaxta Atorka Group, næststærsti hluthafinn í Hampiðjunni, telur að stærsti hluthafinn, Eignarhaldsfélagið Vogun, hafi gerst yfirtökuskyldur í Hampiðjunni og hefur stefnt Vogun. 10.3.2006 00:20
Uppsagnir hjá Össuri í Ameríku Össur hf. ætlar að endurskipuleggja hluta af starfsemi félagsins í Norður-Ameríku, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins til Kauphallar Íslands í dag. 10.3.2006 00:20
Skyrtuframleiðandi keyptur Hlunnur ehf., sem er í eigu feðganna Þórarins Elmars Jensen og Markúsar og Gests Þórarinssona, sem áður ráku 66°Norður, hefur keypt skyrtuframleiðandann AB Vilkma í Litháen. AB Vilkma framleiðir hágæðaskyrtur fyrir þekkt vörumerki í Vestur-Evrópu, eins og Eton, Marks & Spencer og Faconnable, og markaðssetur einnig sín eigin vörumerki í Litháen. 10.3.2006 00:20
Verk og vit í Laugardal Um 120 fyrirtæki í byggingariðnaði og mannvirkjagerð, sveitarfélög, hönnuðir og ráðgjafar munu kynna starfsemi sína á stórsýningunni Verk og vit 2006 sem verður haldin 16. til 19. mars í nýju íþrótta- og sýningahöllinni í Laugardal. Í tengslum við sýninguna, sem er bæði fyrir fagaðila og almenning, verða haldnar ráðstefnur, kynningarfundir og fleiri viðburðir. 10.3.2006 00:20
Niðurskurður hjá British Airways Breska flugfélagið British Airways ætlar á skera niður útgjöld um 450 milljónir punda, 54 milljarða íslenskra króna, á næstu tveimur árum. M.a. er búist við uppsögnum hjá flugfélaginu. Ástæðan fyrir niðurskurðinum er aukin samkeppni frá lággjaldaflugfélögum og spá um hærri eldsneytiskostnað á næstu árum. 9.3.2006 17:17
Hagnaður Granda minnkar Hagnaður HB Granda hf. nam 547 milljónum króna á síðasta ári. Þetta er samdráttur um 447 milljónir króna frá 2004 þegar hagnaðurinn nam 994 milljónum króna. 9.3.2006 16:29
Minni innflutningur í febrúar Vöruinnflutningur nam 22 milljörðum króna hér á landi í febrúar en það er 3,5 milljörðum krónum minna en í janúar. Um bráðabirgðatölur er að ræða, að því er fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins. Innflutningur á bílum tók kipp en búist er að hann minnki vegna gengislækkana á síðustu vikum. 9.3.2006 16:12
Sögulegur viðskiptahalli í Bandaríkjunum Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum jókst um 5,3 prósent í janúar og nam 68,5 milljörðum dala í mánuðinum, samkvæmt upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti landsins. Þetta er methalli í mánuðinum í sögu Bandaríkjanna en ástæða hans er aukinn innflutningur á eldsneyti, ökutækjum og vínum auk mikils innflutnings á klæðnaði og farsímum frá Kína. 9.3.2006 15:44
Strangari kröfur um lán á Grikklandi Nicholas Garganas, bankastjóri Seðlabanka Grikklands, tilkynnti í dag að í bígerð sé að setja bönkum strangari reglur um lánveitingar. Breytingin er í samræmi við reglur Evrópusambandsins um alþjóðlega bankastarfsemi en með henni er horft til þess að minnka áhættu banka í lánveitingum. 9.3.2006 15:11
Hráolíuverð lækkaði Hráolíuverð lækkaði á helstu mörkuðum í dag í kjölfar þess að samtök olíuframleiðsluríkja (OPEC) samþykktu á fundi sínum í Vínarborg í gær að halda olíuframleiðslu óbreyttri. 9.3.2006 13:55
