Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dauðarefsing andstæð íslenskri stefnu Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir að Saddam Hussein hafi svo sannarlega átt skilið refsingu en dauðarefsing sé þó andstæð stefnu íslenskra stjórnvalda. Íslandsdeild Amnesty International fordæmir þessa aftöku og segir einnig að réttarhöldin yfir Saddam hafi verið meingölluð. 30.12.2006 18:30
Skotið á bíl lögreglumanns Skotið var á bíl lögreglumanns á Blönduósi í nótt en enginn var í bílnum þegar skotárásin átti sér stað. Lögreglan á Blönduósi verst allra frétta af málinu en nær allt starfslið lögreglunnar á Blönduósi starfar við málið. 30.12.2006 17:42
Íslandsdeild Amnesty International fordæmir aftöku á Saddam Hússein Íslandsdeild Amnesty International sendi frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem aftakan á Saddam Hússein er fordæmd og sagt að réttlætið hafi þar lútað í lægri hald fyrir hefndarþorstanum. Segir í henni að þar sem Saddam hafi verið tekinn af lífi glatist mikilvægt tækifæri til þess að komast að sannleikanum. 30.12.2006 17:30
67 ára og nýbökuð móðir 67 ára gömul spænsk kona varð í dag elsta konan til þess að eignast börn í fyrsta sinn en hún eignaðist tvíbura. Konan varð ólétt eftir tæknifrjóvgun í Suður-Ameríku og voru tvíburarnir teknir með keisaraskurði. Bæði móður og börnum heilsaðist vel samkvæmt fregnum frá spítalanum sem þau eru á. 30.12.2006 17:01
Mikið tjón þegar hundruð fiskikara brunnu í Grindavík Mikið tjón varð á athafnasvæði fiskvinnslustöðvarinnar Þróttar í Grindavík seint í gærkvöldi þegar eldur kom upp í stæðu af fiskikörum á lóð fyrirtækisins. Um 1000 kör voru í stæðunni og var mikill eldur þegar Slökkvilið Grindavíkur kom á svæðið. Rýma þurfti hús í Grindavík þar sem eitraður reykurinn stóð yfir hluta byggðarinnar. 30.12.2006 16:44
Ögurstund nálgast í Sómalíu Yfirmaður íslamska dómstólaráðsins, Sheik Sharif Sheik Ahmed, sagði íbúum í hafnarborginni Kismayo, þar sem herafli þess er, að þeir hefðu ákveðið að berjast við óvininn. Stjórnarherinn, styrktur af eþíópískum hersveitum, streymir nú frá Mogadishu til Kismayo og er búist við lokabardaga á milli herjanna tveggja á næstu dögum. 30.12.2006 16:38
32% aukning á framlagi til foreldra með börn hjá dagforeldrum Þann 1. janúar 2007 eykst framlag Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar með börnum hjá dagforeldrum um 32%. Markmiðið með því að auka framlag til dagforeldra er fyrst og fremst að lækka kostnað foreldra sem nýta sér þjónustu dagforeldra en einnig að tryggja grundvöll fyrir þjónustunni. 30.12.2006 16:15
Sádi-Arabía gagnrýnir Íraka Stærsta ríki súnní múslima gagnrýndi í dag stjórnvöld í Írak fyrir að hafa tekið Saddam Hússein af lífi við upphaf helgustu hátíðar múslima, Eid al-Adha, en sjíar ráða ríkjum í Írak. „Við erum mjög hissa og vonsviknir yfir því að úrskurði dómstóla hafi verið framfylgt á þessum heilaga tíma, þessum fyrstu dögum Eid al-Adha,“ sagði kynnir á ríkissjónvarpsstöðinni í ríkinu þegar gert var hlé á dagskránni til þess að lesa upp tilkynninguna. 30.12.2006 15:37
Nýr sæstrengur væntanlegur Ríkisstjórnin hefur samþykkt að tillögu Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að hefja undirbúning að lagningu nýs sæstrengs milli Íslands og Evrópu. Samgönguráðherra mun fyrstu dagana í janúar ræða við þá sem málið snertir, fulltrúa fjarskiptafyrirtækjanna, stjórn Farice og aðra hagsmunaaðila. 30.12.2006 15:00
Skotbardagar geisa enn í Rio de Janeiro Ofbeldi er enn útbreitt í Ríó de Janeiro í Brasilíu þrátt fyrir hertar aðgerðir lögreglu vegna stærsta áramótapartýs í heimi. Lögreglan drap fimm grunaða meðlimi eiturlyfjagengis í skotbardaga í gær og lenti síðan í skotbardaga við eiturlyfjasala sem réðust á lögreglustöð í morgun. 30.12.2006 14:45
Herinn á Sri Lanka gerir árásir á búðir Tamíltígra Herflugvélar stjórnarhers Sri Lanka gerðu í morgun sprengjuárásir á búðir Tamíltígra á austurhluta eyjunnar en árásin var gerð á einn síðasta griðastað þeirra á ströndinni. Önnur árás var síðan gerð á búðir sjóhers Tamíltígra. 30.12.2006 14:15
Mannfólkið getur víst flogið Mannskepnuna hefur frá örófi alda dreymt um að geta flogið um loftin blá og það er akkúrat það sem einum svissneskum manni hefur tekist að gera. Hann smíðaði sér vængi, setti á þá hreyfla og hoppar svo úr flugvélum og flýgur uns eldsneytið klárast. Lendir hann þá mjúklega með aðstoð fallhlífar. 30.12.2006 14:15
Kastró á batavegi Kúbverska ríkisstjórnin greindi frá því í dag að Fídel Kastró, hinn veiki leiðtogi þeirra, hefði hringt í sendiherra Kína á Kúbu í gær til þess að ræða samskipti ríkjanna tveggja. Kastró bað meðal annars fyrir nýárskveðjur til Hu Jintao, forseta Kína. 30.12.2006 14:00
Sprenging særir sex í Tyrklandi Sprenging varð á bar í austurhluta Tyrklands í dag og særðust sex manns í tilræðinu. Ekki var vitað hvað olli sprengingunni eða hverjir voru þar að verki en talið er að vitni hafi séð þá sem að henni stóðu. 30.12.2006 13:45
15 manns láta lífið í árásum í Írak Þrjár bílasprengjur sprungu með stuttu millibili í Hurriya hverfinu í Bagdad í morgun en meirihluti íbúa þar eru sjía múslimar. 15 manns létust og 25 til viðbótar særðust. Árásin á sér stuttu eftir að Saddam Hússein, sem var súnní múslimi og fyrrum einræðisherra í Írak, var hengdur og talið er að þetta séu hefndaraðgerðir súnní múslíma vegna aftökunnar. 30.12.2006 13:22
Matvöruverð hækkar Nú eru einungis nokkrir mánuðir þar til virðisaukaskattur á matvælum lækkar, en áður en neytendur fá að njóta þess, mun matvælaverð að öllu jöfnu hækka. Þessa dagana er það daglegt brauð að birgjar tilkynni um hækkanir á vörum. 30.12.2006 13:00
Palestínumenn syrgja Saddam Þó svo margir fagni aftöku Saddams Hússeins syrgdu Palestínumenn hann í morgun þar sem hann var einn af þeirra helstu stuðningsmönnum. Ólíkt nærri öllum öðrum í heiminum sáu Palestínumenn Saddam ekki sem harðstjóra heldur sem rausnarlegan velgjörðarmann sem var óhræddur að berjast fyrir málstað Palestínu en síðustu orð Saddams voru „Palestína er Arabaríki." 30.12.2006 12:30
