Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bjóða friðarviðræður Samkvæmt háttsettum talsmanni Sameinuðu þjóðanna er forseti Sýrlands, Bashar Assad, tilbúinn að hefja friðarviðræður við Ísrael án skilyrða. 24.11.2004 00:01
ESB geri svartan lista Evrópuríkin eiga að safna saman og deila með sér upplýsingum um fyrirtæki sem hafa orðið uppvís að því að beita mútum til að tryggja sér samninga, að mati Peter Eigen, forstjóra alþjóðlegrar stofnunar um gagnsæi í viðskiptum. Þetta kom fram á ráðstefnu í gær um leiðir til að sporna við spillingu. 24.11.2004 00:01
Yanukovych lýstur sigurvegari Yfirkjörstjórn í Úkraínu lýsti því yfir fyrir stundu að sigurvegari forsetakosninganna í landinu sé forsætisráðherrann Viktor Yanukovych. Yanukovych er sagður hafa fengið 49,46% atkvæða en mótframbjóðandi hans, Viktor Yushchenko, 46,61%. 24.11.2004 00:01
Súkkulaði vinnur á hósta Þeir sem þjást af þrálátum hósta yfir vetrartímann ættu að háma í sig súkkulaði því samkvæmt nýrri breskri rannsókn virðist súkkulaði lækna slíka kvilla betur en hefðbundin lyf. Það voru sérfræðingar við Imperial háskólann í Lundúnum sem gerðu rannsóknina en greint er frá niðurstöðum hennar í nýjasta hefti vísindaritsins <em>New Scientist</em>. 24.11.2004 00:01
Bjartsýnn á að friður náist Forsætisráðherra Pakistans, Shaukat Aziz, kveðst bjartsýnn á að friður náist á milli Pakistans og Indlands í kjölfar fundar hans með forsætisráðherra Indlands, Manmohan Singh, í dag. 24.11.2004 00:01
Janukovitsj lýstur sigurvegari Mikil spenna ríkir í Úkraínu eftir að yfirkjörstjórn forsetakosninganna staðfesti að Viktor Janukovitsj hefði sigrað. Valdarán segja stuðningsmenn Viktors Júsjenko. Framkvæmdastjóri ESB harmar niðurstöðuna. 24.11.2004 00:01
Borgarastyrjöld gæti brotist út Óttast er að borgarastyrjöld kunni að brjótast út í Úkraínu vegna ólgunnar sem þar er eftir forsetakosningarnar í landinu. Evrópusambandið telur að kosningasvik hafi verið framin í Úkraínu. 24.11.2004 00:01
Hætta auðgun úrans Íranar hafa gert hlé á auðgun úrans og annarri þróun kjarnorkuvopna samkvæmt tilkynningu sem var útvarpað í Íran í gær. 23.11.2004 00:01
Fjárfestar hrekjast frá Afríku Átök á Fílabeinsströndinni og í Darfur-héraði í Súdan fæla erlenda fjárfesta frá öðrum Afríkuríkjum. Þetta kom fram á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Eþíópíu um verslun og viðskipti. Afríka er fátækasta heimsálfan. 23.11.2004 00:01
Kafbátarnir úreltir Yfirmaður danska herflotans harmar það að báðir kafbátar danska hersins skulu úreltir í hagræðingarskyni nú í vikunni. Danska þingið samþykkti í júní síðastliðnum að tvöfalda fjölda danskra hermanna sem geta tekið þátt í alþjóðlegum aðgerðum. 23.11.2004 00:01
Segir Milocevic saklausan Nikolai Ryzhkov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir að sprengjuárásir NATO gegn Serbum í Kosovo árið 1999 hafi ekki haft neitt hernaðarlegt gildi, heldur hafi fyrst og fremst verið árás á Serbíu. 23.11.2004 00:01
Heitir stuðningi Bandaríkjanna Colin Powell, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heitir Palestínumönnum stuðningi Bandaríkjanna í forsetakosningunum í janúar á næsta ári. 23.11.2004 00:01
Vannærð börn helmingi fleiri Tæplega helmingi fleiri írösk börn þjást af vannæringu núna en áður en ráðist var inn í landið, þrátt fyrir matardreifingu Sameinuðu þjóðanna. Þetta eru niðurstöður norskrar rannsóknar sem var unnin í samvinnu við írösku bráðabirgðastjórnina og Þróunaraðstoð Sameinuðu þjóðanna. 23.11.2004 00:01
Enn mótmælt í Úkraínu Þúsundir mótmælenda létu kulda ekki á sig fá og héldu áfram mótmælum gegn meintum kosningasvikum og fölskum niðurstöðum í forsetakosningum í Úkraínu í nótt. Á meðal mótmælendanna gengu sögusagnir þess efnis, að öryggissveitir hygðust leggja til atlögu við þá og ryðja þeim burt, en engar fregnir hafa borist af því. 23.11.2004 00:01
Starfsmönnum SÞ sleppt Þremur starfsmönnum Sameinuðu Þjóðanna í Afghanistan, sem rænt var í síðasta mánuði, hefur verið sleppt. Eftir þrjár vikur í haldi mannræningja er fólkið nú á heimleið að lokinni læknisrannsókn. Afgönsk yfirvöld töldu glæpamenn hafa rænt fólkinu og að þeir krefðust lausnargjalds, en ekki er ljóst á þessari stundu hvernig það kom til að fólkinu var sleppt. 23.11.2004 00:01
Vonast eftir friði fyrir árslok Vonir standa til að samkomulag takist um frið í Darfur-héraði í Súdan fyrir lok árs. Utanríkisráðherra Súdans segir það markmiðið. Friðarviðræður standa nú í Abuja í Nígeríu. Flytja varð þrjátíu breska hjálparstarfsmenn á brott í skyndingu í gær, eftir að bardagar brutust út í þorpinu sem þeir störfuðu í. 23.11.2004 00:01
Neyðarfundur í Úkraínu Nú stendur yfir neyðarfundur á úkraínska þinginu, sem boðað var til vegna forsetakosninganna sem fóru fram á sunnudaginn. Talsmaður þingsins sagði að það væri ósiðlegt af þingmönnum að láta eins og allt væri með felldu í landinu og sjálfstæðis þess vegna væri algerlega lífsnauðsynlegt að kryfja framkvæmd kosninganna til mergjar. 23.11.2004 00:01
SÞ rannsaka misnotkun Sameinuðu Þjóðirnar hafa sett af stað rannsókn vegna meintra ásakana á hendur starfsmönnum stofnunarinnar í Kongó. Alls hafa borist yfir 150 ásakanir vegna meintra nauðgana, vændissölu og barnamisnotkun á flóttamönnum í herbúðum Sameinuðu Þjóðanna í Kongó. Sum atvikin hafa verið tekin upp á myndband, eða náðst á ljósmynd. 23.11.2004 00:01
Stóð til að sprengja upp turna Öryggisyfirvöld í Bretlandi segja að staðið hafi til að gera hryðjuverk á Canary-turnana í London, en komið hafi verið í veg fyrir það. Dagblaðið Daily Mail greinir frá því í dag að hryðjuverkamenn tengdir Al-Qaeda samtökunum hafi ætlað sér að granda flugvélum á turnunum þremur með svipuðum hætti og gert var við tvíburaturnana í New York. 23.11.2004 00:01
Aukið hungur kemur ekki á óvart Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir skýrslu um aukna vannæringu íraskra barna ekki koma á óvart. Hann telur ástand í landinu þó betra en áður en ráðist var inn. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir niðurstöðurnar skelfilegar 23.11.2004 00:01
Hundruð þúsunda mótmæla Hundruð þúsunda mótmæla enn kosningasvikum í Úkraínu. Þing landsins kom saman til neyðarfundar í dag til að ræða vandann, og mótmælendurnir óttast aðgerðir öryggissveita. Tugir þúsunda stuðningsmanna stjórnarandstöðuframbjóðandans Viktors Yuschenkos létu frostkalda nóttina ekki stöðva sig og héldu áfram mótmælum á aðaltorginu í Kænugarði. 23.11.2004 00:01
Gera tilraunir með fanga Alþjóðleg og suður-kóresk mannréttindasamtök hafa krafist rannsóknar á því hvort Norður-Kóreumenn noti pólitíska fanga við rannsóknir á efnavopnum. 23.11.2004 00:01
Þjóðverjar efast um úrslit Utanríkisráðherra Þýskalands, Joschka Fischer, sagði að efasemdir um úrslit forsetakosninganna í Úkraínu væru alveg réttlætanlegar. 23.11.2004 00:01
Feta sömu braut Nýr leiðtogi PLO, Mahmud Abbas, sagði á þingi Palestínumanna að hann lofaði að feta í fótspor Jassers Arafat. 23.11.2004 00:01
Sleppt heilum á húfi Þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna sem teknir höfðu verið í gíslingu var sleppt eftir nær fjórar vikur. Innanríkisráðherra Afganistans, Ali Ahmad Jalali, segir að engir samningar hafi verið gerðir til að tryggja öryggi þeirra. 23.11.2004 00:01
Smituðum konum fjölgar Nýjar tölur sýna að nærri helmingur þeirra 37,2 milljóna fullorðinna sem sýktir eru af HIV-veirunni eru konur og hefur þeim fjölgað alls staðar í heiminum. Mest fjölgar konum sýktum af HIV í Austur-Evrópu og Austur- og Mið-Asíu. Á sumum þessum svæðum er hlutfall sýktra orðið hærra meðal kvenna en karla. 23.11.2004 00:01
Ekki staðið við loforð Háttsettur aðstoðarmaður klerksins Muqtada al-Sadr, sakar írösk stjórnvöld um að ganga gegn samningi sem gerður var í ágúst til að ljúka bardögum í Najaf. 23.11.2004 00:01
Mótmæli standa enn Rúmlega 100.000 manns umkringdu þinghúsið í Kænugarði í gær með appelsínugula fána, til að mótmæla kosningasvikum í forsetakosningunum í Úkraínu . Kallað var til neyðarfundar á úkraínska þinginu til að ræða ósk Viktors Yuchenkos um að lýsa yfir vantrausti á kjörstjórnina og að falla frá opinberum úrslitum. 23.11.2004 00:01
Um sjötíu dæmdir Dómstóll í Sviss hefur dæmt 68 menn seka um að kaupa barnaklám eftir stærstu aðgerð af þessu tagi í landinu. Dómar hljóðuðu upp á allt að átta mánaða fangelsisvist og sektir upp að 480.000 krónum. Með dómnum lýkur tveggja ára alþjóðlegri rannsókn, í samvinnu við yfirvöld í Bandaríkjunum og Þýskalandi. 23.11.2004 00:01
Friðargæslu að ljúka Yfirmaður friðargæslu NATÓ í Bosníu hafnar allri gagnrýni fyrir að hafa ekki náð Radovan Karadzic, sem er á flótta undan ákærum um stríðsglæpi. Störfum friðargæslunnar í Bosníu er nú að ljúka eftir níu ár. Hann segir mörg dæmi um að erfitt sé að finna fólk á flótta og vísaði til þess að enn hefði ekki tekist að handsama Osama bin Laden. 23.11.2004 00:01
Kanar jákvæðir Meirihluti Bandaríkjamanna segjast vera jákvæðir gagnvart öðru kjörtímabili George W. Bush sem forseta, en margir hafa einnig áhyggjur af nokkrum stefnumálum, eftir því sem kemur fram í New York Times/CBS News skoðanakönnun. 23.11.2004 00:01
Taka Flugleiðir yfir easyJet? Breskir fjölmiðlar spá í morgun yfirtökutilboði frá Flugleiðum í lággjaldaflugfélagið easyJet. Gengi bréfa í félaginu hækkaði vegna sögusagnanna, en búist er við lækkun og hugsanlegu yfirtökutilboði í kjölfar þess að afkomutölur verða birtar á morgun. 22.11.2004 00:01
Brögð í tafli? Ásakanir um kosningasvindl eru komnar fram í Úkraínu þar sem forsetakosningar vour í gær. Útgönguspár bentu til þess að stjórnarandstæðingurinn Viktor Yushchenko hefði náð meirihluta, en tölur kjörnefndar, sem birtar voru á sjöunda tímanum í morgun, gefa hins vegar til kynna að forsætisráðherra landsins, Viktor Yanukovich, hafi hlotið fleiri atkvæði og hafi um hálfs prósents forskot. 22.11.2004 00:01
Powell í Mið-Austurlöndum Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn til Ísraels þar sem hann hyggst reyna að endurvekja friðarferlið þar. Palestínumenn vona og vilja að hann hlutist til um að Ísraelsstjórn standi ekki í vegi fyrir forsetakosningum á svæðum Palestínumanna, en þær eru fyrirhugaðar eftir um einn og hálfan mánuð. 22.11.2004 00:01
Auðvelda baráttu gegn hryðjuverkum Bretar hafa áhyggjur af hryðjuverkum og hyggjast breyta lögum til að auðvelda baráttuna gegn þeim. Meðal hugmynda sem eru til umræðu eru að grípa til forvarna gegn fólki sem talið er að leggi á ráðin um hryðjuverk. Auk þessa er rætt um dómstóla án kviðdóms og að leyfa upptökur af hleruðum samtölum sem sönnunargögn. 22.11.2004 00:01
Fjölga hermönnum í Afghanistan Danir ætla að fjölga hermönnum sínum í Afganistan. Politiken segir hermönnunum ætlað að vinna að mannúðarstörfum og þjálfa nýjan, afganskan her. Eftir fjölgunina verða 225 danskir hermenn í Afganistan. 22.11.2004 00:01
Íranir hætta auðgun úrans Íranar hafa ákveðið að hætta auðgun úrans, en kjarnorkuáætlun íranskra stjórnvalda er mjög umdeild á alþjóðavettvangi. Bandaríkjamenn telja Írana vinna að þróun kjarnorkuvopna og er það ein meginástæða þess, að auðgun úrans er hætt: til að draga úr spennu. 22.11.2004 00:01
Ekkert grunsamlegt Engar vísbendingar um banamein Jassirs Arafats er að finna í læknaskýrslum hans, samkvæmt því sem Nasser al-Kidwa, frændi Arafats, segir. Hann fékk skýrslurnar afhentar hjá frönskum yfirvöldum. Al-Kidwa segir eiturefnapróf hafa verið gert á Arafat, en að ekkert grunsamlegt hafi þar komið í ljós. <font size="4"></font> 22.11.2004 00:01
Meira en 50 handteknir Fleiri en fimmtíu voru handteknir í rassíu lögreglunnar gegn mafíunni í suðurhluta Ítalíu í morgun. Meðal þeirra sem eru í haldi eru þingmaður og fjöldi annarra stjórnmálamanna. Nokkur fjöldi kaupsýslumanna er einnig í haldi, en mennirnir eru allir grunaðir um tengsl við skipulagða glæpastarfemi, peningaþvætti og fjárkúgun. 22.11.2004 00:01
Mótmæli í Kænugarði Forsætisráðherra Úkraínu eru nú sagður hafa verið kosinn næsti forseti landsins, en hann hefur þriggja prósenta forskot á meginkeppinaut sinn sem naut þó mun meira fylgis í útgönguspám í gær. Stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar segja greinilegt að maðkur sé í mysunni og eru þúsundum saman á megintorginu í Kænugarði. 22.11.2004 00:01
Hefja afskipti á ný Bandaríkjamenn hafa hafið afskipti af friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs á ný. Powell, utanríkisráðherra, er kominn til Ísraels til viðræðna við Ísraela og Palestínumenn. 22.11.2004 00:01
Bretar halla sér að flöskunni Nærri fjórðungur allra fullorðinna Breta notar áfengi til að minnka þunglyndi eða auka sjálfstraust. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn lækna í Bretlandi. Þannig drekka 23% Breta áfengi þegar þeim líður illa og tveir af hverjum fimm fá sér í tána áður en þeir njóta ásta. Þá fá heil 14 prósent sér snafs áður en gengið er til vinnu. 22.11.2004 00:01
Börn til sölu Ungabörn ganga kaupum og sölu í austur-Evrópu og verðið er frá rúmum 40 þúsund íslenskum krónum. Sky-fréttastofan greinir frá því að það hafi aðeins tekið fréttamann stöðvarinnar nokkrar mínútur að finna foreldra í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, sem voru reiðubúin að selja krílið sitt fyrir nokkra tugi þúsunda. 22.11.2004 00:01
ESB vill að kosið verði að nýju Evrópusambandið fer fram á að forsetakosningarnar í Úkraínu verði endurteknar, þar sem þær hafi ekki uppfyllt lýðræðisleg skilyrði. Talsmenn allra aðildarríkja ESB hyggjast senda Úkraínumönnum orðsendingu, þar sem hvatt verður til þess að kosningarnar verði endurteknar og farið verði að ítrustu skilyrðum um lýðræðislega framkvæmd þeirra. 22.11.2004 00:01
Þingið hafni kosningúrslitum Stjórnvöld í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, hafa hvatt úkraínska þingið til þess að samþykkja ekki úrslit nýafstaðinna forsetakosninga. Í yfirlýsingu frá borgarráði Kænugarðs segir að miklar efasemdir séu uppi um að rétt hafi verið staðið að kosningunum og því sé eðlilegt að þingið neiti að samþykkja úrslitin. 22.11.2004 00:01