Tekjuafgangur Akureyrarbæjar 360 milljónir Heildarniðurstaða ársreikninga Akureyrarbæjar fyrir síðasta ár, sem lagðir voru fram í bæjarráði Akureyrar í dag, er mun betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Fjárhagurinn er traustur og er rekstrarniðurstaða samstæðunnar jákvæð um ríflega 360 milljónir króna. Áætlun hafði gert ráð fyrir 144,2 milljóna króna hagnaði. 9.3.2006 13:31
Stýrivextir óbreyttir í Bretlandi Bankastjórn Englandsbanka ákvað á fundi sínum í dag að hækka ekki stýrivexti í Bretlandi. Þeir eru nú 4,5 prósent og hafa haldist óbreyttir síðastliðna sjö mánuði. Stöðugleiki í bresku efnahagslífi og jákvæð breyting á fasteignamarkaði eru talin ástæða þess að bankastjórnin ákvað að halda vöxtunum óbreyttum. 9.3.2006 13:08
Hagnaður PPR dróst saman Hagnaður franska eignarhaldsfélagsins PPR, sem m.a. á ítalska tískufyrirtækið Gucci auk fleiri þekktra vörumerkja, dróst saman um tæpan helming á síðasta ári miðað við árið á undan. Hagnaður fyrirtækisins á árinu nam 535 milljónum evra, jafnvirði rúmlega 44 milljarða íslenskra króna. Árið 2004 nam hagnaðurinn hins vegar 1.09 milljörðum evra, tæplega 90 milljörðum íslenskra króna. 9.3.2006 12:36
Uppsagnir hjá Össuri í Ameríku Össur hf. ætlar að endurskipuleggja hluta af starfsemi félagsins í Norður Ameríku, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins til Kauphallar Íslands í dag. Til stendur að segja um 80 manns upp störfum. 9.3.2006 11:50
Mikil umsvif í fasteignum Umsvif voru óvenju mikil á fasteignamarkaði í síðustu viku. Gengið var frá 206 kaupsamningum, 160 samningum um kaup á eignum í fjölbýli, 30 kaupsamningum um sérbýli og 16 samningum um annars konar eignir. Meðalupphæð samnings nam 23,6 milljónum króna, að því er fram kemur í hálffimm fréttum KB banka, þar sem vísað er í upplýsingar frá Fasteignamati ríkisins. 9.3.2006 00:01
Kaupa í Aktiv Kapital í Noregi FL Group hefur keypt tæplega 9 prósenta hlut í norska fjármálafyrirtækinu Aktiv Kapital. Markaðsvirði hlutarins er um 4,7 milljarðar króna. Starfsemi félagsins skiptist í kaup á lánasöfnum sem eru í vanskilum, innheimtu viðskiptakrafna og umsýslu reikninga. Starfsemin er í ellefu löndum og var hagnaður í fyrra um 2,5 milljarðar króna. 9.3.2006 00:01
Segja áhættu kalla á hærra vaxtaálag skuldabréfa Krónan féll um þrjú prósent fyrri partinn í gær í kjölfar frétta af viðskiptahalla við útlönd og nýrrar skýrslu verðbréfafyrirtækisins Merrill Lynch þar sem dregin er í efa lánshæfiseinkunn íslensku bankanna. Merrill Lynch segist ekki spá krísu, en telur innbyggða áhættu í bankakerfinu. 9.3.2006 00:01
Kröftug uppsveifla FlyMe Enn eykst fjöldi þeirra sem ferðast með sænska lággjaldaflugfélaginu FlyMe. Farþegum fjölgaði um 49,5 prósent í febrúar samanborið við sama mánuð í fyrra en sams konar aukning var 44,4 prósent í janúar. 9.3.2006 00:01
Sala jókst hjá McDonald's Sala jókst hjá McDonald's skyndibitakeðjunni á heimsvísu um 4,7 prósent í síðasta mánuði en sala skyndibita á innanlandsmarkaði í Bandaríkjunum jókst hins vegar um 3,6 prósent. Að sögn forsvarsmanna McDonald's í Bandaríkjunum er ástæða söluaukningarinnar ný kjúklingasamloka sem notið hefur vinsælda, fleiri réttir á morgunverðarmatseðli og lengri afgreiðslutími hjá útibúum skyndibitakeðjunnar í Bandaríkjunum. 8.3.2006 13:42
Olíuverð lækkaði á helstu mörkuðum Hráolía lækkaði í verði á helstu mörkuðum í dag. Hráolía, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 18 sent og endaði í 61,40 dollurum á tunnu á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum en Brent Norðursjávarolía lækkaði um 8 sent í Lundúnum í Bretlandi og endaði í 61,09 dollara á tunnu. 8.3.2006 10:28
Bankastjórn Seðlabanka Japans fundar Fundur bankastjórnar Seðlabanka Japans hófst í dag. Fjármálasérfræðingar fylgjast grannt með fundinum, sem stendur yfir í tvo daga, en búist er við nokkrum breytingum á peningastefnu bankans. Hins vegar er ekki búist við hækkun stýrivaxta í Japan á næstunni líkt og áður var talið en vextirnir hafa haldist óbreyttir í fimm ár. 8.3.2006 09:54
Mótmæla verksmiðju SVN á Hjaltlandseyjum Íbúar í námunda við verksmiðjuna óttast lyktarmengun og fjölgun fugla við flugvöll í nágrenni hennar. 8.3.2006 09:24
Met í kaupum á erlendum bréfum Met var slegið í kaupum íslenskra fjárfesta á erlendum verðbréfum í janúar. Með kaupunum fæst æskileg áhættudreifing. 8.3.2006 09:24
Úrskurðarnefnd styður Símann Hrundið hefur verið ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar frá því 22. desember 2005 um að hafna umsókn Símans um framlög úr jöfnunarsjóði fjarskipta. Úrskurðarnefnd fjarskiptamála kvað upp úrskurð sinn á mánudag og vísaði málinu aftur til stofnunarinnar. 8.3.2006 09:24
Horfur á frekari vaxtahækkunum í Evrópu Hækkun stýrivaxta í Evrópu getur haft áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja hér. Seðlabanki Evrópu hækkaði í síðustu viku vexti um 25 punkta en boðaði ekki frekari hækkanir. 8.3.2006 09:24
Enex virkjar í Ungverjalandi Íslenska orkufyrirtækið Enex, ungverska olíu- og gasfélagið MOL og ástralska fjárfestingarfyrirtækið Hercules/Vulcan hafa skrifað undir samning sem markar upphafið að byggingu fyrstu jarðvarmastöðvar í Ungverjalandi sem ætluð er til raforkuframleiðslu. Samkvæmt upplýsingum Enex verður stöðin þrjú til fimm megavött að stærð. 8.3.2006 06:00
Besta ár í sögu Actavis Alþjóðlega samheitalyfjafyrirtækið Actavis Group skilaði 6,3 milljarða króna hagnaði á árinu 2005 og 2,8 milljarða hagnaði á fjórða ársfjórðungi. Tekjur samstæðunnar námu 45,2 milljörðum króna á árinu og hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta nam 11,5 milljörðum króna. Árið er það besta í sögu félagsins. 7.3.2006 17:16
Viðskiptahallinn við útlönd 164,1 milljarður króna í fyrra Viðskiptahallinn við útlönd nam 53,1 milljarði króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands. Á sama tímabili 2004 var viðskiptahallinn 35,2 milljarðar króna. Viðskiptahallinn á öllu síðasta ári nam samtals 164,1 milljarði króna en var 85,3 milljarðar króna árið áður. 7.3.2006 16:20
FL Group kaupir í Aktiv Kapital FL Group hefur keypt tæplega 8,99 prósenta hlut í norska fjármálafyrirtækinu Aktiv Kapital. Markaðsvirði hlutarins er um 4,7 milljarðar íslenskra króna. 7.3.2006 15:41
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf