Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reading áformar að stækka heimavöllinn Forráðamenn Reading segja áform uppi um að stækka Madejski leikvanginn, heimavöll félagsins, um allt að 10.000 sæti. Völlurinn tekur sem stendur aðeins um 24.000 manns í sæti, en vonast er til að stuðningsmönnum úrvalsdeildarliðsins fjölgi í kjölfar góðs gengis liðsins á síðustu misserum. 21.9.2006 15:01
Sjónvarpsþátturinn var farsi Harry Redknapp segir að sjónvarpsþátturinn Panorama sem sýndur var í breska sjónvarpinu á dögunum hafi verið farsi frá upphafi til enda og segir ásakanir á hendur sér í þættinum algjöra vitleysu. Redknapp var sakaður um að hafa rætt ólöglega við leikmanninn Andy Todd á sínum tíma. 21.9.2006 14:49
Samningur Ásgeirs ekki framlengdur Knattspyrnudeild Fram hefur tilkynnt að samningur Ásgeirs Elíassonar þjálfara verði ekki framlengdur og þykir þetta gefa þeim orðrómi byr undir báða vængi að félagið sé í viðræðum við Ólaf Þórðarson, fyrrum þjálfara ÍA. Fram vann sigur í 1. deildinni í sumar og vann sér sæti í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð. 21.9.2006 14:16
Tekur fulla ábyrgð á tapinu Gareth Southgate segir að skrifa megi tapið fyrir fyrrum lærisveinum Guðjóns Þórðarsonar í Notts County alfarið á sig, en Southgate stillti upp mikið breyttu liði á heimavelli gegn 3. deildarliðinu og uppskar 1-0 tap. 21.9.2006 13:59
Óttast ekki pressuna Stuart Pearce segist ekki óttast þá síauknu pressu sem á honum er eftir að Manchester City tapaði enn eina ferðina í gær og nú fyrir Chesterfield í enska deildarbikarnum. Þetta var þriðja tap City og 13 ósigur liðsins í síðustu 16 leikjum í það heila. 21.9.2006 13:50
Mjög sáttur þrátt fyrir að vera á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen segist fullkomlega sáttur við lífið hjá nýja liðinu sínu Barcelona þó hann hafi þurft að verma varamannabekkinn hjá liðinu fyrstu vikurnar, líkt og hann gerði hjá Chelsea. Hann segir að leikstíll þeirra Frank Rijkaard og Jose Mourinho sé hreint ekki svo ólíkur. 20.9.2006 22:45
Léttir fyrir Liverpool Liverpool vann í kvöld afar mikilvægan 2-0 sigur á Newcastle í eina leiknum sem fram fór í ensku úrvalsdeildinni, en leikið var á Anfield. Hollenski framherjinn Dirk Kuyt opnaði markareikning sinn fyrir félagið með marki í fyrri hálfleik og Spánverjinn Xabi Alonso skoraði ótrúlegt mark frá eigin vallarhelmingi í þeim síðari og tryggði Liverpool þrjú dýrmæt stig eftir að liðið hafði tapað tveimur deildarleikjum í röð. 20.9.2006 20:58
Þrjú úrvalsdeildarlið úr leik Enski deildarbikarinn stóð svo sannarlega undir nafni í kvöld, því þrjú úrvalsdeildarlið féllu úr keppni gegn minni spámönnum í leikjunum fimm sem voru á dagskrá. Aston Villa hélt þó uppi merkjum liða í efstu deild með góðum 2-1 útisigri á Scunthorpe í leik sem sýndur var beint á Sýn. Juan Pablo Angel skoraði bæði mörk Villa í leiknum. 20.9.2006 20:47
Heiðar minnkar muninn fyrir Fulham Lið Fulham hefur komið einbeittara til leiks í síðari hálfleiknum gegn Wycombe á heimavelli sínum því Heiðar Helguson er búinn að minnka muninn í 2-1 með góðum skalla strax á 47. mínútu leiksins. 20.9.2006 19:57
Aston Villa yfir gegn Scunthorpe Fimm leikir eru á dagskrá kvöldsins í enska deildarbikarnum og annað kvöldið í röð eru litlu liðin að stríða úrvalsdeildarliðunum. Aston Villa er ekki eitt þeirra, en liðið hefur 1-0 forystu gegn Scunthorpe í leik sem sýndur er beint á Sýn. 20.9.2006 19:42
Orðlaus yfir smekklausum stuðningsmönnum West Ham Glenn Roader, stjóri Newcastle og fyrrum stjóri West Ham, segist hafa trúað sínum eigin eyrum þegar hann mætti á Upton Park með nýja liðið sitt á dögunum, en þá sungu stuðningsmenn niðrandi texta um lífshættuleg veikindi sem hann átti við að stríða þegar hann stýrði West Ham á sínum tíma. 20.9.2006 19:11
Kevin Bond ætlar í mál við BBC Kevin Bond, þjálfari hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Newcastle, ætlar að höfða skaðabótamál á hendur breska sjónvarpinu eftir að honum þótti hann borinn þungum og röngum sökum í þættinum Panorama sem sýndur var í breska sjónvarpinu í gærkvöld og er að gera allt vitlaust í knattspyrnuheiminum á Englandi. 20.9.2006 17:45
Boa Morte verður frá í sex vikur Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Fulham hafa nú staðfest að portúgalski landsliðsmaðurinn Luis Boa Morte verði frá keppni í sex vikur eins og óttast var í upphafi eftir að hann lenti í samstuði við harðjaxlinn og samherja sinn Heiðar Helguson í leik gegn Tottenham um síðustu viku. 20.9.2006 17:30
Aðgangur að öllum mörkum í farsímanum Og Vodafone hefur nú aukið þjónustu sína við knattspyrnuáhugamenn til muna en nú geta farsímanotendur séð öll mörkin úr meistaradeildinni og ensku úrvalsdeildinni í gegn um netið í farsímum sínum. 20.9.2006 16:58
Scunthorpe - Aston Villa í beinni Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá viðureign Scunthorpe og Aston Villa í enska deildarbikarnum í kvöld. Útsending hefst klukkan 18:30, en fimm leikir eru á dagskrá í keppninni í kvöld. Líklegt þykir að tékkneski framherjinn Milan Baros spili sinn fyrsta leik á tímabilinu með Aston Villa í kvöld, en þeir fá eflaust harða mótspyrnu frá liði Scunthorpe sem er um miðja næst efstu deild á Englandi. 20.9.2006 16:45
Blackwell rekinn frá Leeds 1. deildarfélagið Leeds United rak í dag knattspyrnustjórann Kevin Blackwell úr starfi, en hann tók við liðinu vorið 2004. Mikil pressa hafði verið á stjóranum að undanförnu, en eftir að Leeds missti naumlega af sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð er það nú við botninn í deildinni og það er óásættanlegt. Fyrrum landsliðsmaðurinn Gylfi Einarsson leikur með Leeds. 20.9.2006 16:30
Hættur viðræðum við Þrótt Ólafur Þórðarson, fyrrum þjálfari Skagamanna, staðfesti í samtali við NFS í dag að hann væri hættur viðræðum við knattspyrnudeild Þróttar og gaf þá skýringu að félagið hefði ekki verið tilbúið að veita nauðsynlegan tíma til að vinna úr sínum málum áður en hann gæfi svör um framhaldið. NFS hefur heimildir fyrir því að Ólafur hafi verið í viðræðum við Fram, en Ólafur segist vera í viðræðum við tvö félög og neitar að nokkuð upp um hver þau eru. 20.9.2006 15:41
Tapar Liverpool þriðja leiknum í röð? Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en þá tekur Liverpool á móti Newcastle á Anfield. Liverpool hefur tapað tveimur leikjum í röð í deildinni, en talið er líklegt að Rafa Benitez tefli fram sama byrjunarliði í kvöld og í síðasta leik og yrði það þá í fyrsta sinn í 92 leiki sem það gerðist. 20.9.2006 14:45
Stóri-Sam neitar ásökunum Sam Allardyce hefur staðfastlega neitað öllum ásökunum sem hann var borinn í sjónvarpsþættinum Panorama í breska sjónvarpinu í gær, en þar kom fram að hann hefði tekið við mútugreiðslum frá tveimur umboðsmönnum í leikmannakaupum. "Ég vísa öllum ásökunum sem fram komu í þættinum á bug og málið er nú í höndum lögmanna minna," sagði Allardyce í dag, en neitar annars að tjá sig um málið. 20.9.2006 14:23
Skuldir Arsenal jukust um 100 rúmar milljónir punda Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, tilkynnti í dag að skuldir félagsins hefðu aukist úr 153 milljónum punda í 262 milljónir. Þessi gríðarlega aukning er fyrst og fremst komin til vegna flutnings liðsins á nýja heimavöllinn, Emirates Stadium, en innkoma hjá félaginu var að öðru leiti nokkuð jákvæð enda náði liðið langt í meistaradeild Evrópu. 20.9.2006 14:15
Úrvalsdeildarliðin sluppu með skrekkinn Úrvalsdeildarliðin Watford og Reading sluppu með skrekkinn í kvöld þegar þau lögðu lægra skrifaða andstæðinga sína í enska deildarbikarnum eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni. Brynjar Björn Gunnarsson spilaði 120 mínútur fyrir Reading þegar liðið vann Darlington í vítakeppni. 19.9.2006 21:51
Sam Allardyce sakaður um spillingu Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton og einn þeirra sem hvað líklegastir þóttu til að taka við stöðu landsliðsþjálfara Englendinga í sumar, var þungamiðjan í þætti breska sjónvarpsins Panorama, sem sýndur var þar í landi í kvöld, þar sem umfjöllunarefnið var meint spilling í knattspyrnuheiminum á Englandi. 19.9.2006 21:15
Everton marði Peterborough Everton vann í kvöld nauman sigur á þriðjudeildarliði Peterborough í annari umferð enska deildarbikarsins. Það var varamaðurinn Tim Cahill sem tryggði úrvalsdeildarliðinu sigur með marki á 87. mínútu. Úrvalsdeildarliðin sem voru í eldlínunni í kvöld lentu fleiri í vandræðum. 19.9.2006 20:57
Curbishley hefur ekki áhuga á WBA Alan Curbishley, fyrrum knattspyrnustjóri Charlton, hefur staðfest við breska sjónvarpið að hann hafi ekki í huga að taka við stjórn 1. deildarliði West Brom, en hann hafði verið nefndur til sögunnar sem arftaki Bryan Robson sem sagði af sér í gær. Curbishley vill taka við liði í ensku úrvalsdeildinni og er strax farið að kitla að komast aftur í slaginn eftir að hafa látið af störfum hjá Charlton í vor. 19.9.2006 20:15
Óvæntir hlutir að gerast Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í enska deildarbikarnum. Everton hefur yfir 1-0 gegn Peterborough í sjónvarpsleiknum á Sýn með marki frá James Beatty, en á öðrum vígstöðvum eru að eiga sér stað nokkuð óvæntir hlutir eins og svo oft í þessari skemmtilegu keppni. 19.9.2006 19:43
Langt í land í máli ÍR og KA/Þórs Skrifstofa KSÍ hefur viðurkennt að hafa gert mistök með því að veita markverði kvennaliðs ÍR keppnisleyfi fyrir úrslitaleikina gegn Þór-KA um laust sæti í Landsbankadeild kvenna, því markvörðurinn var þar með að spila með sínu þriðja liði í sumar sem er bannað. Þetta kom fram í íþróttafréttum NFS í kvöld. 19.9.2006 19:15
Kveikir í mér að sjá konuna í búningnum Enska knattspyrnugoðið David Beckham viðurkenndi í viðtali við útvarpsmanninn og félaga sinn Chris Moyles að það kveikti í sér þegar konan hans gengi um í búningum af sér. Hann segir konu sína Victoriu gjarnan ganga um í keppnistreyjum sínum í húsi þeirra hjóna og viðurkennir að stundum fái hann morgunmat í rúmið frá konunni í treyju hans einni fata. 19.9.2006 17:45
Þrír Blikar í banni í lokaumferðinni Þrír leikmanna Breiðabliks munu taka út leikbann í lokaumferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu um helgina samkvæmt úrskurði aganefndar KSÍ. Þetta eru þeir Nenad Zivanovic, Guðmann Þórisson og Olgeir Sigurgeirsson, en þeir fá allir eins leiks bann eftir að hafa krækt í 6 gul spjöld í deildinni. 19.9.2006 17:03
Shevchenko hefur engar afsakanir Jose Mourinho segir að stjörnuframherjinn Andriy Shevchenko hafi engar afsakanir fyrir því að skora ekki mörk í ensku úrvalsdeildinni, því Chelsea sé að spila nákvæmlega sama leikkerfi og Shevchenko hafi spilað allan sinn feril hjá AC Milan. 19.9.2006 16:39
Peterborough - Everton í beinni í kvöld Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Peterborough og Everton sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. Peterborough leikur í þriðju deildinni á Englandi og er þar um miðja deild, svo ljóst er að erfitt verkefni bíður liðsins í kvöld gegn einu heitasta liðinu í ensku úrvalsdeildinni. 19.9.2006 15:12
Meiðsli hjá Manchester City Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City hefur tilkynnt að markvörðurinn Andreas Isaksson og varnarmaðurinn Hatem Trabelsi verði frá keppni næsta mánuðinn vegna meiðsla og eykur það enn á ófarir liðsins í upphafi leiktíðar, en City er í sautjánda sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig að loknum fimm leikjum. 19.9.2006 14:22
Óttaðist að verða seldur frá United Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United greinir frá því í óútkominni bók sinni að hann hafi óttast mjög að verða seldur frá félaginu í kjölfar þess að myndir náðust af honum og Peter Kenyon, yfirmanni knattspyrnumála hjá Chelsea, á veitingahúsi í fyrra. Ferdinand segist aldrei hafa séð Alex Ferguson jafn reiðan og í kjölfarið. 19.9.2006 13:27
Vill komast aftur í ensku úrvalsdeildina Framherjinn Stan Collymore hefur hvergi nærri gefið upp alla von með að snúa aftur til keppni í ensku úrvalsdeildinni, þó hann hafi ekki spilað alvöru leik í mörg ár og sé orðinn 35 ára gamall. Collymore hefur getið sér gott orð sem leikari á síðustu misserum og fór síðast á kostum í stórmyndinni Basic Instinct 2 við hlið kynbombunnar Sharon Stone. 19.9.2006 13:05
Þáttur um spillingu í knattspyrnunni á BBC í kvöld Nú ríkir nokkur titringur á Englandi vegna sjónvarpsþáttarins Panorama sem sýndur verður á BBC sjónvarpsstöðinni í kvöld, en þar verður til rannsóknar meint spilling umboðsmanna og knattspyrnustjóra í landinu. Sagt er að nokkur úrvalsdeildarfélög muni jafnvel fá á baukinn í þættinum, en frekari frétta af málinu er að vænta í kvöld. 19.9.2006 12:48
Lehmann til rannsóknar hjá lögreglu Jens Lehmann, markvörður Arsenal, er nú til rannsóknar hjá lögreglu í Manchester eftir að henni bárust athugasemdir um að markvörðurinn hefði sparkað vatnsbrúsa í átt að stuðningsmönnum United í stúkunni á leik liðanna á sunnudag. 19.9.2006 12:30
Lerner tekinn við stjórnarformennsku hjá Aston Villa Ameríski auðkýfingurinn Randy Lerner hefur nú tekið formlega við stjórnarformennsku hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, eftir að Doug Ellis steig af stóli í morgun. Ellis hefur verið í stjórn Villa síðan 1968 og hefur verið gerður að heiðursforseta, en nú tekur Lerner við stjórnartaumunum. Lerner er hársbreidd frá því að eignast 90% hlut í félaginu. 19.9.2006 12:15
Mínus tvö stig í síðustu fimm leikjum Eftir afar gott gengi í fyrri hluta móts í sænsku úrvalsdeildinni hefur Stokkhólmsliðið Hammarby ekki náð sér á strik á undanförnum vikum. Auk þess sem leikur liðsins gegn Djurgården var blásinn af í síðasta mánuði vegna óláta áhorfenda hefur liðið nú ekki unnið síðustu fimm leiki í röð og tapað fjórum þeirra. Hammarby var lengi vel í efsta sæti deildarinnar framan af sumri en er nú fallið í sjötta sæti. Til að bæta gráu á svart voru þrjú stig dregin af liðinu vegna fyrrnefndra óláta. 19.9.2006 00:01
Verð ef til vill í Færeyjum næsta sumar Landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir heldur áfram að gera það gott í sænsku úrvalsdeildinni þar sem hún leikur með Malmö. Um helgina skoraði hún bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli gegn Linköping á útivelli. Hún er markahæst í deildinni ásamt öðrum leikmanni og hefur skorað 17 mörk. 19.9.2006 00:01
McClaren vill fá Scholes aftur í landsliðið Terry Venables, aðstoðarþjálfari enska landsliðsins, segir að Steve McClaren landsliðsþjálfari hafi sett sig í samband við Paul Scholes hjá Manchester United með það fyrir augum að fá hann til að taka landsliðsskóna fram að nýju í kjölfar þess að Owen Hargreaves fótbrotnaði um helgina. 18.9.2006 21:30
Vonast enn eftir landsliðssæti Varnarmaðurinn Sol Campbell hjá enska úrvalsdeildarliðinu Portsmouth segist enn ekki hafa gefið upp alla von með að spila fleiri leiki fyrir hönd enska landsliðsins, en þessi 32 ára gamli fyrrum fastamaður í liðinu hefur byrjað leiktíðina afar vel með Portsmouth. 18.9.2006 19:30
Stefnan sett á 100.000 áhorfendur Knattspyrnusamband Íslands greinir frá því á vef sínum í dag að ekki sé ólíklegt að aðsóknarmetið í efstu deild karla í knattspyrnu verði slegið um næstu helgi þegar lokaumferð Landsbankadeildarinnar fer fram. Stefnan er sett á að fá 100 þúsund manns á völlinn í fyrsta sinn. 18.9.2006 18:15
Peterborough - Everton í beinni annað kvöld Sýn verður með beinar útsendingar frá leikjum í enska deildarbikarnum annað kvöld og á miðvikudagskvöldið, en þá fer fram fjöldi leikja í keppninni. Annað kvöld verður viðureign Peterborough og Everton í beinni útsendingu og hefst útsending klukkan 18:35 og á sama tíma á miðvikudagskvöldið verður leikur Scunthorpe í beinni á sama tíma. 18.9.2006 17:46
Einn besti dagur í lífi mínu Jose Antonio Reyes, leikmaður Real Madrid á Spáni, skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í gærkvöld þegar það lagði Real Sociedad 2-0 á heimavelli sínum. Reyes var að spila sinn fyrsta heimaleik fyrir félagið og sagðist ekki hafa geta beðið um betri byrjun. 18.9.2006 17:30
Útilokar að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni David Beckham segir ekki koma til greina fyrir sig að spila aftur í ensku úrvalsdeildinni af þeirri einföldu ástæðu að hann geti ekki hugsað sér að spila gegn Manchester United. "Ég er stuðningsmaður Manchester United og elska félagið, svo ég gæti aldrei farið í búning annars liðs og spilað á móti þeim," sagði fyrrum landsliðsfyrirliðinn sem vonast enn til að vinna titil með spænska liðinu Real Madrid áður en hann leggur skóna á hilluna. 18.9.2006 16:15
Leroy Lita sleppur Framherjinn Leroy Lita hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Reading, verður ekki sóttur til saka fyrir að skalla mann á næturklúbbi á dögunum eftir að lögreglan í Bristol ákvað að hætta við að höfða mál gegn honum í ljósi þess að maðurinn sem kærði hann dró vitnisburð sinn til baka. 18.9.2006 15:36