Fleiri fréttir Fjölskylda Osama kærir vegna áreitis kennara Foreldrar ungs drengs í New York hafa ákveðið að kæra skólakerfið, en þau vilja meina að kennarar skólans hafi lagt hann í stöðugt einelti vegna nafns hans, en strákurinn heitir Osama al-Najjar. Eru foreldrarnir reiðir vegna þess að skólayfirvöld hafi ekkert aðhafst í málinu. 12.6.2007 17:43 Ekkert saknæmt við dauða þjálfara Pakistan Bob Woolmer, landsliðsþjálfari Pakistana í krikket, var ekki myrtur líkt og haldið var fram þegar rannsókn á dauða hans hófst. 12.6.2007 17:16 Róm endurreist Róm til forna hefur fengið endurnýjun lífdaga með tölvutækni. Í nýútkomnu tölvuforriti er að finna nákvæma, stafræna endurgerð borgarinnar eins og hún leit út árið 320. 12.6.2007 17:04 Sýrlendingar tilbúnir til friðarviðræðna við Ísrael Sýrlendingar segjast reiðubúnir til friðarviðræðna við Ísrael, en það verði að vera án nokkurra fyrirfram skilyrða. Ahmad Arnous, utanríkisráðherra Sýrlands, sagði á fundi með fréttamönnum í dag að þeir væru reiðubúnir til að tala við Ísraela á grundvelli Madridar ályktunarinnar. Í henni er kveðið á um að Ísraelar skili herteknu landi fyrir friðarsamninga. 12.6.2007 16:41 Hús hrundi í Lundúnum 12.6.2007 16:18
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölskylda Osama kærir vegna áreitis kennara Foreldrar ungs drengs í New York hafa ákveðið að kæra skólakerfið, en þau vilja meina að kennarar skólans hafi lagt hann í stöðugt einelti vegna nafns hans, en strákurinn heitir Osama al-Najjar. Eru foreldrarnir reiðir vegna þess að skólayfirvöld hafi ekkert aðhafst í málinu. 12.6.2007 17:43
Ekkert saknæmt við dauða þjálfara Pakistan Bob Woolmer, landsliðsþjálfari Pakistana í krikket, var ekki myrtur líkt og haldið var fram þegar rannsókn á dauða hans hófst. 12.6.2007 17:16
Róm endurreist Róm til forna hefur fengið endurnýjun lífdaga með tölvutækni. Í nýútkomnu tölvuforriti er að finna nákvæma, stafræna endurgerð borgarinnar eins og hún leit út árið 320. 12.6.2007 17:04
Sýrlendingar tilbúnir til friðarviðræðna við Ísrael Sýrlendingar segjast reiðubúnir til friðarviðræðna við Ísrael, en það verði að vera án nokkurra fyrirfram skilyrða. Ahmad Arnous, utanríkisráðherra Sýrlands, sagði á fundi með fréttamönnum í dag að þeir væru reiðubúnir til að tala við Ísraela á grundvelli Madridar ályktunarinnar. Í henni er kveðið á um að Ísraelar skili herteknu landi fyrir friðarsamninga. 12.6.2007 16:41
Hent fram af 15 hæða húsi Heiftin í átökum Palestínumanna á Gaza ströndinni er slík að þegar nokkrir Hamas-liðar náðu einum lífvarða Abbasar forseta á sitt vald fóru þeir með hann upp á þak á fimmtán hæða húsi og hentu honum framaf. Liðsmenn Hamas og Fatah láta sér ekki lengur nægja að ráðast á vígi hvers annars heldur eru farnir að sprengja upp heimilin líka. 12.6.2007 14:43
Viðgerð hafin á Alþjóðageimstöðinni Geimskutlan Atlantis er komin á leiðarenda sinn, Alþjóðageimstöðina. Ætlunarverk áhafnarinnar er að halda áfram viðgerðum á stöðinni og hófust þær í dag. Fyrsta verkefnið er að koma nýjum sólarrafhlöðuvængjum í gagnið. 12.6.2007 14:25
Palestínska heimastjórnin á bláþræði Líf palestínsku heimastjórnarinnar hangir á bláþræði eftir heiftarlega innbyrðis bardaga í morgun . Hamas samtökin settu þá Fatah úrslitakosti um að rýma samstundis höfuðstöðvar sínar á Gaza ströndinni. Ellegar yrði gerð árás á þær. Sú árás var gerð skömmu síðar. Ekki er vitað um mannfall en tugir manna hafa fallið í bardögum undanfarna daga. 12.6.2007 14:13
