Fleiri fréttir

Ætlar ekki að hætta eftir tvö ár

Talsmaður enska knattspyrnumannsins David Beckham vísar orðum forseta Real Madrid á bug, en forsetinn sagði í viðtali í dag að Beckham væri búinn að ákveða að leggja skóna á hilluna eftir tvö ár.

Joey Barton sleppur við refsingu

Lögregluyfirvöld í Liverpool hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar í máli Joey Barton hjá Manchester City sem beraði á sér bakhlutann framan við stuðningsmenn Everton eftir leik liðanna í deildinni á dögunum.

Þór/KA heldur stöðu sinni í deildinni

Lið Þórs/KA frá Akureyri heldur stöðu sinni í Landsbankadeild kvenna en ÍR þarf að láta sætta sig við að vera áfram í 1. deildinni þrátt fyrir að hafa unnið sér sæti í efstu deild í umspili á dögunum.

Ætlar ekki að láta nördana skora hjá sér

Varnarmaðurinn sterki Auðunn Helgason hjá Íslandsmeisturum FH á von á því að spila sinn fyrsta leik eftir meiðsli gegn KF Nörd þegar liðin eigast við á Laugardalsvellinum annað kvöld. Auðunn á ekki von á því að fá sæti í byrjunarliðinu en segir ekki koma til greina að láta nördana skora hjá sér meðan hann er innan vallar.

Sutton til Aston Villa

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur náð samningi við framherjann Chris Sutton um að leika með liðinu það sem eftir lifir leiktíðar. Sutton var með lausa samninga eftir að hafa verið hjá Birmingham á síðustu leiktíð, en gengur nú til liðs við fyrrum stjóra sinn Martin O´Neill sem á í vandræðum með að manna framherjastöður sínar vegna meiðsla hjá Villa.

Lofar markaveislu annað kvöld

Logi Ólafsson segist verða milli steins og sleggju þegar hans menn mæta Íslandsmeisturum FH á Laugardalsvelli á morgun í kjölfar yfirlýsinga kollega hans Ólafs Jóhannessonar, þjálfara FH, á blaðamannafundi sem haldinn var í dag.

Watford, 3-3, Fulham

Watford og Fulham gerðu 3-3 jafntefli í ensku deildinni í kvöld. Heiðar Helguson var í byrjunarliði Fulham og var þetta í fyrsta skipti sem hann mætti sínum gömlu félögum í Watford. Watford komst í 2-0, en eftir æsilegar lokamínútur og mark frá Heiðari á 83. mínútu varð niðurstaðan 3-3 jafntefli.

Luke Moore frá út leiktíðina?

Sóknarmaðurinn ungi Luke Moore hjá Aston Villa þarf að öllum líkindum að fara í uppskurð vegna þrálátra meiðsla á öxl og svo gæti farið að hann yrði frá keppni það sem eftir lifir tímabils vegna þessa.

Brann lagði Odd Grenland

Síðasti leikurinn í 22. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í kvöld. Íslendingalið Brann vann þar 1-0 sigur á Odd Grenland og þar spilaði FH-ingurinn Ármann Smári Björnsson sinn fyrsta leik fyrir norska félagið. Hann spilaði allar 90 mínúturnar líkt og Ólafur Örn Bjarnason, en Kristján Sigurðsson var í leikbanni að þessu sinni.

Samdi við Duisburg í Þýskalandi

Landsliðskonan og markamaskínan Margrét Lára Viðarsdóttir skrifaði um helgina undir samning við þýska liðið Duisburg sem gildir til ársins 2008. Margrét Lára fór á kostum með liði Vals í Landsbankadeildinni í sumar og sló meðal annars markametið í deildinni með því að skora 34 mörk.

Frekari meiðsli í herbúðum Tottenham

Frekari skörð voru höggvin í leikmannahóp enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham í gær eftir sigurinn á Portsmouth, en þeir Michael Dawson og Pascal Chimbonda geta ekki æft með liðinu næstu viku vegna meiðsla. Dawson fékk heilahristing eftir samstuð við félaga sinn Tom Huddlestone og þurfti að leggjast inn á sjúkrahús í gærkvöld, en Chimbonda meiddist á kálfa og verður frá í að minnsta kosti viku.

Hefur ekki í huga að taka við West Ham

Brasilíumaðurinn Luiz Felipe Scolari sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann vísar á bug fréttum ensku blaðanna um helgina þar sem fullyrt var að hann væri inni í myndinni sem næsti knattspyrnustjóri West Ham vegna kunningsskapar síns við Kia Joorabchian, en sá er talinn vera að undirbúa yfirtökutilboð í enska félagið.

Rannsókn haldið áfram vegna 39 félagaskipta

Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa nú gefið Lord Stevens og rannsóknarteymi hans tvo mánuði til viðbótar til að rannsaka frekar meint ólöglegt athæfi í ensku knattspyrnunni í kjölfar sjónvarpsþáttarins Panorama sem sýndur var í breska sjónvarpinu á dögunum. Þáttur þessi verður á dagskrá Sýnar klukkan 22 á fimmtudagskvöldið.

Shevchenko er marki frá því að springa út

Jose Mourinho hefur nú enn á ný tekið upp hanskann fyrir 30 milljón punda fjárfestingu Chelsea í sumar, úkraínska framherjann Andriy Shevchenko. Mourinho segir hann vinna vel fyrir liðið og bendir á að það sé aðeins tímaspursmál hvenær hann springi út og fari að skora grimmt.

Dómarinn bað mig afsökunar

Harry Redknapp segir að Chris Foy, dómarinn sem dæmdi leik Tottenham og Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í gær, hafi komið til sín í hálfleik í leiknum í gær og beðið sig afsökunar á því að hafa dæmt vítaspyrnu á lið hans. Sigurmark Tottenham kom úr vítaspyrnu sem aldrei átti að dæma og Redknapp kallar í kjölfarið á að fjórði dómari megi styðjast við myndbandsupptökur til að skera úr um atvik sem þetta.

Aganefndin fær skýrslu lögreglu

Lögregluyfirvöld í Liverpool hafa nú sent enska knattspyrnusambandinu skýrslu vegna uppátækis Joey Barton eftir leik Everton og Manchester City um helgina, þegar Barton sýndi stuðningsmönnum Everton hvað honum fannst um þá þegar hann gekk af leikvelli og beraði á sér afturendann. Barton er talinn eiga yfir höfði sér leikbann fyrir þessa uppákomu, en leikmaðurinn var svo óheppinn að láta sjónvarpsmyndavélar festa bakhliðina á sér á myndband.

Darren Bent í landsliðið í stað Andy Johnson

Framherjinn ungi Darren Bent hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn í stað Andy Johnson hjá Everton, eftir að sá síðarnefndi þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla sem hann varð fyrir á lokamínútum leiksins gegn Manchester City á laugardag.

Ósáttur við niðurröðun landsleikja

Arsene Wenger hefur alltaf ákveðnar skoðanir á því þegar liðsmenn hans yfirgefa herbúðir Arsenal og spila með landsliðum sínum. Wenger segir að landsliðin taki allt of mikinn tíma frá félagsliðunum yfir keppnistímabilið og óttast væntanlega að það komi niður á þeirri góðu siglingu sem er á liði hans um þessar mundir.

Fer fögrum orðum um Heiðar Helguson

Aidy Bootroyd segist ekki sjá eftir því að hafa selt Heiðar Helguson til Fulham á sínum tíma og segir að bæði Heiðar og Watford hafi hagnast á því á sínum tíma. Heiðar og félagar í Fulham sækja gamla liðið hans heim í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld og á Boothroyd von á því að íslenski landsliðsmaðurinn fái góðar móttökur.

Ólafur framlengir við Blika

Knattspyrnudeild Breiðabliks sendi frá sér fréttatilkynningu í kvöld þar sem fram kemur að deildin hafi gert nýjan þriggja ára samning við Ólaf Kristjánsson þjálfara. Ólafur tók við liðinu af Bjarna Jóhannssyni í sumar og stýrði nýliðunum í fimmta sæti í deildinni eftir að það hafði verið í æsilegri fallbaráttu lengst af í sumar.

Sló á létta strengi eftir tapið

Paul Jewell og félagar í Wigan hafa ekki haft heppnina með sér í undanförnum leikjum í ensku úrvalsdeildinni og liðið mátti þola mjög súrt tap gegn Blackburn á útivelli í dag, þrátt fyrir að vera ef til vill betra liðið á löngum stundum í leiknum.

Zokora ætlaði ekki að fiska víti

Martin Jol hefur nú komið leikmanni sínum Didier Zokora til varnar eftir að sá síðarnefndi lét sig detta í vítateig Portsmouth í dag og fiskaði vítaspyrnu sem réði úrslitum í leiknum. Jol segist ekki líða leikaraskap og segir það ekki hafa verið ætlun Zokora að leiða dómarann í gildru.

Rosenborg í efsta sætinu

Rosenborg jók forskot sitt á toppi norsku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið bar sigurorð af Íslendingaliði Lyn 2-1. Stefán Gíslason og Indriði Sigðurðsson voru báðir í byrjunarliði Lyn í dag.

Allt vitlaust eftir leik FCK og Bröndby

FC Kaupmannahöfn komst í dag á toppinn í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 1-0 sigri á grönnum sínum í Bröndby. Hannes Sigurðsson spilaði allan leikinn með Bröndby en til óláta kom milli stuðningsmanna liðanna í kvöld og loga nú slagsmál á fleiri en einum stað í borginni að sögn dönsku lögreglunnar.

Hertha á toppinn

Hertha frá Berlín skellti sér í dag á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þrátt fyrir að liðið sé aðeins búið að vinna tvo af sex fyrstu leikjum sínum á tímabilnu. Eftir fyrstu sex umferðirnar eru nú sex lið efst og jöfn með tíu stig, en markatala Hertha er best eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Stuttgart í dag.

Roma á toppinn

Roma skellti sér á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Empoli 1-0 á heimavelli sínum með marki frá Vincenzo Montella. Meistarar Inter þurftu að láta sér lynda 1-1 jafntefli á útivelli gegn Cagliari og AC Milan tapaði sömuleiðis stigum þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Siena.

Real hékk á jöfnu

Grannarnir í Madrid, Real og Atlético, skildu jafnir 1-1 í viðureign sinni í spænsku deildinni í dag. Mista kom gestunum í Atletico yfir á sjöttu mínútu með glæsilegu marki, en gulldrengurinn Raul jafnaði metin skömmu fyrir leikhlé. Sergio Ramos var svo vikið af leikvelli í síðari hálfleiknum en Atlético náði ekki að nýta sér liðsmuninn og vinna á Bernabeu - en það hefur ekki gerst á öldinni.

Solskjær verður betri með aldrinum

Sir Alex Ferguson var að vonum ánægður með framlag sinna manna eftir 2-0 sigur á Newcastle í dag og þótti sérstök ástæða til að minnast á frammistöðu þeirra Ole Gunnar Solskjær og Cristiano Ronaldo. Hann segir liðið vera aftur að finna taktinn í deildinni.

Æfur út af vítaspyrnudómnum

Harry Redknapp var mjög ósáttur við vítaspyrnudóminn sem réði úrslitum í viðureign Tottenham og Portsmouth í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag og kallar á reglubreytingar þar sem fjórða dómara leiksins verði gert kleift að koma í veg fyrir atvik sem þetta með því að styðjast við myndbandsupptökur.

Óverðskuldaður sigur Tottenham

Tottenham vann í dag langþráðan sigur í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið lagði Portsmouth 2-1 á heimavelli sínum White Hart Lane. Danny Murphy kom heimamönnum yfir eftir aðeins 39 sekúndna leik og Jermaine Defoe kom liðinu í 2-0 með marki úr vítaspyrnu sem heimamenn fengu á mjög vafasaman hátt. Kanu minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiksins, en Portsmouth þurfti að sætta sig við tap þrátt fyrir að vera betra liðið í leiknum.

Markheppni Solskjær tryggði United sigur

Manchester United vann auðveldan 2-0 sigur á slöku liði Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær sem skoraði bæði mörk heimamanna, en þau voru dæmigerð fyrir þennan ótrúlega markheppna framherja. United átti auk þess fjögur stangarskot í leiknum, en liðið missti Gabriel Heinze meiddan af velli í dag.

Góður sigur hjá Reading

Nýliðar Reading unnu enn einn sigurinn í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið skellti lánlausu liði West Ham á útivelli 1-0. Það var Seol Ki-Hyeon sem skoraði sigurmarkið strax eftir tvær mínútur og þó Alan Pardew hefði tjaldað öllu til að reyna að jafna leikinn, þurftu hans menn að sætta sig við enn eitt tapið og nú er stóllinn farinn að hitna verulega undir Pardew á Upton Park.

Solskjær í byrjunarliði United

Leikur Manchester United og Newcastle á Old Trafford er nú hafinn. Alex Ferguson gerir tvær breytingar á liði sínu frá því í síðasta leik, en þeir Darren Fletcher og Ole Gunnar Solskær koma inn í byrjunarliðið í stað John O´Shea og Louis Saha. Þá gerir Newcastle einnig breytingar og þar er Obafemi Martins á bekknum og Shola Ameobi leikur einn í framlínunni. Þá er leikur Blackburn og Wigan einnig hafinn og þar hefur Emile Heskey komið Wigan yfir með marki á 2. mínútu.

Atletico - Real Madrid í beinni á Sýn Extra klukkan 16

Sýn Extra verður með beina útsendingu frá leik grannliðanna Atletico Madrid og Real Madrid í spænska boltanum klukkan 16 í dag en leikurinn verður svo sýndur á Sýn klukkan 18:50 um leið og leik Fram og Gummersbach lýkur. Þá er rétt að minna á NFL leikinn sem verður í beinni á Sýn klukkan 20:50 en þar eigast við Cincinnati Bengals og New England Patriots.

Ívar í byrjunarliði Reading

Landsliðsmiðvörðurinn Ívar Ingimarsson er að venju í byrjunarliði nýliða Reading í ensku úrvalsdeildinni, en liðið sækir nú West Ham heim í fyrsta leik dagsins af fjórum. Leikurinn hófst klukkan 13 og komust gestirnir raunar yfir strax eftir 2 mínútur með marki Seol Ki-Hyeon.

Vonlítið hjá Norrköping

Garðar Gunnlaugsson, Stefán Þórðarson og félagar í Norrköping töpuðu í gær þýðingarmiklum leik í sænsku 1. deildinni. Liðið á í mikilli keppni við Örebro um þriðja sætið í deildinni sem veitir umspilsrétt um úrvalsdeildarsæti og mættust liðin á heimavelli Norrköping.

Sjá næstu 50 fréttir