Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
KR í úrslitin KR-ingar lögðu Fjölni 87-80 í fyrri undanúrslitaleik Powerade-bikarsins í körfubolta í Laugardalshöllinni í kvöld og spila því til úrslita á morgun. Seinni leikurinn er viðureign Keflavíkur og Njarðvíkur, en sá leikur hefst nú klukkan 20:30. 18.11.2005 20:15
Tvö Íslandsmet féllu í dag Íslandsmótið í sundi stendur nú sem hæst í Sundhöllinni í Laugardal og eru tvö Íslandsmet þegar fallin. Örn Arnarson úr SH bætti metið í 50 metra flugsundi um 9/100 úr sekúndu þegar hann kom í mark á 24 sekúndum sléttum. Þá bætti Jakob Jóhann Sveinsson metið í 50 metra bringusundi um 1/10 úr sekúndu þegar hann synti á 28,37 sekúndum. 18.11.2005 18:30
Samuel Eto´o á ekki von á góðu í Madrid Leikur ársins í spænska boltanum fer fram á morgun, en þá mætast stórliðin Real Madrid og Barcelona í Madrid. Nokkuð hefur verið um að leikmenn sendi hver öðrum tóninn fyrir leikinn eins og gengur, en það verður Samuel Eto´o hjá Barcelona sem verður skotmark 80.000 stuðningsmanna Madrid á morgun, eftir ummælin sem hann lét falla þegar Barcelona varð meistari á síðustu leiktíð. 18.11.2005 17:00
Framtíð Monza í hættu Svo gæti farið að ítalíukappaksturinn í Formúlu 1 fari ekki fram á Monza-brautinni á næsta keppnistímabili, því dómari hefur úrskurðað að ekki verði hægt að halda mót þar í framtíðinni nema hægt verði að draga verulega úr hávaða frá brautinni. Þetta þykir mótshöldurum áfall og segjast þeir efast um að hægt verði að ganga að kröfum íbúa. Málinu verður áfrýjað fljótlega. 18.11.2005 16:15
Furyk tók forystu í Japan í nótt Jim Furyk var heldur betur í stuði á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fer í Japan um þessar mundir og er kominn í efsta sætið á mótinu. Furyk er sem stendur á níu höggum undir pari eftir að hafa fengið sjö fugla á öðrum hringnum í nótt og kláraði á sex undir pari. Hann er því einu höggi á undan þeim Tiger Woods og David Duval, sem eru samhliða í öðru sætinu. 18.11.2005 15:15
Mandaric vill einn sigur í næstu fjórum leikjum Milan Mandaric, stjórnarformaður Portsmouth, segir að liðið verði að vinna einn af næstu fjórum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Þetta væru undir venjulegum kringumstæðum ekki harðar kröfur, en þegar málið er skoðað nánar er ljóst að Alain Perrin knattspyrnustjóri liðsins situr í heitasta stólnum í deildinni. 18.11.2005 15:00
Enn tapar Atlanta Þrír leikir voru á dagská í NBA deildinni í nótt. Atlanta Hawks tapaði áttunda leiknum í röð þegar liðið lá fyrir Dallas á útivelli 87-78, Minnesota lagði Washington 109-98 og San Antonio lagði granna sína í Houston 86-80. 18.11.2005 14:30
Kominn aftur á gjörgæslu Knattspyrnuhetjan George Best er kominn aftur á gjörgæsludeild á Crowell sjúkrahúsið í Lundúnum, eftir að í ljós kom að hann er kominn með nýja alvarlega sýkingu. Best hafði verið á góðum batavegi síðustu tvær vikur, en nú hafa menn miklar áhyggjur af því að honum hefur slegið niður mjög skyndilega. 18.11.2005 14:15
Cristiano Ronaldo samdi til ársins 2010 Portúgalski kantmaðurinn Cristiano Ronaldo undirritaði í dag framlengingu á samningi sínum við Manchester United sem gildir til ársins 2010. Ronaldo, sem er tvítugur, kom til United árið 2003 frá Sporting Lissabon fyrir 12 milljónir punda og er orðin ein skærasta stjarnan í enska boltanum. 18.11.2005 13:30
Glæsilegur Evrópusigur í gær, grannaslagur í kvöld Það er nóg að gera hjá karlaliði Keflavíkur í körfuboltanum þessa dagana. Í gærkvöld vann liðið frækinn sigur á BK Riga frá Lettlandi í Evrópukeppninni 121-90 og tryggði sér þar með sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Ekki tekur auðveldara verkefni við í kvöld, þegar Keflvíkingar mæta grönnum sínum í Njarðvík í Powerade bikarnum. 18.11.2005 13:00
Roy Keane hættur hjá Manchester United Fyrirliði Manchester United til margra ára, hinn írski Roy Keane, hefur tilkynnt að hann sé hættur að leika fyrir félagið, eftir 12 og hálft ár. 18.11.2005 12:00
Ég grenja ekki þó ég tapi Jose Mourinho segir að Chelsea muni tvímannalaust verja titil sinn í ensku úrvalsdeildinni í vor og blæs á orð kollega síns hjá Arsenal, sem sagði að toppbaráttan hefði opnast upp á gátt eftir að Chelsea tapaði fyrir Manchester United. 17.11.2005 21:00
Meiddist á öxl og verður frá í nokkrar vikur Landsliðsmaðurinn Gylfi Einarsson sem leikur með Leeds United í ensku 1. deildinni, datt illa í leik með varaliði félagsins í gærkvöldi og talið er að hann hafi farið úr axlarlið. Líklegt þykir að Gylfi verði frá í 3-4 vikur vegna þessa, en hann stefnir þó á að koma fyrr til baka. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. 17.11.2005 20:00
Neitar ásökunum um peningagræðgi Þýski knattspyrnumaðurinn Michael Ballack brást reiður við þegar fjölmiðlar í Þýskalandi héldu því fram að ástæða þess að hann vildi ekki undirrita áframhaldandi samning við Bayern væri hrein og klár peningagræðgi. 17.11.2005 19:00
Hótar hörðum refsingum Sepp Blatter, forseti FIFA, segir að opinber rannsókn sé hafin á ólátunum eftir leik Svisslendinga og Tyrkja í Istanbul í gær og segir að stefnt sé að því að niðurstaða liggi fyrir þann 9. desember. Blatter hefur hótað því að beita þá sem að málinu koma hörðum refsingum, en Tyrkirnir saka hann um hlutdrægni vegna þjóðernis síns. 17.11.2005 18:00
Gary Neville snýr aftur í kvöld Gary Neville mun í kvöld leika sinn fyrsta leik síðan í ágúst, þegar hann leikur með varaliði Manchester United gegn West Brom. Neville meiddist á nára í leik gegn Villareal í Meistaradeildinni, en er nú óðum að braggast. Þá er fyrirliðinn Roy Keane farinn að æfa á ný eftir að hafa verið meiddur lengi, en nokkuð er í að hann geti byrjað að spila. 17.11.2005 17:00
Hefur ekki áhyggjur af miklu álagi Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að hann hafi ekki áhyggjur af því auka álagi sem fylgir þáttöku Liverpool í heimsmeistaramóti félagsliða sem fram fer í Japan dagana 15.-18 desember næstkomandi. 17.11.2005 16:00
Versta frammistaða sem ég hef séð John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, sagði að frammistaða leikmanna sinna í tapinu gegn Kýpur í gær, hefði verið sú versta sem hann hefði séð á ævi sinni. Wales tapaði 1-0, en þetta var vináttuleikur þjóðanna. 17.11.2005 15:00
Hoyzer dómari í fangelsi í á þriðja ár Knattspyrnudómarinn Robert Hoyzer var í dag dæmdur í tveggja ára og fimm mánaða fangelsi fyrir að taka við mútugreiðslum í níu leikjum sem hann dæmdi á síðasta ári. 17.11.2005 14:30
David Duval í forystu í Japan Kylfingurinn David Duval er mjög óvænt í forystu á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fer í Japan um þessar mundir. Duval lék fyrsta hringinn í gær á 64 höggum, eða sex höggum undir pari. Hann hefur eins höggs forystu á Tiger Woods, sem hefur titil að verja á mótinu. 17.11.2005 13:45
Landsliðshópurinn valinn í dag Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari hefur gert fjórar breytingar á leikmannahóp sínum sem keppir þrjá æfingaleiki við Norðmenn hérlendis dagana 25.-28 nóvember, en í dag tilkynnti hann 16 manna hóp sinn. 17.11.2005 12:45
Ásthildur Helgadóttir á leið í Kópavoginn Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur boðað til blaðamannafundar í íþróttahúsinu í Smáranum nú klukkan fjögur síðdegis þar sem tilkynnt verður að besta knattspyrnukona landsins, Ásthildur Helgadóttir, muni ganga í raðir félagsins. Ásthildur hefur spilað sem atvinnumaður í Svíþjóð undanfarið, en hefur hug á að ljúka ferlinum hér heima. 17.11.2005 12:45
