Fleiri fréttir Bush viðurkennir tilvist leynifangelsa George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í kvöld að rekin væru leynifangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, um leið og hann tilkynnti að 14 meintir hryðjuverkamenn úr æðstu stöðum hafi verið fluttir í Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu. 6.9.2006 22:56 Viðtal við Natöschu Kampusch birt Natascha Kampusch, austurríska stúlkan, sem var í haldi mannræningja í átta ár, eða frá tíu ára aldri, segist einvörðungu hafa hugsað um að flýja á meðan hún var í haldi. Þetta kemur fram í viðtali við austurríska vikuritið News sem kom út í dag. 6.9.2006 20:26 Bónus ódýrasta lágvöruverslunin samkvæmt könnun ASÍ Bónus er ódýrasta lágvöruverðsverslunin, samkvæmt verðkönnun ASÍ, en ef lækka ætti matvöruverð enn frekar þyrfti að vinna bug á innflutningshöftum og fákeppni. Þetta segir hagfræðingur Alþýðusambandsins. 6.9.2006 20:19 Þjarmað að Blair Sjö þingmenn breska Verkamannaflokksins hafa sagt af sér til að mótmæla því að Tony Blair forsætisráðherra skuli ekki hafa tímasett brotthvarf sitt úr embætti. Blair segir að þeir séu svikarar. 6.9.2006 20:11 Eyða um efni fram sem aldrei fyrr Íslendingar eyða nú um efni fram - og fjárfesta - sem aldrei fyrr. Viðskiptahallinn tvöfaldaðist á fyrri helmingi ársins miðað við árið í fyrra og var hvorki meira né minna en 124 milljarðar króna. 6.9.2006 20:08 Danir númeri of stórir Íslenska landsliðið í knattspyrnu þurfti að sætta sig við 2-0 tap fyrir Dönum á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM. Danska liðið hafði sterk tök á leiknum frá upphafi og eftir að þeir Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson höfðu komið liðinu í 2-0 eftir rúman hálftíma, var sigur Dana aldrei í hættu. 6.9.2006 20:03 Nafnaskipti fyrirtækja Rótgróin íslensk fyrirtæki sem hasla sér völl á erlendum markaði þurfa í síauknum mæli að leggja gamla nafninu og búa til nýtt. Flest nöfn sem finna má í orðabókum eru frátekin. 6.9.2006 18:45 Háspennubilun veldur rafmagnsleysi Háspennubilun varð rétt fyrir klukkan sex í dag og er stór hluti Mosfellsbæjar og Barðastaðir í Grafarvogi rafmagnslaus. Verið er að leita að orsök bilunarinnar og ekki liggur fyrir hvenær rafmagn kemst aftur á. 6.9.2006 18:25 Þriggja vikna gæsluvarðhald vegna hnífsstungu Sextán ára piltur hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. september vegna gruns um að hann hafi stungið 25 ára gamla karlmann í bakið með hnífi í Laugardal aðfararnótt þriðjudags. 6.9.2006 16:39 Vilja athugun á jarðgöngum um Tröllaskaga Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa skorað á þingmenn og ríkisvaldið að gera ítarlega hagkvæmnathugun á því að grafa jarðgöng í gegnum Tröllaskaga milli Hjaltadals og Eyjafjarðar. 6.9.2006 16:02 Erlendir miðlar sýna afmæli leiðtogafundar áhuga Von er á stórum hópi erlendra fjölmiðlamanna til landsins í næsta mánuði vegna 20 ára afmælis leiðtogafundar Ronalds Reagans og Míkhaíls Gorbatstjovs hér á landi. 6.9.2006 15:45 16 mánaða dómur fyrir kynferðisbrot gegn stúlku Tuttugu og þriggja ára Íslendingur var í dag dæmdur í 16 mánaða fangelsi í Burnley fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli enskri stúlku fyrr á árinu. Líklegt er að hann afpláni aðeins átta mánuði af dómnum en hann hefur þegar setið í gæsluvarðhaldi í sjö mánuði sem dregst frá dómi. 6.9.2006 15:30 Veiða án rannsókna og án stjórnar Íslendingar eru í fyrsta skipti að halda á karfaveiðar á alþjóðlega hafsvæðinu í Síldarsmugunni. Sérfræðingar hjá Hafró segja stórhættulegt að verið sé að veiða úr stofni sem ekkert sé vitað um, án þess að veiðunum sé stjórnað. 