Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Okkur var ekki ætlað að halda okkur uppi Steve Bruce, stjóri Birmingham, var að vonum daufur í dálkinn eftir að hans menn gerður markalaust jafntefli við Newcastle á heimavellinum sínum í dag og það þýddi að liðið er fallið í 1. deildina. 29.4.2006 19:06
Einn ótrúlegasti endasprettur í sögunni Harry Redknapp var að vonum glaður eftir að liði hans Portsmouth tókst að tryggja sér áframhaldandi veru sína í ensku úrvalsdeildinni með sigri á Wigan í dag. 29.4.2006 18:46
Fram íslandsmeistari Fram er Íslandsmeistari í handknattleik karla árið 2006 eftir að liðið valtaði yfir Víking/Fjölni í Safamýrinni 35-18. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins í karlaflokki síðan árið 1972. Á meðan lögðu Haukar granna sína í FH 32-28 á útivelli og enduðu með jafn mörg stig og Fram í töflunni, en Fram hafði betur í innbyrðisviðureignum liðanna í vetur. 29.4.2006 17:42
Hefur áhyggjur af fætinum Glenn Roader, stjóri Newcastle, segir að framherjinn Michael Owen hafi nokkrar áhyggjur af fætinum á sér eftir að hann spilaði um 30 mínútur með liðinu í dag og hafi kvartað yfir því að vera fjarri sínu besta. "Ég vil undirstrika að hann meiddist ekki aftur á fætinum, en hann sagðist hafa nokkrar áhyggjur," sagði Roader og ekki laust við að fari um Englendinga í dag þar sem báðir landsliðsframherjarnir kenndu sér meins. 29.4.2006 17:37
Curbishley hættur með Charlton Stjórnarformaður Charlton tilkynnti fyrir leik liðsins gegn Blackburn í dag að stjóri liðsins til langs tíma, Alan Curbishley, yrði ekki áfram með liðið á næsta tímabili og væri hættur. Curbishley hefur stýrt liðinu síðan 1991 og komist var að þeirri niðurstöðu á fundi milli hans og stjórnarinnar að best væri að hleypa nýju blóði inn í félagið með því að skipta um stjóra. 29.4.2006 17:09
Fram í góðum málum Fram er á góðri leið með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla, en liðið hefur yfir 16-9 gegn Víkingi/Fjölni í hálfleik, þar sem Jóhann Einarsson er búinn að skora 5 mörk fyrir Safamýrarliðið. FH-ingar hafa yfir 13-12 gegn grönnum sínum í Haukum og því má segja að útlitið sé gott hjá lærisveinum Guðmundar Guðmundssonar. 29.4.2006 17:00
Hugsaði tvisvar um að hætta Jose Mourinho hefur viðurkennt að hann hafi í tvígang hugsað alvarlega um að láta af störfum sem knattspyrnustjóri Chelsea í vetur. "Ég hugsaði tvisvar um að fara út og skella á eftir mér, því ég naut mín ekki í starfinu. Þetta þýðir þó ekki að ég snúi ekki aftur á næstu leiktíð," sagði hann. 29.4.2006 16:50
Portsmouth bjargaði sér frá falli Það verða Birmingham og West Brom sem fylgja Sunderland í ensku 1. deildina í vor eftir að lærisveinar Harry Redknapp hjá Portsmouth unnu glæsilegan 2-1 útisigur á Wigan í ensku úrvalsdeildinni í dag. Birmingham gerði markalaust jafntefli við Newcastle á heimavelli sínum og er fjórum stigum á eftir Portsmouth fyrir lokaumferðina. Portsmouth bjargaði sér með glæsilegum lokaspretti í deildinni þar sem liðið krækti í 20 stig í síðustu 9 leikjum sínum. 29.4.2006 16:00
FH tapaði fyrir B36 Íslandsmeistarar FH töpuðu í dag í vítakeppni fyrir færeyska liðinu B36 í Atlantic-bikarnum árlega þar sem Íslands- og Færeyjameistararnir etja kappi, en leikurinn fór fram í Þórshöfn í Færeyjum. Úrslit leiksins réðust í vítakeppni þar sem Hafnfirðingarnir fóru illa með spyrnur sínar. Staðan að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu var 2-2. 29.4.2006 15:46
