Fleiri fréttir

Ford: Versta afkoma í 103 ár

Bandaríski bílarisinn Ford tapaði tæpum 890 milljörðum króna í fyrra. Afkoma síðasta árs er sú versta í 103 ára sögu fyrirtækisins. Minnkandi spurn eftir jeppum og öðrum eldsneytisfrekum ökutækjum er ein aðalástæða tapsins, svo og harðnandi samkeppni við aðra bílaframleiðendur. Búist er við áframhaldandi taprekstri næstu 2 árin.

Ályktað gegn efasemdarmönnum

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi ályktun þess efnis að þeir sem afneiti Helför gyðinga verði fordæmdir. Bandaríkjamenn lögðu fram drög að ályktuninni. Hún er sögð svar við ráðstefnu í Íran fyrir áramót þar sem dregið var í efa að Helförin hefði átt sér stað. Það voru rúmlega hundrað þjóðir sem studdu ályktunina.

Taka harðar á Írönum

George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið hersveitum sínum í Írak heimild til að taka útsendara írönsku klerkastjórnarinnar í landinu fastari tökum en áður. Íranskir flugumenn eru grunaðir um að þjálfa herflokka sjía sem berjast gegn hernámsliðinu en fram til þessa hefur þeim yfirleitt verið sleppt eftir nokkurra daga varðhald.

16 fallið á Gaza

Að minnsta kosti 16 hafa týnt lífi og fjölmargir særst í átökum milli Hamas og Fatah-liða á Gaza-svæðinu síðasta sólahring. Meðal látinna er tveggja ára drengur. Þetta eru einhver verstu átök sem blossað hafa upp milli fylkinganna í marga mánuði.

Google viðurkennir mistök

Stofnendur Google viðurkenndu í gær að ákvörðun þeirra um að verða við beiðni kínverskra stjórnvalda að efnisstýra leitarvél sinni í Kína hefði verið röng. Sögðu þeir það vera þar sem ákvörðunin hefði skaða orðspor fyrirtækisins í Evrópu og í Bandaríkjunum.

Friðargæsluliðar í átökum á Haiti

Í það minnsta fimm létu lífið og sex særðust þegar friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna réðust inn í róstusamt fátækrahverfi á Haiti. Friðargæsluliðar reyna nú að hreinsa burt glæpagengi úr höfuðborginni Port-au-Prince til þess að fólk geti sinnt daglegum störfum óáreitt, að sögn yfirmanns friðargæslunnar.

Hungursneyð yfirvofandi í Simbabve

Hungursneyð vofir yfir Simbabve þar sem 850 þúsund tonn af maís vantar upp á að náist að næra þjóðina. Í desember var maísuppskeran aðeins 152.600 tonn, þannig að mikið vantar upp á. Ekki hjálpar til að gjaldeyrir er af skornum skammti í landinu sem er eitt fátækasta land heims.

Sturtaði evruseðlum yfir mannfjöldann

Vegfarendum í Kaiserslautern í Þýskalandi varð nokkuð hverft við í morgun þegar ský dró fyrir sólu og peningaseðlum tók að rigna. Ekki voru örlátir veðurguðir þarna á ferðinni heldur maður sem unnið hafði 100.000 evrur, jafnvirði níu milljóna króna, í útvarpshappdrætti.

Geimhetjan komin heim

Stokkhólmur var á öðrum endanum í dag þegar "geimkóngurinn" Christer Fuglesang kom til baka eftir að hafa farið lengra frá heimalandinu en nokkur annar Svíi hefur gert. Borgarstjórinn og hann skiptust síðan á gjöfum á ráðhúströppunum, Christer fékk lykil að borginni í skiptum fyrir fána sem hann ferðaðist með 203 hringi á sporbaug um jörðu.

Mettap á rekstri Ford

Það er af sem áður var hjá bandaríska bílarisanum Ford því afkoma síðasta árs var sú versta í 103 ára sögu fyrirtækisins . Ársuppgjör þess var kynnt í gær en samkvæmt því nam tapið á árinu tæpum 890 milljörðum króna, sem er litlu minna en verg þjóðarframleiðsla Íslendinga á ári.

Vill taka Kína og Indland í hóp stærstu iðnríkja

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands sagði í dag að G8, hópur stærstu iðnríkja heims, yrði að taka við vaxandi stórveldunum Kína og Indlandi ef félagsskapurinn ætlaði að halda áhrifahlutverki sínu í heiminum.

Hyggst herja á Írana

George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið hersveitum sínum í Írak heimild til að taka útsendara írönsku klerkastjórnarinnar í landinu fastari tökum en áður.

Kynþáttahatur glæpsamlegt á Ítalíu

Ítalska ríkisstjórnin samþykkti í dag frumvarp til laga sem gerir mismunun og kynþáttahatur glæpsamlegt. Þetta frumvarp ganga hins vegar ekki svo langt að banna afneitun helfarar nasista gegn gyðingum, eins og lagabókstafur þýskalands, austurríkis og fleiri landa.

Bandaríkjamenn og Norður-Kóreumenn funda

Samninganefndir Bandaríkjamanna og Norður-Kóreumanna munu hittast á ný á þriðjudaginn í næstu viku, 30. janúar. Þar verður m.a. rætt um norðurkóreska bankareikninga á Maká-eyju, sem Bandaríkjamenn frystu. Norður-Kóreumenn krefjast þess að fá aftur aðgang að þessum peningum áður en þeir íhugi kjarnorkuafvopnun.

Fjórir látnir eftir átök á milli Fatah- og Hamas-liða

Fjórir eru látnir eftir að það sló í brýnu milli hópa á vegum Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna á Gasaströndinni í dag. Til átaka kom á milli hópanna þegar Hamas-liðar minntust þess að ár er síðan þeir fóru með sigur af hólmi í þingkosningum í landinu.

Abbe Pierre borinn til grafar

Jacques Chiarc Frakklandsforseti og Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, voru hópi fjölmargra franskra leiðtoga sem voru viðstaddir útför Abbe Pierre í París í dag. Abbe Pierre, sem lést á mánudag 94 ára að aldri, var í hópi virtustu og vinsælustu manna í Frakklandi fyrir baráttu sína í þágu heimilislausra.

Ítalskir hermenn áfram í Afganistan

Mið- og vinstri stjórn Romanos Prodis á Ítalíu samþykkti á maraþonfundi í gærkvöld að halda tæplega tvö þúsund manna herliði sínu í Afganistan áfram í landinu.

Skildi sprengju eftir í dúfnakassa

Að minnsta kosti fimmtán létu lífið og tugir særðust í sprengjuárás í miðborg Bagdad í morgun. Hryðjuverkið var framið á fjölförnum dýramarkaði í miðborginni en talið er að árásarmaðurinn hafi falið vítisvél sína í kassa sem var fullur af dúfum.

Óeining um sjálfstæði Kosovo

Rússar eru fullir efasemdar um áætlun Martti Ahtisaari erindreka Sameinuðu Þjóðanna sem myndi nánast gefa Kosovo hluta Serbíu sjálfstæði. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir embættismanni í dag. Eftir 90 mínútna fund í Vínarborg með tengiliðum sex valdaþjóða hvöttu Rússar til að ákvörðun um Kosovo yrði frestað þar til Serbía hafi myndað ríkisstjórn, en kosningar fóru fram í landinu 21. janúar.

Platini kjörinn forseti UEFA

Michel Platini, fyrrverandi leikmaður og þjálfari franska landsliðsins, var fyrir stundu kjörinn forseti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, á ársþingi sambandsins í Düsseldorf í Þýskalandi.

Spánverjar taka mál af 8 þúsund konum

Fatastærðir fyrir konur eru nú teknar til endurskoðunar á Spáni eftir að ríkisstjórnin ákvað að sporna við ímyndarþrýstingi á ungar stúlkur. Ein af breytingunum verður sú að búðareigendur eiga að stylla út breiðari gínum. Nokkrir mánuðir eru síðan sett var bann við of grönnum fyrirsætum á tískuvikunni í Madrid. Á Spáni er ekki óalgengt að konur fari með margar stærðir af sömu flíkinni inn í búningsherbergi, þar sem ómögulegt er að vita fyrirfram hvaða stærð þær þurfi.

Tveir létust í sjálfsmorðsárás í Pakistan

Tveir létust í sjálfsmorðsárás við Mariott hótelið í Islamabad höfuðborg Pakistan í dag. Innanríkisráðherra landsins sagði að auk árásarmannsins hefði öryggisvörður hótelsins látið lífið. Fréttamaður Reuter fréttastofunnar sagði bifreið, sem var rústir einar, hafi verið við hlið hótelsins og blóð og líkamsleifar á víð og dreif. Lögregla lokaði svæðinu fljótlega af og sírenur ómuðu um hverfið, en þar er fjöldi opinberra bygginga.

Kristallar koma úr stórutá

Samkvæmt fjölmiðlum í Malasíu síðastliðna daga er margt furðulegt að gerast þar. Kraftaverkalæknar eru á ferð og dularfullar risa-górillur láta glitta í sig. En það nýjasta er ung kona og tærnar á henni. Hvers vegna? Jú, það koma gimsteinar út úr þeim. Fjölmiðlar skýrðu fyrst frá þessu á þriðjudaginn var en fyrsti steininn leit dagsins ljós í október í fyrra.

Hermönnum fjölgað í Afganistan

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, tilkynnir á fundi Norðuratlantshafsbandalagsins (NATO) á morgun að Bandaríkjamenn ætli sér að fjölga hermönnum í Afganistan og auka við fjárhagsaðstoð til þess að gera út af við Talibana. Hún ætlast einnig til þess að bandamenn Bandaríkjanna í NATO geri slíkt hið sama en Evrópulöndin virðast hafa takmarkaðan áhuga á slíkum aðgerðum.

Ólöglegir innflytjendur sendir til síns heima

Mikill ótti hefur gripið um sig í samfélögum spænskra innflytjenda í Kaliforníu í Bandaríkjunum að undanförnu eftir að lögregla þar hóf að flytja af landi brott ólöglega innflytjendur. Lögreglan hóf átakið á þriðjudaginn var og segist einbeita sér að þeim ólöglegu innflytjendum sem eru glæpamenn.

Fox stefnir Google

Kvikmyndasamsteypan 20th Century Fox stefndi í gær Google, eigendum YouTube heimasíðunnar eftir að heilu þættirnir úr seríunni frægu „24“ birtust á YouTube. Fox krefst þess að Google láti af hendi upplýsingar um notandann sem setti þættina á heimasíðuna.

Yfirborð sjávar mun hækka næstu 1000 árin

Yfirborð sjávar mun halda áfram að hækka næstu þúsund árin þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda í heiminum til þess að koma í veg fyrir það. Ástæðan fyrir hækkun yfirborðs sjávar er talin vera aukið magn gróðurhúsaloftteguna.

Myrtar til að vera giftar

Þrír menn í Kínva voru handteknir fyrir að hafa myrt tvær konur og selt líkin sem „Líkbrúðir" Samkvæmt gömlum kínverskum hefðum boðar það ekki gott ef ungir menn deyja án þess að hafa gift sig og þess vegna hefur það verið stundað að grafa látnar konur við hliðina á þeim til þess að þeir fái notið þeirra í framhaldslífinu.

Dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir morð í Írak

Bandaríski hermaðurinn Corey Clagett var í dag dæmdur í fangelsi til 18 ára fyrir þátttöku sína í morði á þremur íröskum föngum. Hann er þriðji hermaðurinn sem er dæmdur í tenglsum fyrir morðin. Þau áttu sér stað nærri borginni Tíkrít í norðurhluta Írak 9. maí 2006.

34 létust og 64 slösuðust

Að minnsta kosti 26 manns létu lífið og 64 slösuðust þegar bílsprengja sprakk í Karrada verslunarhverfinu í Bagdad í dag. Fyrr um daginn voru gerðar tvær árásir á markaði í Bagdad og létust átta manns í þeim. Heildartala látinna í dag er því komin upp í 34.

Bandaríkin styrkja Afganistan um 740 milljarða

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í dag að stjórn George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, myndi biðja þingið um að heimila 10,6 milljarða dollara fjárveitingu til Afganistan. Þetta jafngildir 740 milljörðum íslenskra króna.

Fer holu í höggi

Bandaríski skrautpáfagaukurinn Al hefur að undanförnu leikið listir sínar fyrir sjónvarpsáhorfendur í Flórída. Gauksi er fjölhæfur í meira lagi því á meðal íþróttagreina sem hann hefur lagt fyrir sig eru körfubolti, fimleikar og meira að segja golf.

Skíðamenn í Evrópu kætast

Skíðamenn í Evrópu hafa tekið gleði sína eftir snjókomu og frosthörkur undanfarinna daga. Í Bæjaralandi í Þýskalandi voru skíðasvæðin opnuð í morgun í fyrsta sinn í vetur og voru brekkurnar fljótar að fyllast af fólki á skíðum, snjóbrettum og jafnvel sleðum.

Lenti í árekstri við farþegaþotu

Franskur vörubílstjóri lét lífið þegar hann lenti í árekstri við farþegaþotu á fleygiferð nærri bænum Pau í Frakklandi í dag . Þotan, sem var af gerðinni Fokker 100 og í eigu Air France, virðist hafa runnið út af flugbrautinni í þann mund sem hún var að hefja sig til flugs.

Egypskur bloggari fyrir dómstólum

Lögfræðingar egypsks bloggara, sem hefur verið ákærður fyrir niðrandi skrif um íslam og að móðga forseta Egyptalands, segja að líklegt sé að hann verði dæmdur fyrir annað brota sinna. Abdel Karim Suleiman, sem er 22 ára fyrrum laganemi, er frjálslyndur múslimi. Hann gæti fengið allt að níu ára fangelsisdóm.

Köld eru kvenna ráð

Belgíska lögreglan rannsakar um þessar mundir reyfarakennt ástríðumorð sem framið var í þrettán þúsund feta hæð. Svo virðist sem kona hafi komið viðhaldi unnusta síns fyrir kattarnef með því að eyðileggja fallhlíf hennar.

Útgöngubanni lýst yfir í Beirút

Á ráðstefnu sem haldin var um efnahag Líbanons í Frakklandi í dag tókst að safna rúmlega fimm hundruð milljörðum til endurreisnar landsins. Á meðan á þessu stóð kom til heiftarlegra átaka í Beirút, höfuðborg Líbanons, á milli fylgismanna og andstæðinga ríkisstjórnarinnar.

ElBaradei hvetur til viðræðna

Aðalritari Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, Mohamed ElBaradei, sagði í dag að eina leiðin til þess að leysa deiluna við Írani væri að hefja viðræður við þá. Þetta kom fram á hringborðsumræðum um útbreiðslu kjarnavopna hjá Efnahagsstofnun heimsins.

Hillary með 19% forskot á Obama

Hillary Clinton, eiginkona Bill Clinton fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, varð langefst í skoðanakönnun bandaríska tímaritsins Time um það hver myndi verða forsetaframbjóðandi demókrataflokksins í forsetakosningunum árið 2006. Hún fékk alls 40% atkvæða en Barack Obama, sem margir telja að verði hennar helsti andstæðingur, hlaut aðeins 19%.

Ungur drengur stunginn til bana í Svíþjóð

Sjö ára drengur var stunginn til bana við skóla í Norrahammar suður af Jönköping í Suðurhluta landsins. Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn grunaður um morðið, en hann mun hafa stungið drenginn margsinnis með hníf.

Breska kirkjan andvíg ættleiðingum samkynhneigðra

Tilfinningaþrungin deila hefur sprottið upp í Bretlandi á milli ensku Biskupakirkjunnar og Kaþólsku kirkjunnar annars vegar og ríkisins hins vegar. Ný lög um jafnrétti sem taka gildi í apríl munu enda þá mismunun sem samkynhneigð pör sem vilja ættleiða barn hafa orðið fyrir. Kirkjunnar menn eru alfarið á móti því að nýju login nái yfir ættleiðingaskrifstofur kirkjunnar.

Líbanir styrktir um 7.6 milljarða dala

Erlendir stjórnmálamenn hafa lofað yfirvöldum í Líbanon 7.6 milljarða dala fjárhagsaðstoð, sem veitt verður bæði í formi lána og beinnar aðstoðar. Þetta tilkynnti Jacques Chirac Frakklandsforseti í dag á alþjóðlegri ráðstefnu í París sem efnt var til vegna efnahagsástandsins í Líbanon. Fjármagnið er veitt til enduruppbyggingar landsins eftir stríðið milli Hisbolla og Ísrael síðastliðið sumar. Líbanir höfðu vonast til að fá 9 milljarða dala í aðstoð. Bandaríkin Frakkland, Evrópusambandið og Saudi Arabía eru meðal meðal þeirra landa sem leggja til fjármagn. Fouad Siniora forsætisráðherra Líbanons sagði fjármagnið nauðsynlegt til að stuðla að pólitísku og samfélagslegu jafnvægi. Hann sagði að Líbanon væri á barmi kreppu og Chirac sagði að nú þyrfti að byggja upp frá grunni með hjálp alþjóðasamfélagsins.

Flugvél flaug á flutningabíl

Ökumaður lítils flutningabíls lést þegar farþegaflugvél í innanlandsflugi í suðurhluta Frakklands flaug inn í bílinn. Flugvélin, sem er gerðinni Fokker 100 og með rúmlega 50 farþega, var að taka á loft frá flugvelli nærri Pýrenafjöllunum þegar fugl flaug inn í annan hreyfil vélarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir