Fleiri
Whale Season: Hunting and Watching 20.6.2006 13:05 Samstök atvinnulífsins og ASÍ hafa komist að samkomulagi Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa komist að samkomulagi um tillögur til stjórnvalda um styrkingu vinnumarkaðarins, þá fyrst og fremst í tengslum við erlend þjónustufyrirtæki og starfsfólk. Frá þessu greindi Halldór Grönvold nú um hádegi en samkomulagið verður tilkynnt stjórnvöldum um klukkan þrjú í dag. 20.6.2006 12:59 Tax Cuts Pending 20.6.2006 12:53 Icelanders Can Hunt Whales If They Want 20.6.2006 12:49 Nýr aðstoðarmaður félagsmálaráðherra Guðmundur Páll Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra. Hann mun hefja störf þegar í stað. Guðmundur Páll Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra og mun hefja störf þegar í stað. 20.6.2006 12:45 Charles Taylor loks fyrir dómstól Charles Taylor, fyrrverandi einræðisherra í Líberíu, er nú á leið til Hollands þar sem réttað verður yfir honum. Hann er ákærður fyrir stríðsglæpi í tíu ára borgarastríði í nágrannalandinu Sierra Leone. 20.6.2006 12:00 Gervifrjóvganir borga sig Breskir tölfræðingar hafa reiknað út að kostnaðurinn við gervifrjóvganir borgi sig margfalt fyrir breska ríkið, þegar tillit er tekið til framlags barnsins uppkomins til þjóðarframleiðslu og skattborgana. 20.6.2006 11:32 Færeyski togarinn Réttað verður á Eskifirði í dag, yfir skipstjóranum á færeyska togaranum, sem varðskipið Óðinn tók suðaustur af landinu í fyrrinótt. Þrátt fyrir að hann hafi ekki verið að veiðum eru brotin margvísleg. 20.6.2006 11:28 Lögreglan gómar innbrotsþjófa Lögreglumenn gómuðu tvo innbrotsþjófa á vettvangi í atvinnuhúsnæði í austurborginni í nótt, eftir einskonar fyrirsát. 20.6.2006 11:22 Japanskar sveitir yfirgefa Írak Japanar munu draga allt herlið sitt frá Írak nú þegar Írakar hafa sagst munu taka við öryggiseftirliti í þeim héruðum þar sem Japanir hafa verið að störfum. Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, sagði í morgun að enduruppbyggingarhlutverki japanskra varnarsveita í Írak væri lokið og því engin þörf fyrir að Japanar héldu úti mannskap þar lengur. 20.6.2006 11:15 Borgarstjóri rennir fyrir lax Laxveiðin í Elliðaám hófst klukkan sjö í morgun með því að nýi borgarstjórinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson renndi fyrir laxi. 20.6.2006 11:12 Ilmur Beckhams eitraður Ilmur Beckhams er eitraður ef marka má orð Grænfriðunga sem létu greina innihald nýs herrailmvatns sem knattspyrnuhetjan David Beckham hefur lagt nafn sitt við. 20.6.2006 10:58 Fótboltabullur handteknar í Köln Fjórir stuðningsmenn enska landsliðsins í fótbolta voru handteknir fyrir skrílslæti í Köln í nótt, þegar eftirvænting þeirra eftir leik Englendinga gegn Svíþjóð fór úr böndunum. Sextán lögreglumenn slösuðust í átökunum og þurfti einn að leggjast inn á sjúkrahús. 20.6.2006 10:36 Sjá næstu 50 fréttir
Boða vinnustöðvun á sunnudag vegna launadeilu Farþegar geta búist við töluverðri röskun á flugi til og frá landinu á sunnudagsmorguninn ef af vinnustöðvun starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli verður. Trúnaðarmenn starfsfólks hafa staðið í árangurslausum viðræðum við stjórnendur Icelandair í tvo mánuði og upp úr sauð á fundi starfsfólks í gærkvöldi. Framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar segir málið í skoðun. 21.6.2006 07:14
