Fleiri fréttir

Óbreytt lið hjá Frökkum og Ítölum

Nú styttist óðum í hápunkt heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, en úrslitaleikur Frakka og Ítala hefst klukkan 18 og verður í beinni útsendingu á Sýn. Leikurinn fer fram í Berlín og mæta báðar þjóðir til leiks með óbreytt byrjunarlið frá síðasta leik sínum í mótinu.

Birgir Leifur hafnaði í 14. sæti

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 14. sæti á áskorendamótinu í golfi sem fram fór í Skotlandi um helgina. Birgir lék lokahringinn í dag á 71 höggi, eða pari og lauk því keppni á þremur höggum undir pari á mótinu.

Fjórði sigur Federer í röð á Wimbledon

Roger Federer varð í dag Wimbledon-meistari í tennis, fjórða árið í röð, þegar hann lagði Spánverjann Rafael Nadal í úrslitaleik 6-0, 7-6 (7-5), 6-7 (2-7) og 6-3. Federer hefur verið í gríðarlega góðu formi á mótinu og undirstrikaði í dag að hann er besti tennisleikari heimsins.

Jafnt í Laugardalnum

Valur og Breiðablik gerðu jafntefli í leik dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu sem fram fór á Laugardalsvellinum í dag. Pálmi Rafn Pálmason kom Valsmönnum yfir á 71. mínútu, en Blikar náðu að jafna leikinn á lokamínútunni með marki frá Petr Podzemski.

Skelton vann óvæntan sigur á Williams

Matt Skelton vann í gærkvöld nokkuð óvæntan sigur á Danny Williams í þungavigtarbardaga þeirra í Cardiff í gærkvöldi, en bardaginn var sýndur beint á Sýn. Skelton hélt sig óvænt í góðri fjarlægð frá andstæðingi sínum í bardaganum og nýtti sér minni líkamsþyngd sína til að leggja Williams á stigum.

Valsmenn komnir yfir

Valsmenn eru komnir 1-0 yfir gegn Breiðablik í Laugardalnum. Valsmenn fengu vítaspyrnu á 70. mínútu leiksins, en Hjörvar Hafliðason, markvörður og fyrirliði Blika, varði spyrnu Garðars Gunnlaugssonar. Upp úr því fengu Valsarar hornspyrnu og eftir hana skoraði Pálmi Rafn Pálmason og kom Val yfir.

Krefur Jordan og Nike um 60 milljarða

Maður nokkur að nafni Allen Heckard í Oregon-fylki í Bandaríkjunum hefur nú farið í skaðabótamál við Michael Jordan og Nike íþróttavöruframleiðandann, því hann segist vera orðinn hundleiður á því að fólk ruglist á honum og körfuboltastjörnunni fyrrverandi. Maðurinn fer fram á tæpa 60 milljarða króna í skaðabætur fyrir það sem hann kallar daglega pínu undanfarin 15 ár.

Lilleström 2-0 yfir í hálfleik

Norska liðið Lilleström hefur yfir 2-0 gegn Keflavík í síðari viðureign liðanna í Inter Toto keppninni í knattspyrnu, en leikið er í Keflavík. Norska liðið vann fyrri leikinn 4-1 og því er útlitið ansi dökkt hjá heimamönnum í Keflavík. Mörkin komu á 10. og 19. mínútu, en algjör einstefna var á mark Keflvíkinga fyrsta hálftímann.

Ekkert mark komið í Laugardalnum

Ekkert mark leit dagsins ljós í fyrri hálfleiknum í viðureign Vals og Breiðabliks í Landsbankadeild karla í dag, en leikurinn fer fram í blíðunni á Laugardalsvelli. Mjög fáir áhorfendur eru mættir til að fylgjast með leiknum, en Valsmenn hafa verið með yfirhöndina lengst af.

