Fleiri fréttir

Missti félagslegar bætur við að fá skaðabætur

Sextán ára gömul dönsk stúlka búsett í Esbjerg er nú í þeirri sérkennilegu stöðu að hafa misst félagslegar bætur sínar sökum þess að hún vann nýlega dómsmál vegna grófrar kynferðislegrar áreitni í sinn garð.

Ólöglegar handtökur

Fjöldahandtökur lögreglunnar í Kaupmannahöfn vegna mótmæla á loftslagsráðstefnunni fyrir ári voru ólögmætar.

Lúkasjenkó sakaður um kosningasvindl

Síðasti einræðisherra Evrópu tryggði sér völdin í Hvíta-Rússlandi fjórða kjörtímabilið í röð með kosningasigri, sem fáir telja þó marktækan.

Norður-Kórea hætti við árás

Norður-Kóreumenn ætla ekki að svara heræfingu suður-kóreska hersins á eyjunni Yeonpyeong í gær. Áður höfðu yfirvöld í Norður-Kóreu hótað að bregðast við æfingunni af hörku.

Handteknir vegna gruns um hryðjuverk

Tólf menn voru handteknir í Bretlandi snemma morguns í gær. Mennirnir eru grunaðir um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásir í landinu.

Búa sig undir afvopnunarátök

Barack Obama Bandaríkjaforseti reyndi ákaft að afla stuðnings meðal þingmanna við nýjan afvopnunarsamning við Rússa, sem á að taka við af START-samningnum frá 1991.

Malmömaðurinn grunaður um fleiri morð

Byssumaðurinn sem hefur verið ákærður fyrir eitt morð og fimm morðtilræði í Malmö í Svíþjóð er nú grunaður um tvö morð og fimm morðtilræði til viðbótar.

Íhugar að náða Billy the Kid

Ríkisstjórinn í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum hefur til skoðunar að náða útlagann Billy the Kid fyrir einhver af þeim óhæfuverkum sem hann framdi. Hann var útlagi og nautgripaþjófur sem sagt er að hafi skotið 21 mann til bana.

Ellefu hengdir í einu í Íran

Ellefu súnní múslimar sem voru sakaðir um hryðjuverk voru hengdir í Íran í morgun. Mennirnir tilheyrðu samtökunum Jundallah (Hermenn guðs).

Hin skelfilega ófærð í Bretlandi

Bretland er nánast óstarfhæft vegna snjóa. Flugvellir eru lokaðir, lestar ganga ekki og bílar eru fastir út um allar trissur. Eins og sjá má á skelfilegri myndinni sem fylgir þessari frétt, er þetta ekki að ástæðulausu.

Varaforsetinn vill klófesta Assange

Joe Biden varaforseti Bandaríkjanna hefur staðfest að dómsmálaráðuneytið sé að leita leiða til þess að kæra Julian Assange stofnanda WikiLeaks.

Var hann að friða Kínverja?

Trond Giske viðskiptaráðherra Noregs var ekki viðstaddur þegar friðarverðlaun Nóbels voru afhent íOsló á föstudaginn.

Hugnaðist ekki varnarsamstarf Norðurlanda

Sendiherra Bandaríkjanna í Noregi varð illa við þegar Norðmenn tilkynntu um aukið samstarf við Svía og Finna í varnarmálum árið 2008. Wikileaks hefur birt pósta frá sendiherranum til utanríkisráðuneytisins í Washington.

Sérsveitarmenn skreyttu jólatré fyrir skæruliða

Kólombíski herinn hefur fundið upp á nýstárlegri aðferð við að draga úr baráttuþreki skæruliða FARC sem hafast við í frumskógum landsins. Sérsveit hersins fór með Blackhawk þyrlu djúpt inn á yfirráðasvæði skæruliðanna og skreytti 25 metra hátt jólatré með 2000 perum.

Konunglegt brúðkaup: Fyrstu minjagripirnir í sölu

Þrátt fyrir að enn séu fjórir mánuðir þangað til Vilhjálmur Bretaprins gengur upp að altarinu til að kvænast Kate Middleton eru fyrstu minjagripirnir tengdir brúðkaupinu komnir í sölu.

Leki kom að skipi sem flytur kjarnaúrgang

Danska skipið Puma var að koma frá Murmansk þegar leki kom að því en skipið hafði flutt kjarnorkuúrgang frá Serbíu til rússnesku hafnarborgarinnar. Áhöfninni tókst ásamt norsku strandgæslunni að stöðva lekann og sigla skipinu til Hammerfest þar sem það fer í slipp.

Hófu heræfingar í morgun í Kóreu

Suður kóreski herinn hóf í morgun heræfingu á Jongpjong eyju, sem er nærri landamærunum að Norður Kóreu. Þetta staðfestir varnarmálaráðuneyti landsins en Norður-Kóreumenn hafa hótað aðgerðum, fari æfingin fram. Fjórir létust á dögunum þegar norðanmenn hófu stórskotaliðsárás á eyju sem lýtur yfirráðum sunnanmanna þegar önnur heræfing var haldin og er ástandið á svæðinu afar eldfimt.

Upprættu barnaklámhring í Austurríki

Rúmlega hundrað Austurríkismenn eru í haldi grunaðir um aðild að barnaklámhring sem upprættur var um helgina í viðamikilli aðgerð. Húsleitir voru gerðar vítt og breytt um landið og eru hinir grunuðu á aldrinum 18 til 70 ára.

Óttast að 48 hafi farist þegar bátur sökk

Forsætisráðherra Ástralíu Julia Gillard, segir að allt að 48 hafi farist í síðustu viku þegar flóttamannabátur sökk í slæmu veðri undan ströndum Jólaeyju, sem lýtur yfirráðum Ástrala.

Styrktir vegna málskostnaðar

Bandaríska leyniþjónustan CIA samþykkti að greiða að minnsta kosti fimm milljónir dala, eða hálfan milljarð króna, í lögfræðikostnað fyrir tvo sálfræðinga sem skipulögðu og tóku sjálfir þátt í vatnspyntingum á föngum.

Áfram kuldakast í Evrópu

Kuldakastið í Evrópu heldur áfram að hafa áhrif á ferðaáætlanir. Þúsundir manna eru strandaglóðar á flugvöllum, bara á flugvellinum í Frankfurt voru 2500 ferðalangar fastir í gær og í nótt. Heathrow og Gatwick voru lokaðir í gær en opnuðu aftur í morgun. Nokkrar seinkannir urðu á flugi frá Keflavík í nótt og í morgun en það virðast vera að komast í lag.

Miklar tafir á samgöngum á Bretlandi í dag

Það má segja að algjör umferðaröngþveiti hafi verið á Bretlandi í dag. Bæði Heathrowflugvelli og Gatwickflugvelli var lokað. Gatwick hefur nú verið opnaður aftur en mörgum flugferðum hefur engu að síður verið aflýst. Á Norður Írlandi, Walew, Skotlandi og í Englandi hefur röskun orðið á samgöngum, bæði flugsamgöngum, lestarsamgöngum og umferðaröngþveiti hefur myndast á götum.

Merkel í heimsókn í Afganistan

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er komin til Afganistan en þar er hún í óvæntri heimsókn. Merkel lenti í borginni Kunduz í Afganistan í dag þar sem Þýskaland hefur herstöð. Þar var hún ásamt varnarmálaráðherra

Svartfjallaland í hópinn

Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu í gær að veita Svartfjallalandi stöðu umsóknarlands, en búast má við að fjögur til fimm ár líði áður en aðildarviðræðum getur lokið með aðildarsamningi.

Og mun ég hvergi fara

Bandarískur undirofursti hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi og rekinn úr hernum vegna þess að hann trúir því ekki að Barack Obama sé innfæddur bandarískur ríkisborgari.

Hafið skilaði henni

Tvöþúsund ára gömul stytta af rómverskri konu fannst eftir að brimalda braut úr bergvegg rétt við hafnarborgina Ashkelon í Ísrael. Ashkelon er rétt sunnan við Tel Aviv.

Hárið alelda í partíbaði hjá Puff Daddy

Rappmógúllinn P Diddy hélt á dögunum partý á Manhattan sem er ekki í frásögur færandi. Fönguleg fljóð voru boðin og fæstar þeirra voru kappklæddar. Ein skellti sér meira að segja í bað í miðri stofunni og hafði það huggulegt umkringd kertaljósum. Hún hefði þó betur sleppt rómantísku lýsingunni því eins og sjá má á myndbandinu stóð hárið á henni allt í einu í ljósum logum.

Uppnám í ísraelsku kjarnorkuveri

Ísraelski flugherinn skaut í gær niður eitthvað flugfar sem flaug yfir Dimona kjarnorkuverið í Negev eyðimörkinni. Ekki er enn vitað hvað þar var á ferðinni.

Kista forsetamorðingja seld

Líkkista mannsins sem myrti John F. Kennedy forseta Bandaríkjanna hefur verið seld á uppboði fyrir 90 þúsund dollara. Það gerir um 10,5 milljónir íslenskra króna.

Ráðagóðar löggur

Lögreglumenn í bænum Swansea í Wales voru kvaddir til þegar fullorðinn maður tók sér stöðu á þakbrún fimm hæða verslunarhúss og hugðist svipta sig lífi með því að stökkva framaf.

Mótmæla palestinsku sendiráði í Osló

Stjórnvöld í Ísrael hafa mótmælt því að skrifstofa palestínumanna í Osló skuli hafa fengið viðurkenningu sem sendiráð. Í mótmælunum segir meðal annars að þetta ýti undir þær ranghugmyndir palestínumanna að þeir geti náð pólitískum ávinningi á sama tíma og þeir neiti að eiga friðarviðræður við Ísrael.

Meint ástkona Pútíns verður forsíðustúlka Vogue

Nýráðinn ritstjóri rússnesku útgáfu tískuritsins Vogue ætlar að hefja ferilinn með stæl. Forsíðufyrirsæta fyrsta heftis ársins 2011 er Alina Kabajeva en hún er sögð ástkona forsætisráðherra Rússlands, Vladimírs Pútín.

Assange segist fórnarlamb rógsherferðar

Julian Assange stofnandi Wikileaks segir að hann sé fórnarlamb rógsherferðar og að ákæran í Svíþjóð fyrir kynlífsafbrot sé liður í þeirri herferð.

Rótaði í rusli ráðherrans

Danski þjóðarflokkurinn hefur hvatt þingmenn á þjóðarþinginu þar í landi til að senda heimilissorp sitt á skrifstofur Ekstrablaðsins.

Assange sett ströng skilyrði um ferðir

Mikil fagnaðarlæti brutust út meðal stuðningsmanna Julians Assange, stofnanda Wikileaks, þegar dómari í London kvað upp þann úrskurð að honum skyldi sleppt gegn tryggingu.

Írar sæta harðri gagnrýni vegna fóstureyðinga

Stjórnarskrárbann við fóstureyðingum á Írlandi brýtur í bága við réttindi þungaðra kvenna. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þessari niðurstöðu í gær og gagnrýnir írsk stjórnvöld harðlega.

Staða al Kaída aldrei veikari

Aukinn kraftur í stríðsrekstri Bandaríkjamanna í Afganistan hefur skilað sér í því að styrkur al Kaída er minni nú en nokkru sinni síðan stríðið hófst í árslok 2001. Þetta er meðal helstu niðurstaðna matsskýrslu Bandaríkjastjórnar sem kynnt var í gær.

Fátækum fækki um 22 þúsund

Dönsk stjórnvöld hafa sett sér það takmark að fækka fátækum þar í landi um 22.000 á næsta áratug.

Sjá næstu 50 fréttir