Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rooney hugsanlega skipt út á síðustu stundu Sven-Göran Eriksson hefur þann möguleika að skipta Wayne Rooney út úr enska landsliðshópnum einum sólarhring fyrir opnunarleik liðsins í keppninni þann 10. júní samkvæmt reglum FIFA, en fari svo, má Rooney ekki koma neitt við sögu í með liðinu í keppninni. 2.5.2006 13:16
Fastlega reiknað með að Eiður fari frá Chelsea Breska blaðið Independent greinir frá því í dag að Englandsmeistarar Chelsea ætli að gera enn eina tilraunina til að krækja í framherjann Andriy Shevchenko hjá AC Milan í sumar. Í þessari sömu grein er sagt frá því að Chelsea sé einnig á höttunum eftir tveimur enskum landsliðsmönnum frá Tottenham og að líkum leitt að því að Eiður Smári Guðjohnsen gæti orðið partur af leikmannaskiptum milli Lundúnaliðanna. 2.5.2006 12:59
Diaw tók mestum framförum Hinn fjölhæfi Boris Diaw hjá Phoenix Suns var í gærkvöldi kjörinn framfarakóngur ársins í NBA deildinni. Diaw, sem er franskur landsliðsmaður, kom til Phoenix frá Atlanta sem uppfyllingarefni í skiptum fyrir Joe Johnson síðasta sumar og fáa óraði fyrir því hve vel hann átti eftir að smella inn í leik liðsins. 2.5.2006 12:38
Tottenham fær 2 milljónir fyrir Rasiak Southampton hefur ákveðið að kaupa pólska landsliðsframherjann Grzegorz Rasiak frá úrvalsdeildarliði Tottenam, en sá pólski hefur verið í láni hjá 1. deildarliðinu síðan í febrúar. Rasiak náði aldrei að festa sig í sessi hjá Lundúnaliðinu en hefur fundið sig þokkalega hjá Southampton og skorað 4 mörk í 12 leikjum. Kaupverðið er sagt vera í kring um 2 milljónir punda. 2.5.2006 12:15
Dott heimsmeistari Skotinn Graeme Dott varð í gær heimsmeistari í snóker þegar hann lagði enska spilarann Peter Ebdon 18-14 í maraþonúrslitaleik í Sheffield á Englandi. Besti árangur Dott til þessa hafði verið silfurverðlaun á mótinu fyrir tveimur árum, en hann náði loks að vinna mótið í gær. Dott náði öruggri forystu í upphafi einvígisins, en var nánast búinn að missa hana niður þegar hann loks náði að vinna síðasta rammann. 2.5.2006 11:45
Opna Reykjavíkur- meistaramótið Opna Reykjavíkurmeistaramót Akkúrat og Höfðabíla verður haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 10 – 14 maí. Glæsileg dagskrá þar sem nokkrir af helstu gæðingum landsins etja kappi í hestaíþróttum. Einnig verða sýndar vonarstjörnur úr röðum kynbótahrossa sem sýndar verða á sérstökum sýningum. 2.5.2006 11:44
Clippers áfram í fyrsta sinn í 30 ár Los Angeles Clippers gekk í gær frá Denver Nuggets 101-83 og vann einvígi liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Vesturdeildarinnar auðveldlega 4-1. Þetta er í fyrsta sinn í yfir þrjá áratugi sem félagið vinnur seríu í úrslitakeppni. Þá kláraði Dallas dæmið gegn Memphis og Detroit komst í vænlega stöðu gegn Milwaukee. 2.5.2006 11:10
Miðaverð á LM 2006 Miðaverð á Landsmót Hestamanna liggur nú fyrir og er verðskráin eftirfarandi. Fyrirkomulag forsölu verður kynnt nánar síðar og eins sala á stúkusætum. Gert er ráð fyrir að forsala hefjist í júníbyrjun 2.5.2006 10:06
Tekst Dallas að klára dæmið? Fjórði leikur Memphis Grizzlies og Dallas Mavericks verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Þar ræðst hvort Memphis nær að halda lífi í einvíginu eða lætur sópa sér út úr úrslitakeppninni í þriðja sinn í röð. Dallas hefur yfir 3-0 í einvíginu og hefur tapað 11 fyrstu leikjum sinni í úrslitakeppni í sögu félagsins, sem er NBA met. 1.5.2006 21:36
Markalaust á Old Trafford Manchester United og Middlesbrough gerðu í kvöld markalaust jafntefli á Old Trafford í Manchester í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og nú munar aðeins einu stigi á United og Liverpool, sem er í þriðja sæti deildarinnar. Ruud Van Nistlerooy misnotaði vítaspyrnu í leiknum. Unted nægir þó sigur á Charlton á heimavelli í lokaumferðinni til að halda öðru sætinu. West Ham lagði á sama tíma West Brom á útivelli 1-0 með marki frá Nigel Reo-Coker í fyrri hálfleik. 1.5.2006 20:48
Diaby fluttur á sjúkrahús Svo gæti farið að Abou Diaby leikmaður Arsenal væri búinn að spila sinn síðasta leik fyrir félagið á þessari leiktíð eftir að hann meiddist illa í leiknum gegn Sunderland í dag. Diaby varð fyrir barðinu á fólskulegri tæklingu Dan Smith hjá Sunderland, sem hefði með öllu réttu átt að fá rauða spjaldið fyrir tilburði sína. 1.5.2006 19:12
Auðvelt hjá Arsenal Arsenal lagði Sunderland 3-0 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og heldur því sínu striki í baráttunni um fjórða sætið. Fyrsta mark Arsenal var sjálfsmark og þeir Thierry Henry og Cesc Fabregas bættu við sitt hvoru markinu fyrir lok fyrri hálfleiks og þar við sat. 1.5.2006 18:18
Efast um að Rooney spili á HM Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist efast um að Wayne Rooney eigi eftir að geta spilað með enska landsliðinu á HM í sumar vegna meiðslanna sem hann hlaut í leiknum við Chelsea á dögunum. 1.5.2006 17:37
Arsenal að valta yfir Sunderland Arsenal virðist ekki ætla að verða í vandræðum með arfaslakt lið Sunderland í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag, en þegar flautað hefur verið til hálfleiks er staðan 3-0 fyrir gestina. Fyrsta mark Arsenal var sjálfsmark, en þeir Cesc Fabregas og Thierry Henry skoruðu undir lok hálfleiksins. Mark Henry kom beint úr aukaspyrnu. 1.5.2006 17:04
McClaren tekur við af Eriksson Bresk blöð fullyrða í dag að Steve MacClaren, stjóri Middlesbrough og aðstoðarmaður Sven-Göran Eriksson, verði næsti landsliðsþjálfari Englendinga. Því er til að mynda haldið fram á BBC í dag að líklega verði tilkynnt um ráðningu hans fyrir vikulokin. 1.5.2006 16:25
Cole á bekknum hjá Arsenal Ashley Cole er á varamannabekk Arsenal í dag þegar liðið sækir Sunderland heim í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal þarf nauðsynlega á sigri að halda í dag til að eiga möguleika á að ná grönnum sínum í Tottenham að stigum í baráttunni um fjórða sætið. 1.5.2006 16:14
Spurðu Guðjón Þórðarson Vísir og Fréttablaðið bjóða lesendum sínum að spyrja knattspyrnuþjálfarann góðkunna, Guðjón Þórðarson, spjörunum úr. Hvað hefur þú alltaf viljað vita um Guðjón? Skráðu þína spurningu hér að neðan og fylgdust síðan með á Vísi og Fréttablaðinu sunnudaginn 14. maí þegar svör Guðjóns verða birt. Hægt er að senda spurningar til miðnættis miðvikudaginn 10. maí. 1.5.2006 15:40
Tilbúinn að gefa Englendingunum frí Jose Mourinho segist hafa boðist til að hvíla þá John Terry, Frank Lampard og Joe Cole í þeim leikjum sem eftir er í ensku úrvalsdeildinni svo þeir verði frískir þegar kemur að HM í sumar. Þá er fyrirhugað að Shaun Wright-Phillips fái að spila eitthvað í síðustu leikjunum með Chelsea svo hann verði í betri leikæfingu, en talið er víst að hann eigi sæti í HM hópnum. 1.5.2006 15:06
Rooney fer með ef hann getur spilað eitthvað Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist vera í sambandi við lækna liðsins og Manchester United daginn út og daginn inn vegna meiðsla Wayne Rooney. Hann segist enn ekki geta gefið ákveðin svör um þátttöku hans á HM í sumar en sagði einfaldlega: "Ef Rooney getur spilað eitthvað, þá fer hann með í keppnina - því hann er nú einu sinni Wayne Rooney." 1.5.2006 14:37
