Fleiri fréttir

Tornæmt íhald?

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Innanríkisráðherrann, Ögmundur Jónasson, er annar ráðherrann í vinstristjórninni sem kærunefnd jafnréttismála úrskurðar að hafi brotið jafnréttislögin með því að ráða karl fremur en konu í opinbert embætti. Héraðsdómur hefur svo staðfest þá niðurstöðu hvað varðar ráðningu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu.

Yfirlýsing frá samtökum tölvuleikjaframleiðenda

Pawel Bartoszek skrifar

Ef byrjað hefði verið að fjöldaframleiða tölvuleiki nokkrum áratugum fyrr og aðrar venjur hefðu skapast um dreifingu þeirra værum við kannski í dag að lesa yfirlýsingar eins og þessa:

Efnahagurinn, bjáni!

Þórður Snær Júlíusson skrifar

Vorið 2009 hefðu alþingiskosningarnar átt að snúast um nokkur lykilatriði í endurreisn fallins efnahags Íslands. Þess í stað lagði fyrsta vinstrisinnaða meirihlutastjórnin upp með stærsta stjórnarsáttmála Íslandssögunnar. Hann innihélt víðtækar breytingar á mörgum sviðum samfélagsins. Því fer fjarri að eining og sátt ríki hjá þjóðinni um þær breytingar. Á tímum þegar samstaða var nauðsynleg hefur sundrung og tortryggni aukist frekar en hitt. Það er eins og stjórnarflokkarnir hafi séð yfirstandandi kjörtímabil sem sitt eina tækifæri til að ýta í gegn öllum sínum hugðarefnum.

Þolendum og gerendum hjálpað

Fréttablaðið hefur undanfarna daga sagt fremur ömurlegar fréttir af heimilisofbeldi á Íslandi. Samkvæmt tölum frá ríkislögreglustjóra er lögreglan kölluð út tvisvar til þrisvar dag hvern vegna heimilisófriðar, alls yfir sjö þúsund sinnum undanfarin fimm ár. Í yfir fimmtán hundruð tilfellum var ofbeldi beitt. Þrír fjórðu hlutar ofbeldisfólksins voru karlar og fjórðungur konur. Áfengi og fíkniefni komu við sögu í stórum hluta tilvika.

Hæstiréttur og Mannréttindadómstóll Evrópu

Róbert Ragnar Spanó skrifar

Hinn 10. júlí sl. kvað Mannréttindadómstóll Evrópu upp dóma í málum tveggja íslenskra blaðamanna sem höfðu fyrir dómstólum hér á landi sætt ómerkingu ummæla og verið gert að greiða miskabætur vegna greinarskrifa í DV annars vegar og í Vikunni hins vegar.

Lýðræði, friður og hagsmunir

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Vinstri hreyfingin – grænt framboð samþykkti ögn torskiljanlega ályktun um alþjóðamál á flokksráðsfundi sínum um síðustu helgi. Þar fagnar flokksráðið „þeirri umræðu sem nú fer fram um samskipti Íslands og ESB og hvetur til að henni verði haldið áfram.“

Heilsa skólabarna

Teitur Guðmundsson skrifar

Nú þegar börnin eru að hefja skólagöngu sína aftur þetta haustið og sum þeirra að ganga inn fyrir dyr skólans fyrsta sinni er ágætt að velta vöngum stuttlega yfir heilsu og líðan þeirra. Þarna er auðvitað af mörgu að taka og mjög breitt aldursbil en engu að síður eru nokkrir hlutir sem skipta verulegu máli strax frá byrjun og til lengri tíma litið.

Smálánasmán

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Í smálánamálinu takast á tvö þjóðfélagsleg sjónarmið – markaðshyggjan og samfélagsvitundin; hin kalda eiginhagsmunahyggja og kærleiksskyldan.

Sársaukafullt mál leitt til lykta

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Rétt liðlega þrettán mánuðir voru liðnir frá ódæðisverkunum í Útey og miðborg Óslóar þegar mál fjöldamorðingjans og hryðjuverkamannsins Breivik hafði verið leitt til lykta fyrir dómi í höfuðborg Noregs á föstudag.

