Viðskipti erlent

Hlutabréf hækkuðu í Japan

Gengi hlutabréfa hækkaði í kauphöllinni í Japan í dag, annan daginn í röð. Stjórn seðlabanka Japans ákvað í gær að gera breytingar á peningastefnu bankans til að auka þanþol fjármálastofnana í Japan gagnvart sveiflum á erlendum hlutabréfamörkuðum.

Nikkei-225 hlutabréfavísitalan hækkaði um 78,72 punkta, 0,49 prósent, og endaði í 16.115,63 stigum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×