Fleiri
Fimm Rússar handteknir 26.7.2006 06:30 Kostirnir eru króna eða ESB Aðeins tveir raunhæfir kostir eru varðandi framtíðarskipan gengismála á Íslandi. Annaðhvort núverandi staða með flotgengisstefnu krónunnar eða upptaka evru með inngöngu í myntbandalagið og Evrópusambandið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Viðskiptaráðs sem kemur út í dag. 26.7.2006 06:30 Enn ein bílvelta á Hólssandi Erlendur ferðamaður velti bílaleigubíl sínum á Hólssandi í fyrrakvöld. Hann var einn í bílnum og sakaði ekki. Varðstjóri lögreglunnar á Húsavík segir þennan veg sérstaklega varasaman. Það sem af er sumri hafi orðið þar einar átta bílveltur. 26.7.2006 06:15 Hafa reynslu af vinnu erlendis Íslenska orkufyrirtækið Enex, sem vinnur að rannsóknum á jarðvarma í þremur sveitarfélögum í austanverðri Slóvakíu, hefur tekið þátt í meira en fimm verkefnum á erlendri grundu. Meðal annars hefur fyrirtækið tekið þátt í stórum verkefnum í El Salvador, Ungverjalandi, Póllandi og Slóvakíu. 26.7.2006 06:15 Danir vilja hluta gróðans Danir og Grænlendingar deila nú um það hvort tekjur af olíu, sem hugsanlega finnst út af ströndum Grænlands, eigi að falla Grænlendingum óskiptar í skaut eða dragast frá árlegum greiðslum frá Danmörku til grænlensku landstjórnarinnar. 26.7.2006 06:15 Sjá næstu 50 fréttir
Iceland America Energy gerir raforkusamning Iceland America Energy, dótturfélag Enex hf., og orkufyrirtækið Pacific Gas & Electric í Kaliforníu hafa undirritað samning um framleiðslu og sölu á 50 megavöttum af raforku. 26.7.2006 10:07
Saddam færður með valdi af sjúkrahúsi fyrir dóm Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseti, segist frekar vilja falla fyrir byssukúlu en að fara í gálgann veðri hann sakfelldur og dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyninu. Saddam var færður með valdi af sjúkrahúsi í morgun og fyrir dóm. 26.7.2006 10:00
Kínverjar krefja ísraelsk stjórnvöld um afsökunarbeiðni Fjórir eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna féllu í árásum Ísraelshers á bækistöð þeirra í bænum Khima í Suður-Líbanon í gærkvöld. Mennirnir voru frá Austurríki, Finnlandi, Kanada og Kína. Kínverjar hafa krafið ísraelsk stjórnvöld um afsökunarbeiðni. 26.7.2006 09:45
Stjórn Heimdallar skorar á ráðherra Sjálfstæðisflokksins Stjórn Heimdallar skorar á ráðherra Sjálfstæðisflokksins um að fylgja eftir tillögum hagstofustjóra um afnám tolla og innflutningshafta á matvörur. Stjórnin fagnar aukinni umræðu eftir að skýrsla matvælanefndarinnar var kynnt. 26.7.2006 09:45
Leiðtogar funda í Róm Fundur utanríkisráðherra helstu ríkja og fulltrúa alþjóðsamtaka um átökin í Líbanon hófst í Róm á Ítalíu í morgun. Þar verður rætt um hvernig hægt verði að stilla til friðar milli Ísraela og skæruliða Hizbollah og hvernig hægt verði að flytja hjálpargögn til þjáðra á átakasvæðinu. 26.7.2006 09:15
