Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Valencia byggir nýjan leikvang Spænska knattspyrnufélagið Valencia hefur nú kynnt formlega áform sín um að reisa nýjan knattspyrnuleikvang í borginni sem ætlað verður að leysa gamla Mestalla leikvanginn af hólmi. 11.11.2006 22:00
Held að United verði við toppinn Mark Hughes sagðist ekki hafa neitt upp á leik sinna manna að klaga eftir 1-0 ósigur gegn fyrrum félögum sínum í Manchester United í dag. Hann segir lið United mjög líklegt til afreka í vetur. 11.11.2006 21:36
Bayern lagði Leverkusen í æsilegum leik Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen voru hætt komnir í viðureign sinni við Leverkusen í úrvalsdeildinni í dag, en eftir að hafa lent undir 2-1 þegar 10 mínútur lifðu leiks, náðu meistararnir að snúa leiknum sér í hag og vinna 3-2 á útivelli. 11.11.2006 21:07
Sjötti sigur Man Utd í röð Manchester United endurheimti þriggja stiga forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í dag með góðum 1-0 útisigri á Blackburn í lokaleik dagsins. Louis Saha skoraði sigurmark United um miðjan síðari hálfleikinn eftir góða sendingu frá Ryan Giggs, en þetta var fyrsti sigur United á Ewood Park í átta ár. 11.11.2006 19:10
Drogba er besti framherji í heimi Jose Mourinho hrósaði framherja sínum Didier Drogba í hástert í dag þegar hann skoraði þrennu og lagði upp eitt mark í 4-0 sigri Chelsea á Watford í ensku úrvalsdeildinni. Mourinho segir engan framherja í heiminum vera að spila betur en Drogba þessa dagana. 11.11.2006 18:43
Drogba með þrennu í sigri Chelsea Englandsmeistarar Chelsea tóku Watford í bakaríið 4-0 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þar sem framherjinn Didier Drogba fór á kostum og skoraði þrennu. 11.11.2006 17:02
Tveir leikir í beinni í kvöld Tveir leikir verða sýndir beint úr spænska boltanum á Sýn í kvöld, en sjónvarpsstöðin er með sannkallaða íþróttaveislu í beinum útsendingum í dag og nótt. Leikur Atletico Madrid og Villarreal verður sýndur klukkan 18:50 og klukkan 20:50 tekur Valencia á móti Atletico Bilbao. 11.11.2006 16:40
Drogba í stuði Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Didier Drogba er búinn að skora bæði mörk Chelsea sem hefur yfir 2-0 gegn Watford á heimavelli. Wigan hefur yfir gegn Charlton 2-0 og Aston Villa er yfir 1-0 á Goodison Park gegn Everton. Markaskorara í dag má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðunni. 11.11.2006 15:52
Liverpool mætir Arsenal Í dag var dregið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins í knattspyrnu. Þar ber hæst að Liverpool fékk heimaleik gegn Arsenal, Newcastle mætir Chelsea, Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton taka á móti Wycombe og þá tekur Tottenham á móti liði Southend í 1. deildinni sem óvænt sló Manchester United úr keppni á dögunum. 11.11.2006 15:08
Jafnt hjá City og Newcastle Manchester City og Newcastle skildu jöfn 0-0 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað, en gestirnir frá Newcastle sýndu ekki lífsmark fyrr en á lokamínutum leiksins, þar sem þeir voru klaufar að tryggja sér ekki sigurinn. 11.11.2006 14:49
Scholes og Ferguson bestir í október Sir Alex Ferguson og Paul Scholes hjá Manchester United voru í dag útnefndir knattspyrnustjóri og leikmaður októbermánaðar í ensku úrvalsdeildinni. United vann alla fjóra leiki sína í mánuðinum og hefur þriggja stiga forskot á Chelsea á toppnum. Þetta er í 18 skipti sem Ferguson fær þessi verðlaun á ferlinum. 10.11.2006 19:10
Gerir tilkall til sætis í byrjunarliði Real David Beckham þótti senda þjálfara sínum Fabio Capello hjá Real Madrid ákveðin skilaboð í gær þegar hann skoraði mark og lék mjög vel í auðveldum sigri Real á Ecija í bikarkeppninni í gær. Beckham hefur ekki náð að vinna sér sæti í byrjunarliðinu það sem af er leiktíðinni. 10.11.2006 17:27