Sérmerkjum líka landnemavörur

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Fagna ber viðleitni stjórnvalda í Suður-Afríku í að sporna við og vekja athygli á ofbeldi Ísraels í garð Palestínu með því að láta auðkenna sérstaklega vörur sem framleiddar eru í gyðingabyggðum vestan Jórdanar, og í Austur-Jerúsalem.

Frelsari eða syndari?

Þorsteinn Pálsson skrifar

Steingrímur J. Sigfússon efnahagsráðherra skrifaði athyglisverða grein í Financial Times á dögunum til að auka hróður Íslands. Þar beindi hann sjónum manna einkum að tvennu:

Ef þið hagið ykkur ekki almennilega

Pawel Bartoszek skrifar

Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi sagði á blaðamannafundi að það yrði engin menningarnótt 2013 ef fólk lærði ekki að haga sér almennilega. Þetta var haft eftir honum í Reykjavík – Vikublaði síðastliðinn föstudag.

Sísí segir…

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Nemendur landsins hefja skólagöngu vetrarins þessa daga. Eftirvæntingin er líklega mest hjá sex ára börnunum sem ganga nú inn í heim sem hefur verið þeim flestum framandi hingað til.

Hvað varð um samsærið?

Ólafur Stephensen skrifar

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, fyrir brot á bankaleynd og brot í opinberu starfi. Gunnar er talinn hafa fengið starfsmann Landsbankans til að útvega sér gögn um fjármál Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns, sem síðan hafi verið komið til DV. Bankastarfsmaðurinn er líka ákærður.

Handhafarnir og handaböndin

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Talsvert hefur verið rætt síðustu daga um þá hefð að einn af handhöfum forsetavalds þurfi ævinlega að fylgja forseta Íslands á flugvöllinn þegar hann fer til útlanda í embættiserindum og kveðja hann með handabandi. Ríkisútvarpið sagði frá því að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vildi afnema þetta fyrirkomulag. Síðar kom í ljós að forsetinn vill halda því. Eins og stundum áður mótast afstaða margra til málsins af afstöðu til persóna; hvort þeir eru hrifnari af Jóhönnu eða Ólafi Ragnari forseta.

Atlaga að tilkalli

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Atburðir sögunnar gerðust óhjákvæmilega – en var það óhjákvæmilegt að þeir gerðust? Örlagaborgin eftir Einar Má Jónsson leitar svara við þeirri spurningu hví farið hafi sem fór í efnahagsmálum heimsins – hún er um Hrunið og þá hugmyndafræði sem til þess leiddi. Og grefur djúpt.

Ógn við tjáningarfrelsið

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Um allan heim safnaðist fólk saman á föstudag til að mótmæla tveggja ára fangelsisdómi yfir þremur meðlimum pönksveitarinnar Pussy Riot. Konurnar þrjár eru dæmdar fyrir óspektir á grunni trúarhaturs en glæpur þeirra fólst í mótmælagjörningi sem fram fór í dómkirkju Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í Moskvu í aðdraganda forsetakosninganna í Rússlandi í vetur.

Hægara kýlt en pælt

Þorsteinn Pálsson skrifar

Hægara pælt en kýlt er skáldsaga eftir Magneu J. Matthíasdóttur. Nú, meir en þrjátíu árum eftir útkomu bókarinnar, er einfaldasta ráðið til að lýsa heimi íslenskra stjórnmála að snúa heiti hennar við. Engu er nefnilega líkara en þar sé hægara kýlt en pælt. Fyrir nokkrum vikum samþykktu ráðherrar VG, þar sem þeir sátu við ríkisstjórnarborðið í Stjórnarráðshúsinu, samningsmarkmið Íslands í peningamálum fyrir viðræðurnar við Evrópusambandið. Þar er því lýst yfir að Ísland stefni að upptöku evru svo fljótt sem aðstæður leyfa. Þessari skýru stefnuyfirlýsingu er beint til tuttugu og sjö aðildarríkja sambandsins. Um hana var fyrirvaralaus eining í ríkisstjórn.