6.9.2006 15:30 Tónlistarhús kynnt á Feneyja-tvíæringnum Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem reisa á við hafnarbakkann í Reykjavík verður kynnt á Feneyja-tvíæringnum um byggingarlist og borgarskipulag sem Ísland tekur þátt í fyrsta sinn í ár. Sýningin verður haldin dagana 10. september til 19. nóvember og fjallar hún um lykilþætti sem snúa að þróun stórra borga um allan heim 6.9.2006 15:15 Farþegum um FLE fjölgar um 10 prósent í ágúst Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 10 prósent í ágúst miðað við sama tíma í fyrra, úr tæpum 245 þúsund farþegum árið 2005 í rúmlega 269 þúsund farþega nú. 6.9.2006 15:08 Dregið verði verulega úr rjúpnaveiðum Náttúrufræðistofnun leggur til að dregið verði verulega úr rjúpnaveiðum í ár vegna óvæntra atburða sem orðið hafa í rjúpnastofninum. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að talningar sýni að stofninn sé á niðurleið um allt land eftir aðeins tvö ár í uppsveiflu og viðkoman er lélega annað árið í röð. 6.9.2006 14:29 Íbúum fækkar um 2% á Vestfjörðum Íbúum á Vestfjörðum fækkaði um 150 eða um 2% á tímabilinu 1. júlí 2005 til 1. júlí 2006, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Fréttavefur Bæjarins besta greinir frá því að íbúar Vestfjarða séu nú rúmlega 7.500 talsins. Fólksfækkun var eilítið minni í hitteðfyrra eða um 1,8%. Íbúum á Vestfjörðum hefur fækkað um tæplega 1.300 síðan árið 1997, eða um 14,5%. 6.9.2006 14:25 Hátt á 20 strætisvagnar ekki í notkun Hátt á tuttugu strætisvagnar Strætó bs. standa óhreyfðir þessa dagana vegna niðurfellingu strætóferða á tíu mínútna fresti. Aðstoðarframkvæmdarstjóri Strætó bs. segir að vagnarnir muni með tíð og tíma leysa þá eldri af. 6.9.2006 14:00 ISPCAN verðlaunar Barnahús Alþjóðlegu barnaverndarsamtökin ISPCAN veittu í dag Barnahúsi verðlaun fyrir starf í þágu barna á heimsráðstefnu samtakanna í New York. Samkvæmt tilkynningu frá Barnahúsi er stofnuni verðlaunuð fyrir þáttaskil á meðferð kynferðisbrotamála á Íslandi, einkum með tilliti til þarfa og réttinda barna. 6.9.2006 13:45 Sex fíkniefnamál hjá lögreglu í gær Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af sjö aðilum í sex óskyldum fíkniefnamálum í gær. Þrjú málanna komu upp á tónleikum í Laugardalshöll en þar voru einnig höfð afskipti af örfáum tónleikagestum vegna ölvunar. 6.9.2006 13:30 Menntamálanefnd fundi vegna stöðu erlendra barna Fulltrúar Samfylkingarinnar í menntamálanefnd Alþingis hafa óskað eftir því við formann nefndarinnar að fundað verði eins fljótt auðið er vegna frétta af því að mörg erlend börn á grunnskólaaldri fái ekki að stunda nám í grunnskóla. 6.9.2006 13:15 Fá frest til laugardags til að leggja fram sannanir Danska leyniþjónustan hefur frest til klukkan þrjú á laugardaginn til að leggja fram sannanir gegn sjömenningunum sem grunaðir eru um undirbúning hryðjuverka í Danmörku. Aðeins tveir þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær. 6.9.2006 12:45 Íbúar í Árbænum ósáttir við niðurfellingu s5 Íbúar í Árbæjarhverfi, Selási, Ártúnsholti og Norðlingaholti hafa stofnað undirbúningshóp sem mótmælir því harðlega að hraðleið strætó S5 hafi verið felld niður sem og ferðir á tíu mínútna fresti. Aðstoðarframkvæmdarstjóri Strætó bs. segir að þar tapi Strætó bs tæplega milljón á dag, þá hafi eitthvað orðið undan að láta. 6.9.2006 12:30 Megum ekki missa ferðamannahagnaðinn úr landi Forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands segir að sífelld fjölgun ferðamanna og aukin ítök stórra erlendra ferðaskrifstofa geti leitt til lækkunar launa í ferðaþjónustu og að skýra stefnumörkun þurfi til þess að hagnaðurinn hverfi ekki úr landi. 6.9.2006 12:22 Nær ólæknanlegt afbrigði berkla Berklasérfræðingar funda í Suður-Afríku út af nýju afbrigði berklasjúkdómsins sem þeir segja nær ólæknanlegt. Nýja afbrigðið leggst sérstaklega þungt á eyðnisjúklinga og óttast sérfræðingar því sérstaklega um eyðnihrjáðar byggðir Afríku. 6.9.2006 12:20 Real Stars at the Reykjavik Int. Film Festival 6.9.2006 12:07 Kemur til greina að greiða fyrir álveri í Helguvík Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir vel koma til greina að greiða fyrir framkvæmdum við álver í Helguvík. Þá segir hann ekkert því til fyrirstöðu að þrjú álver verði reist á Íslandi á næstu árum. 6.9.2006 12:07 Skipulagsbreytingar í Seðlabankanum Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar í Seðlabanka Íslands og tóku þær gildi 1. september. Peningamálasvið sem annaðist innlend viðskipti bankans og alþjóðasvið sem annaðist þau erlendu voru sameinuð undir nýtt svið, alþjóða- og markaðssvið sem Sturla Pálsson mun stýra. 6.9.2006 11:45 Reynir að synda yfir Ermarsund á morgun Sjósundkappinn Benedikt Lafleur reynir á morgun að synda yfir Ermarsund en hann hefur undanfarið dvalið í Englandi við æfingar fyrir sundið. Líklegt er að hann leggi af stað frá ströndum Englands um hálfníuleytið í fyrramálið. 6.9.2006 11:36 Segja að Blair verði farinn innan árs Dagblöð í Bretlandi greina frá því í dag að Tony Blair muni hætta sem forsætisráðherra Bretlands fyrir júlílok á næsta ári. 6.9.2006 10:58 Stöðug söluaukning á ostum og viðbiti Stöðug söluaukning hefur verið í ostu og viðbiti á landinu það sem af er árinu eftir því sem fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Nemur söluaukningin sex komma einu prósenti í viðbiti en tæpum fimm prósentum í ostum. 6.9.2006 10:41 Allt að 100 prósenta starfsmannavelta í verslunum Svipuð eftirspurn er eftir starfsfólki í verslanir og síðasta haust eftir því sem fram kemur í fréttabréfi Samtaka verslunar- og þjónustu. Þar segir einnig að algengt sé að starfsmannavelta í dagvöruverslunum sé um hundrað prósent, sem jafngildir því að allir starfsmenn verslunar láti af störfum á hverju ári og nýir séu ráðnir í staðinn. 6.9.2006 10:29 Tveir í gæsluvarðhald og einangrun Tveir þeirra sjö sem eru í haldi dönsku lögreglunnar fyrir meinta hryðjuverkaskipulagningu í úthverfi Óðinsvéa í gær voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í einangrun í nótt. 6.9.2006 10:12 Jónína fundar með samstarfsráðherrum Norðurlanda Jónína Bjartmarz umhverfis- og samstarfsráðherra sækir í dag fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Ósló. 6.9.2006 10:00 Ríflega helmingi fleiri atkvæði í Rockstar nú en í síðustu viku Rúmlega helmingi fleiri atkvæði atkvæði bárust í nótt í SMS-kosningu vegna raunveruleikaþáttarins Rockstar:Supernova en í síðustu viku að sögn Björns Sigurðssonar, dagskrárstjóra Skjá eins, sem sýnir þættina. Þess má geta að síðasta vika var algjör metvika. 6.9.2006 09:44 Tafir á nokkrum stöðum vegna framkvæmda Milli kl. 9 og 12 í dag mun Orkubú Vestfjarða taka rafmagnið af göngunum um Breiðadals- og Botnsheiði vegna raflínutenginga. Því verða á þessum tíma aðeins neyðarljós við útskot og ökumenn þurfa að gæta ítrustu varúðar við akstur í göngunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 6.9.2006 09:15 Dæmd til dauða fyrir heróínsmygl Áfrýjunardómstóll í Indónesíu hefur dæmt fjögur áströlsk ungmenni til dauða fyrir tilraun þeirra til að smygla heróíni frá indónesísku ferðamannaeynni Balí til Ástralíu á síðasta ári. 6.9.2006 09:00 Kiko Japansprinsessa eignast son Kiko Japansprinsessa eignaðist son í gærkvöldi japönsku þjóðinni til mikillar gleði og keisarafjölskyldunni til talsvers léttis. Sveinbarnið er fyrsti strákurinn sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í 40 ár og slær því á allar áhyggjur um erfingjaskort að keisarakrúnunni en lögum samkvæmt mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina. 6.9.2006 08:45 Auka álag á sorphirðumenn og bæjarstarfsmenn Danskir sorphirðumenn eru að kikna undan magni fríblaða sem hefur bæst ofan á það sorp sem fyrir var, síðan farið var að bera fríblöðin Dato og 24/7 út á heimili. Einnig segja bæjarstarfsmenn sem sjá um að halda götum og almenningsgörðum hreinum að starf þeirra hafi aukist til muna með tilkomu fríblaðanna, og þetta ástand versni til muna þegar eitthvað hreyfi vind. Deildarstjóri vega- og garðaþjónustu Árhúsa segist ekki hlakka til þegar þriðja fríblaðið bætist svo í hópinn í októberbyrjun. 6.9.2006 08:30 Gagnrýna ákvörðun meirihlutans í leikskólamálum Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri-grænna og Frjálslyndra mótmæla ákvörðun meirihlutans að kljúfa leikskólamál frá öðrum menntamálum í borginni og lögðu fram bókun þess efnis á borgarráðsfundi í gær. Í fréttatilkynningu frá Vinstri-grænum segir að borgarráði hafi borist yfir 700 undirskriftir starfsfólks leikskólanna, þar sem ákvörðuninni er mótmælt. Því skorar minnihlutinn á meirihlutann að málefnið verði rætt ofan í kjölinn og ákvarðanir verði teknar í sátt við hagsmunaaðila líkt og frekast er unnt. 6.9.2006 08:15 Nálgunarbann ekki nógu skilvirkt tæki Fagfólk er tekur á heimilisofbeldi er sammála um að breyta verði löggjöfinni um nálgunarbann. Ekki nógu gott hjálpartæki fyrir lögreglu, segir Andrés Ragnarsson. Ágúst Ólafur vill sérstakt lagaákvæði um heimilisofbeldi. 6.9.2006 08:00 Dýrari símtöl í símaskrána Gjaldskrá fyrir upplýsinganúmerin 118 og 1818 og talsamband við útlönd hækkar 1. september. Ástæðan er gjaldskrárbreytingar hjá fyrirtækinu Já sem rekur þessa þjónustu. 6.9.2006 08:00 Ritari Þjóðarflokksins vissi um innbrot flokksmanna Leiðtogi sænska Þjóðarflokksins, Lars Leijonborg, viðurkenndi í gærkvöld að hafa vitað af því á sunnudag að ritari flokksins hefði verið meðvitaður um innbrot flokksmanna inn á lokað netsvæði stjórnarflokks sósíaldemókratanna. 6.9.2006 08:00 Allt að 18% verðmunur á milli verslanna Allt að 18% verðmunur reyndist vera á milli hæsta og lægsta verði vörukörfu þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í fjórum lágvöruverðsverslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. 6.9.2006 07:46 Pólitísk samstaða ríkir um málið Tillögu Samfylkingarinnar, um að gengið verði til viðræðna við byggingarfélög námsmanna um uppbyggingu allt að átta hundruð stúdentaíbúða á næstu árum, var einróma vísað til meðferðar í skipulagsráði á fundi borgarráðs í gær. 6.9.2006 07:45 Sjá næstu 50 fréttir