Ólafur Rafnsson kjörinn forseti Ólafur Rafnsson var í dag kjörinn forseti Íþróttasambands Íslands á ársþingi ÍSÍ og tekur þar með við embættinu af Ellerti B. Schram. Ólafur hlaut 120 atkvæði í kjörinu en Sigríður Jónsdóttir varaformaður hlaut 113 atkvæði. Ólafur var áður formaður KKÍ. 29.4.2006 15:31
Óttast að Rooney missi af HM Wayne Rooney hjá Manchester United þurfti að fara meiddur af velli í leiknum gegn Chelsea í dag eftir harða tæklingu frá Paulo Ferreira og óttast menn að meiðslin gætu kostað hann þáttöku á HM í sumar. Miklar vonir hafa verið bundnar við Rooney með enska landsliðinu á HM, en ekki kemur strax í ljós hversu alvarleg meiðsli hans eru. 29.4.2006 15:09
Kom ekki í mál að fara af velli Varnarjaxlinn John Terry hjá Chelsea átti ágætan leik gegn Manchester United í dag, en meiddist nokkuð á fæti eftir samstuð í leiknum. Hann sagði ekki hafa komið til greina að fara af leikvelli þrátt fyrir meiðslin því hann vildi taka þátt í fagnaðarlátunum með félögum sínum sem tryggðu sér annan meistaratitilinn í röð. 29.4.2006 14:37
Við erum bestir Jose Mourinho sagði það frábæra tilfinningu að vera búinn að gera Chelsea að Englandsmeisturum annað árið í röð eftirað lið hans lagði Manchester United örugglega í dag, en bætti við að titilbaráttan hefði verið allt öðruvísi í ár en í fyrra. 29.4.2006 14:22
Chelsea Englandsmeistari Chelsea tryggði sér í dag annan Englandsemeistaratitil sinni í röð með 3-0 sigri á Manchester United á heimavelli sínum og kórónaði með því frábært tímabil í ensku úrvalsdeildinni. William Gallas, Joe Cole og Richardo Carvalho skoruðu mörk Lundúnaliðsins. Wayne Rooney var borinn af leikvelli meiddur á ökkla og óttast er að þáttaka hans á HM sé í hættu í kjölfarið. 29.4.2006 14:11
Síðasta mót Meistaradeildar VÍS verður haldið á Selfossi Sú breyting hefur orðið á að síðasta mót Meistaradeildar VÍS verður haldið á félagssvæði Sleipnis á Selfossi í stað Glaðheima í Gusti fimmtudaginn 4. maí og verður þá keppt í tveimur greinum gæðingaskeiði og 150 m. skeiði. Ástæða þessa breytinga er að í 150 m skeiði munu fjórir knapar keppa í einu og eru startbásar sem til eru í Gusti ekki hentugir, því var mótið flutt austur. Mótið hefst kl. 19:00 og er aðgangur ókeypis. 29.4.2006 11:23
Æskulýðsdagur Andvara Mánudaginn 1.maí n.k. verður hinn árlegi æskulýðsdagur Andvara. Lýsi hf. er styrktaraðilinn í ár, fjórða árið í röð og heitir því dagurinn Lýsisdagurinn. Haldið verður Lýsismót fyrir félagsmenn að Andvaravöllum og hefst mótið kl. 12.00. 29.4.2006 08:50
Æskan og hesturinn í Reiðhöllinni Svaðastöðum Tvær sýningar verða á Æskan og hesturinn í dag laugardag, kl. 14:00 og kl. 18:00. Um 100 krakkar úr níu hestamannafélögum á Norðurlandi taka þátt í sýningunni. Við hvetjum alla hestamenn og áhugafólk um hestamennsku að koma á sýninguna 29.4.2006 08:48
Dramatíkin í hámarki í nótt Þrír háspennuleikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og réðust úrslitin í tveimur þeirra í blálokin. LeBron James var skoraði sigurkörfu Cleveland gegn Washington og Sacramento lagði meistarana með körfu um leið og lokaflautið gall. Þá er lið Los Angeles Lakers komið í bílstjórasætið gegn Phoenix eftir sigur á heimavelli sínum í þriðja leik liðanna. 29.4.2006 05:16
Scolari hættur við Nú rétt í þessu urðu heldur betur straumhvörf í landsliðsþjálfaramálum Englendinga, en fréttavefur BBC greindi fyrir stundu frá því að Luiz Scolari hefði ákveðið að hætta við að halda áfram samningaviðræðum við enska knattspyrnusambandið eftir að hann fékk að kynnast ágangi enskra fjölmiðla í aðeins tvo daga. 28.4.2006 17:45
Sacramento - San Antonio í beinni Þriðji leikur Sacramento Kings og San Antonio Spurs í fyrstu umferð úrslitakeppni Vesturdeildar verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan tvö í nótt. San Antonio vann yfirburðasigur í fyrsta leiknum, en var heppið að vinna annan leikinn þar sem úrslitin réðust í framlengingu. Ron Artest verður á ný í liði Sacramento eftir að hafa tekið út leikbann í síðasta leik. 28.4.2006 19:45
Yfirtaka á næsta leiti? Forráðamenn Sunderland hafa nú staðfest að viðræður séu hafnar við hóp fjárfesta sem íhuga að eignast meirihluta í félaginu. Það er fyrrum leikmaður Sunderland, Niall Quinn, sem fer fyrir hópnum, en stjórnarformaður félagsins segist vera tilbúinn að selja rúmlega helmings hlut sinn ef hann fær tilboð sem hann getur sætt sig við. 28.4.2006 18:45
Meiðslamartröð Cole á enda? Bakvörðurinn Ashley Cole verður loksins í aðalliði Arsenal um helgina þegar liði sækir Sunderland heim í ensku úrvalsdeildinni, en Cole hefur verið meira og minna frá vegna meiðsla í allan vetur. Hann gerir sér vonir um að vinna sér sæti í enska landsliðinu fyrir HM í sumar og hefur verið lofað farmiða á HM ef hann sannar sig með Arsenal í síðustu leikjunum í úrvalsdeildinni. 28.4.2006 17:26
Nýr þjálfari líklega tilkynntur í næstu viku Heimildarmaður BBC hjá enska knattspyrnusambandinu segir að ef allt gangi að óskum gæti nýr landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu verið kynntur formlega strax næsta föstudag. Hann tók þó fram að enn væri nokkuð í land með samningaviðræður við Luiz Scolari, sem talinn er líklegastur til að taka við starfinu. 28.4.2006 17:04
Birgir Leifur úr leik á Ítalíu Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á áskorendamótinu í Tessati á Ítalíu eftir að hann lék annan hringinn á mótinu á tveimur höggum yfir pari líkt og í gær. Hann komst því ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu, en keppir aftur á Ítalíu eftir tvær vikur. 28.4.2006 16:59
Ólöf María úr leik á Tenerife Ólöf María Jónsdóttir úr GKG er úr leik á áskorendamótinu sem fram fer á Tenerife á Kanaríeyjum eftir að hún lék á níu höggum yfir pari á öðrum deginum á mótinu í dag og var því alls á sextán höggum yfir pari. Það er því ljóst að Ólöf kemst ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu. 28.4.2006 15:30
Kemst Bayern í sögubækurnar? Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen hafa sett stefnuna á að verða fyrsta liðið í sögu úrvalsdeildarinnar til að vinna bæði deild og bikar tvö ár í röð og á morgun gæti liðið tekið stórt skref í átt að þeim frábæra árangri með því að leggja Frankfurt í úrslitaleik bikarkeppninnar. Bayern er auk þess í lykilstöðu til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í 20. skipti og gæti í besta falli tryggt sér hann í næstu viku. 28.4.2006 14:53
Mullins og Garcia missa af úrslitaleiknum Slagsmálahundarnir Hayden Mullins hjá West Ham og Luis Garcia hjá Liverpool munu missa af úrslitaleiknum í enska bikarnum eftir að áfrýjun félaganna á rauðu spjöldin sem þeir fengu að líta í viðureign liðanna í úrvalsdeildinni á dögunum var hafnað. Stjórar liðanna sóttu strax eftir leikinn um að leikmönnunum yrðu gefin grið en því hefur verið hafnað. Báðir leikmenn taka út þriggja leikja bann fyrir átökin. 28.4.2006 13:02
Bullard í viðræðum við Fulham Miðjumaðurinn Jimmy Bullard hjá nýliðum Wigan í ensku úrvalsdeildinni er í viðræðum við Fulham um að ganga hugsanlega til liðs við Lundúnaliðið í sumar. Bullard er með ákvæði í samningi sínum við Wigan um að honum sé frjálst að fara frá félaginu ef ákveðin upphæð er boðin í hann og nú virðist sem Fulham sé tilbúið að greiða þessa óuppgefnu upphæð. 28.4.2006 13:00
Fallbaráttan í algleymingi um helgina Fallbaráttan í ensku úrvalsdeildinni verður sannarlega í sviðsljósinu um helgina, en þá koma örlög Portsmouth, Birmingham og West Brom til með verða ráðin. Ljóst er að tvö af þessum liðum munu fylgja Sunderland í 1. deildina í vor og stjórar liðanna munu eflaust tjalda öllu til að krækja sér í dýrmæt stig um helgina. 28.4.2006 12:30
Nýtt lið til keppni árið 2008 Nýtt keppnislið hefur nú verið samþykkt inn á mótaröðina í Formúlu 1 árið 2008 og verða keppnisliðin því orðin 12. Nýja liðið verður undir stjórn David Richards og ber nafnið Prodrive. Richards þessi var áður liðsstjóri BAR og Benetton, en hefur ekki verið viðriðinn Formúlu 1 í tvö ár. Tíu umsóknum um inngöngu í mótaröðina var hafnað, þar sem menn eins og Eddie Jordan, Paul Stoddard og Craig Pollock voru á meðal þeirra sem voru úti í kuldanum. 28.4.2006 11:43
Staðfestir "óformlegar viðræður" Luiz Scolari hefur staðfest að hann hafi átt í viðræðum við enska knattspyrnusambandið í sambandi við stöðu landsliðsþjálfara Englands, en bendir á að þær hafi verið óformlegar og segir stöðu sína óbreytta hjá portúgalska landsliðinu - ekkert hafi enn verið ákveðið eða undirritað. 28.4.2006 11:37
Chicago burstaði Miami Chicago Bulls gerði sér lítið fyrir og burstaði Miami á heimavelli sínum 109-90 í úrslitakeppni NBA í gærkvöldi og minnkaði muninn í 2-1 í einvíginu. Lið Miami virkaði alls ekki sannfærandi í leiknum og þarf virkilega að taka sig saman í andlitinu fyrir næsta leik í Chicago ef ekki á illa að fara. Shaquille O´Neal átti einhverja slökustu frammistöðu á ferlinum og skoraði aðeins 2 stig í fyrstu þremur leikhlutunum í leik sem sýndur var á NBA TV. 28.4.2006 10:22
Alþjóðlegir hestadagar tókust vel Talið er að á annað þúsund manns hafi sótt dagskrá Tekið til kostanna sem var fjölbreytt og stóð frá fimmtudegi til sunnudags. Hápunktur dagskrár var stórsýning á laugardagskvöldið, en þá var húsfyllir í höllinni og mikið stuð. 28.4.2006 10:09
Kennslusýning Hólaskóla Reiðkennarabraut Hólaskóla, í samvinnu við hestamannafélagið Fák, stendur fyrir kennslusýningu í reiðhöllinni í Víðidal helgina 6.-7. maí. Nemendur og kennarar skólans bjóða upp á spennandi dagskrá varðandi reiðmennsku og þjálfun frá morgni til kvölds báða dagana. Nánar auglýst síðar. 28.4.2006 10:04
Kraftaverkin gerast enn á Riverside Middlesbrough hristi annað kraftaverk fram úr erminni á heimavelli sínum Riverside í Evrópukeppni félagsliða í kvöld þegar liðið sigraði Steua frá Búkarest 4-2 og er því komið í úrslitaleik keppninnar í Eindhoven í næsta mánuði. Boro lenti 2-0 undir í leiknum og 3-0 samanlagt, en náði að skora fjögur mörk í röð og komast áfram - ekki ósvipað og í 8-liða úrslitunum. 27.4.2006 20:51
Ólöf María í vandræðum Atvinnukylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir úr Keili náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum á Tenerife á Kanaríeyjum í dag þegar hún lauk keppni á 79 höggum eða 7 höggum yfir pari. Mótið er liður í evrópsku mótaröðinni í golfi. Ólöf lék þokkalega á fyrstu níu holunum en náði sér alls ekki á strik á þeim síðari. 27.4.2006 20:30