Óvirðing

Þórður Snær Júlíusson skrifar

Hermann Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri olíurisans N1, kastaði blautri tusku framan í íslenska neytendur í viðtali við Viðskiptablaðið síðastliðinn fimmtudag. Þar er haft eftir Hermanni að eldsneytisverð verði alltaf eins hátt og markaðurinn leyfi vegna þess að "menn vilja hafa þessa arðsemi“ í geiranum. Hann bætti við að "jafnvel þótt stjórnendur N1 hafi gert sér grein fyrir því að félagið hefði burði til þess að lækka verðið þá bar okkur líka skylda til þess að virða ákveðið ástand sem var á markaðnum, þ.e. að félögin voru misvel sett“. Hermann rökstyður líka skort á eðlilegri samkeppni með því að markaðsráðandi staða stóru olíufélaganna geri það að verkum að þau megi helst ekki keppa! "Það þarf að ganga varlega um þennan garð og af einhverri virðingu,“ segir Hermann.

Veðkall, „þögn“ og eignir

Magnús Halldórsson skrifar

Í hinni mögnuðu kvikmynd Margin Call (Veðkall), sem byggð er að sannri sögu af vinnugólfi fjárfestingabanka á Wall Street á árinu 2006, er eftirminnileg sena þar sem tveir starfsmenn áhættustýringar bankans standa upp á þaki höfuðstöðva bankans og ræða launamál við yfirmann sinn á deildinni og njóta útsýnisins.

Viðbúin því versta

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Yfirmenn íslenzku lögreglunnar liggja nú yfir skýrslu 22. júlí-nefndarinnar um hryðjuverkin í Ósló og Útey í fyrra, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Víðir Reynisson, yfirmaður almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, sagði í samtali við blaðið að norska lögreglan hefði þegar deilt með íslenzkum starfssystkinum sínum upplýsingum um hvað hún hefði talið vel gert og hvað illa í viðbrögðum við hryðjuverkunum. Nú væri komin óháð skýrsla og ætlunin væri að nýta reynslu Norðmanna til að bæta viðbúnað íslenzku lögreglunnar. Fyrir liggur að áætlunum og verklagsreglum verði breytt.

Tifandi tímasprengja

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Fréttablaðið sagði frá því í gær að stjórnvöld ættu nú í viðræðum við samtök opinberra starfsmanna um stórtækar breytingar á lífeyriskerfi þeirra. Meðal þess sem væri rætt um væri að hækka lífeyrisaldur úr 65 árum í 67 eins og tíðkast á almennum vinnumarkaði og færa réttindaávinnslu opinberra starfsmanna til samræmis við það sem gerist í almennum lífeyrissjóðum.

Hvar er plan B?

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Nú er hafið enn eitt upphlaupið í kringum umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Að þessu sinni á það upptök sín í þingflokki Vinstri grænna, sem telur sig þurfa að friða ESB-andstæðinga í flokknum, og stjórnarandstaðan stekkur að sjálfsögðu á vagninn.

Umdeild auglýsing

Ólafur Þ. Stephensen skrifar

Auglýsing, sem birtist í Fréttablaðinu á laugardaginn, hneykslaði marga lesendur, og það skiljanlega. Þar birtist tilvitnun í fyrra Kórintubréf Páls postula, þar sem "kynvillingar“ eru taldir upp í langri runu siðleysingja og glæpamanna, sem muni ekki erfa Guðs ríki.

Frelsið

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Við þurfum að endurheimta orðið "Frelsi“. Því var einn góðan veðurdag stolið af okkur, það var tekið í gíslingu og farið með það í mikla herleiðingu af áhugamönnum um óheilbrigða viðskiptahætti.

HÍ og stundakennararnir

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Uppákoman með stundakennarann við Háskóla Íslands sem bætti við sig doktorsgráðu sem hann hafði þó ekki lokið er sérkennileg. Enn furðulegra er málið í ljósi þess að það kemst ekki upp fyrr en maðurinn hafði kennt í nokkur ár við skólann og hafði alltaf haldið því fram að hann væri með doktorspróf.

Menntun er lykill

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Menntun ungs fólks er ávísun á aukin lífsgæði í framtíðinni. Það er sama hvert litið er, fylgni milli menntunar og þátta sem almennt flokkast sem gæði í lífinu er mikil.

Er möguleiki á framhaldslífi?

Þorsteinn Pálsson skrifar

Stjórnarflokkarnir unnu kosningasigur allra tíma fyrir þremur árum. Skoðanakannanir sýna að samanlagt fylgi þeirra er nú nærri fjörutíu prósent minna. Þegar rúmir átta mánuðir eru til kosninga er þrátt fyrir þetta alls ekki víst að dagar ríkisstjórnarinnar séu taldir. Hún gæti átt möguleika á framhaldslífi.

Líf með reisn

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Framtíðarsýn Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðra er að fatlað fólk sem þarf aðstoð í daglegu lífi á að geta valið hvernig hún er veitt.

Ólympíuandinn svokallaði

Pawel Bartoszek skrifar

Þegar ég heyri orðið "Ólympíuandi“ sé ég ósjálfrátt fyrir mér sárþjáðan, haltrandi íþróttamann að reyna að klára hlaup undir dynjandi lófataki áhorfenda. Með aukinni þátttöku almennings í íþróttum er reyndar vonandi kominn meiri skilningur á því að það er ekkert sérlega skynsamlegt að menn reyni að staulast í mark í 800 metra hlaupinu með tognað læri. Enginn íþróttamaður á Ólympíuleikunum ætti að þurfa að sanna að hann geti að hlaupið tvo hringi í kringum hlaupabrautina.

Vinstri, hægri snú

Magnús Halldórsson skrifar

Opinberar skuldir ríkisins og sveitarfélaga nema ríflega 140 prósent af landsframleiðslu þegar allt er talið, eða sem nemur yfir 2.300 milljörðum íslenskra króna. Þar af er skuldsetning ríkissjóðs ríflega 100 prósent af landsframleiðslu, eða sem nemur milli 1.600 og 1.700 milljarðar króna.

Íslensk ábyrgð

Þórður Snær Júlíusson skrifar

Þegar íslenska ríkið og Reykjavíkurborg ákváðu að taka yfir byggingu og rekstur Hörpunnar í byrjun árs 2009 var það gert á grundvelli svokallaðrar yfirtökuáætlunar. Hún snerist bæði um ætlaðan kostnað vegna byggingar hússins, hver rekstrargjöld þess yrðu þegar það væri tilbúið og hvers konar tekjum það myndi skila. Líkt og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu á undanförnum dögum þá stóðust þessar áætlanir varla að nokkru leyti. Byggingarkostnaður hefur verið mun hærri en upphaflega var áætlað, rekstrarkostnaður meiri og tekjur mun lægri. Mest sláandi er að tekjur af ráðstefnuhaldi hafa verið 80 prósentum lægri en tilgreint var í upphaflegum áætlunum.

Litríka hátíðin gengin í garð

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Hinsegin dagar eru runnir upp í Reykjavík í fjórtánda sinn. Hátíðin sem byrjaði sem eins dags hátíð er orðin að sex daga menningar- og skemmtidagskrá. Hápunkturinn er svo gleðigangan sjálf á laugardaginn.

Út úr bíóunum

Rekstur tónlistarhússins Hörpu verður að óbreyttu með rúmlega 400 milljóna króna tapi á þessu ári. Þetta er vitanlega þungur baggi bæði fyrir ríki og borg og þar með skattgreiðendur, ekki síst í Reykjavík.

Hófsöm hirting

Þorsteinn Pálsson skrifar

Ræða forseta Íslands við embættistökuna nú í vikunni var ekki gallalaus. Sjálfsupphafningin var til að mynda á sínum stað þótt hún hafi að þessu sinni fremur verið ívaf en uppistaða. Kjarninn í ræðunni var hins vegar hófsöm hirting vegna ráðleysis og sundurlyndis við meðferð stjórnarskrármálsins á Alþingi.

