Fleiri fréttir Mikil umsvif á fasteignamarkaði Umsvif voru óvenju mikil á fasteignamarkaði í síðustu viku. Gengið var frá 206 kaupsamningum, 160 kaupsamningum um eignir í fjölbýli, 30 samningum um eignir í sérbýli og 16 samninga í annars konar eignum. Meðalupphæð samnings nam 23,6 milljónum króna, að því er fram kemur í hálf fimm fréttum KB banka og vísað í upplýsingar frá Fasteignamati ríkisins. 6.3.2006 20:49 Norskur auðjöfur kaupir stærsta laxeldisfyrirtæki heims Eigendur hollenska laxeldisfyrirtækisins Marine Harvest N.V., sem er stærsta fyrirtæki heims á sínu sviði, hafa samþykkt yfirtökutilboð Geverans Trading Co. Ltd., sem er í eigu norska auðjöfursins Johns Fredriksens. Yfirtökutilboð Geveran Trading hljóðar upp á 1,75 milljarða evrur. 6.3.2006 16:02 Mútumál hjá DaimlerChrysler Þýski bílaframleiðandinn DaimlerChrysler greindi frá því í dag að innri rannsókn fyrirtækisins, sem hefði verið gerð í kjölfar ásakana um mútuþægnihjá fyrirtækinu, hefði leitt í ljós að „ósæmilegar greiðslur“ hefðu verið inntar af hendi í Afríku, Asíu og Austur-Evrópu. Hafi nokkrum starfsmönnum verið vikið úr starfi, sumum til frambúðar en öðrum tímabundið, vegna þessa. 6.3.2006 14:11 HSBC bankinn skilaði mestum hagnaði Alþjóðlegi fjárfestingabankinn HSBC skilaði mestum hagnaði breskra banka í Bretlandi á síðasta ári. Hagnaðurinn nam 11,5 milljörðum punda fyrir skatta. Um 20 prósent af hagnaði bankans var í Bretlandi en 80 prósent á alþjóðlegum vettvangi, s.s. í nokkrum löndum í Evrópu, Asíu, í Bandaríkjunum og Mið- og Suður-Ameríku. 6.3.2006 11:55 Hlutabréf hækkuðu í Japan Gengi flestra hlutabréfa hækkaði við lokun markaða í Asíu í dag. Hækkunin nam í flestum tilvikum um hálfu prósentustigi en gengi bréfa í kauphöllinni í Tókýó í Japan hækkuðu mest. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan hækkaði um 1,5 prósent og endaði í 15.901,16 stigum, sem er hæsta lokagengi vísitölunnar í sex ár. 6.3.2006 11:01 Hagnaður Landsvirkjunar minnkar á milli ára Hagnaður af rekstri Landsvirkjunar nam tæpum 6,29 milljörðum króna á síðasta ári en var 7,19 milljarðar króna árið 2004. Í árslok námu heildareignir fyrirtækisins 182 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall 31,9 prósent, að því er fram kemur í ársreikningum Landsvirkjunar, sem lagðir verða fyrir ársfund fyrirtækisins eftir mánuð. 6.3.2006 10:35 Hagar kaupa einstaklingssvið Tæknivals Gengið hefur verið frá sölu einstaklingssviðs Tæknivals til Haga. Salan gekk í gegn í gær, en einstaklingssviðið felur í sér verslun og heildsölu á tölvubúnaði á einstaklingsmarkaði. Hagar tóku við rekstri verslunar Tæknivals og heildsölu í Skeifunni í Reykjavík núna um mánaðamótin. 3.3.2006 15:10 Nói-Síríus kaupir enskt sælgætisfyrirtæki Nói Síríus hefur gengið frá kaupum á enska fyrirtækinu Elizabeth Shaw, sem er þekkt enskt sælgætisfyrirtæki og sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á súkkulaðivörum af ýmsu tagi. Saga fyrirtækisins nær allt aftur til 19. aldar en þekktustu merki þess eru Mint Crisps, sem eru innpakkaðar súkkulaðiskífur með myntubragði og Famous Names, sem eru líkjörsfylltir konfektmolar. 