Sacramento burstaði meistarana Dramatíkin í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA í vor er að verða ótrúleg og í lokaleik gærkvöldsins gerði lið Sacramento sér lítið fyrir og rótburstaði meistara San Antonio 102-84 og jafnaði metin í einvígi efsta og neðsta liðsins í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í 2-2. 1.5.2006 05:10
Kobe Bryant skaut Phoenix upp að vegg Kobe Bryant sýndi sannarlega úr hverju hann var gerður í gærkvöldi þegar hann tryggði Los Angeles Lakers 99-98 sigur á Phoenix Suns með ótrúlegri sigurkörfu í framlengingu og nú vantar Lakers aðeins einn sigur til að slá Phoenix út úr keppninni í fyrstu umferð úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. Bryant var stórkostlegur á lokasprettinum á meðan verðmætasti leikmaður deildarinnar, Steve Nash, gerði afdrifarík mistök sem kostuðu Phoenix sigurinn. 1.5.2006 04:49
Arenas kláraði Cleveland Gilbert Arenas skoraði 20 af 34 stigum sínum í fjórða leikhlutanum í gærkvöldi þegar lið hans Washington jafnaði metin gegn Cleveland í 2-2 með góðum 106-96 sigri í fjórða leik liðanna sem sýndur var í beinni útsendingu á NBA TV. LeBron James endurskrifaði metabækurnar hjá Cleveland í fyrri hálfleik, en þurfti að sætta sig við tap þrátt fyrir að skora 38 stig. 1.5.2006 04:23
Miami í vandræðum Chicago Bulls afrekaði það í gær að jafna metin í einvígi sínu við Miami Heat í 2-2 með góðum 93-87 sigri á heimavelli sínum í fjórða leik liðanna. Flestir bjuggust við að það yrði aðeins formsatriði fyrir Miami að afgreiða liðið í sjöunda sæti í Austurdeildinni, en baráttuglaðir leikmenn Chicago eru langt í frá búnir að segja sitt síðasta gegn hærra skrifuðum andstæðingum sínum. 1.5.2006 04:00
Washington - Cleveland í beinni á NBA TV Úrslitakeppni NBA heldur áfram á fullu í kvöld og klukkan 23:30 verður á dagskrá NBA TV fjórði leikur Washington Wizards og Cleveland Cavaliers. Cleveland hefur yfir 2-1 í einvíginu, en leikur kvöldsins fer fram í höfuðborginni Washington. Forvitnilegt verður að sjá hvernig liði Washington tekst að ráða við undrabarnið LeBron James, sem skoraði 41 stig og tryggði Cleveland sigur í síðasta leik. 30.4.2006 22:06
Real Madrid lagði Osasuna Real Madrid styrkti stöðu sína í efri hluta spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið vann mikilvægan útisigur á Osasuna 1-0. Það var Brasilíumaðurinn Julio Baptista sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiksins, en Iker Casillas var vikið af leikvelli með sitt annað gula spjald 10 mínútum fyrir leikslok. 30.4.2006 21:09
Juventus í góðri stöðu Juventus hefur þriggja stiga forskot á AC Milan á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir leiki dagsins, en aðeins tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Juventus lagði Siena 3-0 með mörkum frá Mutu, Trezeguet og Vieira, en AC Milan lagði Livorno 2-0 með mörkum frá Filippo Inzaghi. Juve hefur 82 stig á toppnum, AC Milan er með 79 stig og Inter er í þriðja sætinu með 74 stig eftir 1-0 tap fyrir Empoli. 30.4.2006 20:56
Keisarinn lætur Ballack heyra það "Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, lét Michael Ballack heyra það eftir úrslitaleikinn í bikarnum í Þýskalandi í gær, þar sem Bayern bar sigurorð af Frankfurt 1-0. Beckenbauer segir að Ballack sé í huganum þegar orðinn leikmaður Chelsea og var hundfúll með slaka frammistöðu þýska landsliðsmannsins í gær, rétt eins og í síðustu leikjum í úrvalsdeildinni. 30.4.2006 20:20
