Fleiri fréttir

Pétur Markan: Ekkert sanngjarnt í fótbolta

„Ég er nokkuð ánægður með okkar leik í kvöld. Við mættum ákveðnir til leiks í fyrri hálfleik og vorum þá betri aðilinn en Þórsarar voru sterkari í síðari hálfleik eftir að við jöfnuðum og börðust einfaldlega bara meira en við fyrir sigrinum,“ sagði Pétur Georg Markan, leikmaður Víkings, eftir tapið gegn Þór í kvöld.

Boltavarp Vísis á leik Hauka og Keflavíkur

Boltavarp Vísis verður á ferðinni í Hafnarfirði í kvöld. Nánar tiltekið á Ásvöllum þar sem leikur Hauka og Keflavíkur í 16-liða úrslitum Valitorsbikars karla fer fram.

Tómas Ingi: Auðvitað er þetta sárt

Tómas Ingi Tómasson var í dag rekinn sem þjálfari 1. deildarliðs HK. Við starfi hans tekur Ragnar Gíslason sem hefur verið yfirþjálfari yngri flokka hjá HK. Kópavogsliðinu hefur ekki gengið vel undir stjórn Tómasar Inga og situr á botni 1. deildarinnar með aðeins eitt stig eftir sjö leiki.

Keflavík og Fjölnir í átta liða úrslit

Lærisveinar Willums Þórs Þórssonar hjá Keflavík eru komnir í átta liða úrslit Valitor-bikarsins í knattspyrnu eftir fínan útisigur á Haukum, 1-3, í kvöld.

Umfjöllun: Verðskuldaður sigur Þórs

Þór frá Akureyri tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum Valitor-bikarsins í knattspyrnu með 3-1 sigri á Víkingi á Akureyri. Eins og venjulega þetta sumarið var nokkuð kalt í veðri á Akureyri þegar Þórsarar tóku á móti Víkingum á Þórsvellinum í kvöld. Heimamenn virðast kunna nokkuð vel við sig í kuldanum því þeir unnu sinn annan sigur í þrem leikjum á Þórsvellinum.

Bikarmeistaralið FH fer til Madeira í Evrópudeildinni

FH leikur gegn CD Nacional frá Portúgal í forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta en dregið var í dag. Bikarmeistararnir úr Hafnarfirði fara beint inn í 2. umferð keppninnar og fara leikirnir fram 14. og 21. júlí. CD Nacional er frá portúgölsku eyjunni Madeira en liðið endaði í sjötta sæti í 1. deildinni á síðustu leiktíð.

KR til Færeyja en ÍBV fékk írska mótherja

KR mætir ÍF frá Færeyjum í 1. umferð Evrópudeild UEFA í fótbolta karla og ÍBV mætir St. Patricks frá Írlandi en dregið var í morgun. Bikarmeistaralið FH situr hjá í fyrstu umferð og skýrist það síðar í dag hvaða lið Hafnfirðingar fá í keppninni.

Ólafur Kristjánsson: Ánægður með þessa niðurstöðu

"Ég var að vona að við myndum fá lið frá Skandinavíu þannig að ég er bara ánægður með þessa niðurstöðu. Og það skemmir ekki fyrir að Þrándheimur er vinabær Kópavogs,“ sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Íslandsmeistaraliðs Breiðabliks sem mætir liði Rosenborg í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Leikið í 16-liða úrslitum Valitorbikarsins í kvöld

Þrír leikir fara fram í kvöld í Valitor bikarkeppni karla í fótbolta í 16-liða úrslitum. Pepsideildaliðin Þór og Víkingur úr Reykjavík eigast við á Þórsvelli á Akureyri og hefst sá leikur kl. 18.30. Tveir leikir hefjast kl. 19.15. Haukar, sem leika í 1. deild, taka á móti Keflvíkingum sem eru í efstu deild. Fjölnir og Hamar leika í Grafarvogi en Fjölnir er í næst efstu deild en Hamar úr Hveragerði leikur í 2. deild. Bein netútvarpslýsing verður frá leik Hauka og Keflavíkur á Boltavarpinu á visir.is.