Níu hermenn féllu í átökum Hizbollah og Ísraelsher Að minnsta kosti níu ísraelskir hermenn féllu í miklum átökum við skæruliða Hizbollah í þorpinu Bint Jbeil í Suður-Líbanon í morgun. Arabíska fréttastöðin Al Jazeera greindi frá þessu fyrir stundu. Arabíska sjónvarpsstöðin Al Arabiya segir hins vegar að tólf hermenn hafi fallið. Fréttir bárust af því í gær að Ísraelsher hefði hertekið þorpið en nú berast fréttir af frekari átökum þar. 26.7.2006 09:02
Rolling stones með tekjuhæstu tónleikaferð allra tíma Hljómsveitin Rolling Stones eru nú enn og aftur komin á spjöld sögunnar og að þessu sinni fyrir að vera komin í efsta sæti lista yfir tekjuhæstu tónleikarferðir sögunnar. Hljómsveitarmeðlimirnir hófu tónleikaferð sína, A Bigger bang, fyrr á þessu ári en eru nú komnir til Evrópu. 26.7.2006 08:30
22 skipverjum bjargað Mildi þykir að ekki fór verr þegar tuttugu og tveimur skipverjum var bjargað af flutningaskipi sem fór á hliðina undan ströndum Alaska í fyrrinótt. Skipið, sem skráð er í Singapúr, var á leið frá Japan til Kanada með um fimm þúsund bíla og önnur farartæki um borð. 26.7.2006 08:30
Tveir kostir varðandi gengi krónunnar Aðeins tveir kostir eru í stöðunni varðandi framtíðarskipan gengismála hér á landi, segir í skýrslu, sem Viðskiptaráð hefur látið gera og kynnt verður í dag. Annarsvegar að að taka upp Evru og ganga þar með í Evrópusambandið, og hinsvegar að byggja áfram á sjálfstæðri krónu með fljótandi gengi. Tilgangur Viðskiptaráðs með gerð skýrsunnar, sem heitir: Krónan og atvinnulífið, er að leggja grunn að faglegri umræðu um gengismál hérlendis. 26.7.2006 08:15
Palestínsk stúlka lést í átökum á Gaza Átta Palestínumenn féllu og þrjátíu særðust í átökum á Gaza-ströndinni í morgun. Á meðal hinna látnu var þriggja ára gömul stúlka. Að sögn Reuters-fréttastofunnar voru hinir sjö sem féllu í árásunum skæruliðar Hamas-samtakanna. 26.7.2006 08:03
Beðið eftir leyfinu Borgaryfirvöld fóru fram á í síðustu viku að framkvæmdum á lóð nýrrar bensínstöðvar Esso í Vatnsmýrinni yrði hætt. 26.7.2006 07:45
Gríðarlegir fjármunir tapast Flugfélagið Icelandair skoðar rétt sinn til að krefja íslenska ríkið um skaðabætur vegna mikilla veikinda flugumferðarstjóra undanfarið. Eins og komið hefur fram í fréttum eru flugumferðarstjórar mjög ósáttir við nýtt vaktakerfi sem sett var á í mars síðastliðnum. 26.7.2006 07:45
Stækkun sem dugar til 2016 Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur kallað á stækkun og breytingar. Verklok eru áætluð í vor. Meðal nýjunga er farangursflokkunarkerfi. 26.7.2006 07:45
FBI segir ásatrú ofbeldisfulla Ásatrú verður sífellt vinsælli innan fangelsisveggja í Bandaríkjunum og mun einn fangi verða tekinn af lífi á morgun fyrir að drepa samfanga, fyrir að sýna guðunum ekki tilhlýðilega virðingu. Sérfræðingar óttast að ofbeldi muni aukast með útbreiðslu trúarbragðanna. 26.7.2006 07:45
Kvóti seldur frá Grímsey til Sandgerðis Kvóti, sem dugað hefur til að gera út fjóra báta frá Grímsey, hefur verið seldur til Sandgerðis og eru seljendurnir hættir útgerð, að því er Morgunblaðið greinir frá. Þetta eru tæp 12.000 tonn af þorski og ýsu, sem er stór hluti af heildarkvóta Grímseyinga, og er söluvirðið nálægt tveimur milljörðum króna. Nú búa um það bil hundrað manns í Grímsey þannig að þeta er umtalsvert hlutfall af efnahag eyjarskeggja. 26.7.2006 07:45
Áætluð fjölgun um 15 prósent Sveitarfélögin í landinu áætla að rúmlega ellefu þúsund einstaklingar muni njóta greiðslna húsaleigubóta á þessu ári. Það er 14,9 prósenta fjölgun frá árinu áður. 26.7.2006 07:30
Ökumennirnir gæta sín ekki Ellefu hafa látist í umferðinni á árinu. Slysin hafa orðið jafnt í þéttbýli sem dreifbýli og ýmist ökumenn, farþegar eða gangandi vegfarendur hafa látið lífið. Þá hafa orðið slys, bæði vegna árekstra og útafaksturs. 26.7.2006 07:30
Framkvæmdum við tónlistarhús frestað Ríkisstjórnin vill fresta framkvæmdum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík um eitt ár. Þannig á að sporna gegn þenslu og hvetja aðra til að hægja á dýrum framkvæmdum. Portus group hefur þegar samþykkt frestun. 26.7.2006 07:30
Unglingum séu sett mörk Foreldrahús og skjólstæðingar þess vilja veita foreldrum stuðning með því að hvetja til samráðs og samheldni við að virða lög og reglur. Brýnt er að foreldrar setji skýrar reglur og hviki ekki frá þeim. 26.7.2006 07:30
Mikið um kjarrelda í Noregi Sjaldan ef aldrei hafa kviknað jafn margir kjarreldar í Noregi líkt og á þessu ári samkvæmt frétt á fréttavef norska ríkissjónvarpinu. Fara þarf allt aftur til ársins 1976 til að finna svipaðar tölur yfir fjölda kjarrelda en þó hafa fleiri eldar kviknað í ár og mun stærra svæði hefur brunnið. Veðurfarið er talin ein helsta orsök eldanna. Úrkoma hefur víða verið lítil það sem af er sumri en á sumum svæðum hefur verið þrisvar sinnum minni úrkoma í júlí en fyrri ár. 26.7.2006 07:30
Slapp úr brennandi hjólhýsi Maður slapp ómeiddur út úr brennandi hjólhýsi í Þjórsárdal í nótt, en hjólhýsið brann til kaldra kola. Um leið og hann komst út, hringdi hann á slökkvilið, sem brátt kom á vettvang, en þá var hjólhýsið al elda og ekki lengur við neitt ráðið. Svo vel vildi til að ringt hafði á svæðinu í gærkvöld og fram yfir miðnætti, þannig að eldur náði ekki að læsa sig í skóginn í grenndinni. Þá voru önnur hjólhýsi á svæðinu í öruggri fjarlægð. Eldsupptök eru ókunn. 26.7.2006 07:30
Aukinn kraftur í rannsóknir Landsvirkjun setur nú aukinn kraft í rannsóknir á Norðausturlandi í tengslum við viðræður Alcoa um álver á Húsavík að sögn Bjarna Pálssonar, verkfræðings hjá Landsvirkjun. 26.7.2006 07:15
Mikil eldhætta skapaðist Rúmlega tíu þúsund lítrar af bensíni runnu niður í jarðveg eftir að tankbíll með tengivagn valt á þjóðveginum við Stórutjarnir í Ljósavatnsskarði í gærmorgun. Bílstjórinn var fluttur lítillega slasaður á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. 26.7.2006 07:15
Sextugur Dani olli fjaðrafoki slökkvilið og sjúkrabifreiðar voru snögg á vettvang í gærmorgun, með sprengjuleitarbúnað og sprengjuleitarhunda, þegar tilkynning barst frá bandaríska sendiráðinu í Kaupmannahöfn um hættu á sprengjuárás. Nærliggjandi götur voru lokaðar klukkutímum saman. 26.7.2006 07:15
