Fleiri fréttir

Ekki rætt um annað útboð

"Þegar öllu er á botninn hvolft voru menn bara á því að við ættum að horfa í kringum okkur - þetta væri nýtt upphaf," segir Birna G. Konráðsdóttir, formaður Veiðifélags Norðurár (VN), en landeigendur við Norðurá höfnuðu í fyrrakvöld tilboði Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) í ána. SVFR hafði skilað tveimur tilboðum, annars vegar upp á 83,5 milljónir og hins vegar tilboði upp á 76,5 milljónir.

Sigurður Pálsson kennir fluguhnýtingar

Hinn kunni veiðimaður og fluguhnýtari Sigurður Pálsson verður enn á ný með hnýtingarkvöld fyrir félagsmenn Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR). Sigurður er meðal annars þekktur fyrir að vera höfundur Flæðamúsarinnar og Dýrbítsins sem báðar eru frábærar veiðiflugur.

"Ég er ákaflega svekktur"

"Ég leyni því ekki að ég er ákaflega svekktur yfir þessari stöðu og ætla að leyfa mér að vera svekktur frameftir degi, segir Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur en Veiðifélag Norðurár hafnaði í gærkvöldi báðum tilboðum félagsins í veiðirétt árinnar.

Óvissa um Norðurá - Tilboðum SVFR hafnað

Veiðifélag Norðurár hafnaði fyrr í kvöld báðum tilboðum Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) í veiðirétt Norðurár. Þetta kemur fram á vefnum Vötn og veiði.

Eldvatn: Tilboð undir væntingum

Þrjú tilboð bárust í Eldvatn og var það hæsta upp á um 5 milljónir króna sem er töluvert undir væntingum. Tilboðin voru opnuð á laugardaginn.

Engin ládeyða í Noregi

Laxveiði jókst um 14 prósent á milli ára í Noregi í tonnum talið. Alls veiddust 448 tonn af laxi í norskum ám á síðasta ári og var meðalþyngdin 3,9 kíló.

Saga stangveiða: Stóra-Laxá gaf 10 laxa á þrettándanum

Einu sinni veiddi hann 110 laxa einn dag, og annað sumar 200 laxa á einum degi. Þá var veitt langt fram á vetur; þannig veiddi hann einu sinni 8 eða 10 laxa á þrettánda, og eina hrygnu, ekki mjög magra, á góuþrælinn.“

Spjalla og skemmta sér fram á vor

Þrátt fyrir hálfgerðar hamfarir á sumum af helstu vatnasvæðum Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar í fyrra halda félagsmenn þar ótrauðir inn í öflugt vetrarstarf.

Kenna stangveiði í grunnskólanum

Nú í vetur hafa um 30 nemendur af 60 valið þessar greinar. Strákarnir eru fleiri, en margar stúlkur hafa einnig valið að læra að hnýta og kasta flugu.

Brúará gaf mest 140 laxa árið 1973

"Á fyrsta tímabilinu eða á árunum 1970-1973 var vaxandi veiði og fór hún mest í 140 laxa árið 1973 sem er mesta laxveiði sem skráð er úr Brúará.

Laxinn hefur tekið yfir í Miðá í Dölum

Greind voru 83 hreistursýni úr laxveiðinni 2012 og reyndust 78% sýnanna vera af náttúrulegum uppruna en 22% ættuð úr fiskrækt með sleppingum sjógönguseiða; reyndist klakárgangur frá 2008 uppistaða göngunnar í ána 2012.

Gerðum eins gott tilboð og við gátum

"Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur sendi einfaldlega ábyrgt tilboð sem félagið treystir sér til að standa við," segir Bjarni Júlíusson, formaður félagsins um tilboð í leigu Norðurár.

Gangan upp fyrir Glanna 65% undir tíu ára meðaltali

Nettóganga upp fyrir teljarann í Glanna var 1.134 fiskar, eða 172 silungar, 818 smálaxar og 177 stórlaxar. Hlutur stórlaxa af laxagöngunni var því tæp 15%. Gangan upp fyrir teljarann var 57% minni en árið 2011 og tæpum 65% undir meðaltali tímabilsins 2002 - 2012. Tæp 70% laxa gekk upp fyrir teljarann í júlí.

Bíða skýringa úr Kleifarvatni

Beðið er eftir lokaniðurstöðum rannsókna á slæmri stöðu í Hlíðarvatni og Kleifarvatni í fyrrasumar segir formaður Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar.

Lax-á hefur söluna í Ásgarði

Lax-á, sem tók yfir Sogið fyrir Ásgarðslandi, er nú að hefja sölu laxveiðileyfa þar. Silungsveiðin hefst 1. apríl og salan er byrjuð.

Opinber dráttur um leyfi í Elliðaánum

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur ákveðið að efna til opinbers dráttar milli þeirra sem sóttu um veiðileyfi í Elliðánum í júlí næsta sumar.

Umsóknarferli að ljúka hjá Ármönnum

Umsóknarfrestur um veiðileyfi hjá stangaveiðifélaginu Ármönnum rennur út á föstudaginn. Meðal veiðisvæða Ármanna er Hlíðarvatn og Húseyjakvísl og Svartá í Skagafirði.

Silungsparadís í Svarfaðardal

Nú styttist í að Stangaveiðifélag Akureyrar hefji veiðileyfasölu fyrir næsta sumar. Félagið hefur meðal annars hina rómuðu Svarfaðardalsá í umboðsölu.

Elliðaár: Umsóknir verða færðar til

"Það hefur verið vinnuregla undanfarin ár að þeim sem ekki komast að á morgunvöktum er reynt að koma fyrir á vaktir eftir hádegið," segir Ásmundur Helgason, stjórnarmaður í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur (SVFR), í stuttu spjalli við Veiðivísir.

Fiskurinn undir ísnum

Vötn eru nú víða ísilögð og árstími ísdorgsins því runninn upp. Veiðivísir spjallaði við Ingimund Bergsson, hjá Veiðikortinu, af þessu tilefni.

Sjá næstu 50 fréttir