Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
6,5 prósentum muni á stýrivöxtum Stýrivextir hér á landi eru nú 9 prósent, eða 6,5 prósentustigum hærri en í helstu viðskiptalöndunum þar sem þeir eru að meðaltali 2,5 prósent. Þetta veldur því að vaxtamunur við útlönd er 6,5 prósent á skammtímalánum að því er fram kemur í <em>Vegvísi</em> Landsbankans. 1.6.2005 00:01
Átök í vændum um Íslandsbanka Átök eru í vændum um yfirráð í Íslandsbanka og talið víst að Straumur búi sig undir lokaslaginn. Þetta er mat viðmælenda fréttastofunnar í ljósi hlutafjárkaupa æðstu yfirstjórnenda bankans í gær. 1.6.2005 00:01
Þórólfur forstjóri Icelandic Group Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, var í gærkvöldi ráðinn forstjóri Icelandic Group sem er hið nýja heiti Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Sjóvíkur. Þórólfur tekur við af Gunnari Svavarssyni. 31.5.2005 00:01
Kaupir 94,1% í Eimskip Avion Group, sem Magnús Þorsteinsson er meirihlutaeigandi að, hefur keypt hlut Burðaráss í Eimskipafélaginu, alls 94,1 prósent. Kaupverðið er tuttugu og þrír milljarðar íslenskra króna en samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar stefnir Avion Group á að eignast allt félagið. 31.5.2005 00:01
Avion í Kauphöllina innan 8 mánaða Burðarás hefur selt Avion Group 94 prósenta hlut sinn í Eimskipafélagi Íslands. Stefnt er að skráningu Avion Group í Kauphöll Íslands eigi síðar en 31. janúar 2006. 31.5.2005 00:01
Hagnaður SÍF tvöfaldaðist Hagnaður SÍF, Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda, tvöfaldaðist á milli ára og nam rúmlega 220 milljónum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins. Í tilkynningu frá SÍF segir að góð söluaukning hafi orðið á öllum mörkuðum og framlegð aukist verulega. 31.5.2005 00:01
Útiloka ekki frekari fjárfestingar Avion Group útilokar ekki frekari fjárfestingar í flutningastarfsemi, þótt fyrirtækið sé nýbúið að festa kaup á næstum öllum bréfum í sjálfu Eimskipafélaginu. Stefnt er að skráningu Avion Group í Kauphöll Íslands eigi síðar en 31. janúar á næsta ári. 31.5.2005 00:01
Gengi krónunnar áfram hátt Gengi krónunnar verður hátt áfram út þetta ár og á næsta ári samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka. Þá mun gengisvísitalan sveiflast á bilinu 105 til 115 stig það sem eftir er árs en nú stendur hún í 112,5 stigum. 30.5.2005 00:01
SH verður Icelandic Group Samþykkt var á hluthafafundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna sem haldinn var á Nordica hóteli síðdegis að breyta nafni félagsins í Icelandic Group. Þetta er fyrsti fundurinn sem haldinn er eftir samruna SH og Sjóvíkur en hluthafar Sjóvíkur eignast þriðjung í hinu sameinaða fyrirtæki. 30.5.2005 00:01
Myndbandaleiga á Netinu Fyrsta íslenska myndbandaleigan á Netinu hefur verið tekin í notkun. Um er að ræða nýjan afþreyingarvef þar sem hægt er að horfa á bíómyndir í gegnum Netið án endurgjalds. 29.5.2005 00:01
Segir launakönnun ómarktæka Það er óskynsamlegt og felur í sér sóun að mismuna í launum á grundvelli annars en hæfnis og framlags. Þetta segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann telur jafnframt að könnun Háskólans á Bifröst um launamun kynjanna sé ómarktæk. 29.5.2005 00:01
Hyggst einbeita sér að flugrekstri Magnús Þorsteinsson hefur ákveðið að selja eignarhluti sína í Samson eignarhaldsfélagi ehf. og Samson Holding. Félögin, sem fram til þessa hafa verið í eigu Magnúsar, Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, eiga hluti í Landsbanka Íslands og Burðarási. 28.5.2005 00:01
Trúnaðarloforð réttlæti ekki lygi Íþróttamenn, kaupsýslumenn, stjórnmálamenn, blaðamenn, - það er sama hvar gripið er niður, í öllum stéttum þjóðfélagsins má finna dæmi um menn sem reyna að ljúga sig úr vandræðum. Loforð um trúnað réttlætir þó ekki lygi, að mati siðfræðings á sviði viðskipta. Við skulum rifja upp nokkur dæmi um meinta ósannsögli sem fjallað hefur verið um opinberlega. 28.5.2005 00:01
Magnús fer úr Samson Magnús Þorsteinsson hefur selt Björgólfsfeðgum hlut sinn í Samson eignarhaldsfélagi ehf. og Samson Holding. Félögin eiga hluti í Landsbankanum og Burðarási. Í tilkynningu um viðskiptin segir að Magnús hyggist einbeita sér að fjárfestingum í almennri flugstarfsemi og flugrekstri, er þar vísað til þess að hann er aðaleigandi Avion Group. 28.5.2005 00:01
Kærum Kers og Olís vísað frá Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur vísað frá kærum Kers og Olís vegna þeirrar ákvörðunar Samkeppnisstofnunar að veita Landssambandi íslenskra útvegsmanna aðgang að upplýsingum tengdum samráði olíufélaganna sem áður höfðu verið felldar úr úrskurði samkeppnisráðs vegna trúnaðar. 27.5.2005 00:01
Lyfjasala undir væntingum Sala á lyfjum frá Actavis stóð ekki undir væntingum á fyrsta fjórðungi ársins. Afkoman var jákvæð um rúmar 900 milljónir króna sem er 900 milljónum minna en á sama tíma í fyrra þegar Ramipril-hjartalyfin fóru á markað. 27.5.2005 00:01
4,4 milljarða halli á vöruskiptum Vöruskipti landsmanna við útlönd voru óhagstæð um 4,4 milljarða króna í síðasta mánuði, borið saman við sama mánuð í fyrra. Fluttar voru út vörur fyrir liðlega 17 milljarða en inn fyrir rúmlega 21 milljarð króna. Verðmæti útflutningsins jókst um tvö prósent í apríl 2005 miðað við apríl 2004 en verðmæti innflutningsins jókst um 21 prósent. Sjávarafurðir voru meirihluti þess sem flutt var út en mest var flutt inn af fólksbílum, fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru. 27.5.2005 00:01
Farþegum FL Group fjölgar áfram Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um tæplega eitt prósent í apríl í ár í samanburði við apríl á síðasta ári og á fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur farþegum flugfélagsins fjölgað um 9,9 prósent milli ára. Framboð félagsins og sala í mánuðinum var einnig nánast hin sama og á síðasta ári og var sætanýting einnig mjög svipuð og í apríl í fyrra, eða 72,7 prósent á móti 73,5 prósentum. 27.5.2005 00:01
Bakkavör stærst í kældum matvælum Bakkavör hefur borgað rífa 70 milljarða króna fyrir matvælafyrirtækið Geest í Bretlandi og er þar með orðin stærsti framleiðandi kældra matvæla í heimi. 27.5.2005 00:01
Disney dreifir Latabæ í Evrópu Forsvarsmenn Latabæjar og Disney-samsteypunnar skrifuðu í dag undir samning um rétt til að sýna Latabæjarþættina í Frakklandi, á Ítalíu og á Spáni. Enn er ekki ákveðið hvenær næsta þáttaröð verður framleidd. 27.5.2005 00:01
Stærsta lýsisverksmiðja í heimi Lýsi hf. tók í dag í notkun verksmiðju sem er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Níutíu prósent af framleiðslu fyrirtækisins eru flutt út. 27.5.2005 00:01
Meiri halli á vöruskiptum Fyrstu fjóra mánuði ársins var mun meira flutt inn til landsins en frá því og var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um sextán milljarða króna, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Á sama tímabili í fyrra var hallinn á vöruskiptum hins vegar 3,4 milljarðar. Í prósentum jókst hallinn tæplega fjórfalt. Vöruskiptin í apríl voru óhagstæð um 4,4 milljarða króna, sem er mikil breyting frá apríl árið 2004 þegar hallinn var 2,9 milljarðar á föstu gengi. 27.5.2005 00:01