44 dæmdir til dauða í Japan árið 2006 44 voru dæmdir til dauða í Japan á árinu sem er að líða en aldrei hafa svo margir verið dæmdir til dauða á einu ári. 21 dauðadómur var staðfestur og eru því 94 á dauðadeild og hafa aldrei verið svo margir þar áður. 30.12.2006 12:06
Hundruð þúsunda hafast við í neyðarskýlum Hundruð þúsunda frá Indónesíu og Malasíu eru enn í bráðabirgðahúsnæði eftir að hafa þurft að flýja heimili sín vegna flóða undanfarnar vikur en ástandið er smám saman að batna. 30.12.2006 11:34
850 manna ferja sekkur við Indónesíu Ferja með 850 farþegum sökk í stormi undan ströndum Indonesíu. Aðeins níu manns hafa fundist á lífi, en miklir vindar hamla björgunarfólki að finna fólk í sjónum. Skipið var á leið frá mið Jövu til til hafnar á Borneo. 30.12.2006 11:00
Engin lausn sjáanleg í Gas-stríðunum Talsmenn rússneska gasrisans Gazprom sögðust í morgun ekki sjá neina lausn í deilu sinni við Hvít-Rússa en Gazprom ákvað einhliða að hækka verðið á gasi um eitthundrað tuttugu og þrjú prósent auk þess að krefjast þess að fá eignarrétt yfir dreifikerfi Hvít-Rússa. 30.12.2006 10:45
Fólksfækkun á vestfjörðum Íbúum í Reykhólahreppi og Vesturbyggð hefur fækkað um 25 prósent frá árinu 1997. Á sama tíma hefur íbúum Ísafjarðarbæjar hefur fækkað um tæp sjö prósent og Bolvíkingum og súðvíkingum um rúm 17 prósent. Fækkun er í flestum bæjarfélögum á vestfjörðum, en íbúafjöldi Bæjarhrepps stendur í stað í 100 íbúum. 30.12.2006 10:30
ETA sprengir á spáni Sprenging varð í morgun á bílastæði við Baraja flugvöllinn í Madrid. Ónafngreindur aðili hafði áður hringt inn og sagt frá sprengjunni svo það náðist að rýma stæðið. Aðeins tveir lögreglumenn sem voru að leita að bifreiðinni með sprengjunni í meiddust. 30.12.2006 10:24
Viðbrögð við aftöku Saddams blendin Saddam Hússein var tekinn af lífi í nótt og hafa viðbrögð alþjóðasamfélagsins verið blendin. Vatíkanið og Rússland hörmuðu aftökuna þar sem þau sögðu að þau væru á móti öllum dauðarefsingum en Frakkar, sem eru einnig á móti dauðarefsingum, hvöttu Íraka til þess að horfa fram á veginn. 30.12.2006 10:16
Saddam verður hengdur í nótt segir íraskur embættismaður Saddam Hússein verður hengdur í nótt, á milli hálf þrjú og þrjú að íslenskum tíma. Þetta staðfesti háttsettur íraskur embættismaður í kvöld en hann er einn af þeim sem verður að vera viðstaddur henginguna. 29.12.2006 23:34
14 ára siglir einn yfir Atlantshafið 14 ára breskur strákur, Michael Perham, freistar þess nú að verða yngsti maðurinn í sögunni til þess að sigla einn og óstuddur yfir Atlantshafið. Hann hóf ferðina þann 18. nóvember síðastliðinn og býst við því að klára ferðina þann 2. janúar. Faðir hans siglir þó 2 sjómílum á eftir honum til vonar og vara. Lagði hann upp frá Bretlandi og áætlar að enda í Antigua í Karibíahafinu. 29.12.2006 23:11
Hvít-Rússar neita að gefast upp Forseti Hvíta-Rússlands, Alexander Lukashenko, sagði í dag að hann myndi ekki líða fjárkúgun Rússa í því sem farið er að kalla Gas-stríðin. Lukashenko sagði „Hvíta-Rússland mun ekki verða við fjárkúgunum Gazprom. Ef þeir halda áfram að beita okkur þrýstingi munum við fara í skotgrafirnar en við munum ekki gefast upp.“ 29.12.2006 22:49
Rúanda krefst framsals á fjórum frá Bretlandi Fjórir menn búsettir í Lundúnum hafa verið dregnir fyrir rétt til þess að ákveða hvort að eigi að framselja þá til Rúanda þar sem lýst er eftir þeim út af ákærum vegna þjóðarmorðsins árið 1994. Mennirnir, sem eru allir á fimmtugsaldri, voru handteknir á heimilum sínum í Bretlandi seint í gærkvöldi. Allir fjórir neita þeir þó ákærunum. 29.12.2006 22:23
Lögmenn Saddams reyna að koma í veg fyrir aftöku hans Lögmenn Saddams Hússeins, sem á að taka af lífi á næstu klukkustundum, hafa beðið bandarískan rétt um að stöðva aftöku hans. Tillagan var lögð fram á síðustu stundu en hún er lögð fram á þeim grundvelli að hann sé nú þegar sakborningur í öðru máli og að ef hann verði líflátinn geti hann ekki varið sig í málinu sem er í gangi núna. 29.12.2006 22:00
Bandaríkin hvetja til vopnahlés í Sómalíu Bandaríkin hvöttu í kvöld sómölsk stjórnvöld til þess að reyna að koma á vopnahléi milli þeirra og íslamska dómstólaráðsins, en uppreisnarmennirnir kalla sig það. 29.12.2006 21:54
66 ferkílómetra íshella veldur áhyggjum Risastór íshella hefur brotnað frá íshellunni norður af Kanada og gæti valdið miklum usla ef hún flýtur suður á bógin næsta sumar því þar eru stór olíuvinnslusvæði sem og skipaleiðir. 29.12.2006 21:18
Stærsta grænmetisrán sögunnar Samkvæmt nýjustu fréttum var vörubílsfarmi af brokkólí stolið í úthverfi í Chicago í dag. Búist er við því að verðið á grænmetinu eigi eftir að hækka vegna þjófnaðarins en grænmetið fyllti stóran 48 feta gám. Rannsóknarmenn velta því nú fyrir sér hvort um sé að ræða stærsta grænmetisrán sögunnar. 29.12.2006 21:00
Allt tilbúið fyrir aftöku Búist er við því að Saddam Hússein verði tekinn af lífi í kvöld eða við sólarupprás í fyrramálið en þetta sagði íraski dómarinn Moneer Haddad, sem verður viðstaddur aftökuna. Þeir sem hafa heimild til þess að fylgjast með aftökunni hefur þegar verið safnað saman svo líklegra er að hann muni ganga að gálganum á næstu klukkutímum. 29.12.2006 20:53
Dr. Steinar Þór Guðlaugsson valinn vísindamaður ársins 2006 Vísindamaður ársins 2006 var heiðraður við hátíðlega athöfn í Norræna Húsinu í gær. Sá sem titlinn fékk var Dr. Steinar Þór Guðlaugsson en hann er jarðeðlisfræðingur að mennt og fær hann verðlaunin fyrir margþættar rannsóknir á landgrunni okkar Íslendinga. 29.12.2006 20:15
Skúringar minnka líkur á brjóstakrabbameini Konur sem stunda líkamlega æfingu með því móti að þrífa heima hjá minnka líkurnar á því að fá brjóstakrabbamein en þetta kom fram í nýrri rannsókn sem nýlega kom út. Alls voru fleiri en 200.000 konur í níu löndum í Evrópu rannsakaðar og í ljós kom að mikið betra var að þrífa húsið hátt og lágt heldur en að iðka íþróttir. 29.12.2006 20:14
Njörður verðlaunaður af Sænsk-íslenska menningarsjóðnum Njörður P. Njarðvík fékk í dag Menningarverðlaun Sænsk-íslenska menningarsjóðsins árið 2006. Ákveðið var að verðlaunin féllu honum í skaut vegna mikils framlags hans til menningarsamskipta Íslands og Svíðþjóðar. 29.12.2006 20:00