Hafnaði tilboði um að taka við liði í Meistaradeildinni

Umboðsmaður Sven-Göran Eriksson, fráfarandi landsliðsþjálfara Englendinga, segir að Svíinn hafi nýlega hafnað tilboði um að taka við liði sem spilar í meistaradeild Evrópu. Hann tekur fram að liðið sé ekki frá Englandi, en auk þess á Eriksson að hafa hafnað tilboði um að taka við landsliði Jamaíka á dögunum.

Ætlar að fara frá Manchester United

Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hefur gefið það afdráttarlaust út að hann ætli að fara frá Manchester United og ganga til liðs við Barcelona eða Real Madrid á Spáni. Ronaldo er ekki sáttur við að hafa ekki fengið meiri stuðning úr herbúðum Manchester United í kjölfar þeirrar gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir eftir leik Englendinga og Portúgala á HM.

Hagvöxtur jókst um 0.3%

Þjóðverjar eru mjög ánægðir með hvernig HM hefur farið fram í sínu landi. Þó svo að lið þeirra hafi ekki náð að vinna mótið eru flestir á því að þessi keppni hafi verið gríðarleg lyftistöng fyrir efnahagslíf landsins.

Miljarður mun horfa á úrslitaleikinn

Búist er við því að miljarður manna muni fylgjast með úrslitaleiknum á HM sem fram fer í dag klukkan 18.00. Er þetta mesta áhorf sem um getur á einu sjónvarpsefni svo vitað sé. Það eru Frakkar og Ítalir sem mætast eins og flestum er kunnugt.

Fjórir tímar í heimsmeistaratitil

Tíminn er núna, Berlín iðar af ítölskum og frönskum fánum, fólki í öllum regnbogans litum. Hér á Olympíuleikvangingum er sögulegur leikur í uppsiglinu, tvö lið, 22 leikmenn, dómari, tveir línuverðir og verðlaunin er eilífðin sjálf, nafn sigurliðsins greypt í granít, tapliðið fær bara silfur. Og hver vinnur?

Kahn hættur með landsliðinu

Oliver Kahn, markvörður Þýskalandsliðins sem setið hefur nær alla HM-keppnina á bekknum er hættur með landsliðinu og var leikurinn um þriðja sætið hans síðasti leikur. Þessi frábæri markvörður átti góðan leik gegn Portúgölum.

Danny Williams mætir Matt Skelton

Sýn býður upp á beina útsendingu frá hnefaleikum í kvöld, þar sem aðalbardaginn verður viðureign þeirra Danny Williams og Matt Skelton í þungavigtinni. Þessir kappar áttust við í febrúar síðastliðnum og þar vann Williams á stigum. Hann hefur nú þyngt sig til muna fyrir bardaga kvöldsins og hefur lofað því að verða enn betri en í fyrri viðureigninni, en sigurvegarinn í kvöld mun væntanlega mæta rússneska tröllinu Nikolai Valuev um WBC-beltið.

Schweinsteiger stal senunni í sigri Þjóðverja

Gestgjafarnir Þjóðverjar kórónuðu frábært heimsmeistaramót með því að tryggja sér þriðja sætið í dag þegar þeir lögðu Portúgala að velli 3-1 í Stuttgart í dag. Bastian Schweinsteiger hlaut uppreisn æru þegar hann skoraði tvö af mörkum þýska liðsins og var maðurinn á bak við það þriðja. Nuno Gomez minnkaði muninn fyrir Portúgala skömmu fyrir leikslok, eftir sendingu frá Luis Figo sem var að spila sinn síðasta leik fyrir landsliðið.

Þjóðverjar komnir í 2-0

Þjóðverjar hafa náð 2-0 forystu gegn Portúgölum í leiknum um þriðja sætið á HM sem fram fer í Stuttgart. Það var miðjumaðurinn Bastian Schweinsteiger sem var allt í öllu í mörkum Þjóðverja, en hann skoraði fyrra markið með flöktandi þrumufleyg utan teigs á 56. mínútu. Síðara markið kom einnig eftir þrumuskot frá Schweinsteiger aðeins um fimm mínútum síðar, en þá hrökk skot hans af varnarmanninum Armando Petit og í netið.

