Fleiri fréttir

Ræsibúnaður úr ljósaperu

Hryðjuverkavarna­yfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum vildu í gær ekkert gefa upp um það hvers konar sprengjum þau teldu að hryðjuverkamenn hefðu ætlað sér að smygla um borð í farþegaþotur. Þar sem algert bann var lagt við því að hafa hvers konar vökva með í handfarangri voru leiddar að því líkur að óttast væri að hryðjuverkamenn reyndu að smygla með sér sprengiefni á vökvaformi.

Fjárlögin ekki virt í menntamálunum

Menntamálaráðherra segir mögulegt að hagræða innan ráðuneytisins, sérstaklega á háskólastiginu. Þriðjungur fjárlagaliða ráðuneytisins fór fram úr áætlunum á síðasta ári. Fjárlagagerðinni stórlega ábótavant, segir Ingibjörg Sólrún.

Hærri skatta á auðmenn

„Þeir sem vilja vera Íslendingar og vera í þessu landi þurfa að greiða keisaranum það sem keisarans er,“ segir Guðni Ágústsson, landbúnaðaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Eimskip gæti fengið milljarð króna í sekt

Fyrstu niðurstöður rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á meintum ólöglegum viðskiptaháttum Eimskipafélagsins gera ráð fyrir að sekta Eimskip um milljarð króna. Málið hófst árið 2002 með kæru Samskipa. Niðurstöðu er vænst í haust.

Hryðjuverkatilræðinu afstýrt

Bresk yfirvöld björguðu í gær farþegum fjölda bandarískra flugvéla frá tortímingu. Talið er að hryðjuverkamenn hafi ætlað að sprengja vélarnar á flugi með sprengiefni í fljótandi formi, sem átti að smygla um borð í handfarangri. Vélarnar áttu allar að fljúga frá Heathrow-flugvelli í Lundúnum. Öll starfsemi á flugvellinum lamaðist um tíma, meðan föggur farþega og fatnaður voru grandskoðuð. Allur handfarangur var bannaður

Borgarráð samþykkir nýtt ráð

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær tillögu stjórnkerfisnefndar um stofnun sérstaks leikskólaráðs sem fer með málefni leikskólanna og daggæslu, en þau mál voru áður voru í höndum menntaráðs. Verði tillagan samþykkt í annað sinn á næsta fundi borgarráðs mun aðskilnaðurinn ganga í gegn og nýtt fagsvið hjá Reykjavíkurborg, leikskólasvið, vera stofnað.

Seldu nær allan lax úr landi

Helstu laxeldi landsins eru uppiskroppa með lax. Ástæðan er að aukin eftirspurn eftir eldislaxi á heimsvísu og hækkandi heimsmarkaðsverð hefur leitt til þess að nær allur íslenskur lax hefur verið seldur úr landi.

Sprengjur settar saman um borð

Næstu hryðjuverkaárásir á farþegaflugvélar kunna að verða framdar af mönnum sem smygla íhlutunum í sprengju um borð í sakleysislegum umbúðum svo sem fyrir barnamat eða lyfjaflöskur. Sprengjuna myndu þeir setja saman úr íhlutunum bak við luktar salernisdyr um borð í flugvélinni. Við þessu vara öryggismálasérfræðingar sem AP-fréttastofan ræddi við í gær.

Sjálfsagt að skoða tillögur

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir viðhorf um gagnsæi orkugeirans sem fram koma í skýrslu OECD vera alþekkt. Sjálfsagt sé að taka þau til athugunar.

180 farþegar biðu í níu klukkustundir

Margmenni var í Leifsstöð í gær á meðan beðið var eftir að hægt væri að fljúga til Heathrow-flugvallar. Öryggisreglur í flugi til Bandaríkjanna hafa verið hertar og er nú bannað að fara með flestan vökva í handfarangri vestur um haf.

1,5 milljónir flýja heimili sín

Fellibylurinn Saomai, sem gengur nú yfir suðausturhluta Kína, hefur hrakið 1,5 milljónir manna frá heimilum sínum. Þetta er einn kraftmesti stormur sem riðið hefur yfir Kína áratugum saman og áttundi fellibylurinn þar í landi í sumar.