Ótryggt ástand í Sri Lanka Ástandið í Sri Lanka er ótryggt eftir þá óöld sem þar hefur ríkt. Á annað hundrað manns hafa látið lífið í árásum Tamíl-tígra og stjórnarhersins síðustu daga. 20.6.2006 23:00
Mikil öryggisgæsla í Vín vegna heimsóknar Bush Mikil öryggisgæsla verður í Vín í Austurríki í kvöld og og á morgun en Bush Bandaríkjaforseti kom til borgarinnar í kvöld til fundar við fulltrúa Evrópusambandsins sem verður á morgun. Þrjú þúsund lögreglumenn verða að störfum í borginni næsta sólahring en búist er við mótmælum vegna heimsóknar forsetans. 20.6.2006 22:45
Charles Taylor kominn til Hollands Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, kom til Hollands í kvöld þar sem réttað verður yfir honum en hann er ákærður fyrir stríðsglæpi í 10 ára borgarastríði í Sierra Leone. 20.6.2006 22:30
Starfsfólk Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli leggur niður vinnu á sunnudaginn Farþegar geta búist við töluverðri röskun á flugi til og frá landinu á sunnudagsmorguninn ef af vinnustöðvun starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli verður. Trúnaðarmenn starfsfólks hafa staðið í árangurslausum viðræðum við stjórnendur Icelandair í tvo mánuði og upp úr sauð á fundi starfsfólks í gærkvöldi. Framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar segir málið í skoðun. 20.6.2006 22:10
Dyrhólaey lokuð fyrir almennri umferð Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka fyrir almennri umferð inn á Dyrhólaey og Háey til og með 25. júní. Dyrhólaey er friðuð en Umhverfisstofnun mun, í samráði við landeigendur og nytjarétthafa, fylgjast með framgangi varps í eynni. Í framhaldi verður tekin ákvörðun um hvort rétt sé að opna fyrir umferð almennings á Dyrhólaey og Háey. 20.6.2006 22:00
Úttekt verður gerð á jafnréttismálum hjá Reykjavíkurborg Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í dag tillögu Svandísar Svavarsdóttur og Árna Þórs Sigurðssonar, Vinstri grænum, um láta fara fram úttekt á kynjajafnréttismálum hjá Reykjavíkurborg. Tillagan var samþykkt samhljóða en hún gerir ráð fyrir að fela mannréttindanefnd að láta gera úttekt á stöðu kynjajafnréttismála hjá Reykjavíkurborg. 20.6.2006 21:45
Dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í gær fyrir að hafa kastað gangstéttarbroti í andliti annars manns fyrir utan skemmtistað á Selfossi í júní á síðasta ári. Mennirnir voru báðir að skemmta sér en til átaka kom með þeim afleiðingum að annar maðurinn kastaði broti úr gangstéttarhellu í hinn og við það maðurinn hlaut áverka í andliti og sex tennur brotnuðu. 20.6.2006 21:30
Vonbrigði ASÍ með tillögur ríkisstjórnarinnar Ekkert samkomulag virðist vera í sjónmáli milli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins. Formaður ASÍ varð fyrir vonbrigðum með tillögur ríkisstjórnarinnar að nýjum skattleysismörkum sem ræddar voru í dag. 20.6.2006 21:18
Skýrslutöku haldið áfram á morgun Skýrslutaka af skipstjórinum á færeyska togaranum Sancy, sem tekinn var af varðskipinu Óðni í fyrrinótt, lauk á áttunda tímanum í dag. Skýrslutaka hófst í morgun hjá lögreglunni á Eskifirði en enn hefur ekkert verið ákveðið hvort hann verði ákærður. 20.6.2006 20:26
Maður slasaðist í laxveiði Hjálparsveit skáta í Aðaldal, Hjálparsveit skáta í Reykjadal og Björgunarsveitin Stefán í Mývatnssveit voru kallaðar út vegna manns sem hafði slasast á bökkum Laxár í Mývatnssveit á sjöunda tímanum í kvöld er hann var við laxveiði. Talið er að maðurinn hafi farið úr mjaðmalið en björgunarsveitin og hjálparsveitirnar fluttu manninn á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík til aðhlynningar. 20.6.2006 20:15
Íslensku forvarnarverðlaunin afhent í fyrsta sinn Þorsteinn Pétursson, forvarna- og fræðslufulltrúi lögreglunnar á Akureyri, fékk Íslensku forvarnarverðlaunin sem voru afhent í dag. Þorsteinn hefur um árabil heimsótt alla leik-og grunnskóla á Akureyri, auk Menntaskólans og Verkmenntaskólans á Akureyri til að fræða unga fólkið um umferðarmál og fíkniefni og allt þar á milli. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru afhent en verðlaunaveitingin er samstarfsverkefni Sjóvá, Landsbjargar, Landspítala-háskólasjúkrahúss og Lýðheilsustöðvar. 20.6.2006 19:49
Borgarstjórn samþykkir tillögu F-listans um Heilsuverndarstöðina Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að vísa tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, um Heilsuverndarstöð Reykjavíkur til borgaráðs. Tillaga Ólafs um Heilsuverndarstöðina er á þá leið að heilbrigðisráðherra og ríkisstjórn sjái til þess að sú heilsuverndar- og heilsugæslustarfsemi, sem fer fram á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, verði þar áfram og að Heilsuverndarstöðin komist aftur í eigu almennings. 20.6.2006 19:30
Starfsfólk IGS leggur niður vinnu á sunnudaginn Starfsfólk Icelandair, í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli, hefur ákveðið að leggja niður störf frá kl. 5 á sunnudagsmorgun til kl. 8, á háannatíma, til að mótmæla kjörum og vinnuaðstöðu. 20.6.2006 19:10
Fasteignaféagið Stoðir kaupir fasteignafélagið Löngustétt Fasteignafélagið Stoðir hefur gengið frá kaupum á fasteignafélaginu Löngustétt. Um er að ræða yfir 30.000 fermetra skrifstofu og verslunarhúsnæði. Meðal helstu fasteigna Löngustéttar eru Laugavegur 182, Dalshraun 1 í Hafnarfirði, Austurstræti 8, Pósthússtræti 1 og 3, stærsti hluti verslunarkjarnans við Þverholt í Mosfellsbæ og verslunarkjarna við Sunnumörk í Hveragerði. Stoðir er með yfir 300.000 fermetra húsnæðis í eignasafni sínu á Íslandi og yfir 150.000 fermetra húsnæðs í Danmörku í gegnum fasteignafélagið Atlas. 20.6.2006 19:10
Gífurlegt tjón hjá Alcan Framleiðsla álversins í Straumvík hefur hrunið um helming eftir alvarlega rafmagnsbilun. Þrjá til fjóra mánuði tekur að koma framleiðslunni í eðlilegt horf og gæti tap vegna orðið á annan milljarð. 20.6.2006 18:45
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Maðurinn reyndi að smygla tæpu kílói af amfetamíni og um 3,8 kílóum af kannabis til landsins í bíl með Norrænu í desember síðastliðnum. 20.6.2006 18:45
Undirbjóða vinnu annarra útlendinga Formaður Samiðnar segir dæmi um að erlendir starfsmenn frá nýjum aðildarríkjum EES, sem koma til landsins á eigin vegum, reyni að hafa vinnu af öðrum útlendingum með undirboðum. 20.6.2006 18:45
Listasafn opnað með viðhöfn í París Jacques Chirac, Frakklandsforseti, opnaði í dag nýtt listasafn í París. Þetta mun vera fyrsta stóra safnið sem tekið er í notkun þar í borg í frá því 1977 þegar Pompidou safnið var opnað. 20.6.2006 18:30
Einn stofnenda ETA handtekinn Einn stofnenda ETA, aðskilnaðarsamtaka Baska, var meðal þeirra 12 sem handteknir voru í Frakklandi og á Spáni í dag þegar áhlaup var gert á höfuðstöðvar glæpasamtaka í löndunum tveimur. 20.6.2006 18:15
Þjóðvarðliðar sendir til New Orleans Borgarstjórinn í New Orleans í Bandaríkjunum kallaði eftir aðstoð þjóðvarðliða í gær svo hægt yrði að stöðva öldu ofbeldis í borginni. Fimm ungmenni voru skotnir til bana við bifreið sína um liðna helgi og er árásin sú mannskæðasta í New Orleans í 11 ár. 20.6.2006 18:00
Gert ráð fyrir 4,7% hagvexti á árinu Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,7% á árinu samkvæmt endurskoðaðri þjóðhagsspá Fjármálaráðuneytisins. 20.6.2006 17:38
Erfðabreytileiki eykur hættu á brjóstakrabbameini Rannsókn sem Íslensk erfðagreining gerði tengir erfðabreytileika við aukna hættu á brjóstakrabbameini. Grein um rannsóknina var birt í dag í læknatímaritinu PloS Medicine. Rannsóknin náði til eitt þúsund kvenna sem hafa greinst með brjóstakrabbamein á Íslandi. 20.6.2006 17:33
Samningur Reykjavíkurborgar og Bauhaus undirritaður Í dag var undirritaður samningur um sölu borgarinnar á umdeildri lóð við Vesturlandsveg til þýska byggingavöruverslunarfyrirtækisins Bauhaus. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og fulltrúar alþjóðlegu verslanakeðjunnar undirrituðu samninginn um fjögurleytið í Höfða. 20.6.2006 17:30
Ástandið í Sómalíu Sameinuðu þjóðirnar kanna hvort ástandið í Sómalíu sé tryggt eftir mannskæð átök undanfarið. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna halda til höfuðborgarinnar, Mogadishu, seinna í vikunni til að ræða við fulltrúa íslömsku dómstólanna sem náðu völdum í borginni fyrr í mánuðinum. 20.6.2006 17:00
Krefst þess að ráðherra grípi inn í deilur Tómas Zoega geðlæknir krefst þess að ráðherra grípi inn í deilunni hans og Landspítalans. 20.6.2006 16:53
Tamíltígrar segjast vilja virða vopnahlé Tamíltígrar í Sri Lanka hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir biðja liðsmenn sína um að virða vopnahlé frá árinu 2002. Ofbeldi hefur farið stigvaxandi á eyjunni undanfarinn mánuð en nú segjast skæruliðasamtökin vilja binda enda á ofbeldi auk þess sem þau segjast munu tryggja öryggi norrænna friðargæsluliða. 20.6.2006 15:15
Leiðtogi al-Qaeda í Írak segist persónulega ábyrgur fyrir morðum Nýr leiðtogi al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna í Írak, Abu Hamza al-Muhajer, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann lýsir ábyrgð á hendur sér fyrir pyntingar og morð á tveimur bandarískum hermönnum sem rænt var af herstöð í síðustu viku. Í yfirlýsingunni segir að Muhajer hafi myrt mennina með eigin hendi. 20.6.2006 15:14
Bandarísku hermennirnir látnir Tveir bandarískir hermenn, sem saknað hafði verið frá því á föstudag, fundust skammt suður af Bagdad í morgun. Lík mannanna báru þess merki að þeir hefðu verið pyntaðir. Uppreisnarhópur tengdur al Qaeda samtökunum sagðist hafa numið mennina á brott frá landamærastöð þar sem þeir unnu. 20.6.2006 13:52
Ítalskur saksóknari kærir bandarískan hermann Ítalskur saksóknari hefur að sögn þarlendra fjölmiðla ákveðið að ákæra bandarískan hermann fyrir að hafa myrt ítalskan leyniþjónustumann við varðstöð í Írak í fyrra. Líklegt er að réttað verði í málinu að honum fjarstöddum og hann kærður fyrir morð og tvö morðtilræði. 20.6.2006 13:29
Festa lífeyrissjóður stofnaður á Akranesi Í gær var haldinn á Akranesi stofnfundur Festu lífeyrissjóðs. Sjóðurinn varð til við sameiningu Lífeyrissjóðs Vesturlands og Lífeyrissjóðs Suðurlands. 20.6.2006 13:21
Mótmæli á Akureyri Hundruð manna hafa ritað nöfn sín á mótmælalista gegn því að íþróttaleikvanginum á Akureyri verði fórnað fyrir annað skipulag. Talsmaður óánægðra segir menningarlegt stórslys í vændum. 20.6.2006 13:05
Samstök atvinnulífsins og ASÍ hafa komist að samkomulagi Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa komist að samkomulagi um tillögur til stjórnvalda um styrkingu vinnumarkaðarins, þá fyrst og fremst í tengslum við erlend þjónustufyrirtæki og starfsfólk. Frá þessu greindi Halldór Grönvold nú um hádegi en samkomulagið verður tilkynnt stjórnvöldum um klukkan þrjú í dag. 20.6.2006 12:59
Nýr aðstoðarmaður félagsmálaráðherra Guðmundur Páll Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra. Hann mun hefja störf þegar í stað. Guðmundur Páll Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra og mun hefja störf þegar í stað. 20.6.2006 12:45
Charles Taylor loks fyrir dómstól Charles Taylor, fyrrverandi einræðisherra í Líberíu, er nú á leið til Hollands þar sem réttað verður yfir honum. Hann er ákærður fyrir stríðsglæpi í tíu ára borgarastríði í nágrannalandinu Sierra Leone. 20.6.2006 12:00
Gervifrjóvganir borga sig Breskir tölfræðingar hafa reiknað út að kostnaðurinn við gervifrjóvganir borgi sig margfalt fyrir breska ríkið, þegar tillit er tekið til framlags barnsins uppkomins til þjóðarframleiðslu og skattborgana. 20.6.2006 11:32
Færeyski togarinn Réttað verður á Eskifirði í dag, yfir skipstjóranum á færeyska togaranum, sem varðskipið Óðinn tók suðaustur af landinu í fyrrinótt. Þrátt fyrir að hann hafi ekki verið að veiðum eru brotin margvísleg. 20.6.2006 11:28
Lögreglan gómar innbrotsþjófa Lögreglumenn gómuðu tvo innbrotsþjófa á vettvangi í atvinnuhúsnæði í austurborginni í nótt, eftir einskonar fyrirsát. 20.6.2006 11:22
Japanskar sveitir yfirgefa Írak Japanar munu draga allt herlið sitt frá Írak nú þegar Írakar hafa sagst munu taka við öryggiseftirliti í þeim héruðum þar sem Japanir hafa verið að störfum. Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, sagði í morgun að enduruppbyggingarhlutverki japanskra varnarsveita í Írak væri lokið og því engin þörf fyrir að Japanar héldu úti mannskap þar lengur. 20.6.2006 11:15
Borgarstjóri rennir fyrir lax Laxveiðin í Elliðaám hófst klukkan sjö í morgun með því að nýi borgarstjórinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson renndi fyrir laxi. 20.6.2006 11:12
Ilmur Beckhams eitraður Ilmur Beckhams er eitraður ef marka má orð Grænfriðunga sem létu greina innihald nýs herrailmvatns sem knattspyrnuhetjan David Beckham hefur lagt nafn sitt við. 20.6.2006 10:58
Fótboltabullur handteknar í Köln Fjórir stuðningsmenn enska landsliðsins í fótbolta voru handteknir fyrir skrílslæti í Köln í nótt, þegar eftirvænting þeirra eftir leik Englendinga gegn Svíþjóð fór úr böndunum. Sextán lögreglumenn slösuðust í átökunum og þurfti einn að leggjast inn á sjúkrahús. 20.6.2006 10:36