Boro í vondum málum Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough er í mjög vondum málum í síðari leik sínum við Steua Búkarest í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða. Liðið tapaði fyrri leiknum 1-0 á útvelli og þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leiknum á Riverside, hafa gestirnir yfir 2-1. Mörk Steua komu á 16. og 24. mínútu leiksins, en Massimo Maccarone minnkaði muninn fyrir heimamenn á 33. mínútu. 27.4.2006 19:53
Börnin grétu þegar ég datt út úr liðinu Þýski markvörðurinn Jens Lehmann þakkar sonum sínum tveimur að stórum hluta bætta frammistöðu sína milli stanganna hjá Arsenal í vetur. Lehmann hefur verið ótrúlegur með liðinu í meistaradeildinni en ekki er langt síðan hann missti sæti sitt í byrjunarliðinu og sagðist þá hafa þurft að taka góða naflaskoðun. 27.4.2006 19:27
Birgir Leifur á einu yfir pari Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék fyrsta hringinn á áskorendamótinu í Tessali á Ítalíu á einu höggi yfir pari eða 72 höggum í dag. Birgir á því ágæta möguleika á að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu á morgun. 27.4.2006 18:45
Vill ekki lesa um framtíð sína í blöðunum Stóri-Sam Allardyce segist enn vona að hann sé inni í myndinni sem næsti landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, en segist vonast til þess að knattspyrnusambandið segi honum af eða á undir fjögur augu svo hann þurfi ekki að lesa um það í blöðunum áður en hann fær að vita það sjálfur. 27.4.2006 18:22
Henry leikmaður ársins í þriðja sinn Franski snillingurinn Thierry Henry hjá Arsenal hefur verið útnefndur leikmaður ársins af samtökum íþróttafréttamanna á Englandi í þriðja sinn á ferlinum. Enginn leikmaður hefur áður hlotið verðlaunin oftar en tvisvar á ferlinum í 59 ára sögu samtakanna. 27.4.2006 18:06
Enska liðið verður lyfjaprófað fyrir HM Nú hefur verið staðfest að allir leikmenn enska landsliðsins í knattspyrnu muni gangast undir lyfjapróf fyrir HM í Þýskalandi í sumar. Miklar deilur hafa staðið milli forráðamanna samtaka gegn lyfjanotkun og enska knattspyrnusambandsins fram að þessu, um hvernig standa eigi að lyfjamálum. Nú hafa stríðandi aðilar hinsvegar komist að niðurstöðu í málinu. 27.4.2006 17:17
Treystir á framherja sína í kvöld Steve McClaren segist treysta á að framherjar sínir hjá Middlesbrough nái að endurtaka leikinn frá því í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða um daginn og skjóti liðinu í úrslitaleikinn í keppninni. Boro spilar í kvöld síðari leik sinn við Steua Búkarest í undanúrslitunum og hafa gestirnir frá Rúmeníu eitt mark í forskot úr fyrri leiknum. 27.4.2006 16:13
Owen ætlar að spila á laugardaginn Framherjinn Michael Owen stefnir á að verða í liði Newcastle á laugardaginn þegar það mætir Birmingham í næst síðasta leik sínum í deildinni í vor. Owen hefur náð að æfa vel í vikunni án þess að kenna sér meins í ökklanum og reynir nú að sanna sig fyrir Sven-Göran Eriksson á lokasprettinu til að vinna sér sæti í enska landsliðinu. 27.4.2006 15:38
Viðræður við Scolari vekja hörð viðbrögð Sú staðreynd að enska knattspyrnusambandið hefur nú staðfest að það hafi boðið Luiz Scolari stöðu landsliðsþjálfara í knattspyrnu hefur vakið mikil viðbrögð í Englandi eins og búast mátti við. Nokkrir af knattspyrjustjórunum í ensku úrvalsdeildinni hafa nú tjáð sig um hugsanlega ráðningu Brasilíumannsins. 27.4.2006 15:18