Micah Richards í hópnum Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, hefur valið 28 manna hóp sinn sem mætir Hollendingum í vináttuleik á miðvikudag. Einn nýliði er í hópnum, hinn 18 ára gamli Micah Richards frá Manchester City, en hann hefur aðeins spilað þrjá U-21 árs landsleiki. 10.11.2006 17:00
Gremst að Mourinho skuli fá sérmeðferð Sir Alex Ferguson er afar ósáttur við að Jose Mourinho, stjóra Chelsea, hafi verið veittur fundur með yfirmanni knattspyrnudómara á Englandi í kjölfar þess að stjórinn var ósáttur við dómgæslu Graham Poll í leik gegn Tottenham um síðustu helgi. Ferguson segir þetta algjört bull. 10.11.2006 16:45
Fjölskyldan hefði afneitað mér fyrir leikaraskap Dómarar í ensku knattspyrnunni hafa nú fengið stuðning úr ólíklegri átt, en harðjaxlinn Roy Keane lét hafa eftir sér í dag að þeir svartklæddu væru ekki öfundsverðir af því að dæma leiki nú á dögum vegna bellibragða og leikaraskapar knattspyrnumanna. 10.11.2006 15:14
Laursen verður frá í þrjá mánuði Danski varnarmaðurinn Martin Laursen hjá Aston Villa hefur fengið þær frættir að hann verði frá keppni í að minnsta kosti þrjá mánuði vegna hnémeiðsla. Laursen hefur lítið sem ekkert geta spilað með Villa vegna meiðsla síðan hann kom frá Milan árið 2004. 10.11.2006 15:03
Cardiff og Leeds vilja fá Smith að láni Leeds United hefur nú farið þess á leit að fá fyrrum leikmann sinn Alan Smith að láni frá Manchester United, en fyrr í dag hafði United samþykkt lánstilboð Cardiff í framherjann. 10.11.2006 14:57
Real Madrid búið að kaupa arftaka Roberto Carlos Real Madrid hefur gengið frá kaupum á vinstri bakverðinum Marcelo frá brasilíska liðinu Fluminense, samkvæmt spænskum blöðum. Kaupverðið er talið vera um sex milljónir evra, eða um 522 milljónir íslenskra króna. Sevilla var einnig með augastað á Marcelo en nú virðist Real Madrid hafa haft betur. 10.11.2006 13:45
Eggert var í slagtogi með Cottee en lét hann róa Baráttaun um völdin í West Ham vekur mikla athygli í Bretlandi og fjölmiðlar þar í landi virðast á einu máli um að Eggert Magnússon og félagar leiði kapphlaupið um völdin í félaginu. Breska blaðið The Independent greinir frá því að líklegt sé að Eggert leggi fram formlegt tilboð í næstu viku þegar hans fólk verður búið að skoða bókhald félagsins. 10.11.2006 11:30
Frank Posch yfirgefur Fram Þýski varnarmaðurinn Frank Posch er genginn í raðir Stjörnunnar í Garðabæ. Posch lék með Fram í sumar við góðan orðstír og lék alla leiki liðsins, en Fram vann fyrstu deildina með þónokkrum yfirburðum. 10.11.2006 06:15
Páll undir feldi fram að áramótum Knattspyrnukappinn Páll Einarsson er lagstur undir feld og búinn að breiða vel yfir höfuðið á meðan hann íhugar hvort hann á að halda áfram knattspyrnuiðkun. 10.11.2006 06:00
Nýjar reglur greiða leið ungra þjálfara Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa samþykkt nýja reglugerð sem auðveldar yngri mönnum að taka við stöðu knattspyrnustjóra hjá félögum í deildinni, en reglur þessu tengdar hafa verið mikið í umræðunni vegna stjóra Middlesbrough og Newcastle. 9.11.2006 20:51
Englendingar mæta Spánverjum í febrúar Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Englendingar og Spánverjar muni leika vináttulandsleik í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester þann 7. febrúar á næsta ári. Þetta verður fyrsti leikur þjóðanna á Englandi síðan í febrúar árið 2001 en þar höfðu enskir 3-0 sigur í fyrsta leik Sven-Göran Eriksson sem landsliðsþjálfara. 9.11.2006 18:54
Enskir sektaðir fyrir ólæti í Zagreb Knattspyrnusamband Evrópu hefur sektað knattspyrnusambönd Englands og Króatíu vegna óláta stuðningsmanna landsliðanna fyrir leik þeirra í Zagreb í síðasta mánuði. Króötum var gert að greiða rúm 4000 pund í sekt en Króötum 21000 pund. Yfir 200 stuðningsmenn liðanna voru handteknir í ólátunum. 9.11.2006 18:28
Sissoko verður frá í þrjá mánuði Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur greint frá því að miðjumaðurinn Mohamed Sissoko verði frá keppni í þrjá mánuði eftir að hann fór úr axlarlið í leik gegn Birmingham í gærkvöld. Sissoko fer í aðgerð vegna meiðsla sinna í næstu viku og hefur Rafa Benitez þegar lýst yfir áhyggjum sínum af yfirvofandi fjarveru þessa duglega leikmanns sem spilar flesta leiki með liðinu. 9.11.2006 18:20
Orðinn leiður á ásökunum um leikaraskap Enski landsliðsmaðurinn Andy Johnson hjá Everton segist vera orðinn leiður á því að vera sakaður um leikaraskap í vítateigum andstæðinganna og segist vísvitandi vera búinn að breyta leikstíl sínum til að reyna að afsanna það orðspor sem hann hefur skyndilega fengið á sig í úrvalsdeildinni. 9.11.2006 16:53
Forssell í hnéuppskurð Lið Birmingham í ensku 1. deildinni verður án finnska framherjans Mikael Forssell næstu þrjá mánuðina eða svo eftir að hann fór í aðgerð vegna hnémeiðsla. Þetta er ekki sama hné og hélt honum frá keppni í átta mánuði fyrir tveimur árum, en það er líklega það eina sem forráðamenn Birmingham geta huggað sig við í dag. 9.11.2006 16:47
Benitez vill fara til Ítalíu Breska dagblaðið Sun hefur það eftir umboðsmanni Rafa Benitez, knattspyrnustjóra Liverpool, að Rafa hafi mikinn áhuga á því að þjálfa á Ítalíu því knattspyrnan þar í landi henti hans leikstíl best. 9.11.2006 16:15
Hedman til reynslu hjá Chelsea Englandsmeistarar Chelsea hafa fengið fyrrum landsliðsmarkvörð Svía, Magnus Hedman, til reynslu hjá félaginu í kjölfar meiðsla Petr Cech. Hedman lék áður með skoska liðinu Celtic auk þess sem hann spilaði með Coventy á Englandi. Hann er 33 ára gamall, en hann lagði skóna á hilluna í fyrra. 9.11.2006 15:24
Knattspyrnusambandið rannsakar meint veðmál Enska knattspyrnusambandið ætlar að hefja formlega rannsókn í kjölfar þess að fyrrum starfsmaður hjá veðmangarafyrirtækinu Victor Chandler hélt því fram að fleiri en einn knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni stundaði að veðja á úrslit leikja í deildinni, en slíkt er með öllu óheimilt. 9.11.2006 14:43
McFadden neitar sökum Enski knattspyrnudómarinn Graham Poll var enn og aftur í sviðsljósinu í gær þegar hann vísaði James McFadden hjá Everton af velli eftir aðeins 19 mínútur í bikarleiknum gegn Arsenal í gærkvöld. Poll gaf þá skýringu að McFadden hafi brúkað munn við sig, en leikmaðurinn vísar því alfarið á bug. 9.11.2006 14:33
Enn meiðist Martin Laursen Danski varnarmaðurinn Martin Laursen hjá Aston Villa verður frá keppni í nokkurn tíma eftir að hafa þurft að fara meiddur af velli í leiknum gegn Chelsea í gær. Laursen hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða allar götur síðan hann gekk í raðir enska liðsins árið 2004. Leikmaðurinn sjálfur segir meiðslin ekki alvarleg, en Villa missti Gareth Barry einnig í meiðsli í gær. 9.11.2006 14:28
Freddy Adu verður til reynslu hjá United Manchester United er nú í viðræðum við bandaríska úrvalsdeildarliðið DC United um að fá framherjann efnilega Freddy Adu til reynslu í þessum mánuði. Adu þessi er aðeins 17 ára gamall og talinn mikið efni. Hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea og talið er að félögin muni jafnvel gera kauptilboð í hann í janúar. 9.11.2006 14:23
Sissoko frá í mánuð Miðjumaðurinn Mohamed Sissoko verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð eftir að hann fór úr axlarlið í bikarleiknum gegn Birmingham í gærkvöldi. Sissoko er landsliðsmaður Malí og hefur verið nokkuð óheppinn með meiðsli síðan hann gekk í raðir Liverpool. 9.11.2006 14:16
Bayern tapaði fyrir botnliðinu Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen töpuðu mjög óvænt 1-0 fyrir botnliði Hannover í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það var Szabolcs Huszti sem skoraði mark félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar eftir varnarmistök Bayern, sem er nú sex stigum á eftir toppliði Werder Bremen. Stuttgart er í öðru sætinu eftir 2-0 sigur á Hamburg í gær. 8.11.2006 23:52
Tottenham áfram eftir framlengingu Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham var síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins í kvöld þegar liðið lagði Port Vale 3-1 á heimavelli sínum eftir framlengdan leik. Tom Huddlestone skoraði tvö marka Tottenham og Jermain Defoe eitt. 8.11.2006 23:31
Auðvelt hjá Chelsea Chelsea burstaði Aston Villa 4-0 í enska deildarbikarnum í kvöld og er komið áfram í næstu umferð keppninnar líkt og Liverpool sem vann Birmingham 1-0 og Arsenal sem lagði Everton 1-0. Leikur Tottenham og Port Vale fór í framlengingu þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. 8.11.2006 21:51
Liverpool yfir gegn Birmingham Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Birmingham þegar flautað hefur verið til leikhlés í virðureign liðanna í enska deildarbikarnum. Það var danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger sem skoraði mark Liverpool í uppbótartíma, en Mohamed Sissoko þurfti að fara meiddur af velli eftir 26 mínútur. Leikurinn hefur verið fjörlegur og er í beinni útsendingu á Sýn. 8.11.2006 20:36
Bindur miklar vonir við íslenska knattspyrnumenn Einn litríkasti knattspyrnumarkvörður heims, Bruce Grobbelaar segir að Ísland verði á meðal sterkustu knattspyrnuþjóða innan tíu ára. Grobbelar dúkkaði óvænt upp á knattspyrnumóti í Egilshöll um síðustu helgi. 8.11.2006 20:18
Björgólfur staðfestir samstarf við Eggert Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann staðfestir að hann sé maðurinn sem standi á bak við meirihluta þess fjármagns sem Eggert Magnússon hefur verið að raka saman til að gera kauptilboð í enska knattspyrnufélagið West Ham. 8.11.2006 18:51
Farinn aftur til Tottenham Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson hefur nú snúið aftur til London þar sem hann ætlar sér að halda áfram að vinna sér sæti í liði Totteham. Emil gerði gott mót með Malmö í Svíþjóð sem lánsmaður á síðustu mánuðum, en samkvæmt heimasíðu félagsins hefur hann ákveðið að reyna aftur fyrir sér á Englandi. 8.11.2006 18:30
Malbranque í byrjunarliði Tottenham Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque verður að öllum líkindum í byrjunarliði Tottenham í kvöld þegar liðið mætir Port Vale í enska deildarbikarnum. Malbranque hefur enn ekki spilað leik fyrir Tottenham síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar eftir uppskurð við kviðsliti. 8.11.2006 18:00
Veigar tilnefndur sem besti leikmaðurinn Veigar Páll Gunnarsson hjá norska liðinu Stabæk er einn þriggja leikmanna sem tilnefndir hafa verið sem leikmaður ársins í norsku úrvalsdeildinni. Þeir Robert Koren hjá Lilleström og Steffen Iversen hjá Rosenborg eru einnig tilnefndir sem leikmenn ársins. 8.11.2006 17:24
Birmingham verður í hefndarhug Rafa Benitez reiknar fastlega með því að lið Birmingham verði í miklum hefndarhug í kvöld þegar liðið tekur á móti Liverpool í enska deildarbikarnum, en þessi lið mættust í bikarkeppninni á síðustu leiktíð og þá sigraði Liverpool 7-0. 8.11.2006 16:42
Beckham varð fyrir áfalli Fabio Capello segir að erfiðleikar David Beckham á knattspyrnuvellinum undanfarið stafi af því að hann hafi orðið fyrir sálrænu áfalli við það að segja af sér sem fyrirliði enska landsliðsins og að það hafi fengið á hann að vera ekki valinn í liðið síðan á HM. 8.11.2006 16:30