Fjórir eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna drepnir Fjórir eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna féllu í árásum Ísraelshers í bænum Khima í Suður-Líbanon í gærkvöld. Mennirnir voru staddir í bækistöðvum sínum á svæðinu þegar Ísraelar gerðu loftárás á þær. 26.7.2006 07:13
Brenndist illa þegar hann olli stórtjóni Karlmaður á þrítugsaldri brenndist alvarlega þegar hann olli stórtjóni með því að kveikja í bílum á bílasölu í Reykjavík í nótt. Lögreglumaður á eftirlitsför sá eldinn og kallaði á slökkvilið, en maðurinn var á bak og burt. Hann komst af sjálfsdáðum á Slysadeild Landsspítalans, þar sem hann er enn í meðferð vegna brunasára, einkum í andliti. Þaðan tilkynnti hann lögreglu að hann hefði kveikt í bílunum. Hann hefur borið eldfimt efni að einum eða tveimur bílum, sem eru gjörónýtur, en eldurinn varð svo mikill að hann barst í fjóra bíla til viðbótar, sem allir skemmdust nokkuð og hleypur tjónið á mörgum milljónum króna. 26.7.2006 07:03
Útgáfa jökla-bréfa í blóma Krónan styrktist um 1,4 prósent í gær en KfW, þýski landbúnaðarsjóðurinn, gaf í gær út erlend skuldabréf fyrir níu milljarða króna sem eru á gjalddaga eftir eitt ár. 26.7.2006 07:00
200 ferðir með sjúklinga á dag Um 200 ferðir eru farnar á dag með sjúklinga á Landspítalanum sem þurfa að fara í myndatökur, hjartalínurit eða aðrar rannsóknir. 26.7.2006 07:00
Lýsa stuðningi við formann Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullum stuðningi er lýst við formann bandalagsins, Sigurstein Másson. Harmar stjórnin persónugerða gagnrýni í fjölmiðlum frá hendi tveggja af þrjátíu fulltrúum aðalstjórnar á hann og störf stjórnar. 26.7.2006 07:00
Ætíð ný njósnaforrit í umferð Stöðugur straumur nýrra eða endurbættra njósnaforrita er í umferð á hverjum tíma að sögn Friðriks Skúlasonar tölvufræðings. Hann segir svokallaða auðkennislykla, sem eru samstarfsverkefni allra banka landsins og verða teknir í almenna notkun hér á landi í haust, vera mikilvæga vörn gegn heimabankaþjófnaði. 26.7.2006 07:00
Segir skilyrðin engu breyta Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, um að setja samruna Dagsbrúnar og Securitas ákveðin skilyrði, breytir engu um starfsemi Securitas eða Dagsbrúnar, segir Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar. 26.7.2006 07:00
Breytir miklu fyrir farsímanotendur Ákveðið hefur verið að skylda farsímafélögin til þess að lækka lúkningargjöld. Miklar hagsbætur fyrir neytendur, segir Hrafnkell Gíslason. Fögnum breytingunni, segir fulltrúi Símans. Óþarfa inngrip, segir forstjóri Og Vodafone. 26.7.2006 07:00
Féll marga metra af gaffli lyftara og lést Banaslys varð við Hellisheiðarvirkjun í gær þegar maður sem stóð á vörubretti á gaffli lyftara féll marga metra til jarðar. Forstjóri Vinnueftirlitsins segir að öryggisráðstöfunum hafi ekki verið fylgt og hefur vinna við verkið verið stöðvuð. 26.7.2006 07:00
Ísraelsher tryggir sér svæði Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir að Ísraelar ætli sér upp á eigin spýtur að ákvarða "öryggissvæði" syðst í Líbanon á landræmu meðfram landamærum Ísraels. Þeir ætla sér að verja þetta svæði þangað til annað hvort alþjóðlegar gæslusveitir verða sendar þangað eða samið verður um að skæruliðar Hizbollah-hreyfingarinnar fari frá ísraelsku landamærunum. 26.7.2006 07:00