Laga þarf eldvarnir

„Við teljum að eldvörnum í eldri gripahúsum sé mjög víða ábótavant,“ segir Sigríður Ásgeirsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. Sambandið hefur sent umhverfisráðherra bréf þar hvatt er til þess að eftirlit með eldvörnum í gripahúsum verði eflt.

Fleiri kennarar með réttindi

Kennurum með kennsluréttindi fjölgaði úr 82 prósentum í 87 prósent á árunum 1998-2005, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

Sérsveitir smala brottrækum

Yfir tuttugu þúsund ólöglegir innflytjendur hafa verið handteknir og vísað burt úr Bandaríkjunum það sem af er þessu ári og er það gríðarleg aukning frá fyrri árum. Herferðin er hluti af baráttu George W. Bush Bandaríkja­forseta gegn ólöglegum innflytjendum.

Hættulegar flísar valda slysum

Flísar í útiklefa Salalaugar í Kópavogi hafa valdið óhöppum, þar sem viðnám er ekki nægilegt og þær verða hálar. Stefnt er að því að skipta um flísar á næstu vikum.

Ber við vanþekkingu á reglum

„Ástæðan fyrir því að ég var þarna á veiðum án veiðikorts var að ég gerði mér ekki grein fyrir að til þessara veiða þyrfti ég veiðikort,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra um lundaveiðar hans í Grímsey í Steingrímsfirði á dögunum.

Bréf lækka

Hlutabréf í flugfélögum og ferðaskrifstofum hröpuðu í verði í gær, í kjölfar fréttanna af samsæri um hryðjuverk í farþegaflugvélum á milli Lundúna og Bandaríkjanna. Jafnframt lækkaði heimsmarkaðsverð á olíu vegna væntinga um að samdráttur í flugi valdi minni eftirspurn eftir eldsneyti.

Árás á stúlku á leið í vinnu

Tvær líkamsárásir voru framdar í fyrrakvöld og -nótt. Reynt var að nauðga rúmlega tvítugri stúlku á leið til vinnu í Breiðholti. Fyrr höfðu þrír menn ráðist að öðrum á Hverfisgötu og lamið með bareflum.

570 milljónir í hálfsársuppgjöri

Hagnaður Sparisjóðs vélstjóra nam rúmum 570 milljónum króna eftir skatta á fyrri helmingi árs. Hagnaður sparisjóðsins jókst um tæp tuttugu og fjögur prósent miðað við sama tímabil í fyrra.

Greinilega híbýli höfðingja

Fornleifafræðingar hafa komið niður á langhús við Hrísbrú í Mosfellsdal. Húsið er rúmlega tuttugu metra langt og má ráða af stærð þess að þar hafi búið höfðingjar.

Borgaraflokkarnir vinna á

Þegar rúmur mánuður er til þingkosninga í Svíþjóð mælist kosningabandalag borgaraflokka með meirihlutafylgi í tveimur nýjum skoðanakönnunum.

Fann fólkið á leið til leitar

Björgunarsveitir fóru í tvö útköll vegna týndra ferðamanna í fyrrakvöld. Fernt, þrír Frakkar og einn Japani, varð viðskila við samferðamenn sína við Heklurætur og voru um tuttugu björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar send til leitar. Björgunarsveitarmaður á leið til leitarinnar ók óvænt fram á fólkið seint um kvöldið, en ekkert amaði að því.

Sex milljörðum úthlutað

Barnabætur ársins 2005 hækkuðu um nítján prósent frá árinu 2004. Alls var tæpum sex milljörðum króna úthlutað til 55.500 framteljenda.

Ellefu skiptinemar hverfa

Ellefu nemar á tvítugsaldri frá Egyptalandi hafa horfið sporlaust í Bandaríkjunum, en þeir höfðu skráð sig í mánaðarlangt skiptinám við háskóla í Montana-ríki.

Sprenging á Grundartanga

Sprenging varð í keri í álveri Norðuráls á Grundartanga á sjötta tímanum í gær. Að sögn Slökkviliðsins á Akranesi skapaðist við það hætta en þó náðust fljótt tök á ástandinu. Engum varð meint af en kerið eyðilagðist og rafmagn fór af skálanum sem það var í. Álið úr kerinu lak í lagnastokka sem eru í kringum kerin.

Húsvagnar sífellt vinsælli

„Það er alltaf selt meira af húsvögnum en árið áður,“ segir Gunnlaugur Ingibergsson hjá Seglagerðinni Ægi, sem selja tjaldvagna, fellihýsi, pallhýsi, hjólhýsi og húsbíla. „Hjólhýsin hafa verið sérstaklega vinsæl, en áður fyrr voru þetta bara tjaldvagnar og fellihýsi. Við erum bara með samkomutjöld til leigu en seljum engin tjöld. Við hættum því vegna minnkandi eftirspurnar.“

Hundakjöt fyrir húðina

Hundakjöt verður sífellt vinsælla meðal norður-kóreskra kvenna, en þessi kóreski þjóðarréttur er talinn vera góður fyrir húðina. Bæði í Suður- og Norður-Kóreu er hundakjöt sagt gott fyrir úthald og auka hreysti og er vinsælt á heitum sumardögum.

Styrkir uppgröft á Hólum

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að styrkja uppgröft á Hólum í Hjaltadal næstu þrjú árin. Uppgröftur hefur staðið yfir á Hólum í sumar, en þetta er fimmta sumarið sem grafið er þar. Uppgröfturinn hefur fram til þessa verið unnin með styrk frá Kristnihátíðarsjóði.

Sjófuglum fækkar

Sjófuglum hefur fækkað umtalsvert á Norður-Atlantshafi og hvetja Landvernd og norræn systursamtök Norðurlandaráð til að finna orsakir fækkunarinnar og koma með tillögur til úrbóta.

Óbreyttum neitað um hjálp

ekki samkomulag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær um orðalag ályktunar sem ætlað er að stuðla að vopnahléi milli Ísraels og Hizbollah-samtakanna í Líbanon. Þó vonast fastafulltrúi Bandaríkjanna, John Bolton, til þess að ályktunin verði samþykkt í dag.

Vladimír Pútín sker upp herör

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skipaði ríkisstjórn sinni í gær að láta gera eignaskrá yfir öll þau verk sem listasöfn landsins hafa að geyma. Fyrirskipunin kom í kjölfar þess að upp komst um stórfelldan þjófnað úr safni í Péturs­borg, en talið er að 221 listaverki, samtals metin á um 360 milljónir króna, hafi verið stolið á síðustu árum.

Upplýsingarnar eru á átta tungumálum

Reykjavíkurborg hefur nú gefið út upplýsingaefni á átta tungumálum um leikskóla og tvítyngi barna á leikskólasviði. Bæklingunum, sem eru tvenns konar, er ætlað að mæta vaxandi þörf fyrir upplýsingum meðal erlendra foreldra leikskólabarna, en börn af erlendum uppruna í leikskólum Reykjavíkur eru um tíu prósent leikskólabarna í borginni.

Amnesty International skorar á stjórnvöld

Íslandsdeild Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að að Sameinuðu þjóðirnar sendi tafarlaust friðargæslulið til Darfur í Súdan.

Ætluðu að granda 10 flugvélum

Hryðjuverkamennirnir sem bresk yfirvöld stöðvuðu í dag, höfðu ráðgert að granda 10 flugvélum sem áttu að fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan í kvöld.

Brasilískir þingmenn kærðir fyrir fjárdrátt af almannafé

Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn um að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín. Mikill meirihluti þingmannanna, eða 63 af 72, tilheyra stjórnarflokkunum sem styðja forsetann Luiz Lula da Silva að málum.

Skorar á yfirvöld að lengja kennaranám

Formaður Kennarasambands Íslands skorar á yfirvöld að lengja kennaranám til samræmis við nágrannalöndin til þess að bæta námsárangur í íslenskum skólum. Þá segir hann samfélagið í heild þurfa að taka á óstýrilæti og agaleysi til þess að ná sömu markmiðum.

Ríkisskattstjóri kominn út fyrir sitt valdsvið

Ríkisskattsjóri er kominn út fyrir valdsvið sitt þegar hann gefur í skyn að fjármálafyrirtæki hér á landi veiti ráðgjöf um skattsvik. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja.

Ber við vanþekkingu og fákunnáttu

Vanþekking og fákunnátta sjávarútvegsráðherra á veiðireglum leiðir líklega til þess að hann á yfir höfði sér kæru fyrir ólöglegar lundaveiðar fyrr í sumar. Ráðherra segir leiðinlegt að hann hafi ekki farið að reglum og hyggst skýra mál sitt fyrir Umhverfisstofnun.

Sjá næstu 50 fréttir