3.3.2006 14:06 Tekjur Hitaveitu Suðurnesja jukust milli ára Rekstrartekjur Hitaveitu Suðurnesja (HS) námu 4,68 milljörðum króna á síðasta ári og er það 873 milljóna króna aukning frá 2004, að því er fram kemur í ársuppgjöri fyrirtækisins fyrir síðasta ár. Um 23% hækkun tekna stafar af aukningu í raforkusölu um 545 milljónir króna og aukningu í öðrum tekjum um 261 milljón krónur. 3.3.2006 13:30 ESB spáir 1,9 prósenta hagvexti á evrusvæðinu í ár Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) gaf út hagvaxtarspá sína í dag fyrir lönd sem tekið hafa upp evruna. Spáð er á bilinu 0,4 prósenta til 0,9 prósenta hagvaxtaraukningu á evrusvæðinu á fyrsta ársfjórðungi og er búist við svipaðri aukningu á næstu tveimur ársfjórðungum. 3.3.2006 10:54 Íslandsbanki kaupir 50,1% í Union Group Íslandsbanki hf. hefur skrifað undir samning um kaup á 50,1 prósenta hlut í Union Group, sem er stærsti og leiðandi aðili í sölu, ráðgjöf og samsetningu viðskipta með atvinnuhúsnæði í Noregi. Kaupin styrkja frekar stöðu Íslandsbanka í viðskiptum með atvinnuhúsnæði, fjármögnun slíkra viðskipta með sölu til þriðja aðila, auk fyrirtækjaráðgjafar og sjóðarekstrar á sviði atvinnuhúsnæðis í Noregi. 3.3.2006 09:58 Þrír stærstu bankar landsins styrkja stöðu sína gagnvart sveiflum Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings segir í nýrri skýrslu um næmi þriggja stærstu banka landsins, KB banka, Landsbankans og Íslandsbanka, að þeim hafi á síðastliðnum þremur árum tekist að bregðast með betri hætti við sveiflum á gengis- og vaxtamarkaði hér á landi. Segir m.a. í skýrslunni að fjölbreytt starfsemi bankanna hafi orðið til þess að þeir eru ekki jafn viðkvæmir fyrir breytingum og áður. 2.3.2006 16:14 Eigið fé Stoða jókst á milli ára Hagnaður fasteignafélagsins Stoða hf. nam rúmum 2 milljörðum króna á síðasta ári, að því er fram kemur í ársuppgjöri félagsins. Þetta er 766 milljónum króna minna en árið á undan. Í árslok gerði félagið samning um kaup á öllu hlutafé í danska fasteignafélaginu Atlas Ejendomme A/S og varð félagið hluti af samstæðureikningi Stoða hf. frá yfirtökudegi, sem var 6. janúar sl. Þá hafa kaupin og lánveitingar til Atlas verið færðar í ársreikninginn. 2.3.2006 15:25 Forstjóraskipti hjá Tæknivali Magnús V. Snædal hefur verið ráðinn forstjóri Tæknivals í stað Sigrúnar Guðjónsdóttur. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá þekkingu. Ráðningin kemur í kjölfar eigendaskipta á Tæknivali, þar sem eignarhaldsfélagið Byr keypti félagið af Fons. 2.3.2006 14:20 Stýrivextir hækka á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn (ECB) hækkaði stýrivexti á evrusvæðinu um 0,25 prósent í dag og standa þeir nú í 2,50 prósentum. Með hækkuninni, sem er í samræmi við spár fjármálasérfræðinga, er horft til þess að styrkja efnahag þeirra 12 aðildarlanda Evrópusambandsins (ESB), sem tekið hafa upp evruna. 2.3.2006 13:06 Olíuverð fór yfir 62 dollara Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði enn í dag þrátt fyrir að opinberar tölur bentu til að olíubirgðir hefðu aukist í Bandaríkjunum. Hráolía, sem afhent verður í næsta mánuði, hækkaði um 74 sent á mörkuðum í New York og fór 62,71 dal á tunnu en verð á Brent Norðursjávarolíu hækkaði um 76 sent í Lundúnum og fór í 63,21 dal á tunnu. 2.3.2006 11:45 Standard & Poor’s setur Íbúðalánasjóð á athugunarlista Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur sett Íbúðalánasjóð á athugunarlista og segir horfurnar neikvæðar. Matsfyrirtækið gefur sjóðnum langtímaeinkunnina AA+ en segir ástæðuna fyrir matinu minnkandi hlutdeild sjóðsins á íbúðalánamarkaðnum. 2.3.2006 11:19 Tæknival selt til fjárfesta 2.3.2006 00:01 Hagar selja Skeljung og kaupa í Kringlunni Hagar hasla sér völl í sérvöruverslun á nýjan leik með kaupum á fimm verslunum í Kringlunni. Pálmi Haraldsson í Fons hafði frumkvæði að því að kaupa Shell. 2.3.2006 00:01 Framleiða í Tékklandi Skortur á verkfræðingum í Danmörku er ástæðan fyrir því að raftækjaframleiðandinn Bang & Olufsen hefur opnað sína fyrstu verksmiðju í útlöndum. 2.3.2006 00:01 Fjögurra milljarða króna hagnaður Hagnaður Símans jókst um 30 prósent milli áranna 2004 og 2005. Hagnaður ársins 2005 var 4.032 milljónir króna en 3.090 milljónir króna árið 2004. Rekstrartekjur jukust um tæp 8 prósent á árinu, voru 20.419 milljónir króna árið 2004 en 22.041 milljónir króna nú. 2.3.2006 00:01 Strax kaupir more Velta Strax-samstæðunnar, sem framleiðir aukabúnað fyrir farsíma, verður um 250 milljónir bandaríkjadala á þessu ári, sem samsvarar tæpum sextán milljörðum króna, eftir að félagið keypti þýska dreifingaraðilann more International. Velta samstæðunnar meira en tvöfaldaðist við yfirtökuna. 2.3.2006 00:01 Kaupa hástökkvara Straumur-Burðarás hefur eignast 5,5 prósenta hlut í norska netleikjaframleiðandanum Funcom. Verðmæti hlutarins er í kringum 750 milljónir króna. 2.3.2006 00:01 Kaupin á Orkla ekki lykilatriði Dagsbrún ætlar að gefa út fríblað í Danmörku, með Fréttablaðið sem fyrirmynd, hvort sem keypt verður í norsku fjölmiðlasamsteypunni Orkla Media eða ekki. Samkvæmt heimildum blaðsins er stefnt að útgáfu seinnipart sumars eða í haust. 2.3.2006 00:01 Hráolíuverð hækkaði í Bandaríkjunum Heimsmarkaðsverð á hráolíu, sem afhend verður í næsta mánuði, hækkaði bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi í dag. Verð á hráolíu hækkaði um 50 sent í New York í Bandaríkjunum og fór í 61,91 dollar á tunnu en bráðabirgðatölur benda til að olíubirgðir í Bandaríkjunum hafi minnkað. Þá hækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu í kauphöllinni í Lundúnum um 68 sent og stendur nú í 62,44 dollurum á tunnu. 1.3.2006 14:12 Straumur kaupir í Funcom Straumur-Burðarás hefur keypt 5,5 prósenta hlut í norska tölvuleikjaframleiðandanum Funcom sem framleiðir netleiki. Hluturinn var keyptur í lokuðu hlutafjárútboði en allur eignarhluti Straums er metinn á tæpar 800 milljónir króna. 1.3.2006 10:42 Enginn fær Express Iceland Express hefur verið tekið úr sölumeðferð hjá KB banka samkvæmt upplýsingum frá bankanum. 1.3.2006 00:01 Gengi krónunnar styrkist Sérfræðingar telja að markaðurinn hafi brugðist óþægilega hart við skýrslu Fitch í byrjun síðustu viku þar sem breytt var horfum á lánshæfismati ríkisins. Í gærmorgun styrktist gengi krónunnar í kjölfar útgáfu Rabobank á svokölluðum krónubréfum að andvirði nær fimm milljarða króna. Útgáfan er til eins árs og virðist Rabobank því lítið gefa fyrir spár um veikingu krónunnar. 