Powell og Jones sigruðu í 100 m hlaupinu

Heimsmethafinn Asafa Powell frá Jamaíku sigraði í 100 m hlaupi karla á gullmótinu í frjálsum íþróttum í París í dag. Powell kom í mark á 9,85 sekúndum, tveimur hundraðshlutum úr sekúndu á undan næsta manni. Gamla kempan Marion Jones hristi af sér ásakanir um lyfjamisnotkun með sigri í kvennaflokki þegar hún kom í mark á 10,92 sekúndum sem er besti tími hennar í fjögur ár.

Markalaust í Stuttgart í hálfleik

Staðan í leik Þjóðverja og Portúgala um þriðja sætið á HM er markalaus í hálfleik. Leikurinn hefur verið nokkuð fjörugur og hefur í raun boðið upp á allt nema mörkin í fyrri hálfleiknum. Rétt er að árétta að samkvæmt samningi Sýnar um sýningarrétt á HM 2006 verða aðeins fjórir leikir úr keppninni sendir út í opinni dagskrá og er þessi leikur ekki einn þeirra.

Þróttur lagði Milwall

Lið Þróttar í 1.deildinni gerði sér lítið fyrir og skellti enska 2. deildarliðinu Milwall 2-0 í æfingaleik liðanna á Valbjarnarvellinum í dag. Sinisa Valdimar Kekic skoraði annað mark Þróttar beint úr aukaspyrnu og þá var Magnús Már Lúðvíksson einnig á skotskónum. Milwall mætir KR í æfingaleik á mánudag.

LeBron James framlengir við Cleveland

Stuðningsmenn Cleveland Cavaliers vörpuðu öndinni léttar í gær þegar félagið gaf það út að ungstirnið LeBron James hefði samþykkt að framlengja samning sinn um fimm ár. James fær fyrir vikið um 80 milljónir dollara í laun á samningstímanum, en áður höfðu þeir Dwyane Wade og Carmelo Anthony úr 2003 árgangi nýliða samþykkt hliðstæða samninga hjá liðum sínum. James undirritar nýja samninginn formlega á miðvikudaginn.

Figo er á bekknum hjá Portúgölum

Nú styttist í að leikur Þjóðverja og Portúgala um þriðja sætið á HM hefjist, en hann er að sjálfssögðu sýndur í beinni á Sýn. Luis Figo er á varamannabekk Portúgala í dag, en ef hann kemur við sögu í dag verður það síðasti landsleikur hans á ferlinum. Oliver Kahn stendur í marki Þjóðverja í stað Jens Lehmann og er að leika sinn síðasta leik á HM.

Sol Campbell hættur hjá Arsenal

Enski landsliðsmiðvörðurinn Sol Campbell hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila með úrvalsdeildarliði Arsenal og segir tíma til kominn að reyna fyrir sér með öðru liði. Campbell segist vel geta hugsað sér að leika utan Englands, en hefur ekkert gefið upp um framtíðaráform sín að öðru leiti.

Honchar í forystu

Úkraínumaðurinn Serhiy Honchar hjá liði T-Mobile klæðist nú gulu treyjunni í Frakklandshjólreiðunum eftir að hann sigraði á sjöundu leiðinni í dag. Þá lá leið keppenda 52 kílómetra leið frá Saint Gregoire til Rennes. Sigur Honchar var mjög sannfærandi og kom hann í mark rúmri mínútu á undan Bandaríkjamanninum Floyd Landis sem varð annar.

Blikar sigruðu KA/Þór

Íslandsmeistarar Breiðabliks lögðu sameiginlegt lið KA og Þórs 3-0 norður á Akureyri í leik dagsins í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Erna Sigurðardóttir, Greta Mjöll Samúelsdóttir og Edda Garðarsdóttir skoruðu mörk Blika í dag og er liðið sem fyrr í öðru sæti Landsbankadeildarinnar, en norðanstúlkur í næst neðsta sæti.