Reiknar með að Henry til Barcelona Ludovic Giuly, leikmaður Barcelona og fyrrum félagi Thierry Henry hjá Monaco í Frakklandi, segist viss um að Henry gangi til liðs við spænsku meistarana í sumar. Henry ætlar að tilkynna um ákvörðun sína áður en HM hefst í sumar, en Giuly segist oft tala við hann í síma og sagði í samtali við bresku pressuna að sér þætti afar líklegt að Henry færi til Spánar þar sem mikill áhugi væri fyrir að fá hann. 30.4.2006 20:10
Barca verður að bíða lengur Liðsmenn Valencia voru ekki á þeim buxunum að gefa Barcelona færi á því að landa deildarmeistaratitlinum í dag og tryggðu það að sigurhátíð Katalóníumannanna verður ekki strax með öruggum 3-0 sigri á botnliði Alaves á heimavelli sínum Mestalla. Barcelona hefur nú 8 stiga forskot á toppnum þegar þrjár umferðir eru eftir og getur tryggt sér titilinn með sigri á Celta á miðvikudaginn. 30.4.2006 20:03
Boskamp hættur Johan Boskamp, knattspyrnustjóri Íslendingaliðsins Stoke City á Englandi, tilkynnti eftir stórsigur liðsins á Brighton í lokaumferð deildarkeppninnar í dag að hann væri hættur. Hinn hollenski Boskamp hefur átt stormasamt samband við íslenska eigendur félagsins og sætti sig ekki við að vera aðeins boðin eins árs framlenging á samningi sínum. 30.4.2006 19:50
Chicago - Miami á Sýn Fjórði leikur Chicago Bulls og Miami Heat í úrslitakeppni Austurdeildar NBA verður sýndur á Sýn í kvöld klukkan 20:50, eða skömmu eftir að flautað hefur verið til leiksloka í viðureign Osasuna og Real Madrid. Chicago freistar þess að jafna metin í seríunni í 2-2 eftir mjög góðan sigur í síðasta leik. 30.4.2006 19:29
Vill að reglunum verði breytt Martin Jol vill að fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni veiti undantekningalaust sæti í meistaradeildinni á næstu leiktíð. Rétt eins og hjá erkifjendunum Liverpool og Everton í fyrra, getur nú farið svo að Arsenal steli meistaradeildarsætinu af grönnum sínum í Tottenham - þó liðið endi neðar í töflunni. Þessu vill Martin Jol sjá breytt hið snarasta. 30.4.2006 19:16
Vonast til að vera enn inni í myndinni Sam Allardyce segist vonast til að vera enn inni í myndinni sem næsti landsliðsþjálfari Englendinga eftir að allt fór í bál og brand í kjölfar fyrirhugaðrar ráðningar Luiz Scolari á dögunum. Allardyce segist meira en til í að taka við starfinu og í raun sé það hans æðsti draumur. 30.4.2006 18:55
Osasuna - Real Madrid í beinni Leikur Osasuna og Real Madrid verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn nú klukkan 18:50, en þar er baráttan um annað sætið í spænsku deildinni í hámarki. Real Madrid hefur valdið nokkrum vonbrigðum í vetur, á meðan Osasuna hefur verið spútniklið ársins. 30.4.2006 18:41
Fóturinn er í lagi Michael Owen hefur fengið grænt ljós frá læknum eftir að hann gekkst undir ítarlega skoðun að loknum leik Newcastle og Birmingham í gær og í ljós kom að allt er í lagi með fótinn á honum. Owen kenndi sér nokkrus meins eftir leikinn í gær og var óttast að meiðsli hans hefðu tekið sig upp að nýju en nú virðist sem hann sé á ágætum batavegi. 30.4.2006 18:30
England á ekki möguleika án Rooney Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og lykilmaður í enska landsliðinu, er ekki að skafa af svörum sínum þegar kemur að meiðslum Wayne Rooney og hvaða þýðingu þau hafi fyrir möguleika enska landsliðsins á HM í sumar. 30.4.2006 18:16
Rooney fer með á HM Sven-Göran Eriksson hefur gefið það út að hann muni taka áhættuna og velja Wayne Rooney í enska landsliðshópinn fyrir HM ef hann sjái fram á að Rooney geti verið orðinn leikfær í 16-liða úrslitunum. Fyrsti leikur Englendinga í riðlakeppninni er eftir nákvæmlega sex vikur - eða þann tíma sem Rooney er sagður muni vera að jafna sig af meiðslunum. 30.4.2006 18:11
Ólafur Stefánsson Evrópumeistari í annað sinn Ólafur Stefánsson vann í dag sigur í meistaradeildinni í handbolta í annað sinn á ferlinum þegar lið hans Ciudad Real frá Spáni vann auðveldan sigur á löndum sínum í Portland San Antonio 37-28. Staðan í hálfleik var 21-11 fyrir heimamenn og eftir sannfærandi sigur í fyrri leiknum, var titillinn þá nánast í höfn. Ólafur skoraði 7 mörk í leiknum í dag og var einn af betri mönnum Ciudad í úrslitaeinvíginu. 30.4.2006 17:59
Tottenham heldur sínu striki Tottenham hélt sínu striki í baráttunni um meistaradeildarsætið í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið lagði Bolton 1-0 á heimavelli sínum með marki frá hinum unga og efnilega Aaron Lennon á 60. mínútu. Tottenham getur nú tryggt sér fjórða sætið í deildinni með sigri í síðasta leik sínum í deildinni, en Arsenal á enn möguleika á sætinu ef liði klárar þá þrjá leiki sem það á eftir. 30.4.2006 17:51
Milwaukee Burstaði Detroit Nokkuð óvænt úrslit urðu í úrslitakeppni NBA í nótt þegar Milwaukee burstaði Detroit 124-104 á heimavelli sínum og minnkaði muninn í 2-1 í einvígi liðanna. New Jersey jafnaði metin í 2-2 gegn Indiana, en Dallas og LA Clippers eru nú hársbreidd frá því að komast í aðra umferð eftir að liðin unnu sinn þriðja leik í rimmum sínum. 30.4.2006 17:34
Lemgo Evrópumeistari Logi Geirsson og félagar í Lemgo sigruðu Göppingen í dag í síðari leik liðanna í úrslitum EHF-keppninnar í handbolta 25-22 á heimavelli sínum. Logi fór fyrir sínum mönnum og skoraði 8 mörk í leiknum og félagi hans Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 1 mark. 30.4.2006 17:28
Logi Geirsson situr fyrir svörum Logi Geirsson, atvinnumaður í handbolta situr fyrir svörum hjá Fréttablaðinu og á Vísir.is í dag. Á forsíðu Vísis hefur verið hægt að senda spurningar á Loga sem hann hefur nú svarað og afraksturinn má lesa hér á Vísi og í Fréttablaðinu í dag. 30.4.2006 11:44
Úrslit opna töltmóts Anvara Opna töltmót Andvara var haldið síðastliðin föstudag og voru skráningar á mótið í mesta lagi. Það var Ríkharður Flemming Jensen á Hæng frá Hæl sem sigraði opna flokkinn, Sara Lind Ólafsdóttir á Iðunni frá Eystri Hóli, sigraði áhugamannaflokkinn og Margrét Ríkharðsdóttir á Sál frá Múlakoti sem sigraði flokkinn undir 17 ára. 30.4.2006 11:39
Rooney verður frá í sex vikur Framherjinn sterki Wayne Rooney fékk í kvöld að vita að hann verði líklega úr leik í sex vikur eftir fótameiðslin sem hann hlaut í leiknum gegn Chelsea í dag, en þannig vill til að fyrsti leikur Englendinga á HM í sumar er einmitt nákvæmlega eftir sex vikur. Það verða því spennuþrungnar vikur hjá ensku stuðningsmönnunum fram að HM, því hinn byrjunarliðsmaðurinn í landsliðinu, Michael Owen, er langt frá því að vera búinn að jafna sig af sínum meiðslum eins og hann greindi frá í dag. 29.4.2006 21:29
New Jersey jafnaði gegn Indiana New Jersey Nets jafnaði í kvöld metin í 2-2 í einvígi sínu við Indiana Pacers í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Austurdeild NBA. Vince Carter skoraði 28 stig fyrir New Jersey og Richard Jefferson skoraði 22. Jermaine O´Neal var atkvæðamestur í liði heimamanna með 20 stig. Næsti leikur fer fram í New Jersey á þriðjudagskvöldið. 29.4.2006 22:19
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-5 | Bragi breytti leiknum og Blikar sitja eftir í sárum Íslenski boltinn