Fleiri fréttir

Sanderson systur mæta á Disney+ eftir 29 ára dvala
Margir kannast eflaust við Sanderson systurnar úr myndinni Hocus Pocus sem leit dagsins ljós árið 1993 en nú eru þær mættar aftur eftir 29 ára dvala.

Cameron Diaz snýr aftur á skjáinn eftir langt hlé
Bandaríska leikkonan Cameron Diaz mun snúa aftur til vinnu í Hollywood eftir átta ára hlé. Hún mun leika aðalhlutverkið í kvikmyndinni Back in Action, sem Netflix framleiðir.

Tökur hefjist í fyrsta lagi eftir tvö ár
Aðdáendur ofurnjósnarans James Bond þurfa að sætta sig við dágóða bið eftir næstu mynd samkvæmt upplýsingum frá Barböru Broccoli, framleiðanda myndanna. Framleiðsla myndarinnar muni ekki hefjast fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö ár.

Byrjuð að framleiða Aulann mig 4
Framleiðsla er hafin á Aulanum mér 4 segir leikarinn Steve Carell sem talar fyrir illmennið Gru. Carell segir myndina rökrétt framhald af þriðju mynd seríunnar, hún fjalli um það hvernig fjölskylda þeirra Gru og Lucy virki sem heild nú þegar þau eru komin með börn.

Hollywood fréttir: Brad Pitt á síðustu metrunum sem leikari
Brad Pitt virðist í fullu fjöru, hann vann Óskar fyrir frammistöðu sína í Once Upon a Time in Hollywood árið 2020 og er í aðalhlutverki í einni af stærri myndum sumarsins, en segir þó hilla undir lok ferilsins.

Ný leikin mynd um Herkúles frá Disney
Guy Ritchie mun leikstýra nýrri leikinni mynd um Herkúles fyrir Disney sem á að byggja á söguþræði teiknimyndarinnar um gríska goðið frá 1997.

Hollywood fréttir: Fyrstu myndirnar af Ryan Gosling sem Ken
Fyrstu myndirnar af Ryan Gosling sem Ken í Barbie-kvikmyndinni, sem kemur út eftir rúmt ár, hafa nú birst. Áður höfðu Warner Bros. birt myndir af Margot Robbie í gervi titilpersónunnar. Greta Gerwig leikstýrir myndinni og skrifar hana með Noah Baumbach, samstarfsmanni sínum til margra ára.

Rödd Bósa ljósárs segir andstæðinga fjölbreytni „bjána“
Chris Evans, sem ljær Bósa ljósári rödd sína, segir fólk sem er reitt yfir því að tvær konur kyssist í nýrri teiknimynd vera „bjána“. Myndin hefur meðal annars verið bönnuð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum vegna kossins.

Bósi ljósár bannaður í Mið-Austurlöndum út af samkynja kossi
Ljósár, nýjasta myndin frá Disney um Bósa ljósár, hefur verið bönnuð í Sádí-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Kúvæt vegna atriðis þar sem tvær konur kyssast. Teiknimyndin er „spin-off“ af hinni vinsælu seríu Leikfangasögu (e. Toy Story) og fjallar um geimævintýri Bósa Ljósár út fyrir endimörk alheimsins.

Staðfesta loks nýja þáttaröð Squid game
Forsvarsmenn Netflix hafa loks gert samkomulag við framleiðendur og leikara Squid Game um að gera nýja þáttaröð af hinum gífurlega vinsælu þáttum frá Suður Kóreu. Þættirnir, sem voru gerðir í Suður-Kóreu, eru þeir vinsælustu í sögu streymisveitunnar.

Tárin féllu þegar Nágrannar kvöddu
Búið er að taka upp síðasta atriðið í áströlsku sápuóperunni Nágrönnum sem eru að hætta eftir 37 ár í sjónvarpi. Tárin féllu þegar Nágrannanir sögðu bless.

Stikla úr Þroti
Vísir frumsýnir fyrstu stikluna úr kvikmyndinni Þrot í leikstjórn Heimis Bjarnasonar en um er að ræða sakamáladrama.

Velkominn Árni og Hækkum rána sigurvegarar á Skjaldborg
Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda var haldin á Patreksfirði í fimmtánda sinn um helgina.

Stærsta frumsýningarhelgi á ferli Tom Cruise
Top Gun var ekki aðeins vinsæl í bíóhúsum hér á landi um helgina heldur um allan heim. Í Bandaríkjunum var miðasalan yfir 134 milljónir dollara en myndin var sýnd í 4.732 kvikmyndahúsum í Norður-Ameríku.

„Skapar magnaðan neista í fólki sem verður til þess að því finnst það hafa virkilegan tilgang í lífinu“
Sjónvarpsþátturinn Ég sé þig fjallar um skapandi tónlistarmiðlun þar sem fylgst er með Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths, sem nýtir tónlist til að hjálpa fólki til virkni í samfélaginu. Anna Hildur Hildibrandsdóttir er leikstjóri en blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá þessu verkefni.

Gullpálminn fyrir ádeilu með löngu æluatriði
Kvikmyndin „Þríhyrningur depurðarinnar“ eftir sænska leikstjórann Ruben Östlund hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi. Henni er lýst sem meinhæðinni samfélagsádeilu með langdregnu æluatriði.

Balta fannst hann eiga smá sérvisku inni hjá Hollywood
Nýjasta mynd Baltasars Kormáks, Beast, er væntanleg í kvikmyndahús í ágúst. Myndin var unnin í Suður-Afríku síðasta sumar og segir sögu manns sem þarf að kljást við illvígt ljón í hefndarhug á sama tíma og hann reynir að rækta tengslin við dætur sínar á nýjan leik.

Gorr guða-slátrari slæst við Þór
Marvel hefur birt nýja stiklu fyrir næstu myndina um guðinn og ofurhetjuna Þór, Thor: Love and Thunder. Óhætt er að segja að virðist ansi margt um að vera hjá Þór, sé mið tekið af stiklunni og að hann hafi þurft að finna sig á nýjan leik eftir atburði Avengers: Endgame.

Fyrsta stikla næstu Avatar loksins birt
Eftir margra ára framleiðslu er loksins búið að birta fyrstu stiklu næstu Avatar-kvikmyndarinnar. Hún heitir Avatar: The Way of Water og fjallar um Jake, Neytiri, börn þeirra og baráttu íbúa Pandora gegn mönnum.

Aldrei of seint að hafa lagið í Berdreymi
Nýtt sýnishorn úr kvikmyndinni Berdreymi inniheldur lag Þórunnar Antoníu Too Late. Lagið kom út fyrir tíu árum en það hefur rokið upp í spilunum eftir að myndin kom út. Hún tengir lagið við vináttu strákanna í myndinni og skilaboðin um að það sé aldrei of seint fyrir ástina.