Stærsta verksmiðja sinnar tegundar Lýsi hefur opnað nýjar höfuðstöðvar við Fiskislóð og tvöfaldast framleiðslugeta fyrirtækisins í nýja húsnæðinu. Nýja verksmiðjan er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Framleiðslugetan er nú sex þúsund tonn á ári. 27.5.2005 00:01
Lífeyrissjóðir sameinast Fjórði til fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins verður til um næstu áramót þegar Samvinnulífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóðurinn Lífiðin sameinast. 27.5.2005 00:01
Fiskimjölsverksmiðjan seld Samherji hf. hefur selt fiskimjölsverksmiðju sína í Grindavík til Síldarvinnslunnar hf. en sem kunnugt er hefur verksmiðjan ekki verið starfrækt frá því í byrjun febrúar síðastliðins eftir að mikill eldur kom upp í verksmiðjunni. 26.5.2005 00:01
ASÍ bregst harkalega við ASÍ bregst harkalega við yfirlýsingum fjármálaráðherra um vaxtabótakerfið. Ráðherrann telur koma til greina að endurskoða kerfið frá grunni. Samtök atvinnulífsins telja hins vegar fullt tilefni til að lækka vaxtabætur þar sem fasteignaviðskipti drífi áfram verðbólguna. 26.5.2005 00:01
Efnahagslífið ekki að ofhitna Í nýrri skýrslu OECD er staðhæft að íslenskt efnahagslíf sé að ofhitna og til að mynda hafi verðbólga farið yfir ytri mörk Seðlabankans á undanförnum mánuðum. Fjármálaráðuneytið mótmælir þessu. 26.5.2005 00:01
Síminn: Bjóðendur opinberaðir Bjóðendur í Símann verða opinberaðir í dag. Alls bárust fjórtán tilboð í fyrirtækið en að baki þeim standa þrjátíu og sjö fjárfestar, innlendir og erlendir. Tilboðunum var skilað inn fyrir réttri viku og hafa framkvæmdanefnd um einkavæðingu og ráðgjafar frá Morgan-Stanley farið yfir þau. 25.5.2005 00:01
Hagræðingin að engu orðin Hagræðingin sem heimilin í landinu náðu fram með uppgreiðslu yfirdráttarlána vegna endurfjármögnunar fasteignalána virðist að engu orðin. Skuldir vegna yfirdráttarlána eru nú jafnmiklar og fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaðnum. Merki um mikla neyslu, segir forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans. 25.5.2005 00:01
Næstbesta afkoma frá upphafi Flugleiðir, eða FL Group, skiluðu 25 milljóna króna hagnaði fyrstu þrjá mánuði ársins sem er um 880 milljónum króna betri afkoma en á sama tímabili í fyrra. Þetta er næstbesta afkoma af starfsemi félagsins á þessum árstíma frá upphafi. 25.5.2005 00:01
Nöfn bjóðenda í Símann birt Einkavæðingarnefnd hefur birt nöfn þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem buðu í Símann en fjórtán óbindandi tilboð bárust í hlut ríkisins í fyrirtækinu. Tveir erlendir fjárfestar voru útilokaðir frá því að gera bindandi tilboð. 25.5.2005 00:01
2 milljarða hagnaður Orkuveitunnar Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur nam tæpum tveimur milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins miðað við 340 milljónir á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri sem Orkuveitan birti í dag. 25.5.2005 00:01
Tólf áfram Tólf hópar munu fá tækifæri til að gera bindandi tilboð í Símann. Helmingur þeirra eru erlendir fjárfestar, en erlendir aðilar koma að tilboðum fleiri. Hópur kvenna í atvinnulífinu undir forystu fyrrverandi aðstoðarforstjóra Íslandssíma er á meðal þeirra sem komust í aðra umferð. 25.5.2005 00:01
Hagnaður Símans þrefaldast Hagnaður Símans á fyrsta ársfjórðungi þrefaldaðist á milli áranna 2004 og 2005. Hann var rúmir 1,2 milljarðar króna í ár en var á sama tímabili í fyrra 409 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum. Þar segir einnig að Síminn hafi á tímabilinu selt öll hlutabréf sín í Straumi fjárfestingabanka hf. og nam hagnaður af sölunni eftir skatta 576 milljónum. 24.5.2005 00:01