Breiðablik mætir norska meistaraliðinu Rosenborg

Íslandsmeistaralið Breiðabliks í Pepsideild karla í fótbolta leikur gegn Rosenborg frá Noregi í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikurinn fer fram 12. eða 13. júlí og sá síðari 19. eða 20. júlí.

Kristín Ýr hetja Valskvenna - Grindavík, FH og KR líka áfram

Valskonur slógu Breiðablik út úr bikarnum þriðja árið í röð með því að vinna 1-0 sigur í leik liðanna í 16 liða úrslitum Valitor-bikars kvenna sem fram fór á Kópavogsvellinum í dag. Grindavík, FH og KR komust einnig áfram í átta liða úrslitin í dag.

Heimir Guðjóns aftur í KR-búningnum - myndir frá Meistaraleik Steina Gísla

Meistaraleikur Steina Gísla fór fram á Akranesvellinum í gærkvöldi og mættu 4000 manns á leikinn en allar tekjur af leiknum runnu til Sigursteins Gíslasonar og fjölskyldu hans. Þetta var líklega besta aðsókn á leik á Akranesi síðan að ÍA og KR spiluðu hreinan úrslitaleik um titilinn árið 1996.

ÍBV og Fylkir áfram í Valitorbikarnum

ÍBV og Fylkir komust í dag í 8-liða úrslit í Valitorbikar kvenna í knattspyrnu. ÍBV sigraði Völsung í Eyjum 4-0 en Fylkir gerði góða ferð norður á Akureyri og sigraði Þór/KA 1-0.

ÍR og Víkingar úr Ólafsvík lönduðu þremur stigum

Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í kvöld í fótbolta. ÍR og Leiknir áttust við í fyrri Breiðholtslagnum í sumar og þar hafði ÍR betur, 3-2. ÍR er í 8. sæti með 10 stig en Leiknir í því næst neðsta með 4. Í Ólafsvík sigraði Víkingur lið Þróttar frá Reykjavík 2-1. Með sigrinum þokuðu Víkingar sér upp í 9. sæti en liðið er með 9 stig en Þróttur er með 10 stig í því 6.

Fyrrum liðsfélagar standa að Meistaraleiknum fyrir Steina Gísla

KR og Akranes mætast í ágóðaleik á laugardaginn kl. 17.15 á Akranesvelli fyrir Sigurstein Gíslason fyrrum leikmann beggja félaga – sem á við erfið veikindi að stríða. Sigursteinn, sem er einn sigursælasti leikmaður landsins, greindist með krabbamein í lungum og nýrum nýverið. En Sigursteinn hefur þjálfað Leikni í Breiðholti með góðum árangri.

Eiður Smári missir af Meistaraleik Steina Gísla

Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki í eldlínunni á Skaganum á laugardaginn í Meistaraleik Steina Gísla líkt og fjallað hefur verið um. Heimasíða KR birti fyrir misskilning upphaflega leikmannahópa liðanna þar sem Eiður Smári var meðal leikmanna. Nú er ljóst að ekki geta allir tekið þátt í leiknum.

Sigurganga Skagamanna heldur áfram - Selfyssingar á skriði

Skagamenn eru áfram með sex stiga forskot í 1. deild karla eftir 1-0 sigur á Haukum á Ásvöllum í kvöld. Selfoss er í 2. sætinu eftir 3-0 sigur á KA og BÍ/Bolungarvík komst upp í 3. sætið eftir 2-1 sigur á botnliði HK.