Þolinmæði, gleði og virðing

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Ferðahelgin stóra, verslunarmannahelgin, er runnin upp. Þriggja daga helgi sem er mörgum langþráð. Helgina má nýta til margs. Margir velja rólegheitin heima hjá sér en hjá stórum hópi er helgin nýtt til ferðalaga með áherslu á annað hvort að njóta náttúrunnar eða samveru við annað fólk, nema hvort tveggja sé.

Ráðist að meinsemdinni sjálfri

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Norðmenn hafa búið til vefsíu sem hindrar notkun á barnaklámi og stöðvar mörg þúsund heimsóknir á barnaklámssíður þar dag hvern. Í síuna eru skráðar um þúsund vefsíður sem hafa verið skilgreindar ólöglegar. Hún er sett upp hjá netþjónustum og nær þá til allra sem eru í viðskiptum við þau fyrirtæki sem nota síuna. Virknin er þannig að ef notandi reynir að fara inn á skráða síðu þá fær hann skilaboð um að hún innihaldi ólöglegt efni.

"Er þetta ekki örugglega nóg?“

Pawel Bartoszek skrifar

Ein af fjölmörgum dellum íslenskrar áfengisstefnu byggði á þeirri kenningu að ef menn væru neyddir til að kaupa meira áfengi í einu þá myndu þeir drekka minna af því. Þannig máttu Íslendingar lengi minnst kaupa sex bjóra í einni búðarferð. Líklegast byggðist þetta á þeirri hugsun að ef menn hækka upphafshæðina í hástökki þá muni færri reyna að stökkva yfir. Sem sagt: Það væri dýrara að kaupa heila kippu en einn bjór og stykkjasölubannið hindraði því dagdrykkju.

Unglingar og klám

Sigga Dögg skrifar

Unglingar horfa á klám. Það er staðreynd. Margir vita að klám er óraunverulegt en reyna samt að draga einhvern lærdóm af því. Þekkingin til að greina á milli hvað sé raunhæft og hvað ekki er ekki til staðar sökum reynsluleysis í samskiptum og kynlífi. Klámið kennir börnum ekki samskipti því þar eru einungis geltar skipanir og svívirðingar. Við fullorðna fólkið vitum að sú tækni dugar skammt í raunverulegum kynmökum en þeir sem hana hafa prófað hafa oftar en ekki sármóðgað bólfélagann með tilheyrandi leiðindum. Þá kennir klámið heldur ekki tækni, þarna eru atvinnumenn á ferð og leikmenn sem ætla að herma eftir geta slasað sig og aðra.

Vald og „mótun“

Magnús Halldórsson skrifar

Á dögunum var greint frá því að Framtakssjóður Íslands hefði selt fyrirtækið Plastprent til Kvosar, móðurfélags prentsmiðjunnar Odda. Kvos fékk fimm milljarða króna afskrift á dögunum, gegn því að leggja fram nýtt hlutafé upp á fimm hundruð milljónir.

Krónan styrkist

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Eftir hrun hefur margt unnist í endurreisn hér á landi. Ekki er þó laust við að sumum merkjum um bættan efnahag fylgi blendnar tilfinningar. Þannig hefur krónan styrkst mjög síðustu daga og er það að sjálfsögðu vel, svo fremi sú styrking skili sér í lægra vöruverði. Þess sjást þó ekki enn merki og er þá sama hvort horft er til nauðsynjavöru, neysluvarnings eða eldsneytisverðs. En þá er í öllu falli örlítið hagkvæmara að fara til útlanda.

Aðgengilegri og öruggari hjólreiðar

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Þeim fjölgar sífellt sem velja að nota reiðhjól til þess að komast milli staða í höfuðborginni. Hjólreiðar sem ferðamáti eru gagnlegar bæði fyrir þann sem þær stundar og fyrir samfélagið allt.

Sjá næstu 50 greinar