1.3.2006 00:01 Hagnaður OM eykst Hagnaður Old Mutual (OM) jókst um 30 prósent milli áranna 2004 og 2005 sem skýrist af miklum vexti á suður-afrískum bankamarkaði í gegnum Nedbank. Var uppgjörið fyrir ofan spár markaðarins en hafði ekki áhrif til hækkunar á gengi bréfa félagsins. 1.3.2006 00:01 Endurgreiða sér kaupin á verslunarkeðjunni Iceland Kaupendur Iceland hafa greitt sér upphaflega fjárfestingu til baka og gert upp fjármögnun vegna skuldsettra kaupa við Landsbankann. 1.3.2006 00:01 Methagnaður Sparikassans Föroya Sparikassi, stærsti stofnfjáreigandinn í SPRON, skilaði methagnaði á síðasta ári eða 1,3 milljörðum króna. Hagnaður fyrir skatta jókst um 47 prósent. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var um 12,8 prósent. 1.3.2006 00:01 Seld fyrir páskana Gert er ráð fyrir að söluferlinu á Danól og Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni ljúki fyrir páska. Í fyrsta áfanga söluferlisins fá áhugasamir fjárfestar afhent almenn kynningargögn um fyrirtækin og markaðinn og skila inn upplýsingum um sig og ráðgjafa sína. Fjárfestar sem taldir eru koma til greina fá frekari kynningu á fyrirtækjunum. 1.3.2006 00:01 Aldrei bjartsýnni Væntingarvísitala Gallup hækkaði í febrúar um rúmlega ellefu stig og fór í sitt hæsta gildi síðan byrjað var að mæla væntingar neytenda með þessum hætti árið 2001. Í Morgunkorni Íslandsbanka er talið líklegt að mikil umfjöllun um gott gengi íslenskra fyrirtækja í ársbyrjun, hækkanir í Kauphöllinni og umræðan um frekari álversframkvæmdir hafi virkað til hækkunar vísitölunnar. 1.3.2006 00:01 Gott uppgjör Bakkavarar Bakkavör Group skilaði 3,5 milljarða hagnaði árið 2005 og var uppgjörið í góðum takti við væntingar markaðarins. Á fjórða ársfjórðungi, sem var besti hluti ársins, skilaði félagið um 1.229 milljóna króna hagnaði. 1.3.2006 00:01 Skortur jafngildir vaxtalækkun Vextir ríkisvíxla lækkuðu um rúma 50 punkta frá síðasta útboði, en í gær, þriðjudag, voru boðnir út eins mánaðar víxlar í flokknum RIKV 06 0405. Alls bárust 19 gild tilboð upp á 16 milljarða króna, en aðeins var tekið tilboðum að upphæð fimm milljarðar. 1.3.2006 00:01 Exista með Íslandsmet í hagnaði á einu ári Exista, fjárfestingarfélag í eigu bræðranna í Bakkavör, KB banka og nokkurra sparisjóða, skilaði samkvæmt heimildum Markaðarins 50,3 milljörðum króna í hagnað í fyrra. Þetta er mesti hagnaður íslensks félags á einu ári, en fyrra metið átti KB banki sem hagnaðist um 49,3 milljarða í fyrra. 1.3.2006 00:01 Penninn tapaði samningi við ríkið Penninn féll út úr rammasamingi Ríkiskaupa fyrir stofnanir um kaup á ritföngum. Samningurinn veltir um 100 milljónum króna á ári hverju. Penninn hefur tölvusölu í næstu viku. 1.3.2006 00:01 Yfirtökuviðræðum slitið í Low & Bonar Formlegum yfirtökuviðræðum í Low & Bonar hefur verið slitið eftir margra vikna viðræður stjórnar félagsins og þriðja aðila. Nafn Atorku Group var nefnt í því sambandi en félagið er stærsti hluthafinn í Low & Bonar með um þriggja milljarða eignarhlut að marksvirði. 1.3.2006 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Mikil umsvif á fasteignamarkaði Umsvif voru óvenju mikil á fasteignamarkaði í síðustu viku. Gengið var frá 206 kaupsamningum, 160 kaupsamningum um eignir í fjölbýli, 30 samningum um eignir í sérbýli og 16 samninga í annars konar eignum. Meðalupphæð samnings nam 23,6 milljónum króna, að því er fram kemur í hálf fimm fréttum KB banka og vísað í upplýsingar frá Fasteignamati ríkisins. 6.3.2006 20:49
Norskur auðjöfur kaupir stærsta laxeldisfyrirtæki heims Eigendur hollenska laxeldisfyrirtækisins Marine Harvest N.V., sem er stærsta fyrirtæki heims á sínu sviði, hafa samþykkt yfirtökutilboð Geverans Trading Co. Ltd., sem er í eigu norska auðjöfursins Johns Fredriksens. Yfirtökutilboð Geveran Trading hljóðar upp á 1,75 milljarða evrur. 6.3.2006 16:02
Mútumál hjá DaimlerChrysler Þýski bílaframleiðandinn DaimlerChrysler greindi frá því í dag að innri rannsókn fyrirtækisins, sem hefði verið gerð í kjölfar ásakana um mútuþægnihjá fyrirtækinu, hefði leitt í ljós að „ósæmilegar greiðslur“ hefðu verið inntar af hendi í Afríku, Asíu og Austur-Evrópu. Hafi nokkrum starfsmönnum verið vikið úr starfi, sumum til frambúðar en öðrum tímabundið, vegna þessa. 6.3.2006 14:11
HSBC bankinn skilaði mestum hagnaði Alþjóðlegi fjárfestingabankinn HSBC skilaði mestum hagnaði breskra banka í Bretlandi á síðasta ári. Hagnaðurinn nam 11,5 milljörðum punda fyrir skatta. Um 20 prósent af hagnaði bankans var í Bretlandi en 80 prósent á alþjóðlegum vettvangi, s.s. í nokkrum löndum í Evrópu, Asíu, í Bandaríkjunum og Mið- og Suður-Ameríku. 6.3.2006 11:55
Hlutabréf hækkuðu í Japan Gengi flestra hlutabréfa hækkaði við lokun markaða í Asíu í dag. Hækkunin nam í flestum tilvikum um hálfu prósentustigi en gengi bréfa í kauphöllinni í Tókýó í Japan hækkuðu mest. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan hækkaði um 1,5 prósent og endaði í 15.901,16 stigum, sem er hæsta lokagengi vísitölunnar í sex ár. 6.3.2006 11:01
Hagnaður Landsvirkjunar minnkar á milli ára Hagnaður af rekstri Landsvirkjunar nam tæpum 6,29 milljörðum króna á síðasta ári en var 7,19 milljarðar króna árið 2004. Í árslok námu heildareignir fyrirtækisins 182 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall 31,9 prósent, að því er fram kemur í ársreikningum Landsvirkjunar, sem lagðir verða fyrir ársfund fyrirtækisins eftir mánuð. 6.3.2006 10:35
Hagar kaupa einstaklingssvið Tæknivals Gengið hefur verið frá sölu einstaklingssviðs Tæknivals til Haga. Salan gekk í gegn í gær, en einstaklingssviðið felur í sér verslun og heildsölu á tölvubúnaði á einstaklingsmarkaði. Hagar tóku við rekstri verslunar Tæknivals og heildsölu í Skeifunni í Reykjavík núna um mánaðamótin. 3.3.2006 15:10
Nói-Síríus kaupir enskt sælgætisfyrirtæki Nói Síríus hefur gengið frá kaupum á enska fyrirtækinu Elizabeth Shaw, sem er þekkt enskt sælgætisfyrirtæki og sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á súkkulaðivörum af ýmsu tagi. Saga fyrirtækisins nær allt aftur til 19. aldar en þekktustu merki þess eru Mint Crisps, sem eru innpakkaðar súkkulaðiskífur með myntubragði og Famous Names, sem eru líkjörsfylltir konfektmolar. 3.3.2006 14:06
Tekjur Hitaveitu Suðurnesja jukust milli ára Rekstrartekjur Hitaveitu Suðurnesja (HS) námu 4,68 milljörðum króna á síðasta ári og er það 873 milljóna króna aukning frá 2004, að því er fram kemur í ársuppgjöri fyrirtækisins fyrir síðasta ár. Um 23% hækkun tekna stafar af aukningu í raforkusölu um 545 milljónir króna og aukningu í öðrum tekjum um 261 milljón krónur. 3.3.2006 13:30
ESB spáir 1,9 prósenta hagvexti á evrusvæðinu í ár Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) gaf út hagvaxtarspá sína í dag fyrir lönd sem tekið hafa upp evruna. Spáð er á bilinu 0,4 prósenta til 0,9 prósenta hagvaxtaraukningu á evrusvæðinu á fyrsta ársfjórðungi og er búist við svipaðri aukningu á næstu tveimur ársfjórðungum. 3.3.2006 10:54
Íslandsbanki kaupir 50,1% í Union Group Íslandsbanki hf. hefur skrifað undir samning um kaup á 50,1 prósenta hlut í Union Group, sem er stærsti og leiðandi aðili í sölu, ráðgjöf og samsetningu viðskipta með atvinnuhúsnæði í Noregi. Kaupin styrkja frekar stöðu Íslandsbanka í viðskiptum með atvinnuhúsnæði, fjármögnun slíkra viðskipta með sölu til þriðja aðila, auk fyrirtækjaráðgjafar og sjóðarekstrar á sviði atvinnuhúsnæðis í Noregi. 3.3.2006 09:58
Þrír stærstu bankar landsins styrkja stöðu sína gagnvart sveiflum Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings segir í nýrri skýrslu um næmi þriggja stærstu banka landsins, KB banka, Landsbankans og Íslandsbanka, að þeim hafi á síðastliðnum þremur árum tekist að bregðast með betri hætti við sveiflum á gengis- og vaxtamarkaði hér á landi. Segir m.a. í skýrslunni að fjölbreytt starfsemi bankanna hafi orðið til þess að þeir eru ekki jafn viðkvæmir fyrir breytingum og áður. 2.3.2006 16:14
Eigið fé Stoða jókst á milli ára Hagnaður fasteignafélagsins Stoða hf. nam rúmum 2 milljörðum króna á síðasta ári, að því er fram kemur í ársuppgjöri félagsins. Þetta er 766 milljónum króna minna en árið á undan. Í árslok gerði félagið samning um kaup á öllu hlutafé í danska fasteignafélaginu Atlas Ejendomme A/S og varð félagið hluti af samstæðureikningi Stoða hf. frá yfirtökudegi, sem var 6. janúar sl. Þá hafa kaupin og lánveitingar til Atlas verið færðar í ársreikninginn. 2.3.2006 15:25
Forstjóraskipti hjá Tæknivali Magnús V. Snædal hefur verið ráðinn forstjóri Tæknivals í stað Sigrúnar Guðjónsdóttur. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá þekkingu. Ráðningin kemur í kjölfar eigendaskipta á Tæknivali, þar sem eignarhaldsfélagið Byr keypti félagið af Fons. 2.3.2006 14:20
Stýrivextir hækka á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn (ECB) hækkaði stýrivexti á evrusvæðinu um 0,25 prósent í dag og standa þeir nú í 2,50 prósentum. Með hækkuninni, sem er í samræmi við spár fjármálasérfræðinga, er horft til þess að styrkja efnahag þeirra 12 aðildarlanda Evrópusambandsins (ESB), sem tekið hafa upp evruna. 2.3.2006 13:06
Olíuverð fór yfir 62 dollara Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði enn í dag þrátt fyrir að opinberar tölur bentu til að olíubirgðir hefðu aukist í Bandaríkjunum. Hráolía, sem afhent verður í næsta mánuði, hækkaði um 74 sent á mörkuðum í New York og fór 62,71 dal á tunnu en verð á Brent Norðursjávarolíu hækkaði um 76 sent í Lundúnum og fór í 63,21 dal á tunnu. 2.3.2006 11:45
