Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tómas Zoëga áfram yfirlæknir hjá LSH Náðst hefur samkomulag milli forstjóra LSH og Tómasar Zoëga um að Tómas haldi áfram yfirlæknisstarfi sínu við geðsvið spítalans með sama hætti og áður. 19.7.2006 15:51
Bensínverð hækkar Bensínlítrinn hér á landi færi yfir 140 krónur, ef verðið væri látið fyglja hækkuninni á Rotterdammarkaði í gær. 19.7.2006 15:19
Samið við eldri borgara Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara frá Tryggingastofnun ríkisins hækka og bótakerfið verður einfaldað með fækkun og sameiningu bótaflokka, samkvæmt samkomulagi sem Landsamband eldri borgara og ríkisstjórnin skrifuðu undir í dag. Þá munu bætur lækka minna vegna tekna maka og annarra tekna bótaþega en nú er. Samkomulagið var undirritað af forsætisráðherra, fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og landbúnaðarráðherra og fulltrúum eldri borgara í Ráðherrabústaðnum í dag. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að tekið verði upp frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega og vasapeningar hækkaðir. Þá verði starfslok sveigjanleg, þannig að lífeyrisgreiðslur hækki við frestun á töku lífeyris. Heimaþjónusta verði stóraukin og áhersla færð frá stofnanaþjónustu. Þá mun fjármagn sem nú gengur til reksturs stofnana úr Framkvæmdasjóði aldraðra ganga til uppbyggingar öldrunarstofnana. 19.7.2006 14:45
Áfrýjar til Hæstaréttar Jónas Garðarsson, fyrrverandi formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi sem kveðinn var upp yfir honum um manndráp af gáleysi. 19.7.2006 13:56
Landhelgisgæslan áfram á Reykjarvíkurflugvelli Hugmyndir um að flytja þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar upp á Keflavíkurflugvöll fá ekki hljómgrunn í nýjum tillögum að framtíðarskipulagi sveitarinnar. Þar er lagt til að sveitin verði áfram á Reykjavíkurflugvelli. 19.7.2006 13:38
Mikil fjölgun ferðamanna í maí Rúmlega 31 þúsund erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í maí síðastliðnum, samkvæmt talningum Ferðamálastofu. Þetta er aukning um 12,5% miðað við maí í fyrra. 19.7.2006 13:04
Beitir neitunarvaldi Búist er við að Bush Bandaríkjaforseti beiti neitunarvaldi gegn lögum um að veita auknu fjármagni úr ríkiskassanum til stofnfrumurannsókna úr fósturvísum. 19.7.2006 12:37
Brotlenti við fjallið Þorbjörn í Grindavík Svifdrekaflugmaður brotlenti við fjallið Þorbjörn í Grindavík rétt fyrir klukkan 12. 19.7.2006 12:19
Á móti einkavæðingu öryggiseftirlits á Keflavíkurflugvelli Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að horfið verði frá ákvörðun flugmálayfirvalda að einkavæða öryggiseftirlit á Keflavíkurflugvelli. 19.7.2006 12:00
Stærsta seglskip í heimi Stærsta seglskip í heimi, rússneska skólaskipið Sedov, kom til hafnar í Reykjavík um klukkan hálf ellefu í morgun. Skipið verður til sýnis almenningi á morgun 19.7.2006 11:23
Norður-Kóreumenn undirbúa átök Stjórnvöld í Norður-Kóreu fyrirskipuðu herliði sínu að undirbúa sig fyrir stríð á laugardaginn rétt áður en öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti viðskiptabann á Norður-Kóreu. 19.7.2006 10:48
Atvinnuleysi 4% á öðrum ársfjórðungi Að meðaltali 7.200 manns voru án vinnu á öðrum ársfjórðungi 2006 eða fjögur prósent af vinnuafli samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Atvinnuleysi mældist 3,9% hjá körlum en 4,1% hjá konum. Meirihluti atvinnulausra voru námsmenn. Á öðrum ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuleysi þrjú prósent. 19.7.2006 10:29