Róbert Wessmann maður ársins í íslensku atvinnulífi 2006 Róbert Wessman, forstjóri Actavis Group, var í dag veitt viðurkenningin maður ársins í íslensku atvinnulífi árið 2006. Það er Frjáls verslun sem velur mann ársins en Geir H. Haarde forsætisráðherra afhenti Róbert verðlaunin í dag. 29.12.2006 19:45
Sómalir ná stjórn á Mogadishu Forsætisráðherra Sómalíu sneri aftur til höfuðborgarinnar Mogadishu í dag við mikinn fögnuð borgarbúa. Hersveitir nágrannaríkisins Eþíópíu hlutu hins vegar ekki jafnblíðar móttökur og voru grýttar þar sem hermennirnir tóku stjórnina við höfnina og flugvöllinn í Mogadishu. 29.12.2006 19:30
Þrjár milljónir múslima til Mekka Þrjár milljónir múslima feta nú í fótspor spámannsins Múhameðs í pílagrímsferð til Mekka og í kjölfar hennar verður haldin ein stærsta hátíð múslima. Á palestínsku sjálfstjórnarsvæðunum ber þó skugga á gleðina enda hefur þar sjaldan verið jafnþröngt í búi. 29.12.2006 19:16
Áfengissala tvöfaldast nú fyrir áramótin Allmargir skála í freyðivíni og smyrja talfærin til að kveðja gamla árið. Salan hjá ÁTVR er rösklega tvöfalt meiri fyrir þessa síðustu helgi ársins en aðrar helgar. Flöskurnar eru þó ekki svo miklu fleiri - en vínið er betra. Og þar með dýrara. 29.12.2006 18:59
Missti íbúð vegna vanefnda Guðmundar í Byrginu Kona á miðjum aldri missti íbúð sína og hraktist út á land eftir að Guðmundur og aðrir forráðamenn í Byrginu sviku út úr henni um tvær milljónir króna. Hún ætlar að kæra Guðmund fyrir vanefndir. 29.12.2006 18:43
Þjónustusamningur við Flugstoðir ohf undirritaður Í dag var undirritaður þjónustusamningur milli samgönguráðuneytisins og opinbera hlutafélagsins Flugstoða sem tekur yfir flugvallarekstur og flugleiðsöguþjónustu fyrsta janúar. Fyrirtækið verður verulega undirmannað þegar það tekur til starfa á mánudag, vegna aðgerða Félags íslenskra flugumferðarstjóra. 29.12.2006 18:42
Lagabreyting rökstudd með lögbrotum Íslensku flugfélögin hafa á undanförnum árum svikist um að greiða hunduð milljóna króna í skattgreiðslur vegna leigu á flugvélum erlendis frá. Nú þegar Alþingi laumar í gegn breytingu á skattalögunum vegna þessa er sú breyting rökstudd með vísan til skattsvikana, það er, að skatturinn hafi hvort eð er aldrei skilað krónu í ríkiskassann. 29.12.2006 18:30
Myndavélar ná ekki brennuvörgum Á annan tug eftirlitsmyndavéla eru á hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum. Það er þó útilokað að þær hefðu getað náð myndum af brennuvarginum, eða vörgunum í Eyjum þar sem linsum vélanna er öllum beint á haf út. 29.12.2006 18:30
Ekki mat Persónuverndar Persónuvernd hefur ekki fengið beiðni um að úrskurða um lögmæti þess að Norðurál ætli að láta starfsmenn sína gangast undir lyfjapróf til að ganga úr skugga um að þeir noti ekki ólöglega vímugjafa. Málefnaleg rök þurfa að liggja til grundvallar slíkum aðgerðum að sögn lögfræðings Persónuverndar. 29.12.2006 18:30