Nýr forstjóri Samskipa frá Mærsk Fyrrverandi forstjóri Mærsk-skipafélagsins, Michael F. Hassing, verður næsti forstjóri Samskipa við hlið Ásbjörns Gíslasonar sem flytur sig um set til Íslands. Núverandi forstjóri, Knútur G. Hauksson, tekur við forstjórastarfi hjá Heklu. 24.5.2005 00:01
Gengi krónu heldur áfram að hækka Gengi krónunnar hækkaði í gær um 0,7 prósent og hefur haldið áfram að styrkjast í morgun. Hefur gengið hækkað um nær 4 prósent á rúmri viku. Á þessum tíma hefur dollarinn farið úr tæplega 67 krónum niður í ríflega 64 krónur, evran úr ríflega 84 krónum niður í ríflega 81 krónu og pundið úr 123 krónum niður í 118. 24.5.2005 00:01
Yfirdráttarlán aftur í sama horf Frá lokum febrúar hafa heimilin aukið yfirdráttarlán sín um rúma tvo milljarða króna. Aukningin kom að mestu leyti fram í mars enda jukust yfirdráttarlán heimilanna aðeins lítillega í apríl eða um rúmar 350 milljónir króna. Í lok apríl skulduðu heimilin 60,5 milljarða króna í yfirdráttarlán og eru yfirdráttarlánin því orðin jafn há og þau voru fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaði. 24.5.2005 00:01
Samskip auka hlutafé Á næsta stjórnarfundi Samskipa verður tekin ákvörðun um að auka hlutafé félagsins um allt að fjóra milljarða króna til að fylgja eftir útrás þess. Boðað verður til hluthafafundar í kjölfar stjórnarfundar. Félagið verður ekki skráð á markað á þessu ári. 24.5.2005 00:01
SPRON kaupir ekki Allianz Áform SPRON um kaup á 80 prósenta hlut í Hringi eignarhaldsfélagi, sem er eignarhaldsfélag utan um rekstur Allianz á Íslandi, hafa runnið út um þúfur. 24.5.2005 00:01
Fasteignamarkaðurinn nær áttum Vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 30 prósent frá því í ágúst. Spáð er hækkunum fram á næsta ár þótt ekki sé útilokað að markaðurinn hafi náð hæstu hæðum. Borið hefur á því að fasteignir séu of lágt verðmetnar en tilhneigingin hefur einnig verið sú að seljendur spenni bogann of hátt með því að setja of hátt ásett verð<b><font face="Helv" color="#008080">. </font></b> 24.5.2005 00:01
Stýrir gámaflutningastarfsemi ytra Daninn Mikael Hassing, fyrrverandi forstjóri skipafélagsins Mærsk á Bretlandi, hefur verið ráðinn forstjóri Samskipa, við hlið Ásbjörns Gíslasonar. Hassing stýrir gámaflutningastarfsemi Samskipa erlendis. 24.5.2005 00:01
Aukin samkeppni á skipaolíumarkaði Samkeppni í olíusölu til skipa eykst í dag þegar Íslensk olíumiðlun hefur starfsemi. Norska olíuflutningaskipið Havstraum kom með fyrsta farm félagsins í birgðastöð þess í Neskaupstað í gær og hefst olíusalan í dag. Í tilkynningu frá Íslenskri olíumiðlun er því lofað að útgerðum standi til boða olía á hagstæðu verði. 23.5.2005 00:01
Launavísitala hækkar um 0,5% Launavísitalan hækkaði um hálft prósent í síðasta mánuði miðað við mánuðinn þar á undan. Síðustu tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,7 prósent. 23.5.2005 00:01
Þórólfur orðaður við SH Þórólfur Árnason játaði hvorki né neitaði þegar fréttastofa Bylgjunnar hafði samband við hann og spurði hvort hann yrði næsti forstjóri SH. Vangaveltur hafa verið uppi að undanförnu hvort Þórólfur muni taka við starfi forstjóra SH þann 30. maí næstkomandi þegar hluthafafundur félagsins verður haldinn. 23.5.2005 00:01
Föt 50% dýrari en í nágrannaríkjum Fatnaður og skór eru tæplega fimmtíu prósentum dýrari hér á landi en í öðrum Evrópuríkjum. Þetta kemur fram í tölum sem hagstofa Evrópusambandsins birti nýverið. 23.5.2005 00:01
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent