Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Real Madrid lagði Sociedad Real Madrid lagði Real Sociedad 2-0 á heimavelli sínum í lokaleik kvöldsins í spænska boltanum. Jose Antonio Reyes skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real og kom liðinu yfir þegar langt var liðið á síðari hálfleik, en það var svo varamaðurinn David Beckham sem gerði út um leikinn með marki á lokamínútunni. Ekki er hægt að segja að hafi verið glæsibragur á leik Real, en Fabio Capello þjálfari er enn að slípa það saman eftir miklar breytingar í sumar. 17.9.2006 21:30
Biðst afsökunar á rauða spjaldinu Þýski miðjumaðurinn Michael Ballack fór illa að ráði sínu í dag þegar hann fékk beint rautt spjald fyrir að trampa á fætinum á Mohamed Sissoko hjá Liverpool. Ballack hefur nú beðist afsökunar á athæfi sínu og segir að um óviljaverk hafi verið að ræða. 17.9.2006 20:45
Eiður fiskaði vítaspyrnu Barcelona var ekki í teljandi vandræðum með að leggja lið Racing Santander í spænska boltanum í dag og hafði 3-0 sigur á útivelli. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta stundarfjórðunginn í leiknum og náði að setja mark sitt á leikinn með því að fiska vítaspyrnu, en úr henni skoraði Ronaldinho örugglega. Ludovic Giuly og Samuel Eto´o voru einnig á skotskónum í liði meistaranna. 17.9.2006 20:13
Íslendingarnir á skotskónum Nokkrir leikir fóru fram í norska boltanum í dag og þar komu Íslendingar nokkuð við sögu. Eskfirðingurinn Stefán Gíslason skoraði mark Lyn þegar liðið gerði jafntefli við Odd Grenland og þá skoraði Birkir Bjarnason sitt fyrsta mark fyrir Viking frá Stavangri þegar liðið lagði Stabæk 3-1. Veigar Páll Gunnarsson var ekki í liði Stabæk þar sem hann tók út leikbann. Ólafur Örn Bjarnason skoraði eitt marka Brann sem burstaði Sandefjörd 5-3. Önnur úrslit má sjá á Boltavaktinni hér á síðunni. 17.9.2006 19:53
Fyrirliðinn úr leik eftir samstuð við Heiðar Portúgalinn Luis Boa Morte, fyrirliði Fulham í ensku úrvalsdeildinni, verður líklega frá keppni í sex vikur eftir að hafa lent í samstuð við félaga sinn Heiðar Helguson í leiknum gegn Tottenham í dag, en fyrirliðinn er sagður með brákað kinnbein. Þetta er mikið áfall fyrir Fulham, enda er Boa Morte einn besti leikmaður liðsins. 17.9.2006 19:43
Gríðarlega mikilvægur sigur Arsene Wenger sagði að þó hans menn í Arsenal hefðu vissulega ekki verið úr leik í baráttunni um meistaratitilinn þó þeir hefðu tapað fyrir Manchester United á Old Trafford í dag, hefði það verið leikmönnum sínum áfall sem erfitt hefði verið að komast yfir. 17.9.2006 19:21
Sáttur við rauða spjaldið Jose Mourinho segist ekki mótmæla rauða spjaldinu sem Michael Ballack fékk að líta í leiknum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag, en gat þó ekki stillt sig um að senda dómara leiksins smá pillu á blaðamannafundi eftir leikinn. 17.9.2006 19:04
Fluttur á sjúkrahús eftir samstuð Írski markvörðurinn Shay Given hjá Newcastle hefur verið fluttur á sjúkrahús í Lundúnum eftir að hafa lent í samstuði við Marlon Harewood, sóknarmann West Ham í leik liðanna í dag. Given verður á sjúkrahúsi í nótt og fór því ekki norður til Newcastle til með félögum sínum eftir leikinn. Given kenndi sér meins í maganum og því var ákveðið að flytja hann á sjúkrahús. 17.9.2006 18:58
Racing - Barcelona í beinni Leikur Racing Santander og Barcelona er nú að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Það er hinn óviðjafnanlegi Guðjón Guðmundsson sem lýsir leiknum og vonandi fá áhorfendur tækifæri til að sjá landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen spreyta sig hjá Katalóníuliðinu, en hann er á varamannabekknum í dag. Síðar í kvöld er svo leikur Real Madrid og Real Sociedad sýndur beint á Sýn. 17.9.2006 17:53
Arsenal stal sigrinum á Old Trafford Arsenal krækti í sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Manchester United 1-0 á Old Trafford með marki frá Emmanuel Adebayor þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Þetta var fyrsti sigur Arsenal á Old Trafford síðan árið 2002, en Arsenal misnotaði einnig vítaspyrnu þegar Gilberto lét verja frá sér í upphafi leiksins. 17.9.2006 17:08
Newcastle skellti West Ham Leikjunum þremur sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Newcastle vann góðan 2-0 útisigur á West Ham í Lundúnum, Blackburn skellti Manchester City 4-2 á Ewood Park og Tottenham og Fulham gerðu markalaust jafntefli á White Hart Lane. 17.9.2006 16:02
Jafnt í hálfleik á Old Trafford Staðan í leik Manchester United og Arsenal er jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign erkifjendanna á Old Trafford. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í leiknum, en besta færi leiksins átti Arsenal. Tomasz Kuszczak markvörður United fékk dæmda á sig mjög vafasama vítaspyrnu eftir aðeins tíu mínútna leik, en Kuszczak gerði sér lítið fyrir og varði vítið frá Gilberto. 17.9.2006 15:52
Mikið fjör á Ewood Park Nú er kominn hálfleikur í þremur leikjum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni, en öll fjögur mörkin sem litið hafa dagsins ljós komu á Ewood Park, þar sem staðan í leik Blackburn og Manchester City er 2-2. Markalaust er hjá Tottenham og Fulham á White Hart Lane, eins og hjá West Ham og Newcastle á Upton Park. 17.9.2006 14:58
Kuszczak stendur í marki United Nú styttist í leik Manchester United og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni, en þessi stórleikur hefst klukkan 15. Byrjunarliðin eru klár og ljóst er að Tomasz Kuszczak stendur í marki Manchester United í stað Edwin van der Sar, sem er veikur. Thierry Henry er ekki í liði Arsenal vegna meiðsla. 17.9.2006 14:50
Glæsimark Drogba tryggði Chelsea sigur Chelsea lagði Liverpool 1-0 í fyrri stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Didier Drogba sem skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks með glæsilegu skoti, en Michael Ballack var vikið af leikvelli í upphafi þess síðari fyrir glórulaust brot. Liverpool sótti nokkuð í sig veðrið í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta sér liðsmuninn og hefur því enn ekki lagt Chelsea í deildinni undir stjórn Rafa Benitez. 17.9.2006 14:17
Ungu leikmennirnir verða að leggja harðar að sér Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, segir að ungu mennirnir í liðinu verði að leggja harðar að sér og geti ekki búist við því að hann sjálfur dragi vagninn. 17.9.2006 13:53
Verður frá í minnst sex vikur Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves verður frá keppni í lágmark sex vikur efir að staðfest er að hann braut bein í fæti sínum í leik gegn Bielefeld í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Þetta þýðir að hann mun missa ef leikjum Englendinga í undankeppni EM í næsta mánuði. 17.9.2006 13:40
Vill frekar halda áfram en vera heima hjá konunni Sir Alex Ferguson segir í samtali við News of the World um helgina að hann ætli sér að halda áfram að stýra Manchester United í að minnsta kosti tvö ár í viðbót, því ef hann hætti störfum - bíði hans ekkert annað en að hanga heima með konu sinni. 17.9.2006 13:30
Chelsea yfir gegn Liverpool Englandsmeistarar Chelsea hafa yfir 1-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í fyrri stórleik dagsins, en leikið er á Stamford Bridge í Lundúnum. Það var Fílstrendingurinn Didier Drogba sem skoraði mark Chelsea á 42. mínútu með frábæru einstaklingsframtaki, en hann fékk háa sendingu inn á teiginn með bakið í markið, sneri af sér varnarmann og skaut viðstöðulausu vinstrifótarskoti framhjá markverðinum. 17.9.2006 13:15
Breiðablik mætir Arsenal Kvennalið Breiðabliks tryggði sér í dag sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða þegar liðið lagði Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi 1-0 í lokaleik sínum í 16-liða úrslitunum í Finnlandi. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Blika skömmu fyrir leikslok og fær Kópavogsliðið nú það erfiða verkefni að mæta Englandsmeisturum Arsenal í 8-liða úrslitunum. 17.9.2006 13:10
Meiddur í nára og lék ekki Landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék ekki með liði sínu Hannover í þýsku úrvalsdeildinni vegna meiðsla. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Hannover tognaði Gunnar Heiðar lítillega á æfingu fyrir helgi og gat ekki leikið með af þeim sökum. 17.9.2006 00:01
Deportivo lagði Villarreal Einn leikur fór fram í spænska boltanum í kvöld. Deportivo La Corunia bar sigurorð af Villarreal 2-0 á heimavelli sínum, þar sem Juan Capdevila skoraði bæði mörk Deportivo. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. 16.9.2006 21:50
Deportivo yfir í hálfleik Nú stendur yfir leikur Deportivo la Corunia og Villarreal í spænsku deildinni og hefur Deportivo 1-0 yfir þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Þorsteinn Gunnarsson lýsir leiknum beint á Sýn, en það var Capdevila sem skoraði mark Deportivo í fyrri hálfleik. 16.9.2006 20:54
Hargreaves líklega fótbrotinn Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen þurfti að fara meiddur af velli eftir 25 mínútna leik í tapinu gegn Bielefeld í dag og nú eftir nánari skoðun er óttast að hann sé fótbrotinn. Hargreaves var mikið orðaður við lið Manchester United í sumar, en forráðamenn Bayern harðneituðu að selja hann. Hargreaves spilaði á miðjunni hjá Bayern ásamt Mark Van Bommel. 16.9.2006 17:42
Óvænt úrslit í dag Nokkuð var um óvænt úrslit í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en sex leikir voru á dagskrá. Meistarar Bayern Munchen fengu 2-1 skell fyrir Bielefeld á útivelli og Werder Bremen tapaði 3-2 á heimavelli fyrir Stuttgart. Úrslit dagsins og markaskorara má sjá á Boltavaktinni hérna neðar á síðunni. 16.9.2006 15:43
Loksins sigur hjá Hannover Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover vann í gærkvöld sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði granna sína í Wolfsburg 2-1 á útivelli. Hannover skaust upp af fallsvæðinu með sigrinum, en Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom ekki við sögu hjá Hannover í leiknum. 16.9.2006 15:32
Juventus heldur mér nauðugum Franski framherjinn David Trezeguet heldur því fram við fjölmiðla í heimalandi sínu að forráðamenn Juventus haldi honum nauðugum hjá félaginu eftir að það féll í B-deildina á Ítaliu í kjölfar þátttöku þess í knattspyrnuskandalnum fræga. 15.9.2006 18:00
Tapið var mér að kenna Danski landsliðsmaðurinn Thomas Gravesen hefur viðurkennt að eiga stóran þátt í tapi Glasgow Celtic gegn Manchester United í meistaradeildinni í gær, en segja má að tvö marka United á Old Trafford hafi komið í kjölfar lélegra sendinga frá Gravesen. 14.9.2006 13:35
Torres hjá Atletico til 2009 Fernando Torres, leikmaður Atletico Madrid, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2009. Torres hefur verið orðaður við nokkur lið undanfarin tvö ár en hefur nú slegið á allar sögusagnir um að hann vilji yfirgefa Atletico. 14.9.2006 00:00
Lyon tók okkur í kennslustund Fabio Capello reyndi ekki að beina athygli frá þeirri staðreynd að hans menn í Real Madrid voru yfirspilaðir af franska liðinu Lyon í meistaradeildinni í kvöld og sagði heimamenn hafa verið betri á öllum sviðum leiksins, sérstaklega í fyrri hálfleik. 13.9.2006 22:40
Við vorum nokkuð heppnir Arsene Wenger viðurkenndi að hans menn hefðu verið nokkuð heppnir í kvöld þegar þeir báru sigurorð af Hamburg 2-1 á útivelli í meistaradeildinni. Hamburg missti markvörð sinn af velli með rautt spjald strax í upphafi leiks og sagði Wenger atvikið hafa minnt sig mikið á úrslitaleikinn í meistaradeildinni í vor. 13.9.2006 22:26
Carlos spilaði 100. leikinn Brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos hjá Real Madrid vill eflaust gleyma leiknum gegn Lyon í meistaradeildinni í kvöld sem fyrst, en hann náði þó merkum áfanga í leiknum. Carlos spilaði í kvöld sinn 100. leik í meistaradeildinni, en leikjahæstur frá stofnum deildarinnar er félagi hans Raul með 102 leiki. 13.9.2006 22:15
Hrósaði baráttuglöðum löndum sínum Sir Alex Ferguson var að vonum ánægður með góðan sigur sinna manna í Manchester United á Celtic í kvöld, en tók sér tíma til að hrósa löndum sínum fyrir að gefast aldrei upp. United vann leikinn verðskuldað 3-2, en skoska liðið stóð sig þó með mikilli prýði. 13.9.2006 21:55
United vann baráttuna um Bretland Manchester United hafði betur í baráttunni um Bretland í meistaradeildinni í kvöld þegar liðið lagði Glasgow Celtic 3-2 í æsilegum leik á Old Trafford. Louis Saha skoraði tvö mörk fyrir United og Ole Gunnar Solskjær skoraði sigurmark liðsins í upphafi síðari hálfleiks. Arsenal vann sigur á Hamburg á útivelli eftir að vera manni fleiri allan leikinn og Real Madrid steinlá gegn Lyon í Frakklandi. 13.9.2006 20:29
Solskjær kemur United yfir Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær kom Manchester United yfir 3-2 í byrjun síðari hálfleiks gegn Celtic á Old Trafford. Louis Saha átti fast skot að markinu sem var varið, en Solskjær fylgdi vel eftir. Arsenal er komið í 2-0 gegn Hamburg, þar sem Tomas Rosicky skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið með frábærum þrumufleyg. Lyon er að yfirspila Real Madrid gjörsamlega og hefur enn yfir 2-0. 13.9.2006 20:00
Frábær fyrri hálfleikur á Old Trafford Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í meistaradeild Evrópu. Mesta fjörið hefur klárlega verið á Old Trafford, þar sem staðan í leik heimamanna Manchester United og Celtic er jöfn 2-2 eftir stórkostlegan fyrri hálfleik - allt í beinni á Sýn. 13.9.2006 19:32
Saha jafnar fyrir United Franski sóknarmaðurinn Louis Saha er búinn að jafna metin fyrir Manchester United gegn Celtic á 30. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Markvörður Celtic var sakaður um að hafa brugðið Ryan Giggs í teignum og Lubos Michel dæmdi vítaspyrnu, en í endursýningu mátti sjá að dómurinn var út í hött. Leikurinn er engu að síður í hæsta gæðaflokki og hefur United sótt án afláts síðan liðið lenti undir. 13.9.2006 19:14
Celtic komið yfir á Old Trafford Hollendingurinn Jan Vennegoor of Hesselink hefur komið skoska liðinu Glasgow Celtic yfir gegn Manchester United á Old Trafford í leik liðanna í meistaradeildinni sem sýndur er beint á Sýn. Markið kom eftir skyndisókn skoska liðsins og ekki laust við að Rio Ferdinand hafi farið illa að ráði sínu í vörninni þegar hann lét Hollendinginn leika á sig. 13.9.2006 19:06
Arsenal komið yfir gegn Hamburg Nú er aðeins liðinn um stundarfjórðungur af leikjum kvöldsins í meistaradeild Evrópu, en þar er strax farið að draga til tíðinda. Arsenal hefur yfir 1-0 gegn Hamburg í Þýskalandi, þar sem markverði þýska liðsins var vikið af leikvelli eftir brot á Robin Van Persie og Gilberto skoraði mark Arsenal úr víti í kjölfarið. Fred hefur komið Lyon yfir gegn Real Madrid og Inzaghi hefur komið AC Milan yfir gegn AEK. Hægt er að fylgjast með gangi mála á Boltavaktinni hér neðar á síðunni. 13.9.2006 19:01
Byrjunarlið Arsenal gegn Hamburg Leikur Hamburg og Arsenal í meistaradeild Evrópu er nú hafinn á Sýn Extra 2 og byrjunarlið Arsenal má sjá hér fyrir neðan. Fyrirliði enska liðsins, Thierry Henry, er ekki með liðinu í Þýskalandi í kvöld vegna meiðsla. 13.9.2006 18:44
Man Utd - Celtic að hefjast "Baráttan um Bretland" eins og leikur Manchester United og Celtic hefur verið kallaður, er nú senn að hefjast í beinni útsendingu á Sýn. Byrjunarliðin eru klár og þar ber hæst að þeir Paul Scholes og Wayne Rooney koma inn í lið Manchester United eftir leikbann. 13.9.2006 18:20
Veislan heldur áfram í kvöld Knattspyrnuveislan sem fylgir meistaradeild Evrópu heldur áfram á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld, þegar áskrifendur geta valið um þrjá stórleiki til að fylgjast með í beinni útsendingu. "Baráttan um Bretland" - leikur Manchester United og Celtic, verður sýndur beint á Sýn. Leikur Lyon og Real Madrid er sýndur beint á Sýn Extra og þá verður slagur Hamburg og Arsenal í beinni á Sýn Extra 2. Útsending frá öllum leikjunum hefst klukkan 18:30. 13.9.2006 15:55
Líkir Gravesen við Kaka Gordon Strachan, stjóri Glasgow Celtic, gat ekki farið leynt með hrifningu sína á danska landsliðsmanninum Thomas Gravesen eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik með skoska liðinu um helgina. 13.9.2006 15:15
Verðum að vera þolinmóðir í kvöld Arsene Wenger segir að þolinmæði verði lykillinn að góðum úrslitum í kvöld þegar hans menn fá það erfiða verkefni að sækja þýska liðið Hamburg heim í meistaradeild Evrópu, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. 13.9.2006 13:56
Ánægður með markalaust jafntefli Rafa Benitez var mjög ánægður með að ná markalausu jafntefli á útivelli gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í meistaradeildinni í kvöld og varði ákvörðun sína um að hafa marga af lykilmönnum sína á varamannabekknum með því að segja að þeir hefðu einfaldlega ekki úthald í að spila alla þá leiki sem á dagskránni væru. 12.9.2006 22:21