Standard & Poor’s setur Íbúðalánasjóð á athugunarlista Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur sett Íbúðalánasjóð á athugunarlista og segir horfurnar neikvæðar. Matsfyrirtækið gefur sjóðnum langtímaeinkunnina AA+ en segir ástæðuna fyrir matinu minnkandi hlutdeild sjóðsins á íbúðalánamarkaðnum. 2.3.2006 11:19
Hagar selja Skeljung og kaupa í Kringlunni Hagar hasla sér völl í sérvöruverslun á nýjan leik með kaupum á fimm verslunum í Kringlunni. Pálmi Haraldsson í Fons hafði frumkvæði að því að kaupa Shell. 2.3.2006 00:01
Framleiða í Tékklandi Skortur á verkfræðingum í Danmörku er ástæðan fyrir því að raftækjaframleiðandinn Bang & Olufsen hefur opnað sína fyrstu verksmiðju í útlöndum. 2.3.2006 00:01
Fjögurra milljarða króna hagnaður Hagnaður Símans jókst um 30 prósent milli áranna 2004 og 2005. Hagnaður ársins 2005 var 4.032 milljónir króna en 3.090 milljónir króna árið 2004. Rekstrartekjur jukust um tæp 8 prósent á árinu, voru 20.419 milljónir króna árið 2004 en 22.041 milljónir króna nú. 2.3.2006 00:01
Strax kaupir more Velta Strax-samstæðunnar, sem framleiðir aukabúnað fyrir farsíma, verður um 250 milljónir bandaríkjadala á þessu ári, sem samsvarar tæpum sextán milljörðum króna, eftir að félagið keypti þýska dreifingaraðilann more International. Velta samstæðunnar meira en tvöfaldaðist við yfirtökuna. 2.3.2006 00:01
Kaupa hástökkvara Straumur-Burðarás hefur eignast 5,5 prósenta hlut í norska netleikjaframleiðandanum Funcom. Verðmæti hlutarins er í kringum 750 milljónir króna. 2.3.2006 00:01
Kaupin á Orkla ekki lykilatriði Dagsbrún ætlar að gefa út fríblað í Danmörku, með Fréttablaðið sem fyrirmynd, hvort sem keypt verður í norsku fjölmiðlasamsteypunni Orkla Media eða ekki. Samkvæmt heimildum blaðsins er stefnt að útgáfu seinnipart sumars eða í haust. 2.3.2006 00:01
Hráolíuverð hækkaði í Bandaríkjunum Heimsmarkaðsverð á hráolíu, sem afhend verður í næsta mánuði, hækkaði bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi í dag. Verð á hráolíu hækkaði um 50 sent í New York í Bandaríkjunum og fór í 61,91 dollar á tunnu en bráðabirgðatölur benda til að olíubirgðir í Bandaríkjunum hafi minnkað. Þá hækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu í kauphöllinni í Lundúnum um 68 sent og stendur nú í 62,44 dollurum á tunnu. 1.3.2006 14:12
Straumur kaupir í Funcom Straumur-Burðarás hefur keypt 5,5 prósenta hlut í norska tölvuleikjaframleiðandanum Funcom sem framleiðir netleiki. Hluturinn var keyptur í lokuðu hlutafjárútboði en allur eignarhluti Straums er metinn á tæpar 800 milljónir króna. 1.3.2006 10:42
Enginn fær Express Iceland Express hefur verið tekið úr sölumeðferð hjá KB banka samkvæmt upplýsingum frá bankanum. 1.3.2006 00:01
Gengi krónunnar styrkist Sérfræðingar telja að markaðurinn hafi brugðist óþægilega hart við skýrslu Fitch í byrjun síðustu viku þar sem breytt var horfum á lánshæfismati ríkisins. Í gærmorgun styrktist gengi krónunnar í kjölfar útgáfu Rabobank á svokölluðum krónubréfum að andvirði nær fimm milljarða króna. Útgáfan er til eins árs og virðist Rabobank því lítið gefa fyrir spár um veikingu krónunnar. 1.3.2006 00:01
Hagnaður OM eykst Hagnaður Old Mutual (OM) jókst um 30 prósent milli áranna 2004 og 2005 sem skýrist af miklum vexti á suður-afrískum bankamarkaði í gegnum Nedbank. Var uppgjörið fyrir ofan spár markaðarins en hafði ekki áhrif til hækkunar á gengi bréfa félagsins. 1.3.2006 00:01
Endurgreiða sér kaupin á verslunarkeðjunni Iceland Kaupendur Iceland hafa greitt sér upphaflega fjárfestingu til baka og gert upp fjármögnun vegna skuldsettra kaupa við Landsbankann. 1.3.2006 00:01
Methagnaður Sparikassans Föroya Sparikassi, stærsti stofnfjáreigandinn í SPRON, skilaði methagnaði á síðasta ári eða 1,3 milljörðum króna. Hagnaður fyrir skatta jókst um 47 prósent. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var um 12,8 prósent. 1.3.2006 00:01
Seld fyrir páskana Gert er ráð fyrir að söluferlinu á Danól og Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni ljúki fyrir páska. Í fyrsta áfanga söluferlisins fá áhugasamir fjárfestar afhent almenn kynningargögn um fyrirtækin og markaðinn og skila inn upplýsingum um sig og ráðgjafa sína. Fjárfestar sem taldir eru koma til greina fá frekari kynningu á fyrirtækjunum. 1.3.2006 00:01
Aldrei bjartsýnni Væntingarvísitala Gallup hækkaði í febrúar um rúmlega ellefu stig og fór í sitt hæsta gildi síðan byrjað var að mæla væntingar neytenda með þessum hætti árið 2001. Í Morgunkorni Íslandsbanka er talið líklegt að mikil umfjöllun um gott gengi íslenskra fyrirtækja í ársbyrjun, hækkanir í Kauphöllinni og umræðan um frekari álversframkvæmdir hafi virkað til hækkunar vísitölunnar. 1.3.2006 00:01
Gott uppgjör Bakkavarar Bakkavör Group skilaði 3,5 milljarða hagnaði árið 2005 og var uppgjörið í góðum takti við væntingar markaðarins. Á fjórða ársfjórðungi, sem var besti hluti ársins, skilaði félagið um 1.229 milljóna króna hagnaði. 1.3.2006 00:01
Skortur jafngildir vaxtalækkun Vextir ríkisvíxla lækkuðu um rúma 50 punkta frá síðasta útboði, en í gær, þriðjudag, voru boðnir út eins mánaðar víxlar í flokknum RIKV 06 0405. Alls bárust 19 gild tilboð upp á 16 milljarða króna, en aðeins var tekið tilboðum að upphæð fimm milljarðar. 1.3.2006 00:01
Exista með Íslandsmet í hagnaði á einu ári Exista, fjárfestingarfélag í eigu bræðranna í Bakkavör, KB banka og nokkurra sparisjóða, skilaði samkvæmt heimildum Markaðarins 50,3 milljörðum króna í hagnað í fyrra. Þetta er mesti hagnaður íslensks félags á einu ári, en fyrra metið átti KB banki sem hagnaðist um 49,3 milljarða í fyrra. 1.3.2006 00:01
Penninn tapaði samningi við ríkið Penninn féll út úr rammasamingi Ríkiskaupa fyrir stofnanir um kaup á ritföngum. Samningurinn veltir um 100 milljónum króna á ári hverju. Penninn hefur tölvusölu í næstu viku. 1.3.2006 00:01
Yfirtökuviðræðum slitið í Low & Bonar Formlegum yfirtökuviðræðum í Low & Bonar hefur verið slitið eftir margra vikna viðræður stjórnar félagsins og þriðja aðila. Nafn Atorku Group var nefnt í því sambandi en félagið er stærsti hluthafinn í Low & Bonar með um þriggja milljarða eignarhlut að marksvirði. 1.3.2006 00:01
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf