Fleiri fréttir

Simpson vann US Open

Webb Simpson vann opna bandaríska meistaramótið í golfi, US Open, í nótt. Þetta er hans fyrsti risatitill á ferlinum. Simpson endaði mótið á einu höggi yfir pari eða höggi betur en Graeme McDowell og Michael Thompson.

McDowell og Furyk efstir | Woods lék af sér á þriðja hringnum

Graeme McDowell frá Norður-Írlandi og Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk, sem báðir hafa sigrað á opna bandaríska meistaramótinu, eru einu kylfingarnir sem eru undir pari fyrir lokahringinn á opna bandaríska meistaramótinu sem fram fer í dag. Þeir eru báðir á einu höggi undir pari samtals. Tiger Woods náði sér alls ekki á strik á þriðja hringnum og lék hann á 75 höggum eða 5 höggum yfir pari á hinum gríðarlega erfiða Olympic Club golfvelli.

Góður árangur hjá yngstu afrekskylfingum landsins

Í dag lauk mótum á Arion-banka unglingamótaröðinni og Áskorendamótaröðinni. Um 250 unglingar tóku þátt í mótum helgarinnar sem er frábær þátttaka og ljóst að það er mikil gróska í unglingagolfinu hér á landi. Leikið var á Korpúlfsstaðavelli á Arion-banka unglingamótaröðinni en á Áskorendamótaröðinni var leikið á Húsatóftavelli í Grindavík.

Tiger efstur eftir annan dag

Tiger Woods deilir efsta sætinu á US Open eftir tvo keppnisdaga með David Toms og Jim Furyk á einu höggi undir pari. Woods og Toms léku á pari á öðrum keppnisdegi en Furyk var einn aðeins sjö kylfinga sem léku undir pari vallarins í gær.

Kristinn Reyr lék best á fyrri hring í Korpunni

Fyrri hringurinn af tveimur var leikinn í gær á Korpúlfsstaðavelli í þriðja stigamóti sumarsins á Arion-banka unglingamótaröðinni. Frábær þátttaka er í mótinu en alls eru 135 kylfingar sem taka þátt í mótinu í þremur aldurflokkum hjá báðum kynjum.

Thompson: Fullt af fólki veit ekki hver ég er

Hinn lítt þekkti Bandaríkjamaður, Michael Thompson, er efstur á opna bandaríska meistaramótinu í golfi, US Open, eftir fyrsta keppnisdag. Thompson lék á fjórum höggum undir pari í gær og er þrem höggum á undan Tiger Woods, David Toms, Nick Watney, Justin Rose og Graeme McDowell.

Milljónastyrkur til kylfinga

Tilkynnt var um stofnun afrekssjóðsins Forskots á blaðamannafundi hjá Golfsambandi Íslands í gær. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við þá kylfinga, atvinnumenn sem og áhugamenn, sem stefna á að komast í fremstu röð í heiminum í íþróttinni.

Birgir Leifur: Væri fín afmælisgjöf að komast á Ólympíuleikana

"Þetta skiptir alltaf miklu máli að fá fjármagn inn í þetta til þess að láta draumin rætast,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG í dag þegar greint var frá stofnun afrekssjóðsins Forskot. Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group en 15 milljónir verða veittar til fimm íslenskra afrekskylfinga árið 2012.

Tinna: "Ég var búin með allt í buddunni“

"Áður en þessi dagur kom þá var ég búin með allt í buddunni. Stofnun afrekssjóðsins hefur mikla þýðingu fyrir okkur, þetta gefur okkur ákveðið frelsi og við þurfum ekki alltaf að vera með áhyggjur af peningum á meðan við erum að æfa og keppa,“ sagði atvinnukylfingurinn Tinna Jóhannsdóttir úr Keili við Vísi í dag þegar greint var frá stofnun nýs afrekssjóðs hjá Golfsambandi Íslands.

15 milljónir til íslenskra afrekskylfinga

Tilkynnt var um stofnun afrekssjóðsins Forskot á blaðamannafundi hjá Golfsambandi Íslands í dag. Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group en 15 milljónir verða veittar til fimm íslenskra afrekskylfinga árið 2012.

Ungir afrekskylfingar keppa í Finnlandi

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi hefur valið fimm unga kylfinga sem verða fulltrúar Íslands á finnska meistaramótinu sem fram fer 27.-29. júní. Þar verður leikið í tveimur aldursflokkum hjá báðum kynjum. Keppt verður á Cooke vellinum í Vierumaki sem er um 100 km fjarlægð frá Helsinki.

Fjórtán ára Kínverji tekur þátt á US Open

Þegar Paul Casey varð að draga sig úr keppni á US Open í golfi þá gladdist ungur 14 ára Kínverji. Sá heitir Andy Zhang og hann er á leiðinni á mótið í stað Casey.

Sunna bætti vallarmet Ragnhildar

Sunna Víðisdóttir, GR, bætti um helgina níu ára gamalt vallarmet Ragnhildar Sigurðardóttur þegar hún lék lokahringinn á Egils Gulls-mótinu á 67 höggum í gær.

Þórður Rafn: Verðlaunaféð dugar fyrir næsta móti

"Ég hef spilað einu sinni áður á 66 höggum hér á Íslandi, á meistaramóti í Grafarholti, en þar er parið 71. Ég er ánægður með hringinn en við þurfum að fá góðar aðstæður hér á landi til að ná svona skori – og aðstæðurnar voru fínar hér í Vestmannaeyjum í dag,“ sagði Þórður Rafn Gissurarson kylfingur úr GR eftir sigurinn á Egils Gull mótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi í dag.

Efnilegur kylfingur fór holu í höggi tvo daga í röð

Gísli Sveinbergsson, ungur og efnilegur kylfingur úr Keili í Hafnarfirði, er að gera góða hluti þessa dagana. Hann náði því nefnilega að fara holu í höggi tvo daga í röð en þetta kemur fram á heimasíðu Keilis.

Krefjandi og langur golfdagur að baki í Eyjum

Keppendur á Egils gull mótinu í Vestmannaeyjum hafa lokið leik í dag en spilaðar voru 36 holur í dag. Á morgun fer þriðji og síðasti hringurinn fram þegar síðustu 18 holurnar verða leiknar en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni.

Berglind á eitt högg á Guðrúnu Brá fyrir lokadaginn

Berglind Björnsdóttir úr GR er með eins högg forskot fyrir lokahringinn á Egils Gull mótinu í Vestmannaeyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni. Berglind hefur leikið fyrstu 36 holurnar á 149 höggum eða 9 höggum yfir pari.

Signý og Guðrún Brá spiluðu best á fyrsta hring

Keiliskonurnar Signý Arnórsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru efstar og jafnar eftir fyrsta hringinn á Egils Gull mótinu í Eyjum en þetta er annað mótið á Eimskipsmótaröðinni í ár.

Að birta til hjá McIlroy - efstur eftir 2 daga í Memphis

Rory McIlroy er efstur á St Jude Classic golfmótinu í Memphis þegar keppni er hálfnuð sem er mikil breyting frá gengi Norður-Írans að undanförnu. Fyrir þetta mót hafi McIlroy ekki komist í gegnum niðurskurðinn á þremur mótum í röð.

Íslenskur kylfingur varð mús að bana

Sjöunda holan á golfvellinum á Blönduósi er væntanlega með þeim eftirminnilegri sem kylfingurinn Guðmundur Ingvi Einarsson hefur spilað. Guðmundur fékk fugl á holunni auk þess að verða mús að bana. Þetta kemur fram á vefsíðunni Kylfingur.is.

Birgir Leifur um miðjan hóp

Birgir Leifur Hafþórsson lék á pari á fyrsta keppnisdegi móts í Áskorendamótaröð Evrópu sem fer nú fram í Kärnten í Austurríki.

Stefán Már og Þórður Rafn í gegnum niðurskurðinn

Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, báðir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, eru komnir í gegnum niðurskurðinn á Land Fleesensee Classic-mótinu í Þýskalandi. Þetta kemur fram á kylfingur.is.

Snjallsímar orðnir plága á golfmótum

Kylfingurinn Phil Mickelson dró sig úr keppni eftir fyrsta daginn á Memorial-mótinu. Hann kom þá algjörlega brjálaður í hús á 79 höggum. Hann kenndi snjallsímum um slæma spilamennsku sína.

Umboðsmaður Tigers keyrði ölvaður

Umboðsmaður Tiger Woods, Mark Steinberg, er hæstánægður með gengi skjólstæðings síns og svo mikið að hann ákvað að halda fullvel upp á gengi Tigers um helgina.

Sögulegur sigur hjá Tiger | Jafnaði Nicklaus

Tiger Woods fór á kostum á lokadegi Memorial-mótsins í kvöld og tryggði sér sögulegan sigur. Þetta var 73. sigur Tigers á PGA-mótaröðinni og hann hefur þar með jafnað sjálfan Jack Nicklaus.

Jaidee vann Wales Open

Tælendingurinn Thongchai Jaidee hristi af sér slæma byrjun á lokadegi Wales Open og vann mótið með einu höggi.

Sjá næstu 50 fréttir