Bush viðurkennir tilvist leynifangelsa George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í kvöld að rekin væru leynifangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, um leið og hann tilkynnti að 14 meintir hryðjuverkamenn úr æðstu stöðum hafi verið fluttir í Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu. 6.9.2006 22:56
Viðtal við Natöschu Kampusch birt Natascha Kampusch, austurríska stúlkan, sem var í haldi mannræningja í átta ár, eða frá tíu ára aldri, segist einvörðungu hafa hugsað um að flýja á meðan hún var í haldi. Þetta kemur fram í viðtali við austurríska vikuritið News sem kom út í dag. 6.9.2006 20:26
Bónus ódýrasta lágvöruverslunin samkvæmt könnun ASÍ Bónus er ódýrasta lágvöruverðsverslunin, samkvæmt verðkönnun ASÍ, en ef lækka ætti matvöruverð enn frekar þyrfti að vinna bug á innflutningshöftum og fákeppni. Þetta segir hagfræðingur Alþýðusambandsins. 6.9.2006 20:19
Þjarmað að Blair Sjö þingmenn breska Verkamannaflokksins hafa sagt af sér til að mótmæla því að Tony Blair forsætisráðherra skuli ekki hafa tímasett brotthvarf sitt úr embætti. Blair segir að þeir séu svikarar. 6.9.2006 20:11
Eyða um efni fram sem aldrei fyrr Íslendingar eyða nú um efni fram - og fjárfesta - sem aldrei fyrr. Viðskiptahallinn tvöfaldaðist á fyrri helmingi ársins miðað við árið í fyrra og var hvorki meira né minna en 124 milljarðar króna. 6.9.2006 20:08
Danir númeri of stórir Íslenska landsliðið í knattspyrnu þurfti að sætta sig við 2-0 tap fyrir Dönum á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM. Danska liðið hafði sterk tök á leiknum frá upphafi og eftir að þeir Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson höfðu komið liðinu í 2-0 eftir rúman hálftíma, var sigur Dana aldrei í hættu. 6.9.2006 20:03
Nafnaskipti fyrirtækja Rótgróin íslensk fyrirtæki sem hasla sér völl á erlendum markaði þurfa í síauknum mæli að leggja gamla nafninu og búa til nýtt. Flest nöfn sem finna má í orðabókum eru frátekin. 6.9.2006 18:45
Háspennubilun veldur rafmagnsleysi Háspennubilun varð rétt fyrir klukkan sex í dag og er stór hluti Mosfellsbæjar og Barðastaðir í Grafarvogi rafmagnslaus. Verið er að leita að orsök bilunarinnar og ekki liggur fyrir hvenær rafmagn kemst aftur á. 6.9.2006 18:25
Þriggja vikna gæsluvarðhald vegna hnífsstungu Sextán ára piltur hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. september vegna gruns um að hann hafi stungið 25 ára gamla karlmann í bakið með hnífi í Laugardal aðfararnótt þriðjudags. 6.9.2006 16:39
Vilja athugun á jarðgöngum um Tröllaskaga Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa skorað á þingmenn og ríkisvaldið að gera ítarlega hagkvæmnathugun á því að grafa jarðgöng í gegnum Tröllaskaga milli Hjaltadals og Eyjafjarðar. 6.9.2006 16:02
Erlendir miðlar sýna afmæli leiðtogafundar áhuga Von er á stórum hópi erlendra fjölmiðlamanna til landsins í næsta mánuði vegna 20 ára afmælis leiðtogafundar Ronalds Reagans og Míkhaíls Gorbatstjovs hér á landi. 6.9.2006 15:45
16 mánaða dómur fyrir kynferðisbrot gegn stúlku Tuttugu og þriggja ára Íslendingur var í dag dæmdur í 16 mánaða fangelsi í Burnley fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára gamalli enskri stúlku fyrr á árinu. Líklegt er að hann afpláni aðeins átta mánuði af dómnum en hann hefur þegar setið í gæsluvarðhaldi í sjö mánuði sem dregst frá dómi. 6.9.2006 15:30
Veiða án rannsókna og án stjórnar Íslendingar eru í fyrsta skipti að halda á karfaveiðar á alþjóðlega hafsvæðinu í Síldarsmugunni. Sérfræðingar hjá Hafró segja stórhættulegt að verið sé að veiða úr stofni sem ekkert sé vitað um, án þess að veiðunum sé stjórnað. 6.9.2006 15:30
Tónlistarhús kynnt á Feneyja-tvíæringnum Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem reisa á við hafnarbakkann í Reykjavík verður kynnt á Feneyja-tvíæringnum um byggingarlist og borgarskipulag sem Ísland tekur þátt í fyrsta sinn í ár. Sýningin verður haldin dagana 10. september til 19. nóvember og fjallar hún um lykilþætti sem snúa að þróun stórra borga um allan heim 6.9.2006 15:15
Farþegum um FLE fjölgar um 10 prósent í ágúst Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 10 prósent í ágúst miðað við sama tíma í fyrra, úr tæpum 245 þúsund farþegum árið 2005 í rúmlega 269 þúsund farþega nú. 6.9.2006 15:08
Dregið verði verulega úr rjúpnaveiðum Náttúrufræðistofnun leggur til að dregið verði verulega úr rjúpnaveiðum í ár vegna óvæntra atburða sem orðið hafa í rjúpnastofninum. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að talningar sýni að stofninn sé á niðurleið um allt land eftir aðeins tvö ár í uppsveiflu og viðkoman er lélega annað árið í röð. 6.9.2006 14:29
Íbúum fækkar um 2% á Vestfjörðum Íbúum á Vestfjörðum fækkaði um 150 eða um 2% á tímabilinu 1. júlí 2005 til 1. júlí 2006, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Fréttavefur Bæjarins besta greinir frá því að íbúar Vestfjarða séu nú rúmlega 7.500 talsins. Fólksfækkun var eilítið minni í hitteðfyrra eða um 1,8%. Íbúum á Vestfjörðum hefur fækkað um tæplega 1.300 síðan árið 1997, eða um 14,5%. 6.9.2006 14:25
Hátt á 20 strætisvagnar ekki í notkun Hátt á tuttugu strætisvagnar Strætó bs. standa óhreyfðir þessa dagana vegna niðurfellingu strætóferða á tíu mínútna fresti. Aðstoðarframkvæmdarstjóri Strætó bs. segir að vagnarnir muni með tíð og tíma leysa þá eldri af. 6.9.2006 14:00
ISPCAN verðlaunar Barnahús Alþjóðlegu barnaverndarsamtökin ISPCAN veittu í dag Barnahúsi verðlaun fyrir starf í þágu barna á heimsráðstefnu samtakanna í New York. Samkvæmt tilkynningu frá Barnahúsi er stofnuni verðlaunuð fyrir þáttaskil á meðferð kynferðisbrotamála á Íslandi, einkum með tilliti til þarfa og réttinda barna. 6.9.2006 13:45
Sex fíkniefnamál hjá lögreglu í gær Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af sjö aðilum í sex óskyldum fíkniefnamálum í gær. Þrjú málanna komu upp á tónleikum í Laugardalshöll en þar voru einnig höfð afskipti af örfáum tónleikagestum vegna ölvunar. 6.9.2006 13:30
Menntamálanefnd fundi vegna stöðu erlendra barna Fulltrúar Samfylkingarinnar í menntamálanefnd Alþingis hafa óskað eftir því við formann nefndarinnar að fundað verði eins fljótt auðið er vegna frétta af því að mörg erlend börn á grunnskólaaldri fái ekki að stunda nám í grunnskóla. 6.9.2006 13:15
Fá frest til laugardags til að leggja fram sannanir Danska leyniþjónustan hefur frest til klukkan þrjú á laugardaginn til að leggja fram sannanir gegn sjömenningunum sem grunaðir eru um undirbúning hryðjuverka í Danmörku. Aðeins tveir þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær. 6.9.2006 12:45
Íbúar í Árbænum ósáttir við niðurfellingu s5 Íbúar í Árbæjarhverfi, Selási, Ártúnsholti og Norðlingaholti hafa stofnað undirbúningshóp sem mótmælir því harðlega að hraðleið strætó S5 hafi verið felld niður sem og ferðir á tíu mínútna fresti. Aðstoðarframkvæmdarstjóri Strætó bs. segir að þar tapi Strætó bs tæplega milljón á dag, þá hafi eitthvað orðið undan að láta. 6.9.2006 12:30
Megum ekki missa ferðamannahagnaðinn úr landi Forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands segir að sífelld fjölgun ferðamanna og aukin ítök stórra erlendra ferðaskrifstofa geti leitt til lækkunar launa í ferðaþjónustu og að skýra stefnumörkun þurfi til þess að hagnaðurinn hverfi ekki úr landi. 6.9.2006 12:22
Nær ólæknanlegt afbrigði berkla Berklasérfræðingar funda í Suður-Afríku út af nýju afbrigði berklasjúkdómsins sem þeir segja nær ólæknanlegt. Nýja afbrigðið leggst sérstaklega þungt á eyðnisjúklinga og óttast sérfræðingar því sérstaklega um eyðnihrjáðar byggðir Afríku. 6.9.2006 12:20
Kemur til greina að greiða fyrir álveri í Helguvík Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir vel koma til greina að greiða fyrir framkvæmdum við álver í Helguvík. Þá segir hann ekkert því til fyrirstöðu að þrjú álver verði reist á Íslandi á næstu árum. 6.9.2006 12:07
Skipulagsbreytingar í Seðlabankanum Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar í Seðlabanka Íslands og tóku þær gildi 1. september. Peningamálasvið sem annaðist innlend viðskipti bankans og alþjóðasvið sem annaðist þau erlendu voru sameinuð undir nýtt svið, alþjóða- og markaðssvið sem Sturla Pálsson mun stýra. 6.9.2006 11:45
Reynir að synda yfir Ermarsund á morgun Sjósundkappinn Benedikt Lafleur reynir á morgun að synda yfir Ermarsund en hann hefur undanfarið dvalið í Englandi við æfingar fyrir sundið. Líklegt er að hann leggi af stað frá ströndum Englands um hálfníuleytið í fyrramálið. 6.9.2006 11:36
Segja að Blair verði farinn innan árs Dagblöð í Bretlandi greina frá því í dag að Tony Blair muni hætta sem forsætisráðherra Bretlands fyrir júlílok á næsta ári. 6.9.2006 10:58
Stöðug söluaukning á ostum og viðbiti Stöðug söluaukning hefur verið í ostu og viðbiti á landinu það sem af er árinu eftir því sem fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Nemur söluaukningin sex komma einu prósenti í viðbiti en tæpum fimm prósentum í ostum. 6.9.2006 10:41
Allt að 100 prósenta starfsmannavelta í verslunum Svipuð eftirspurn er eftir starfsfólki í verslanir og síðasta haust eftir því sem fram kemur í fréttabréfi Samtaka verslunar- og þjónustu. Þar segir einnig að algengt sé að starfsmannavelta í dagvöruverslunum sé um hundrað prósent, sem jafngildir því að allir starfsmenn verslunar láti af störfum á hverju ári og nýir séu ráðnir í staðinn. 6.9.2006 10:29
Tveir í gæsluvarðhald og einangrun Tveir þeirra sjö sem eru í haldi dönsku lögreglunnar fyrir meinta hryðjuverkaskipulagningu í úthverfi Óðinsvéa í gær voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í einangrun í nótt. 6.9.2006 10:12
Jónína fundar með samstarfsráðherrum Norðurlanda Jónína Bjartmarz umhverfis- og samstarfsráðherra sækir í dag fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Ósló. 6.9.2006 10:00
Ríflega helmingi fleiri atkvæði í Rockstar nú en í síðustu viku Rúmlega helmingi fleiri atkvæði atkvæði bárust í nótt í SMS-kosningu vegna raunveruleikaþáttarins Rockstar:Supernova en í síðustu viku að sögn Björns Sigurðssonar, dagskrárstjóra Skjá eins, sem sýnir þættina. Þess má geta að síðasta vika var algjör metvika. 6.9.2006 09:44