Nýr spítali haldi áætlun Áríðandi er að undirbúningur við byggingu nýs spítala haldi áætlun, segir í ályktun frá stjórn hjúkrunarráðs Landspítalans. Stjórnin segir frestun á framkvæmdum geta haft alvarlegar afleiðingar þar sem húsnæðisskortur sé nú þegar óviðunandi. Með nýrri byggingu muni þjónusta við sjúklinga batna, hagkvæmni í rekstri aukast og aðstaða starfsmanna og nemenda verða betri. 26.7.2006 06:45
Verulega dregur úr nýskráningum bíla Sala nýrra bíla það sem af er þessu ári er umtalsvert meiri en fyrir ári síðan en tæplega þúsund fleiri bílar hafa verið seldir nú en þá sem þó var algjört metár hvað sölu á nýjum bílum snerti. 26.7.2006 06:45
Haldið sofandi á gjörgæslu Jonathan Motzfeldt, formanni grænlenska landsþingsins, er enn haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum en hann var fluttur þangað frá Grænlandi á fimmtudag. Motzfeldt hefur verið greindur með lungnabólgu og nýrnabilun vegna bakteríusýkingar. 26.7.2006 06:45
Síminn og Atlassími ná sáttum í deilu Síminn hf. og Atlassími hafa náð sáttum í deilu félaganna um færslu á númerum úr almennri símaþjónustu í netsímaþjónustu. Póst- og fjarskiptastofnun mun ekki hafa frekari afskipti af málinu en undrast stjórnsýslukæru í málinu. 26.7.2006 06:45
Fimm þúsund bílar sukku Tuttugu og þriggja manna áhöfn var í gær bjargað um borð í þyrlur af sökkvandi flutningaskipi skammt frá Aleuteyjum, suður af Alaska. Um borð í skipinu eru fimm þúsund nýjar bifreiðar sem átti að flytja frá Japan til Kanada. 26.7.2006 06:45
Farþegarnir blandast áfram Eftir að breytingum á Flugstöð Leifs Eiríkssonar lýkur í vor eiga komu- og brottfararfarþegar enn eftir að blandast. 26.7.2006 06:30
Kostirnir eru króna eða ESB Aðeins tveir raunhæfir kostir eru varðandi framtíðarskipan gengismála á Íslandi. Annaðhvort núverandi staða með flotgengisstefnu krónunnar eða upptaka evru með inngöngu í myntbandalagið og Evrópusambandið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Viðskiptaráðs sem kemur út í dag. 26.7.2006 06:30
Enn ein bílvelta á Hólssandi Erlendur ferðamaður velti bílaleigubíl sínum á Hólssandi í fyrrakvöld. Hann var einn í bílnum og sakaði ekki. Varðstjóri lögreglunnar á Húsavík segir þennan veg sérstaklega varasaman. Það sem af er sumri hafi orðið þar einar átta bílveltur. 26.7.2006 06:15
Hafa reynslu af vinnu erlendis Íslenska orkufyrirtækið Enex, sem vinnur að rannsóknum á jarðvarma í þremur sveitarfélögum í austanverðri Slóvakíu, hefur tekið þátt í meira en fimm verkefnum á erlendri grundu. Meðal annars hefur fyrirtækið tekið þátt í stórum verkefnum í El Salvador, Ungverjalandi, Póllandi og Slóvakíu. 26.7.2006 06:15
Danir vilja hluta gróðans Danir og Grænlendingar deila nú um það hvort tekjur af olíu, sem hugsanlega finnst út af ströndum Grænlands, eigi að falla Grænlendingum óskiptar í skaut eða dragast frá árlegum greiðslum frá Danmörku til grænlensku landstjórnarinnar. 26.7.2006 06:15