Komu í veg fyrir vantrauststillögu Öldungadeildaþingmenn repúblikana komu í gærkvöldi í veg fyrir að vantrauststilltaga á hendur Alberto Gonzales, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, yrði borin upp á þingi. Ráðherann hefur legið undir ámæli síðan í fyrra þegar hann rak átta ríkissaksóknara. Demókratar segja það hafa verið gert af pólitískum ástæðum en því hafna Repúblíkanar. 12.6.2007 12:32
35 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi Milan Martic, fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna Króatíu-Serba, var í morgun dæmdur í 35 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi í Króatíu á tíunda áratug síðustu aldar. Hann var sakaður um að hafa skipulagt þjóðernishreinsanir og önnur óhæfuverk. 12.6.2007 12:26
Þjóðstjórnin hugsanlega fallin Leiðtogar Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, ákveða það á næstu klukkustundum hvort gengið verði út úr þjóðstjórn landsins aðeins þremur mánuðum eftir að hún var skipuð. Það var í mars síðastliðnum sem stjórn Fatah og Hamas tók við völdum og var með henni ætlunin að binda enda á átök fylkinganna. Síðan þá hefur komið til bardaga millið liðsmanna hreyfinganna og margir fallið. 12.6.2007 12:17
Hirðingjar í Namibíu fá vatnsból Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur samþykkt að ráðast í að bora fyrir 33 nýjum vatnsbólum í heimkynnum Himba í norðvesturhluta Afríku. Himbar eru hirðingjar sem eru mikið á faraldsfæti með nautgripahjarðir sínar að leita uppi vatn og beitilönd og munu vatnsbólin auka lífsgæðin og gera hirðingjum fært að hafa lengur fasta búsetu en nú tíðkast. 12.6.2007 12:00
Fatah íhugar stjórnarslit Talsmaður Fatah sagði fyrir nokkrum mínútum síðan að hreyfingin muni ákveða innan nokkurra klukkustunda hvort að ríkisstjórnarsamstarfi með Fatah verði hætt. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sakaði fyrr í morgun Hamas um að reyna að taka völdin á Gaza með hervaldi. 12.6.2007 11:49
Tekur Blair kaþólska trú ? Tony Blair mun fara í kveðjuheimsókn í Páfagarð hinn 23. þessa mánaðar, til þess að kveðja Benedikt sextánda páfa. Vangaveltur eru um að hann muni við það tækifæri taka kaþólska trú. Forsætisráðherrann tilheyrir nú ensku biskupakirkjunni. 12.6.2007 11:27
Hamas hóta árásum á höfuðstöðvar Fatah Vopnaður armur Hamas samtakanna hótaði því í dag að ráðast á öryggismiðstöðvar sem lúta stjórn Fatah hreyfingarinnar ef hún rýmir þær ekki samstundis. Aldrei áður hefur þvílíkur úrslitakostur verið settur fram í deilu fylkinganna tveggja. Hótunin var gerð í yfirlýsingu sem útvarpað var á útvarpsstöð undir stjórn Hamas. 12.6.2007 11:00
50 ára ónotaður bíll grafinn upp Þann 15. júní árið 1957 fagnaði borgin Tulsa í Oklahoma 50 ára afmæli sínu. Í tilefni dagsins var ákveðið að grafa ekta amerískt tímahylki í jörðu. Það skyldi grafið upp aftur þegar borgin ætti 100 ára afmæli. Ekta ameríska tímahylkið var náttúrlega bíll. Glænýr Plymouth Belvedere. Átta gata tryllitæki. 12.6.2007 10:52
Tíu ára fangelsi fyrir að þiggja munnmök Dómari í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur ógilt dóm yfir 17 ára ungling sem var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að þiggja munnmök af 15 ára stúlku. Saksóknari ríkisins hefur hins vegar áfrýjað niðurstöðu dómarans og vill halda drengnum í fangelsi. 12.6.2007 10:25
Hæstiréttur Suður Karólínu hafnar vörn unglingspilts Hæstiréttur Suður Karólínu í Bandaríkjunum hefur hafnað vörn hins 18 ára gamla Christopher Pittman sem að skaut ömmu sína og afa til bana áður en hann kveikti í húsi þeirra. Pittman framdi ódæðið árið 2001, þegar hann var aðeins 12 ára gamall. 11.6.2007 23:23
Paris Hilton segir að guð hafi gefið henni nýtt tækifæri Hótelerfinginn Paris Hilton hefur sagt að guð hafi gefið henni nýtt tækifæri og nú ætli hún að hætta að haga sér heimskulega, og nota frægð sína til að láta gott af sér leiða. 11.6.2007 22:41
Þjóðaröryggismál að útrýma fátækt Samtökin One, sem eru baráttusamtök gegn fátækt, vilja að næsti forseti Bandaríkjanna skuldbindi sig til þess að stíga ákveðin skref til þess að draga úr hungri og sjúkdómum og bæta aðgang að menntun og vatni alls staðar í heiminum. Samtökin hafa ákveðið að eyða 30 milljörðum dala til þess að þrýsta á frambjóðendur fyrir bandarísku forsetakosningarnar að einbeita sér að gegn fátækt í heiminum. 11.6.2007 20:56
Fyrrverandi hermaður fær greiddar bætur Breskur fyrrverandi hermaður sem lamaðist frá mitti eftir að hafa lent í bílslysi við skyldustörf hefur verið verið dæmdar fjórar milljónir punda í bætur. Maðurinn sem var í Land Rover bifreið sem valt fór í mál við varnarmálaráðuneytið. 11.6.2007 20:51
Heitt í Pakistan Það er erfitt að lifa í Pakistan þessa dagana. Ekki vegna átaka heldur hita. Hitabylgja hefur gengið yfir landið og hiti mælst mestur fimmtíu og tvær gráður. Tugir manna háfa dáið af völdum hitans. Áætlað er að heitt verði víða um Pakistan fram eftir vikunni. 11.6.2007 19:30
Milosevic á yfir höfði sér ákæru fyrir smygl Ekkja og sonur Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Serbíu, eiga yfir höfði sér ákæru fyrir sígarettusmygl á tíunda áratug síðustu aldar. Mirjana Markovic og Marko Milosevic eru talin hafa hagnast um milljónir dala fyrir að hafa stjórnað smygli á sígarettum. 11.6.2007 19:21
2 starfsmenn Rauða krossins týndu lífi Tveir líbanskir starfsmenn Rauða krossins týndu lífi í átökum við Nahr al-Bared flóttamannabúðir Palestínumanna í norðurhluta Líbanons í dag. Líbanski herinn hefur barist þar við liðsmenn herskáu samtakanna Fatah al-Islam sem halda til í búðunum. Almennir borgarar hafa orðið illa úti í átökunum en herinn hefur skotið stíft á búðirnar. 11.6.2007 19:15
Sósíalistar hvattir til að kjósa Sósíalistar hvetja stuðningsmenn sína til að fjölmenna á kjörstað í seinni umferð þingkosninganna í Frakklandi um næstu helgi. Nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir að UNP flokkur Sarkozys Frakklandsforseta fái jafn afgerandi meirihluta á þingi og niðurstaða fyrri umferðar í gær bendi til. 11.6.2007 19:00
Hljóðupptökur frá yfirheyrslum í Guantanamo opinberaðar Ráðamenn í Pentagon opinberuðu í dag hljóðupptökur af yfirheyrslum í Guantanamo flóa af tveimur varðhaldsföngum. Annar þeirra yfirheyrðu var Hambali, leiðtogi í öfgahópnum Jemaah Islamiya, sem varð 187 manns að bana í sprengjuárás á næturklúbb í Balí árið 2002. 11.6.2007 18:58
Víða rignir mikið Miklar rigningar hafa kostað rúmlega hundrað og þrjátíu mannslíf í Bangladess, Kína og Kólumbíu síðustu daga. Regntímabil stendur nú sem hæst þar. Íbúar í Mið-Evrópu þekkja ekki slík tímabil en hafa samt þurft að vaða elginn síðasta sólahring í Þýskalandi og Hollandi vegna skyndilegrar hellirigningar. Engin týndi lífi þar. 11.6.2007 18:53
Skotið á skrifstofu Haniyehs Byssumenn gerðu í dag skotárás á skrifstofu Ismails Haniyehs, forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, meðan hann sat þar á fundi ásamt öðrum ráðherrum. Haniyeh sakaði ekki. Fjórar klukkustundir voru þá liðnar frá því samið var um enn eitt vopnahléð á milli Hamas og Fatah samtakanna. 11.6.2007 18:45
Dómstóll í Georgíu náðar ungan mann Dómstóll í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað að 21 árs karlmanni verði umsvifalaust sleppt úr fangelsi. Íþróttahetjan og heiðursnemandinn, Genarlow Wilson, hafði fengið 10 ára dóm fyrir að hafa þegið munnmök frá 15 ára stelpu þegar hann sjálfur var 17 ára. 11.6.2007 18:39
Meintum Al-Qaida liða sleppt Yfirréttur í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að ríkisstjórninni í Bandaríkjunum sé óheimilt að halda bandarískum ríkisborgara, Ali al-Marri, sem grunaður er um aðild að Al-Qaida, án þess að kæra hann. Hann skyldi því látinn laus. Í dómsorðum sagði að með því að beita slíku valdi gegn borgurum væri verið að stefna stjórnarskránni og bandarísku þjóðinni í hættu. Ali al-Marri er um þessar stundir eini bandaríski ríkisborgarinn sem er í haldi þar í landi vegna tengsla við al-Qaida. 11.6.2007 18:14
Aurskriða verður 79 manns að bana Að minnsta kosti 79 manns hafa látið lífið í bænum Chittagong í Bangladesh eftir að aurskriða féll á bæinn. Margra er enn saknað og björgunarsveitarmenn hafa unnið dag og nótt í von um að finna fólk á lífi. 11.6.2007 17:16
Það skjóta bara allir á alla Vopnahlé sem Palestínumenn sömdu um sín á milli í mogun er runnið út í sandinn. Átta manns hafa fallið í skotbardögum milli byssumanna Hamas og Fatah samtakanna. Meðal annars börðust liðsmenn fylkinganna á sjúkrahúsi þar sem einn var drepinn og nítján særðir. "Það skjóta bara allir á alla," sagði læknir við sjúkrahúsið. 11.6.2007 16:47
Tveir starfsmenn Rauða krossins féllu í Líbanon Tveir starfsmenn Rauða krossins voru skotnir til bana í dag við flóttamannabúðir Palestínumanna í Líbanon. Starfsmennirnir, sem voru líbanskir, voru að flytja slasaða borgara af átakasvæðinu þegar þeir féllu, en líbanskir hermenn hafa barist við íslamska vígamenn í búðunum undanfarið. 11.6.2007 16:46
Lyf fundið sem gæti hægt á Parkinson´s Vísindamenn við háskóla í Chicago hafa fundið lyf sem getur hægt á og jafnvel læknað Parkinson´s sjúkdóminn. Vísindamennirnir benda þó á að rannsóknir eru á byrjunarstigi og að alltof snemmt sé að fullyrða um hvort lyfið sé tilvalið fyrir meðferð á Parkinson´s. 11.6.2007 16:42
Kyrkti ástfangna dóttur sína Kúrdiskur maður var sakfelldur í Lundúnum í dag fyrir að kyrkja tvítuga dóttur sína. Hún hafði yfirgefið eiginmann sinn og síðar orðið ástfangin af öðrum manni. Faðirinn myrti hana fyrir að óvirða heiður fjölskyldunnar. Líki hennar var troðið í ferðatösku og flutt til Birmingham þar sem það var grafið í bakgarði. 11.6.2007 16:19
Vill Norrænt tæknisetur utan Evrópu Norðurlöndin ættu að íhuga það að setja á stofn sameiginleg tæknisetur utan Evrópu. Esko Aho fyrrum forsætisráðherra Finnlands segir þetta í grein sem hann skrifar í dagblaðið Helsingin Sanomat. 11.6.2007 15:41
Berklar breiðast út meðal fíla Í Chitwan þjóðgarðinum í Nepal hafa nokkrir Asíufílar greinst með berkla. Fulltrúar garðsins fullyrða að sjúkdómurinn hafi breiðst út í um 10 prósent fíla í landinu á undanförnum tveimur árum. 11.6.2007 15:23
Norðurlöndin þurfa að svara "kínversku ógninni" Norðurlöndin ættu að styrka samstarf sitt og takast á við áskoranir hnattvæðingar. Þetta segir Lars Oxelheim, prófessor við viðskiptaskóla Háskólans í Lundi í Svíþjóð, í grein sem hann skrifar í Svenska Dagbladet í dag. Oxelheim er einnig formaður sænska tengslanetsins um Evrópurannsóknir. 11.6.2007 14:55
Sjóræningjar heimta lausnargjald Sómölsku sjóræningjarnir sem rændu danska flutningaskipinu Danica White hafa sett fram kröfur um lausnargjald fyrir fimm manna danska áhöfn skipsins og skipið sjálft. Útgerðin vill ekki upplýsa hver upphæðin er, en atvinnu-samningamaður hefur verið fenginn til þess að semja við ræningjana. 11.6.2007 14:41
Drekkti fósturdóttur fyrir tryggingafé Bandarískur maður hefur verið handtekinn fyrir að drekkja þriggja ára gamalli fósturdóttur sinni. Þrem mánuðum áður hafði hann tryggt hana fyrir 200 þúsund dollara. Lögreglan í Seattle er sannfærð um að Joel Selmer hafi drekkt Ashley McLellan í sundlaug við hús þeirra síðastliðinn vetur. 11.6.2007 14:31
Þrjár konur brenndar lifandi Þrjár konur voru brenndar til bana í flóttamannabúðum í Úganda í síðustu viku. Þær höfðu verið sakaðar um galdra. Lögreglustjórinn í Kitgum héraði í Afríkuríkinu segir að mótorhjólaeigandi hafi orðið veikur af óþekktum sjúkdómi sem dró hann til dauða. Öldungaráð flóttamannabúðanna úrskurðaði að hann hefði verið drepinn með göldrum. 11.6.2007 13:27
Skotið á forsætisráðuneyti Palestínu Byssumenn gerðu í dag skotárás á skrifstofu Ismails Haniyehs, forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, meðan hann sat þar á fundi ásamt öðrum ráðherrum. Fjórar klukkustundir voru þá liðnar frá því samið var um enn eitt vopnahléð á milli Hamas og Fatah samtakanna. 11.6.2007 12:56
Reyndu að kaupa samning Beckhams af LA Galaxy LA Galaxy og fulltrúar Davids Beckham höfnuðu í dag tilboði Real Madrid um að kaupa upp samning Beckham við LA Galaxy. Real hafði samband í gærkvöldi en var síðan sagt í dag „kurteislega en ákveðið“ að það væri enginn möguleiki á því Beckham myndi snúast hugur. 11.6.2007 12:48
Stórsigur Sarkozys Allt stefnir í að kjósendur í Frakklandi veiti Sarkozy forseta sterkt umboð til að hrinda í framkvæmd umfangsmiklum breytingum á frönsku samfélagi. Flokkabandalag forsetans vann stórsigur í fyrri umferð þingkosninga í landinu í gær. 11.6.2007 12:30
Flóð í Hollandi og Þýskalandi Íbúum í suðurhluta Þýskalands gekk erfiðlega að komast til vinnu í morgun vegna mikilla rigninga á svæðinu í nótt. Vatn flæddi um götur og torg í Frankfurt og víðar og íbúar í mestu vandræðum með að komast milli staða. Ástandið var ekki betra í austurhluta Hollands í nótt og í morgun. Mikið ringdi á einni klukkustund í gærkvöldi og fyrir vikið sátu ökumenn fastir í gærkvöldi og nótt og þurftu björgunarmenn að koma þeim til hjálpar. 11.6.2007 12:20