Kristín Ýr með þrennu fyrir Val sem komst upp að hlið ÍBV

Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði þrennu fyrir Íslandsmeistara Vals sem unnu 4-1 sigur á Aftureldingu í Mosfellsbænum í 5. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Stjarnan vann 2-1 sigur á Þór/KA fyrir norðan, Breiðablik vann sinn annan leik í röð og Þróttarakonur fögnuðu sínum fyrsta sigri í sumar.

Birna Berg varði víti og ÍBV heldur enn hreinu

Hin 17 ára gamli markvörður ÍBV, Birna Berg Haraldsdóttir, heldur enn marki sínu hreinu í Pepsi-deild kvenna en ÍBV tapaði engu að síðustu fyrstu stigum sínum í sumar þegar liðið gerði markalaust jafntefli við KR á KR-vellinum í kvöld.

Þór/KA stelpurnar bjóða upp áritaða íþróttatoppa sína

Sex leikmenn Pepsi-deildarliðs Þórs/KA hafa ákveðið að leggja baráttunni gegn brjóstakrabbameini lið með sérstökum hætti. Þær ætla að gefa áritaða íþróttatoppa sína sem síðan verða svo seldir á uppboði síðar í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórsara.

Meistaraleikur Steina Gísla um næstu helgi

Vinir og félagar Sigursteins Gíslasonar hafa blásið til "Meistaraleiks Steina Gísla" á Akranesvelli á laugardaginn kemur en þetta er ágóðaleikur fyrir Sigurstein sem stendur nú í sinni stærstu baráttu á ferlinum.

Heimir: Sprækir Þórsarar refsuðu okkur

“Við FH-ingar erum aldrei sáttir nema við fáum þrjú stig,” sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH eftir jafnteflið við Þór í kvöld. Lokatölur 2-2 á Akureyri.

Páll Viðar: Súrsætt hugarfar

Páll Viðar Gíslason var ánægður með baráttu sinna manna gegn FH í kvöld en Þórsarar gerðu 2-2 jafntefli við Hafnfirðinga. Manni færri komst Þór yfir en FH jafnaði í lokin.

Hannes: Eigum að gera betur gegn Þór

Hannes Þ. Sigurðsson var langt frá því að vera sáttur með jafnteflið gegn Þór í kvöld. Þrátt fyrir að fá urmul færa skoraði liðið aðeins tvö mörk gegn baráttuglöðum Þórsurum.

Atli: Rauða spjaldið hafði góð áhrif

Atli Sigurjónsson var maður leiksins gegn FH í kvöld. Þórsarinn segir að rauða spjaldið sem Ármann Pétur Ævarsson fékk hafi þjappað liðinu saman.

Umfjöllun: Dramatískt jafntefli á Akureyri

Guðmundur Sævarsson bjargaði andliti FH sem jafnaði á lokasekúndunum gegn Þór í dag. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Þór var manni færri allan seinni hálfleikinn og lenti undir.

BÍ/Bolungarvík sótti þrjú stig í Efra-Breiðholtið

BÍ/Bolungarvík vann 1-0 sigur á Leikni í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Leikið var á Leiknisvelli. Vestfirðingar töpuðu síðasta leik sínum í deildinni gegn ÍA 0-6 á heimavelli en nældu í þrjú stig í Breiðholtinu í dag.

Skagamenn juku forskot sitt á toppnum í sex stig

Skagamenn eru komnir með sex stiga forskot í 1. deild karla eftir leiki kvöldsins sem voru í 6. umferð deildarinnar. ÍA vann 3-1 sigur á ÍR upp á Skaga og græddi á því að bæði Haukar og Þróttur, liðin í næstu sætum á eftir, töpuðu bæði sínum leikjum.

Fjölnismenn aftur á sigurbraut eftir stórsigur á KA fyrir norðan

KA-mönnum líður greinilega ekkert alltof vel á Þórsvellinum því þeir steinlágu 1-4 á "heimavelli" á móti Fjölni í 6. umferð 1. deildar karla í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Fjölnismanna síðan í 2. umferð en þeir komust upp í 3. sætið með því að krækja í þessi þrjú stig.