Tafir á nokkrum stöðum vegna framkvæmda Milli kl. 9 og 12 í dag mun Orkubú Vestfjarða taka rafmagnið af göngunum um Breiðadals- og Botnsheiði vegna raflínutenginga. Því verða á þessum tíma aðeins neyðarljós við útskot og ökumenn þurfa að gæta ítrustu varúðar við akstur í göngunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 6.9.2006 09:15
Dæmd til dauða fyrir heróínsmygl Áfrýjunardómstóll í Indónesíu hefur dæmt fjögur áströlsk ungmenni til dauða fyrir tilraun þeirra til að smygla heróíni frá indónesísku ferðamannaeynni Balí til Ástralíu á síðasta ári. 6.9.2006 09:00
Kiko Japansprinsessa eignast son Kiko Japansprinsessa eignaðist son í gærkvöldi japönsku þjóðinni til mikillar gleði og keisarafjölskyldunni til talsvers léttis. Sveinbarnið er fyrsti strákurinn sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í 40 ár og slær því á allar áhyggjur um erfingjaskort að keisarakrúnunni en lögum samkvæmt mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina. 6.9.2006 08:45
Auka álag á sorphirðumenn og bæjarstarfsmenn Danskir sorphirðumenn eru að kikna undan magni fríblaða sem hefur bæst ofan á það sorp sem fyrir var, síðan farið var að bera fríblöðin Dato og 24/7 út á heimili. Einnig segja bæjarstarfsmenn sem sjá um að halda götum og almenningsgörðum hreinum að starf þeirra hafi aukist til muna með tilkomu fríblaðanna, og þetta ástand versni til muna þegar eitthvað hreyfi vind. Deildarstjóri vega- og garðaþjónustu Árhúsa segist ekki hlakka til þegar þriðja fríblaðið bætist svo í hópinn í októberbyrjun. 6.9.2006 08:30
Gagnrýna ákvörðun meirihlutans í leikskólamálum Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri-grænna og Frjálslyndra mótmæla ákvörðun meirihlutans að kljúfa leikskólamál frá öðrum menntamálum í borginni og lögðu fram bókun þess efnis á borgarráðsfundi í gær. Í fréttatilkynningu frá Vinstri-grænum segir að borgarráði hafi borist yfir 700 undirskriftir starfsfólks leikskólanna, þar sem ákvörðuninni er mótmælt. Því skorar minnihlutinn á meirihlutann að málefnið verði rætt ofan í kjölinn og ákvarðanir verði teknar í sátt við hagsmunaaðila líkt og frekast er unnt. 6.9.2006 08:15
Nálgunarbann ekki nógu skilvirkt tæki Fagfólk er tekur á heimilisofbeldi er sammála um að breyta verði löggjöfinni um nálgunarbann. Ekki nógu gott hjálpartæki fyrir lögreglu, segir Andrés Ragnarsson. Ágúst Ólafur vill sérstakt lagaákvæði um heimilisofbeldi. 6.9.2006 08:00
Dýrari símtöl í símaskrána Gjaldskrá fyrir upplýsinganúmerin 118 og 1818 og talsamband við útlönd hækkar 1. september. Ástæðan er gjaldskrárbreytingar hjá fyrirtækinu Já sem rekur þessa þjónustu. 6.9.2006 08:00
Ritari Þjóðarflokksins vissi um innbrot flokksmanna Leiðtogi sænska Þjóðarflokksins, Lars Leijonborg, viðurkenndi í gærkvöld að hafa vitað af því á sunnudag að ritari flokksins hefði verið meðvitaður um innbrot flokksmanna inn á lokað netsvæði stjórnarflokks sósíaldemókratanna. 6.9.2006 08:00
Allt að 18% verðmunur á milli verslanna Allt að 18% verðmunur reyndist vera á milli hæsta og lægsta verði vörukörfu þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í fjórum lágvöruverðsverslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. 6.9.2006 07:46
Pólitísk samstaða ríkir um málið Tillögu Samfylkingarinnar, um að gengið verði til viðræðna við byggingarfélög námsmanna um uppbyggingu allt að átta hundruð stúdentaíbúða á næstu árum, var einróma vísað til meðferðar í skipulagsráði á fundi borgarráðs í gær. 6.9.2006 07:45