Handtekin fyrir morð Bandarískur læknir og tveir hjúkrunarfræðingar sem unnu í ringulreiðinni sem varð í New Orleans eftir fellibylinn Katrínu voru handtekin í gær. Þeim var gefið að sök að hafa myrt fjóra fárveika sjúklinga sem morfíni og öðrum kvalastillandi efnum. Það var læknanemi sem tilkynnti málið. 19.7.2006 09:14
Ók niður ljósastaur Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Tungudal við Ísafjörð í gærkvöldi. Það gerðist skammt frá gangamunnanum og eru tildrög óljós. 19.7.2006 08:51
Hreindýraveiðar á Austurlandi hafnar Hreindýraveiðitíminn á Austurlandi er hafinn og er þegar búið að fella þó nokkra tarfa. Um það bil áttatíu manns hafa atvinnu af leiðsögn fyrir veiðimennina, en þeir aðstoða líka við að bera bráðina til byggða. Á þessu veiðitimabili, sem lýkur fimmtánda september, má fella rúmlega níu hundruð dýr, sem er stærsti veiðikvóti til þessa.- 19.7.2006 08:11
Bjart og hlýtt næstu daga „Sólin fer að leika stærra hlutverk í okkar lífi á næstunni,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur sem spáir góðu veðri um allt land næstu vikuna. 19.7.2006 08:00
Bush og Blair töluðu af sér Á G8-fundinum náðist á band einkasamtal George W. Bush og Tony Blair um ástandið í Líbanon. Þar kveður við annan hljóm en í opinberum yfirlýsingum þeirra. Hluti samtalsins fer hér á eftir. 19.7.2006 07:45
Listaverk RÚV eru metin á 52 milljónir Nefnd á vegum Ríkisendurskoðanda vinnur að mati á eignum Ríkisútvarpsins. Forvörður í Morkinskinnu verðmat listaverk í eigu stofnunarinnar. Hann telur þau eiga að vera á Listasafni Íslands. Hluti af ásjónu RÚV, segir útvarpsstjóri. 19.7.2006 07:45
Rúmlega fimmhundruð manns hafa fundis látnir á Jövu Enn er leitað í rústum húsa sem holskeflan á Jövu jafnaði við jörðu. 525 manns hafa nú fundist látnir og 160 til viðbótar er enn saknað. Flóðbylgjan skall á suðurströnd Jövu eftir að jarðskjálfti upp á 7,7 á Richter varð fyrir utan suðurströnd eyjarinnar í fyrradag. Þriggja metra háar öldur skullu fyrirvaralaust á suðurströnd Jövu skömmu eftir skjálftann. Fjöldi þeirra látnu á enn eftir að hækka meðan björgunarfólk leitar í rústum húsa og hótela að eftirlifendum eða líkum. Neyðaraðstoð er nú farin að berast til Jövu, hjálpargögn, matvæli og líkpokar. 19.7.2006 07:34
Bush beitir neitunarvaldi George W. Bush Bandaríkjaforseti hyggst beita neitunarvaldi gegn lögum um fósturstofnfrumur, sem Bandaríkjaþing hefur samþykkt og sent forsetanum til undirritunar. 19.7.2006 07:30
Ísraelar ganga mjög hart fram Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir frábært til þess að vita að tekist hafi að flytja alla Íslendinga heilu og höldnu frá Beirút í Líbanon. Eftir því sem næst verði komist séu ekki fleiri Íslendingar eftir í landinu. 19.7.2006 07:30
Óvíst að lægri gjöld skili sér til neytenda Forsætisráðherra segir ekki víst að þótt skattar á matvöru lækki hafi það áhrif til verðlækkunar. Ígildi skattsins gæti runnið eitthvað annað. Skýrsla matvælaverðsnefndar forsætisráðherra var rædd á fundi ríkissins. 19.7.2006 07:30
Jónas áfrýjar til Hæstaréttar Jónas Garðarsson, sem dæmdur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi, hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. 19.7.2006 07:30
Flöskuháls í skólakerfinu Rektor Listaháskólans er ánægður með tillögur nefndar menntamálaráðuneytisins um eflingu starfsnáms. Hann segir framhaldsskólastigið flöskuháls í skólakerfinu þegar kemur að listnámi. 19.7.2006 07:30
Ók niður ljósastaur Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Tungudal við Ísafjörð í gærkvöldi. Það gerðist skammt frá gangamunnanum og eru tildrög óljós.- 19.7.2006 07:27
Landgöngulið Ísraela komið inn í Líbanon Ísraelskir skriðdrekar og landgöngulið réðust í nótt inn í Suður-Líbanon. Hingað til hafa Ísraelar einungis gert loftárásir á Líbanon. 277 líbanskur borgari hefur nú látist í árásunum, þar af 42 í árásum í nótt en 25 Ísraelar hafa látist á rúmri viku í sprengjuárásum Hisbollah. Bush Bandaríkjaforseti ásakar nú Sýrlendinga um að kynda undir átökum milli Hisbollah og Ísraelshers til að styrkja áhrif sín í Líbanon. Ísraelskir hermenn réðust einnig inn í flóttamannabúðir í Gaza en þar létust tveir Palestínumenn í skotárásum og fimm í sprengjuárás Ísraela. 19.7.2006 07:16
Níðingar í framboð Hollenskur dómstóll neitaði á mánudag að banna stjórnmálaflokk barnaníðinga, sem berst fyrir því að kynlífsaldur verði lækkaður niður í tólf ár úr sextán árum. Dómarinn sagði það vera rétt kjósenda að dæma um lögmæti stjórnmálaflokka. 19.7.2006 07:15
Ég vil að veturinn komi bara strax „Bara allt gott, þakka þér fyrir. Ég er búinn að vera í fæðingarorlofi í tvo mánuði og hef notið þess að vera með fjölskyldunni,“ segir þriggja barna faðirinn Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands og skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. „Þó að það sé fullt starf að vera með lítil börn nýtur maður þess út í ystu æsar að vera með fjölskyldunni.“ 19.7.2006 07:15
Átta sinnum meira magn fíkniefna Lögreglan á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði gerði upptækt áttfalt magn fíkniefna á fyrri helmingi þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum afbrotatölum frá lögreglustjóranum í Hafnarfirði. Upptækt magn fíkniefna á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam rúmum 6,5 kílóum á móti 850 grömmum á sama tímabili síðasta árs. 19.7.2006 07:15
Komin heilu og höldnu Það voru vægast sagt fagnaðarfundir þegar tvær íslenskar fjölskyldur, sjö manns alls, lentu heilu og höldnu í Keflavík í gærkvöld eftir langt og strangt ferðalag frá vígvellinum í Líbanon. Brosið á ferðalöngunum og ættingjum þeirra var breitt, en tárin voru ekki langt undan. Sigríður Snævarr, starfandi ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, tók á móti hópnum fyrir hönd ráðuneytisins en það sendi flugvél eftir fólkinu til Damaskus í Sýrlandi í fyrradag sem flaug með það til Kaupmannahafnar, þaðan sem það kom fljúgandi í gærkvöld. Flugvirkjarnir þrír sem einnig voru í hópnum koma ekki strax til Íslands heldur halda til starfa á vegum Atlanta. 19.7.2006 07:10
Búist við langvinnu stríði Níu af hverjum tíu Ísraelum telja árásir ísraelska hersins á Líbanon eiga fullan rétt á sér, samkvæmt ísraelskri skoðanakönnun sem birt var í gær. Sextíu prósent aðspurðra Ísraela eru þeirrar skoðunar að herinn eigi að halda árásunum áfram þangað til Hizbollah-samtökunum í Líbanon hefur verið tortímt. 19.7.2006 07:00
350 létust í flóðbylgjunni Tala þeirra sem létust í flóðbylgjunni sem reið yfir Jövu á Indónesíu á mánudag er komin yfir 340 og vara yfirvöld við því að fleiri muni líklega finnast látnir á næstu dögum. Meðal hinna látnu var sænskur karlmaður, en tvö sænsk börn fundust á lífi í gær. 19.7.2006 07:00
Ekki víst að sjóðurinn veikist Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra segir ekki sjálfgefið að lækkun matsfyrirtækisins Standard & Poor‘s á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs veiki sjóðinn. „Það þarf ekki að vera til lengri tíma,“ sagði Magnús í gær en tók fram að hann ætti eftir að fara yfir málið með sérfræðingum. Hann benti á að breyting á mati S&P hefði svifið yfir vötnum í nokkurn tíma en Moodys, sem er sambærilegt fyrirtæki, gæfi sjóðnum áfram bestu einkunn. 19.7.2006 07:00
Vonast eftir friðsemd og ró Andrea Hólm og maður hennar, Hassan Jami Chahla, hafa ekki enn náð sambandi við nánustu fjölskyldu hans sem býr í þeim hluta Beirútborgar þar sem árásir Ísraela hafa aukist dag frá degi að undanförnu. 19.7.2006 07:00
Það er fleira dýrt en maturinn „Það liggur fyrir að á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar er unnið að því að semja um tolla og innanlandsstuðning og þar liggur landbúnaðurinn undir,“ sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra eftir fund ríkisstjórnarinnar í gærmorgun þar sem rætt var um skýrslu formanns matvælaverðsnefndar. 19.7.2006 07:00
Vegið að kókópuffs-kynslóðinni Skýrsla um leiðir til lækkunar matarverðs hefur verið mikið í umræðunni síðan nefnd forsætisráðherra skilaði henni af sér í síðustu viku. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa lítið tjáð sig um skýrsluna en það breyttist eftir ríkisstjórnarfundinn í gær. 19.7.2006 07:00
Ferðin frá Líbanon gekk vonum framar Íslendingarnar sem utanríkisráðuneytið flutti frá átakasvæðum í Líbanon lentu heilir á höldnu í Kaupmannahöfn í gær. Vel gekk að koma fólki frá Beirút til Damaskus. Stóðu vel að fólksflutningum frá Líbanon, segir Már Þórarinsson. 19.7.2006 07:00
Átján ára mál rannsakað Innri endurskoðandi KB banka sætir nú lögreglurannsókn fyrir að hafa notað skjal frá útlánaeftirliti Búnaðarbankans til að gera kröfur við gjaldþrot Stokkfisks. Eigandi fyrirtækisins kærði málið í nóvember í fyrra eftir að Fjármálaeftirlitið hafði gert athugasemdir við efni skjalsins. 19.7.2006 06:45
Fær ættleiðingu ekki greidda Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu eina milljón króna í bætur frá ríkinu vegna læknamistaka en vísaði hins vegar frá bótakröfu hennar vegna fyrirhugaðrar ættleiðingar barna frá Kína. 19.7.2006 06:45
Tíu aðrar leiðir vannýttari Stjórn Strætó bs. ákvað að leggja niður leið S5, að sögn Ásgeirs Eiríkssonar framkvæmdastjóra, vegna þess að mestan hluta leiðarinnar aka aðrar leiðir líka. 19.7.2006 06:45
Varar við þróuninni í Afríku Forseti Frakklands, Jacques Chirac, varaði við því í viðtali á föstudag að Afríkubúar myndu flæða yfir jörðina ef ekkert yrði að gert til að þróa efnahag heimsálfunnar. Í sjónvarpsviðtalinu sagði forsetinn að um helmingur allra 950 milljóna Afríkubúa væri undir sautján ára aldri og að árið 2050 yrðu Afríkubúar orðnir tveir milljarðar talsins. 19.7.2006 06:30
Ungar konur illa upplýstar Nýlegar rannsóknir sýna að konur virðast illa upplýstar um þá lifnaðarhætti sem geta valdið brjóstakrabbameini, að því er segir á fréttavef BBC. 19.7.2006 06:30
Ýmsar reglur sem gæta verður að Fríhöfnin er í flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Forsvarsmenn hennar líta svo á að hún sé í samkeppni við aðrar fríhafnir í Evrópu og segja verð allt að 50 prósentum lægra en gengur og gerist í Reykjavík. Ísland er eitt af fáum ríkjum Vestur-Evrópu þar sem hægt er að selja vörur og þjónustu til allra farþega, bæði við komu til landsins og brottför. 19.7.2006 06:30
Ekkert ákveðið um framboð Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra gerist fámáll, inntur eftir eigin vangaveltum um framboð til embætta innan Framsóknarflokksins. „Ég hef ekkert ákveðið en útiloka ekki neitt. Ég hef svo sem ekkert hugleitt þetta sérstaklega. Það eru ýmsir sem vilja fá eitthvað að gera þarna og það er bara ágætt,“ sagði Magnús í gær. 19.7.2006 06:30
Ríkið heldur að sér höndum Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að stjórnvöld muni ekki grípa til neinna ráðstafana vegna hækkandi eldsneytisverðs. Öll olíufélögin hafa hækkað bensínlítra um þrjár krónur og 40 aura og dísilolíulítra um tvær krónur. 19.7.2006 06:30