Birgir Leifur á þremur undir pari í Skotlandi

Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að spila ágætlega á áskorendamótinu í Skotlandi og lauk þriðja keppnisdeginum á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Birgir er því samtals á þremur höggum undir pari fyrir lokadaginn og er nokkuð ofarlega á töflunni. Efsti maður mótsins eins og staðan er nú er á 12 höggum undir pari.

Owen gagnrýnir Eriksson

Enski landsliðsframherjinn Michael Owen hefur nokkuð óvænt gagnrýnt þá ákvörðun Sven-Göran Eriksson að hafa teflt Wayne Rooney fram einum í framlínu enska liðsins á HM og segir þessa ákvörðun eina af ástæðunum fyrir því að Rooney var rekinn af velli gegn Portúgölum.

Fyrsti sigur Amelie Mauresmo á Wimbledon

Franska tenniskonan Amelie Mauresmo vann í dag sinn fyrsta sigur á Wimbledon-mótinu þegar hún lagði Justine Henin-Hardenne í dramatískum úrslitaleik 2-6, 6-3 og 6-4 í London. Mauresmo hefur haft það orð á sér að standast ekki mikla pressu, en eftir skelfilega byrjun í dag náði hún að snúa leiknum sér í hag og sigra.

Við erum tilbúnir að deyja fyrir Frakkland

Zinedine Zidane, fyrirliði Frakka segir að leikmenn liðsins séu tilbúnir að deyja fyrir Frakkland til að vinna úrslitaleikinn á morgun gegn Ítölum á HM. Þessi hetja fótboltans er að spila sinn síðasta leik á ferlinum á morgun og ekkert nema sigur kemur til greina hjá honum.

Cufre og Rodriguez í bann

Tveir af leikmönnum argentínska landsliðsins hafa verið dæmdir í leikbönn vegna ólátanna sem brutust út eftir leik Argentínumanna og Þjóðverja í 8-liða úrslitum HM. Varamaðurinn Leandro Cufre fékk fjögurra leikja bann og sekt upp á tæp 5000 pund fyrir að sparka í Pet Metersacker og þá fékk Maxi Rodriguez tveggja leikja bann og 2000 punda sekt fyrir að slá til andstæðings síns. Þjóðverjinn Torsten Frings hafði áður tekið út eins leiks bann fyrir sinn þátt í málinu.

Rooney í tveggja leikja bann

Enski landsliðsframherjinn Wayne Rooney hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann og gert að greiða 2400 pund í sekt fyrir brot sitt á Ricardo Carvalho í leik Englands og Portúgal í 8-liða úrslitum HM á dögunum. Rooney verður því í banni í næstu tveimur landsleikjum enska liðsins í undankeppni EM gegn Andorra og Makedóníu.

Ítalir heppnir að vera komnir í úrslitaleikinn

Marcel Desailly, fyrrum fyrirliði Frakka og eitt sinn leikmaður AC Milan á Ítalíu segir að Ítalir séu heppnir að vera komnir í úrslitaleikinn og eigi ekki skilið að vera þar.

Ég hélt að við værum ekki nógu góðir

Markvörðurinn Gianluigi Buffon hjá Ítölum sagði að hann hafði fyrir fram ekki reiknað með því að liðið mundi fara alla leið í úrslitaleikinn á HM. Hann taldi liðið ekki vera nógu gott til þess.

Liðandinn hefur fært okkur alla leið

Francesco Totti, leikmaður Ítalíu segir að það sé liðsandinn sem hefur fleytt liðinu í úrslitaleikinn á HM. Hann segir að leikmannahópurinn sé svo vel stemmdur og samrýndur að það eitt sé lykilinn að öllu þessu ævintýri.

Bronsleikurinn í kvöld

Leikið verður um bronsið á HM í kvöld. Eins og flestir vita eru það heimamenn, Þjóðverjar sem spila við Portúgali. Leikurinn er klukkan 19.00 og að sjálfsögðu sýndur á Sýn eftir leik er svo hinn magnaði 4-4-2 þáttur þeirra fóstbræðra, Heimis Karls og Þorsteins Joð.

Domenech í banni á sunnudaginn?

Portúgalir eru ævareiðir útí Raymond Domenech þjálfara franska landsliðsins, en hann á að hafa lent í miklu orðaskaki við Portúgalska varamannabekkinn í seinni undanúrslitaleiknum á miðvikudag.

Trúir ekki á ósigranleika

Franski snillingurinn Thierry Henry framherji Franska landsliðsins og Arsenal óttist ekki hinn sterka varnarmúr Ítala. Henry trúir ekki þeim sögusögnum um að Ítalska vörnin sé ósigrandi.

ÍA lagði Grindavík á Skaganum

Skagamenn nældu sér í þrjú mikilvæg stig í botnbaráttunni í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld þegar liðið lagði Grindvíkinga á heimavelli sínum 2-1. Bjarni Guðjónsson kom Skagamönnum yfir á 17. mínútu með laglegu marki beint úr aukaspyrnu, en Jóhann Þórhallsson jafnaði metin á 71. mínútu. Jóhanni Helgasyni var svo vikið af velli skömmu síðar og heimamenn náðu að nýta sér liðsmuninn þegar Hjörtur Hjartarson skoraði sigurmark ÍA á 88. mínútu.

Draumaúrslitaleikur í karlaflokki

Það verður Rafael Nadal sem mætir Roger Federer í úrslitaleik í karlaflokki á Wimbledon-mótinu í tennis um helgina, en Nadal vann í kvöld sigur á Marcos Baghdatis í undanúrslitum. Nadal sigraði 6-, 7-5 og 6-3 og er því kominn í úrslit á Wimbledon í fyrsta sinn á ferlinum.

Æfingar bannaðar í Berlín

Liðum Frakka og Þjóðverja sem leika til úrslita á HM á sunnudaginn, hefur verið bannað að æfa á vellinum í Berlín þar sem úrslitaleikurinn fer fram vegna lélegra skilyrða á vellinum. Mikið hefur rignt í Berlín undanfarið og vilja vallarverðir ekki taka áhættuna á því að völlurinn verði út sparkaður þegar kemur að úrslitaleiknum sjálfum.

Ég er enn í rusli

Þýski markvörðurinn Jens Lehmann segist enn vera í rusli eftir að hafa misst af því að fara í úrslitaleikinn á HM. Hann segist ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér varðandi landsliðið, en ítrekar að hann vilji ólmur hafa Jurgen Klinsmann áfram í starfi landsliðsþjálfara.

Byrjar að æfa eftir sex vikur

Ástralski miðjumaðurinn Harry Kewell hjá Liverpool getur ekki byrjað að æfa aftur með félaginu fyrr en eftir um sex vikur. Kewell var greindur með gigt í öðrum fætinum á HM, en læknar Liverpool segja þann úrskurð þvætting og segja að hann hafi fengið sýkingu í fótinn. Hann þarf engu að síður að fara í aðgerð og verður frá keppni í fyrrgreindan tíma.

Vítið var mér að kenna

Portúgalski varnarmaðurinn Ricardo Carvalho hefur viðurkennt að hann hafi gert mistök þegar hann felldi Thierry Henry í leiknum gegn Frökkum í undanúrslitunum á HM á dögunum, en eins og flestir muna var dæmd vítaspyrna í kjölfarið og úr henni skoraði Zinedine Zidane og tryggði Frökkum sigurinn.

Mendieta farinn að æfa

Spænski miðjumaðurinn Gaizka Mendieta hjá enska úrvalsdeildarliðinu Middlesbrough er nú farinn að æfa létt á ný eftir að hann fótbrotnaði undir lok síðustu leiktíðar. Ekki er þó búist við því að Mendieta verði klár í slaginn í upphafi næstu leiktíðar, en hann hefur verið ótrúlega óheppinn með meiðsli allar götur síðan hann gekk í raðir félagsins á sínum tíma.

Sjá næstu 50 fréttir