Undirgöngin loguðu í slagsmálum Landslið Tyrkja og Svisslendinga eiga ekki von á góðu frá Alþjóða Knattspyrnusambandinu eftir að uppúr sauð milli leikmanna og starfsmanna þegar þeir gengu af velli eftir viðureign liðanna í gær. 17.11.2005 10:45
Guðjón Valur skoraði 12 í sigurleik Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson heldur uppteknum hætti með liði sínu Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik, en Guðjón skoraði 12 mörk í sigri liðsins á Willemshaven í gærkvöld 28-21. 17.11.2005 10:15
Skrópaði í herþjónustu Þær fregnir hafa borist frá Bandaríkjunum að körfuboltamaðurinn Vlade Divac, sem nýlega lagði skóna á hilluna og er farinn að starfa sem útsendari fyrir LA Lakers í Evrópu, hafi skrópað í herþjónustu í heimalandi sínu Serbíu og Svartfjallalandi og hefur herinn nú lagt fram kæru á hendur honum. 17.11.2005 06:56
Bryant og Iverson skoruðu 42 stig Átta leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Kobe Bryant hjá LA Lakers og Allen Iverson hjá Philadelphia voru í miklu stuði og leiddu lið sín til sigurs með því að skora 42 stig. 17.11.2005 06:45
Boston - Seattle í beinni Leikur Boston Celtics og Seattle Supersonics verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt klukkan hálf eitt. Viðureign þessara liða verður athyglisverð í ljósi þess að bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar það sem af er og vilja eflaust hrista af sér slenið og sigra í kvöld. 16.11.2005 22:56
Valur á toppinn Valsmenn skelltu sér á toppinn í DHL-deild karla í kvöld með góðum sigri á Fram í Laugardalshöllinni 27-24, eftir að staðan hafði verið 12-13 í hálfleik. ÍBV og KA skyldu jöfn 32-32 í Eyjum, en leik Hauka og Stjörnunnar lauk einnig með jafntefli, 28-28. 16.11.2005 21:30
Tékkar og Spánverjar áfram Tékkar tryggðu sér farseðilinn í sína fyrstu heimsmeistarakeppni í kvöld þegar þeir lögðu Norðmenn með einu marki gegn engu og samanlagt 2-0. Það var Tomas Rosicky sem skoraði mark Tékka. Þá komust Spánverjar auðveldlega áfram eftir 1-1 jafntefli við Slóvaka í kvöld og samtals 6-2. 16.11.2005 21:15
Svisslendingar áfram Svisslendingar eru komnir á HM í Þýskalandi á næsta ári, þrátt fyrir 4-2 tap í Tyrklandi í kvöld. Fyrri leikurinn endaði með sigri Svisslendinga 2-0 og því fara þeir áfram á mörkum skoruðum á útivelli. Tuncay Sanli skoraði þrennu fyrir Tyrki í leiknum, en það dugði ekki til og því sitja þeir eftir með sárt ennið í þetta skiptið. 16.11.2005 20:30
Læt ekki teyma mig út í að spreða peningum Arsene Wenger, stjóri Arsenal, ætlar ekki að taka upp budduna í janúar og spreða peningum í leikmenn nema einhver sérstakur leikmaður verði á lausu. Því er haldið fram að eitthvað sé til af peningum í bauknum hjá Arsenal þó félagið tali um að halda að sér höndum, en nöfn þeirra Dirk Kuyt og Fernando Torres hafa verið nefnd í því sambandi. 16.11.2005 20:00
Held að Henry fari frá Arsenal Ruud Gullit, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea og Newcastle, telur að Thierry Henry muni líklega yfirgefa Arsenal fljótlega, úr því að hann hefur neitað að framlengja samning sinn við enska félagið. Gullit telur að Barcelona væri kjörið lið fyrir Frakkann. 16.11.2005 18:54
Valur tekur á móti Fram Það verður sannkallaður toppslagur í Laugardalshöllinni í DHL-deild karla í kvöld, þegar Valur tekur á móti Fram í Laugardalshöllinni. Fram er í toppsæti deildarinnar með 14 stig, en Valur kemur næst með 12 stig. ÍBV tekur á móti KA í Eyjum og þá leika Haukar og Stjarnan á Ásvöllum klukkan 20, en hinir leikirnir hefjast klukkan 19:15. 16.11.2005 18:45
Trinidad og Tobago á HM í fyrsta sinn Lið Trinidad og Tobago komst í dag á HM í fyrsta skipti í sögunni þegar liðið lagði Bahrein 1-0 á útivelli og samtals 2-1. Trinidad verður því minnsta þjóðin sem tekur þátt í lokakeppni HM í Þýskalandi á næsta ári, því aðeins um ein milljón manna búa í Trinidad og Tobago. 16.11.2005 18:30
Ronaldo, Baptista og Zidane klárir gegn Barcelona Real Madrid er nú óðum að fá stjörnur sínar til baka úr meiðslum fyrir leik ársins í spænska boltanum á laugardaginn, en þá mætast erkifjendurnir Barcelona og Real Madrid í uppgjöri stórliðanna á Spáni. 16.11.2005 18:00
Við spiluðum eins og kerlingar Age Hareide, þjálfari Norðmanna var ekki sáttur við frammistöðu sinna manna gegn Tékkum í fyrri leik liðanna um laust sæti á HM í Þýskalandi næsta sumar, en síðari leikurinn fer fram í Tékklandi nú í kvöld. Hareide sagði að sínir menn hefðu spilað eins og kerlingar, en það fór fyrir brjóstið á nokkrum löndum hans. 16.11.2005 17:45
Sektaður um 1000 pund fyrir að hrækja á barn Vandræðagemlingurinn El Hadji Diouf hjá Bolton var í dag sektaður um 1000 pund fyrir að hrækja á ellefu ára gamalt barn eftir leik Bolton og Middlesbrough í nóvember á síðasta ári. Líklegt þótti að Diouf yrði dæmdur í bann vegna atviksins, en hann slapp með skrekkinn. Diouf á yfir höfði sér dóm vegna ölvunaraksturs á dögunum, en hann hefur átt mjög erfitt með að hegða sér vel undanfarið. 16.11.2005 17:30
Sigur hjá Ólafi og félögum Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar í spænsku úrvalsdeildinni, sigraði Arrate 24-20 í gærkvöld og því heldur liðið toppsæti deildarinnar ásamt Barcelona. Ólafur lét lítið fyrir sér fara í leiknum og náði ekki að skora. Börsungar sigruðu Bidasoa með níu mörkum 38-29 og Barcelona og Ciudad eru því efst og jöfn með 16 stig eftir 9 leiki. 16.11.2005 17:21
Alonso verður næsti Schumacher Flavio Briatore, stjóri Renault-liðsins í formúlu 1, segir að Fernando Alonso eigi eftir að feta í fótspor Michael Schumacher og verða sigursælasti ökumaðurinn formúlu 1. 16.11.2005 17:15
Dregið í 8-liða úrslit í dag Í dag varð ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í handknattleik. Í karlaflokki mætast Fram og Fylkir, Þór og Stjarnan, HK og Haukar og svo FH og ÍBV. Leikirnir fara fram 6. og 7. desember. Í kvennaflokki mætast Valur og Fram, FH og Haukar, HK og ÍBV og svo bikarmeistarar Stjörnunar og Grótta. Kvennaleikirnir fara fram um miðjan janúar. 16.11.2005 17:00
Pistons með áttunda sigurinn í röð Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Detroit Pistons unnu áttunda leik sinn í röð í upphafi leiktíðar þegar liðið tók á móti Boston Celtics. 16.11.2005 16:30
Allt annað en Madrid yrði skref aftur á bak "Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, hefur látið hafa það eftir sér að úr því útlit sé fyrir að Michael Ballack sé að fara frá Bayern, sé Real Madrid eini raunhæfi kosturinn fyrir hann því annarsstaðar nái hann ekki að bæta sig sem knattspyrnumaður. 16.11.2005 15:30
Ástralir tryggðu sér sæti á HM 2006 Ástralir tryggðu sér í dag sæti á HM í Þýskalandi eftir frækinn sigur á Ungverjum í vítaspyrnukeppni í Sydney. Marco Breciano skoraði mark Ástrala á 35. mínútu og því var staðan jöfn 1-1 samanlagt, en Ástralir höfðu betur í vítakeppninni. 16.11.2005 14:45
Þór sigraði KR Þórsarar unnu góðan sigur á KR í Iceland-Express deildinni í körfubolta karla í kvöld 62-57, en leiknum hafði áður verið frestað vegna leka í þaki íþróttahússins fyrir norðan. 15.11.2005 21:30
Dallas - Denver í beinni Leikur Dallas Mavericks og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu klukkan 01:30 í nótt á NBA TV. Þar verður athyglisvert að fylgjast með einvígi þeirra Dirk Nowitzki hjá Dallas og Carmelo Anthony hjá Denver. 15.11.2005 20:00