Ódýrast að klára UEFA-þjálfaragráðurnar á Íslandi

Knattspyrnusamband Íslands hefur tekið saman á heimasíðu sinni kostnað þjálfara á Norðurlöndum að sækja sér UEFA-þjálfaragráðurnar. Þar kom í ljós að það er ódýrast að taka þessar gráður hér á Íslandi. KSÍ útskrifaði á dögunum 35 þjálfara með KSÍ A gráðu.

KR með 11 stigum meira en í fyrra

KR-ingar hafa byrjað frábærlega í Pepsi-deild karla og verða með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar í EM-fríinu.

Kristinn Steindórsson: Markheppinn á vinnustaðnum

Blikinn Kristinn Steindórsson er markahæsti leikmaður Pepsi-deildar karla þegar deildin fer í EM-fríið en hann skoraði sitt sjötta mark í sjö umferðum í 1-1 jafntefli á móti Blikum í fyrrakvöld.

Hallbera og Dagný báðar með tvennu í 6-1 sigri Vals á Þór/KA

Íslandsmeistarar Vals voru í miklum ham á móti Þór/KA í lokaleik 4. umferðar Pepsi-deildar kvenna í kvöld en þær unnu leikinn 6-1 og skoruðu tveimur fleiri mörk í kvöld en í fyrstu þremur umferðunum. Með sigrinum komust Valskonur upp fyrir Stjörnuna og í annað sæti deildarinnar en nýliðar ÍBV eru með tveggja stiga forskot á toppnum.

Gummi Ben. kominn með KSÍ-A þjálfaragráðu

Knattspyrnusamband Íslands útskrifaði nýverið 35 þjálfara með A-þjálfararéttindi. Réttindin eru þau hæstu sem veitt eru hérlendis og tekin gild um alla Evrópu.

Stjörnustelpurnar tapa ekki á teppinu - myndir

Kvennalið Stjörnunnar hélt áfram sigurgöngu sinni á gervigrasinu í Garðabæ í gær með því að vinna 2-1 sigur á KR í 4. umferð Pepsi-deild kvenna. Stjarnan komst upp í annað sætið með þessum sigri.

Stjörnustúlkur aftur á sigurbraut - fyrsti sigur Fylkis

Stjarnan komst upp í annað sætið í Pepsi-deild kvenna eftir 2-1 sigur á KR á gervigrasinu í Garðabæ en Stjörnukonur eru búnar að vinna alla þrjá leiki sína á teppinu í sumar. Valur getur náð öðru sætinu á ný með sigri á Þór/KA á morgun.

Greta Mjöll með þrennu í Grindavík

Greta Mjöll Samúelsdóttir fór heldur betur í gang í Grindavík í kvöld þegar Breiðablikskonur unnu sinn fyrsta leik í Pepsi-deild kvenna í sumar. Breiðablik vann 5-1 sigur í Grindavík þar sem Greta Mjöll skoraði þrennu í fyrri hálfleik.

Eyjastúlkur áfram með fullt hús og hreint mark

Nýliðar ÍBV héldu áfram sigurgöngu sinni í Pepsi-deild kvenna með því að vinna 2-0 sigur á hinum nýliðunum í Þrótti. Berglind Björg Þorvalsdóttir skoraði bæði mörkin og hefur því skorað 4 mörk í fyrstu 4 umferðunum á sínu fyrsta tímabili á æskuslóðunum.

KR vann fyrsta heimasigurinn á FH í átta ár - myndir

KR-ingar unnu 2-0 sigur á FH í stórleik gærkvöldsins í Pepsi-deild karla en þetta var í fyrsta sinn síðan sumarið 2003 sem KR-liðið fagnar heimasigri á móti FH. KR er fyrir vikið komið með níu stiga forskot á Hafnfirðinga.

Sjá næstu 50 fréttir