Fleiri fréttir Önnur hver grænlensk stúlka íhugar sjálfsmorð Önnur hver unglingsstúlka á Grænlandi hefur íhugað að fremja sjálfsmorð, og einn af hverjum fimm drengjum. Þriðja hver stúlka hefur reynt að fremja sjálfsmorð og tíundi hver drengur. Þetta er niðurstaða könnunar danska heilbrigðisráðuneytisins sem gerð var meðal 21.3.2007 15:42 Sænska lögreglan umkringir kjarnorkuver Sænska lögreglan hefur sett upp vegatálma við Forsmark kjarnorkuverið vegna sprengjuhótunar. Forsmark er í grennd við Uppsali, norðan við Stokkhólm. Lögreglan í Uppsölum hefur beðið um aðstoð sprengjusérfræðinga frá höfuðborginni. Christer Nordström, talsmaður lögreglunnar staðfestir að hótun hafi borist, en gefur ekki frekari upplýsingar að sinni. 21.3.2007 14:40 Glerbrú yfir Grand Canyon Mikil brú með glergólfi hefur verið reist á barmi Miklagljúfurs í Bandaríkjunum og nær hún rúma tuttugu metra fram af brúninni. Þegar litið er í gegnum glergólfið blasir gljúfurbotninn við, einum og hálfum kílómetra fyrir neðan. Tæpast fyrir lofthrædda. Það var bandarískur kaupsýslumaður sem reisti brúna og hún kostaði rúma tvo milljarða króna. 21.3.2007 14:07 Dæmdir fyrir að hálshöggva skólastúlkur Indónesískur dómstóll dæmdi í morgun þrjá íslamska öfgamenn fyrir að myrða þrjár kristnar skólastúlkur á eynni Sulawesi árið 2005. Mennirnir, eru sagðir tilheyra hinum herskáu samtökum Jemaah Islamiyah. Þeir hálshjuggu stúlkurnar úti á akri og fóru svo með höfuð þeirra í nærliggjandi þorp. 21.3.2007 12:48 Verkfalli hjá SAS aflýst Verkfalli flugfreyja og flugþjóna hjá flugfélaginu SAS sem hófst í morgun var aflýst nú fyrir stundu. Alls þurfti að fresta 83 flugferðum til og frá Kastrup-flugvelli í Danmörku vegna kjaradeilu starfsfólks í farþegarými, alls um 1.600 manns, við vinnuveitendur sína. Enn á eftir að ná sáttum í deilunni en stjórnendur SAS sögðu í morgun að verkfallið væri með öllu ólöglegt. 21.3.2007 12:42 Viðræður um kjarnorkuáætlun liggja niðri Viðræður sexveldanna svonefndu um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumanna liggja niðri annan daginn í röð. Þeir vilja ekki snúa aftur að samningaborðinu fyrr en þeir hafa fengið aðgang að bankareikningum í Makaó sem voru frystir á sínum tíma. 21.3.2007 12:38 Uppreisnarmenn beita börnum fyrir sig Talsmaður bandaríska hersins sagði í dag að uppreisnarmenn í Írak hefðu notað börn í sprengjuárás. Hershöfðinginn Michael Barbero sagði að bíl hefði verið hleypt í gegnum öryggishlið þar sem tvö börn sátu í aftursætunum. Bíllinn var síðan sprengdur í loft upp. 20.3.2007 23:36 Betur má ef duga skal í Afganistan Fulltrúar frá Afganistan og öðrum þjóðum mæltu viðvörunarorð vegna ástandsins í Afganistan á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Hver á fætur öðrum steig í pontu og bentu allir á að ofbeldi í landinu væri enn að aukast, fíkniefnastarfsemi hvers konar blómstraði og hægt gengi að byggja upp stofnanir í landinu. 20.3.2007 23:07 Gáfu út 10.000 vegabréf til svikahrappa Þúsundum manna, og þar á meðal tveimur sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverkaárásir, tókst að verða sér út um vegabréf hjá breska innanríkisráðuneytinu á fölskum forsendum á síðastliðnu ári. Allt í allt er talið að um tíu þúsund vegabréf sé um að ræða. 20.3.2007 22:53 Segir demókrötum að taka tilboðinu George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í kvöld að demókratar ættu að taka tilboði hans um að leyfa tveimur háttsettum aðstoðarmönnum hans að ræða við þingnefnd á þeirra vegum. Bush hefur neitað því að leyfa demókrötum að yfirheyra aðstoðarmenn sína eiðsvarna. Aðstoðarmennirnir sem um ræðir eru Karl Rove og Harriet Miers. 20.3.2007 22:08 Hóta að draga úr valdi FBI Þingmenn í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa hótað því að afnema þær lagaheimildir sem Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur til þess að rannsaka hugsanlega hryðjuverkamenn. Á þetta við um bæði demókrata og repúblikana. 20.3.2007 21:28 Þriðjungur írösku lögreglunnar spilltur Háttsettur lögregluforingi í írösku lögreglunni sagði í dag að hann gæti ekki treyst þriðjungi lögreglumanna sinna þar sem hollusta þeirra væri hjá ólöglegum vígahópum. Lögregluforinginn, Abdul Hussein Al Saffe, sagði enn fremur að hann gæti ekki rekið þá þar sem þeir nytu verndar stjórnmálamanna. 20.3.2007 21:11 Átök blossa upp í Pakistan Fleiri en 50 manns hafa látið lífið í átökum stuðningsmanna al-Kaída og talibana í norðvesturhluta Pakistan. Yfirvöld í Pakistan skýrðu frá þessu í dag. Átökin hafa geisað á svæðinu síðan á mánudaginn. 20.3.2007 20:19 Ástandið í Írak veldur vonbrigðum Utanríkisráðherra segir að ástandið í Írak valdi vissulega vonbrigðum en það sé áfram stefna íslensku ríkisstjórnarinnar að styðja írösku þjóðina eftir megni. Fjögur ár eru í dag frá upphafi átaka í landinu og endurreisn landsins heldur áfram í skugga ofbeldis. 20.3.2007 19:15 Lentu í deilum við konu á Hebron Íslenskur karlmaður um tvítugt var færður til yfirheyrslu hjá ísrelsku lögreglunni í Hebron á Vesturbakkanum í fyrradag. Ísraelsk kona sem þau lentu í útistöðu við hafði þá kært danska vinkonu hans fyrir líkamsárás. Atvikið náðist allt á myndband. 20.3.2007 18:45 Handtóku 171 í aðgerðum gegn mafíunni Ítalska lögreglan handtók í dag vel á annað hundrað manns í aðgerðum gegn mafíunni í Napólí. Heilu fjölskyldurnar voru þá sendar í steininn en alls var um 171 manns að ræða. Þúsund lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum. Eiturlyfjahringur var leystur upp og afhjúpuð ýmis glæpastarfsemi sem mun að sögn lögreglu hafa skilað jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna króna í tekjur á mánuði. 20.3.2007 17:42 Júdas var góður gæi 20.3.2007 17:04 Lögreglan stöðvaði líkfylgd Lögregla í Hollandi hefur verið gagnrýnd fyrir að stöðva líkfylgd til að taka öndunarpróf af ökumönnum. Syrgjendurnir voru nýlagðir af stað frá kirkju í Enschede á leið til kirkjugarðsins Usselo. Lögreglan leyfði líkbílnum og fjórum næstu bílum að halda ferðinni áfram. Tíu bifreiðum fjölskyldumeðlima og vina var hins vegar vikið til hliðar. 20.3.2007 16:11 Uppnám í Evróvision Mikið uppnám varð í Evróvision söngvakeppninni, í gær, þegar í ljós kom að bresku þáttakendurnir höfðu leynilega liðsmenn. Í söngbandinu Scooch eru tvær stúlkur og tveir piltar. Í keppninni í gær kom í ljós að þau höfðu tvær stúlkur baksviðs, sem sungu með. Hinir þáttakendurnir urðu öskureiðir og sökuðu Scooch um svindl og svínarí. Um að hafa leikið að þau væru að syngja. 20.3.2007 16:01 Ísraelar hunsa Norðmann Ísraelar hafa aflýst öllum fundum með Raymond Johansen, ráðuneytisstjóra norska utanríkisráðuneytisins. Johansen er í Miðausturlöndum og átti í gær fund með Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Hamas í þjóðstjórn Palestínumanna. Hann átti að hitta ísraelska ráðamenn í dag, en þeim fundum var aflýst. 20.3.2007 15:36 Lélegur brandari Tuttugu og níu ára gamall Kaupmannahafnarbúi hefur verið dæmdur í tíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að segja að hann væri með skammbyssu. Það þótti lélegur brandari á Kastrup flugvelli, þar sem maðurinn var að fara um borð í flugvél til útlanda. 20.3.2007 15:20 Kinnbeinin orsökuðu hrakfarir Kínverskur maður lét minnnka kinnbeinin í lýtaaðgerð til að eiginkonan myndi lifa lengur. Spákonur sögðu Lang Qiang að konan myndi deyja á undan honum, vegna kinnbeinanna. Lang var sannfærður um að það væri rétt þar sem konan var einstaklega óheppin, en hann ekki. 20.3.2007 14:01 Flóttamannabúðir að fyllast Flóttamannabúðir sem ætlaðar eru fyrir þá sem þurft hafa að flýja frá heimilum sínum í Darfur-héraði í Súdan eru að fyllast. Þetta segja embættismenn Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Meira en 80 þúsund manns hafa flúið heimili sín það sem af er ári og alls hafast um 2 milljónir manna við í flóttamannabúðum. Flestir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna átakanna sem geysað hafa milli Janjaweed hersveitanna sem eru hliðhollar stjórnvöldum og uppreisnarhópa. Minnst 200 þúsund hafa farist í átökunum. 20.3.2007 11:42 Málfrelsi nemenda í hættu í Bandaríkjunum Hæstiréttur Bandaríkjanna veltir nú fyrir sér málfrelsi í nemenda í skólum í Bandaríkjunum. Er þetta í fyrsta sinn í rúmlega 20 ár sem slíkt mál kemur fyrir dómstólinn. Dæmt verður um hvort að skólastjóri hafi brotið á málfrelsi nemanda þegar að hún rak nemandann úr skólanum fyrir að sýna borða sem á stóð „Reykjum gras fyrir Jesús.“ (e. Bong hits 4 Jesus). 19.3.2007 23:45 Reyndi að refsa Lampard Ósáttur aðdáandi hljóp út á völlinn eftir að leik Chelsea og Tottenham lauk í kvöld og reyndi að gefa Frank Lampard, leikmanni Chelsea, einn á lúðurinn. Lampard var að fagna með liðsfélögunum sínum þegar maðurinn kom hlaupandi með hnefann á lofti og rétt náði að bregða sér undan hægrihandarsveiflu hins reiða áhanganda Tottenham. Öryggisverðir brugðust snögglega við og yfirbuguðu manninn á örskotsstundu. 19.3.2007 23:10 Lögðu hald á 19,4 tonn af kókaíni Eiturlyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum hefur í samstarfi við lögregluna í Panama lagt hald á 19,4 tonn af kókaíni. Kókaínið fannst um borð í skipi á Kyrrahafi um helgina og talið er að aldrei hafi meira magn eiturlyfja verið gert upptækt á hafi úti. Lögreglan í Panama skýrði frá þessu í kvöld. Skipið er flutningaskip og er skráð í Panama. 14 voru handteknir í tengslum við málið. 19.3.2007 22:59 Lögregla í Bandaríkjunum handtekur mótmælendur Lögregla í New York og í San Francisco í Bandaríkjunum handtók í dag tugi manns sem voru að mótmæla stríðinu í Írak. Fjögur ár eru nú liðin síðan að stríðið hófst. Lögreglumenn í einkennisbúningum voru mun fleiri en mótmælendur í New York en þeir voru aðeins um hundrað talsins. Af þeim voru 44 handteknir. 19.3.2007 22:36 88 ára kona skotin fimm sinnum í svefni 88 ára kona er nú á batavegi á sjúkrahúsi í Flórídaríki í Bandaríkjunum eftir að hafa verið skotin fimm sinnum á meðan hún var sofandi heima hjá sér. Lögreglan í Orange County er ennþá að rannsaka hvers vegna ráðist var á hana. Hún telur að skotárásin hafi ekki verið tilviljun en er enn að leita að hugsanlegu tilefni. Lögreglan hefur enn enga grunaða í málinu. 19.3.2007 22:13 Lýstu yfir sakleysi sínu Tveir lögreglumenn sem ákærðir eru fyrir að hafa skotið 23 ára blökkumann til bana í New York í nóvember í fyrra, sögðust báðir saklausir þegar að réttarhöld hófust yfir þeim í dag. Þriðji lögreglumaðurinn, sem ákærður var fyrir að stofna mannslífi í hættu, lýsti einnig yfir sakleysi sínu. Tveir aðrir lögreglumenn sem voru viðstaddir árásina voru ekki kærðir. 19.3.2007 22:01 78 hafa látið lífið í námuslysi 78 hafa nú látið lífið eftir að metansprenging varð í námu í Síberíu í Rússlandi í dag. Slysið er það alvarlegasta í námugeiranum í Rússlandi síðastliðinn áratug. Fleiri en 40 eru ennþá fastir neðanjarðar og dánartalan gæti enn hækkað. Björgunaraðgerðir hafa ekki gengið sem skyldi þar sem að göng hafa hrunið og þykkur reykur kemur út úr námunni. 19.3.2007 21:36 Þingmenn ætla að brjótast til valda Þingmenn í Ekvador, sem forseti landsins hafði áður rekið úr embætti, hétu því í dag að brjótast í gegnum girðingar lögreglu og taka sæti sín á ný. Mikil spenna hefur verið í stjórnmálum í landinu að undanförnu þar sem forseti landsins, Rafael Correa, hefur heitið því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu sem myndi leiða til stofnunar stjórnarskrárþings. Það á síðan að breyta stjórnarskránni og draga verulega úr völdum þingsins. 19.3.2007 21:08 Vilja auka völd lögreglu Þingið í Egyptalandi samþykkti í kvöld umfangsmiklar stjórnarskrárbreytingar sem ríkisstjórnin segir að séu nauðsynlegar umbætur. Mannréttindahópar hafa gagnrýnt breytingarnar og segja að þær muni grafa enn frekar undan mannréttindum í landinu. Breytingarnar þarf þó ennþá að samþykkja í þjóðaratkvæðagreiðslu. 19.3.2007 20:32 Lyfti konum og fékk bágt fyrir Kraftakeppni var aflýst í Íran eftir að norskur keppandi gekk fram af siðgæðislögreglu landsins. Hann lyfti tveimur konum upp, eins og kraftajötna er von og vísa, og hlaut bágt fyrir. Íslenskur keppandi segir að mótið hafi verið blásið af og allir jötnarnir hvattir til að fara úr landi hið fyrsta. 19.3.2007 19:25 Segja endurreisn hafa mistekist Tæplega 70% Íraka telja endurreisn heimalands síns, eftir innrásina fyrir fjórum árum, hafa misheppnast. Innviðir samfélagsins séu í molum. Íslendingar hafa lagt til tæpar 400 milljónir síðan 2003. 19.3.2007 18:45 Írakar svartsýnir Írakar eru svartsýnir á framtíðina, samkvæmt nýrri viðhorfskönnun. Flestir óttast að týna lífi í átökum og treysta ekki innrásarliðum. Í nótt eru fjögur ár frá upphafi Íraksstríðsins. Von um bjarta framtíð hefur vikið fyrir svartnætti í huga almennra Íraka. 19.3.2007 18:30 Ramadan hengdur á morgun Fyrrum varaforseti Íraks, Taha Yassin Ramadan, verður hengdur á morgun fyrir glæpi gegn mannkyninu. Hann hafði áður verið fundinn sekur fyrir þátt sinn á morðunum í Dujail árið 1982 en þar voru 148 sjía múslimar myrtir. 19.3.2007 17:52 Hamas gerir árás Hinn vopnaði armur Hamas samtakanna tilkynnti í dag að það hefðu gert sína fyrstu árás á Ísrael, síðan samið var um vopnahlé í nóvember síðastliðinn. Ísraelskur verkamaður var særður alvarlega í skotárás, og vörpusprengjum skotið á ísraelska hermenn. Talsmaður Hamas sagði jafnframt að árásum yrði haldið áfram, þótt hann tilkynnti ekki formlega að vopnhlénu hefði verið einhliða aflýst. 19.3.2007 16:52 Mannskætt námuslys 19.3.2007 16:29 Aha, þessi reykir Reykingar geta ekki aðeins gert andlit hrukkótt og gul, heldur allan líkamann, samkvæmt nýrri skýrslu sem birt er í tímariti bandarískra húðsjúkdómalækna. Samkvæmt henni hafa reykingar áhrif á húð hvar sem hún er á líkamanum, jafnvel á stöðum sem eru verndaðir fyrir sólarljósi. 19.3.2007 16:08 Lögregluþjónar ákærðir fyrir manndráp Tveir lögreluþjónar í New York hafa verið ákærðir fyrir manndráp og sá þriðji fyrir að stofna mannslífi í hættu, þegar þeir skutu óvopnaðan blökkumann til bana á brúðkaupsdegi hans. Sean Bell fór í vasa sinn til þess að ná í skilríki, þegar lögreglumennirnir hófu skothríð. Þeir skutu alls fimmtíu skotum á Bell og félaga hans, sem særðist alvarlega. 19.3.2007 15:30 Viðurkennir árásina á USS Cole 19.3.2007 14:53 Blaðamaður enn í haldi 19.3.2007 13:42 Danir verjast reykbanni Danskir veitingamenn hyggjast verja um tveim milljörðum króna til þess að tryggja að viðskiptavinir þeirra geti haldið áfram að fá sér smók, þegar reykingar verða bannaðar á veitingastöðum í Danmörku um miðjan ágúst næstkomandi. Peningunum verður varið til þess að útbúa reykingaaðstöðu bæði innan dyra og utan. 19.3.2007 13:19 Dauðskelkaður á fyrsta klassa Farþegi með flugi British Airways var illa brugðið þegar hann vaknaði eftir blund á fyrsta farrými með lík sér við hlið. Sætið var autt þegar Paul Trinder sofnaði í fluginu á leið frá Delhi á Indlandi. Konan lést á almennu farrými stuttu eftir flugtak. Að sögn talsmanns British Airways var líkið flutt á fyrsta klassa þar sem afturhluti vélarinnar var fullsetinn. 19.3.2007 12:06 Enn logar ófriðarbál Þrjár bílsprengjur og tvær aðrar sprengjur hafa grandað 18 og sært 37 til viðbótar í borginni Kirkuk í Norður-Írak í morgun. Í nótt verða 4 ár liðin frá innrás bandamanna í Írak. Ekkert lát virðist vera á ófriðaröldunni í landinu, þrátt fyrir stórhertar öryggisráðstafanir. 19.3.2007 11:39 Sjá næstu 50 fréttir
Önnur hver grænlensk stúlka íhugar sjálfsmorð Önnur hver unglingsstúlka á Grænlandi hefur íhugað að fremja sjálfsmorð, og einn af hverjum fimm drengjum. Þriðja hver stúlka hefur reynt að fremja sjálfsmorð og tíundi hver drengur. Þetta er niðurstaða könnunar danska heilbrigðisráðuneytisins sem gerð var meðal 21.3.2007 15:42
Sænska lögreglan umkringir kjarnorkuver Sænska lögreglan hefur sett upp vegatálma við Forsmark kjarnorkuverið vegna sprengjuhótunar. Forsmark er í grennd við Uppsali, norðan við Stokkhólm. Lögreglan í Uppsölum hefur beðið um aðstoð sprengjusérfræðinga frá höfuðborginni. Christer Nordström, talsmaður lögreglunnar staðfestir að hótun hafi borist, en gefur ekki frekari upplýsingar að sinni. 21.3.2007 14:40
Glerbrú yfir Grand Canyon Mikil brú með glergólfi hefur verið reist á barmi Miklagljúfurs í Bandaríkjunum og nær hún rúma tuttugu metra fram af brúninni. Þegar litið er í gegnum glergólfið blasir gljúfurbotninn við, einum og hálfum kílómetra fyrir neðan. Tæpast fyrir lofthrædda. Það var bandarískur kaupsýslumaður sem reisti brúna og hún kostaði rúma tvo milljarða króna. 21.3.2007 14:07
Dæmdir fyrir að hálshöggva skólastúlkur Indónesískur dómstóll dæmdi í morgun þrjá íslamska öfgamenn fyrir að myrða þrjár kristnar skólastúlkur á eynni Sulawesi árið 2005. Mennirnir, eru sagðir tilheyra hinum herskáu samtökum Jemaah Islamiyah. Þeir hálshjuggu stúlkurnar úti á akri og fóru svo með höfuð þeirra í nærliggjandi þorp. 21.3.2007 12:48
Verkfalli hjá SAS aflýst Verkfalli flugfreyja og flugþjóna hjá flugfélaginu SAS sem hófst í morgun var aflýst nú fyrir stundu. Alls þurfti að fresta 83 flugferðum til og frá Kastrup-flugvelli í Danmörku vegna kjaradeilu starfsfólks í farþegarými, alls um 1.600 manns, við vinnuveitendur sína. Enn á eftir að ná sáttum í deilunni en stjórnendur SAS sögðu í morgun að verkfallið væri með öllu ólöglegt. 21.3.2007 12:42
Viðræður um kjarnorkuáætlun liggja niðri Viðræður sexveldanna svonefndu um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumanna liggja niðri annan daginn í röð. Þeir vilja ekki snúa aftur að samningaborðinu fyrr en þeir hafa fengið aðgang að bankareikningum í Makaó sem voru frystir á sínum tíma. 21.3.2007 12:38
Uppreisnarmenn beita börnum fyrir sig Talsmaður bandaríska hersins sagði í dag að uppreisnarmenn í Írak hefðu notað börn í sprengjuárás. Hershöfðinginn Michael Barbero sagði að bíl hefði verið hleypt í gegnum öryggishlið þar sem tvö börn sátu í aftursætunum. Bíllinn var síðan sprengdur í loft upp. 20.3.2007 23:36
Betur má ef duga skal í Afganistan Fulltrúar frá Afganistan og öðrum þjóðum mæltu viðvörunarorð vegna ástandsins í Afganistan á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í kvöld. Hver á fætur öðrum steig í pontu og bentu allir á að ofbeldi í landinu væri enn að aukast, fíkniefnastarfsemi hvers konar blómstraði og hægt gengi að byggja upp stofnanir í landinu. 20.3.2007 23:07
Gáfu út 10.000 vegabréf til svikahrappa Þúsundum manna, og þar á meðal tveimur sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverkaárásir, tókst að verða sér út um vegabréf hjá breska innanríkisráðuneytinu á fölskum forsendum á síðastliðnu ári. Allt í allt er talið að um tíu þúsund vegabréf sé um að ræða. 20.3.2007 22:53
Segir demókrötum að taka tilboðinu George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í kvöld að demókratar ættu að taka tilboði hans um að leyfa tveimur háttsettum aðstoðarmönnum hans að ræða við þingnefnd á þeirra vegum. Bush hefur neitað því að leyfa demókrötum að yfirheyra aðstoðarmenn sína eiðsvarna. Aðstoðarmennirnir sem um ræðir eru Karl Rove og Harriet Miers. 20.3.2007 22:08
Hóta að draga úr valdi FBI Þingmenn í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa hótað því að afnema þær lagaheimildir sem Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur til þess að rannsaka hugsanlega hryðjuverkamenn. Á þetta við um bæði demókrata og repúblikana. 20.3.2007 21:28
Þriðjungur írösku lögreglunnar spilltur Háttsettur lögregluforingi í írösku lögreglunni sagði í dag að hann gæti ekki treyst þriðjungi lögreglumanna sinna þar sem hollusta þeirra væri hjá ólöglegum vígahópum. Lögregluforinginn, Abdul Hussein Al Saffe, sagði enn fremur að hann gæti ekki rekið þá þar sem þeir nytu verndar stjórnmálamanna. 20.3.2007 21:11
Átök blossa upp í Pakistan Fleiri en 50 manns hafa látið lífið í átökum stuðningsmanna al-Kaída og talibana í norðvesturhluta Pakistan. Yfirvöld í Pakistan skýrðu frá þessu í dag. Átökin hafa geisað á svæðinu síðan á mánudaginn. 20.3.2007 20:19
Ástandið í Írak veldur vonbrigðum Utanríkisráðherra segir að ástandið í Írak valdi vissulega vonbrigðum en það sé áfram stefna íslensku ríkisstjórnarinnar að styðja írösku þjóðina eftir megni. Fjögur ár eru í dag frá upphafi átaka í landinu og endurreisn landsins heldur áfram í skugga ofbeldis. 20.3.2007 19:15
Lentu í deilum við konu á Hebron Íslenskur karlmaður um tvítugt var færður til yfirheyrslu hjá ísrelsku lögreglunni í Hebron á Vesturbakkanum í fyrradag. Ísraelsk kona sem þau lentu í útistöðu við hafði þá kært danska vinkonu hans fyrir líkamsárás. Atvikið náðist allt á myndband. 20.3.2007 18:45
Handtóku 171 í aðgerðum gegn mafíunni Ítalska lögreglan handtók í dag vel á annað hundrað manns í aðgerðum gegn mafíunni í Napólí. Heilu fjölskyldurnar voru þá sendar í steininn en alls var um 171 manns að ræða. Þúsund lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum. Eiturlyfjahringur var leystur upp og afhjúpuð ýmis glæpastarfsemi sem mun að sögn lögreglu hafa skilað jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna króna í tekjur á mánuði. 20.3.2007 17:42
Lögreglan stöðvaði líkfylgd Lögregla í Hollandi hefur verið gagnrýnd fyrir að stöðva líkfylgd til að taka öndunarpróf af ökumönnum. Syrgjendurnir voru nýlagðir af stað frá kirkju í Enschede á leið til kirkjugarðsins Usselo. Lögreglan leyfði líkbílnum og fjórum næstu bílum að halda ferðinni áfram. Tíu bifreiðum fjölskyldumeðlima og vina var hins vegar vikið til hliðar. 20.3.2007 16:11
Uppnám í Evróvision Mikið uppnám varð í Evróvision söngvakeppninni, í gær, þegar í ljós kom að bresku þáttakendurnir höfðu leynilega liðsmenn. Í söngbandinu Scooch eru tvær stúlkur og tveir piltar. Í keppninni í gær kom í ljós að þau höfðu tvær stúlkur baksviðs, sem sungu með. Hinir þáttakendurnir urðu öskureiðir og sökuðu Scooch um svindl og svínarí. Um að hafa leikið að þau væru að syngja. 20.3.2007 16:01
Ísraelar hunsa Norðmann Ísraelar hafa aflýst öllum fundum með Raymond Johansen, ráðuneytisstjóra norska utanríkisráðuneytisins. Johansen er í Miðausturlöndum og átti í gær fund með Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Hamas í þjóðstjórn Palestínumanna. Hann átti að hitta ísraelska ráðamenn í dag, en þeim fundum var aflýst. 20.3.2007 15:36
Lélegur brandari Tuttugu og níu ára gamall Kaupmannahafnarbúi hefur verið dæmdur í tíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að segja að hann væri með skammbyssu. Það þótti lélegur brandari á Kastrup flugvelli, þar sem maðurinn var að fara um borð í flugvél til útlanda. 20.3.2007 15:20
Kinnbeinin orsökuðu hrakfarir Kínverskur maður lét minnnka kinnbeinin í lýtaaðgerð til að eiginkonan myndi lifa lengur. Spákonur sögðu Lang Qiang að konan myndi deyja á undan honum, vegna kinnbeinanna. Lang var sannfærður um að það væri rétt þar sem konan var einstaklega óheppin, en hann ekki. 20.3.2007 14:01
Flóttamannabúðir að fyllast Flóttamannabúðir sem ætlaðar eru fyrir þá sem þurft hafa að flýja frá heimilum sínum í Darfur-héraði í Súdan eru að fyllast. Þetta segja embættismenn Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Meira en 80 þúsund manns hafa flúið heimili sín það sem af er ári og alls hafast um 2 milljónir manna við í flóttamannabúðum. Flestir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna átakanna sem geysað hafa milli Janjaweed hersveitanna sem eru hliðhollar stjórnvöldum og uppreisnarhópa. Minnst 200 þúsund hafa farist í átökunum. 20.3.2007 11:42
Málfrelsi nemenda í hættu í Bandaríkjunum Hæstiréttur Bandaríkjanna veltir nú fyrir sér málfrelsi í nemenda í skólum í Bandaríkjunum. Er þetta í fyrsta sinn í rúmlega 20 ár sem slíkt mál kemur fyrir dómstólinn. Dæmt verður um hvort að skólastjóri hafi brotið á málfrelsi nemanda þegar að hún rak nemandann úr skólanum fyrir að sýna borða sem á stóð „Reykjum gras fyrir Jesús.“ (e. Bong hits 4 Jesus). 19.3.2007 23:45
Reyndi að refsa Lampard Ósáttur aðdáandi hljóp út á völlinn eftir að leik Chelsea og Tottenham lauk í kvöld og reyndi að gefa Frank Lampard, leikmanni Chelsea, einn á lúðurinn. Lampard var að fagna með liðsfélögunum sínum þegar maðurinn kom hlaupandi með hnefann á lofti og rétt náði að bregða sér undan hægrihandarsveiflu hins reiða áhanganda Tottenham. Öryggisverðir brugðust snögglega við og yfirbuguðu manninn á örskotsstundu. 19.3.2007 23:10
Lögðu hald á 19,4 tonn af kókaíni Eiturlyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum hefur í samstarfi við lögregluna í Panama lagt hald á 19,4 tonn af kókaíni. Kókaínið fannst um borð í skipi á Kyrrahafi um helgina og talið er að aldrei hafi meira magn eiturlyfja verið gert upptækt á hafi úti. Lögreglan í Panama skýrði frá þessu í kvöld. Skipið er flutningaskip og er skráð í Panama. 14 voru handteknir í tengslum við málið. 19.3.2007 22:59
Lögregla í Bandaríkjunum handtekur mótmælendur Lögregla í New York og í San Francisco í Bandaríkjunum handtók í dag tugi manns sem voru að mótmæla stríðinu í Írak. Fjögur ár eru nú liðin síðan að stríðið hófst. Lögreglumenn í einkennisbúningum voru mun fleiri en mótmælendur í New York en þeir voru aðeins um hundrað talsins. Af þeim voru 44 handteknir. 19.3.2007 22:36
88 ára kona skotin fimm sinnum í svefni 88 ára kona er nú á batavegi á sjúkrahúsi í Flórídaríki í Bandaríkjunum eftir að hafa verið skotin fimm sinnum á meðan hún var sofandi heima hjá sér. Lögreglan í Orange County er ennþá að rannsaka hvers vegna ráðist var á hana. Hún telur að skotárásin hafi ekki verið tilviljun en er enn að leita að hugsanlegu tilefni. Lögreglan hefur enn enga grunaða í málinu. 19.3.2007 22:13
Lýstu yfir sakleysi sínu Tveir lögreglumenn sem ákærðir eru fyrir að hafa skotið 23 ára blökkumann til bana í New York í nóvember í fyrra, sögðust báðir saklausir þegar að réttarhöld hófust yfir þeim í dag. Þriðji lögreglumaðurinn, sem ákærður var fyrir að stofna mannslífi í hættu, lýsti einnig yfir sakleysi sínu. Tveir aðrir lögreglumenn sem voru viðstaddir árásina voru ekki kærðir. 19.3.2007 22:01
78 hafa látið lífið í námuslysi 78 hafa nú látið lífið eftir að metansprenging varð í námu í Síberíu í Rússlandi í dag. Slysið er það alvarlegasta í námugeiranum í Rússlandi síðastliðinn áratug. Fleiri en 40 eru ennþá fastir neðanjarðar og dánartalan gæti enn hækkað. Björgunaraðgerðir hafa ekki gengið sem skyldi þar sem að göng hafa hrunið og þykkur reykur kemur út úr námunni. 19.3.2007 21:36
Þingmenn ætla að brjótast til valda Þingmenn í Ekvador, sem forseti landsins hafði áður rekið úr embætti, hétu því í dag að brjótast í gegnum girðingar lögreglu og taka sæti sín á ný. Mikil spenna hefur verið í stjórnmálum í landinu að undanförnu þar sem forseti landsins, Rafael Correa, hefur heitið því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu sem myndi leiða til stofnunar stjórnarskrárþings. Það á síðan að breyta stjórnarskránni og draga verulega úr völdum þingsins. 19.3.2007 21:08
Vilja auka völd lögreglu Þingið í Egyptalandi samþykkti í kvöld umfangsmiklar stjórnarskrárbreytingar sem ríkisstjórnin segir að séu nauðsynlegar umbætur. Mannréttindahópar hafa gagnrýnt breytingarnar og segja að þær muni grafa enn frekar undan mannréttindum í landinu. Breytingarnar þarf þó ennþá að samþykkja í þjóðaratkvæðagreiðslu. 19.3.2007 20:32
Lyfti konum og fékk bágt fyrir Kraftakeppni var aflýst í Íran eftir að norskur keppandi gekk fram af siðgæðislögreglu landsins. Hann lyfti tveimur konum upp, eins og kraftajötna er von og vísa, og hlaut bágt fyrir. Íslenskur keppandi segir að mótið hafi verið blásið af og allir jötnarnir hvattir til að fara úr landi hið fyrsta. 19.3.2007 19:25
Segja endurreisn hafa mistekist Tæplega 70% Íraka telja endurreisn heimalands síns, eftir innrásina fyrir fjórum árum, hafa misheppnast. Innviðir samfélagsins séu í molum. Íslendingar hafa lagt til tæpar 400 milljónir síðan 2003. 19.3.2007 18:45
Írakar svartsýnir Írakar eru svartsýnir á framtíðina, samkvæmt nýrri viðhorfskönnun. Flestir óttast að týna lífi í átökum og treysta ekki innrásarliðum. Í nótt eru fjögur ár frá upphafi Íraksstríðsins. Von um bjarta framtíð hefur vikið fyrir svartnætti í huga almennra Íraka. 19.3.2007 18:30
Ramadan hengdur á morgun Fyrrum varaforseti Íraks, Taha Yassin Ramadan, verður hengdur á morgun fyrir glæpi gegn mannkyninu. Hann hafði áður verið fundinn sekur fyrir þátt sinn á morðunum í Dujail árið 1982 en þar voru 148 sjía múslimar myrtir. 19.3.2007 17:52
Hamas gerir árás Hinn vopnaði armur Hamas samtakanna tilkynnti í dag að það hefðu gert sína fyrstu árás á Ísrael, síðan samið var um vopnahlé í nóvember síðastliðinn. Ísraelskur verkamaður var særður alvarlega í skotárás, og vörpusprengjum skotið á ísraelska hermenn. Talsmaður Hamas sagði jafnframt að árásum yrði haldið áfram, þótt hann tilkynnti ekki formlega að vopnhlénu hefði verið einhliða aflýst. 19.3.2007 16:52
Aha, þessi reykir Reykingar geta ekki aðeins gert andlit hrukkótt og gul, heldur allan líkamann, samkvæmt nýrri skýrslu sem birt er í tímariti bandarískra húðsjúkdómalækna. Samkvæmt henni hafa reykingar áhrif á húð hvar sem hún er á líkamanum, jafnvel á stöðum sem eru verndaðir fyrir sólarljósi. 19.3.2007 16:08
Lögregluþjónar ákærðir fyrir manndráp Tveir lögreluþjónar í New York hafa verið ákærðir fyrir manndráp og sá þriðji fyrir að stofna mannslífi í hættu, þegar þeir skutu óvopnaðan blökkumann til bana á brúðkaupsdegi hans. Sean Bell fór í vasa sinn til þess að ná í skilríki, þegar lögreglumennirnir hófu skothríð. Þeir skutu alls fimmtíu skotum á Bell og félaga hans, sem særðist alvarlega. 19.3.2007 15:30
Danir verjast reykbanni Danskir veitingamenn hyggjast verja um tveim milljörðum króna til þess að tryggja að viðskiptavinir þeirra geti haldið áfram að fá sér smók, þegar reykingar verða bannaðar á veitingastöðum í Danmörku um miðjan ágúst næstkomandi. Peningunum verður varið til þess að útbúa reykingaaðstöðu bæði innan dyra og utan. 19.3.2007 13:19
Dauðskelkaður á fyrsta klassa Farþegi með flugi British Airways var illa brugðið þegar hann vaknaði eftir blund á fyrsta farrými með lík sér við hlið. Sætið var autt þegar Paul Trinder sofnaði í fluginu á leið frá Delhi á Indlandi. Konan lést á almennu farrými stuttu eftir flugtak. Að sögn talsmanns British Airways var líkið flutt á fyrsta klassa þar sem afturhluti vélarinnar var fullsetinn. 19.3.2007 12:06
Enn logar ófriðarbál Þrjár bílsprengjur og tvær aðrar sprengjur hafa grandað 18 og sært 37 til viðbótar í borginni Kirkuk í Norður-Írak í morgun. Í nótt verða 4 ár liðin frá innrás bandamanna í Írak. Ekkert lát virðist vera á ófriðaröldunni í landinu, þrátt fyrir stórhertar öryggisráðstafanir. 19.3.2007 11:39