Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Árásir á ferðamannasvæðum Tvennt lést og að minnsta kosti tíu særðust í tveim árásum á vinsælum ferðamannastöðum í Kaíró í Egyptalandi í gær. Talið er að þau bæði sem létust hafi verið árásarfólk. Samkvæmt heimildum AP fréttastofunnar er talið að árásirnar séu tengdar. 30.4.2005 00:01
Dregur saman með fylkingum Réttum mánuði áður en Frakkar ganga til atkvæða um staðfestingu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins sýndu niðurstöður nýjustu skoðanakönnunarinnar í gær að enn hallaðist meirihluti kjósenda að því að hafna sáttmálanum. 30.4.2005 00:01
Endur í KEA-hretinu "Þetta er bara hið árlega KEA-hret," sagði lögreglan á Ólafsfirði um snjóinn sem kyngdi niður í gær. Til frekari útskýringa standa margir Norðlendingar í þeirri trú að það snjói alltaf þegar KEA heldur vorfund sinn. 30.4.2005 00:01
Mannskæðar árásir í Bagdad Að minnsta kosti átján Írakar hafa fallið í valinn í fjórum bílsprengjuárásum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Nærri 70 manns slösuðust í árásunum sem allar beindust að íröskum her- og lögreglumönnum. Mörgum hinna slösuðu er vart hugað líf og búist er við að tala látinna eigi eftir að hækka töluvert. 29.4.2005 00:01
Mótmælir sköttum á orkufyrirtæki Fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um að fara að leggja tekju- og eignaskatt á orkufyrirtæki, eins og nú liggja fyrir í stjórnarfrumvarpi, myndu leiða til hækkunar á raforkuverði, heitu vatni og vatnsgjaldi til almennings, að mati borgarráðs. Ráðið mótmælti þessum fyrirætlunum ríkisins einróma á fundi sínum í gær og benti meðal annars á að skipulagsbreytingar stjórnvalda á raforkumarkaði hafi nú þegar leitt til hækkunar á raforkuverði. 29.4.2005 00:01
Vilja veiða við strendur jarða Samtök eigenda jarða, sem eiga land að sjó, ætla að höfða mál gegn ríkinu þar sem þeir ætla að krefjast réttar til að fá að veiða við strendur sínar eins og þeir hafa haft rétt til öldum saman. Tilefnið er dómur Hæstaréttar í vikunni þar sem hann dæmdi mann í 400 þúsund króna sekt og til að skila andvirði aflans fyrir að hafa veitt án leyfis til veiða í atvinnuskyni og þar með utan kvótakerfisins, en maðurinn hafði leyfi bónda til veiðanna. 29.4.2005 00:01
Fékk dauðadóm fyrir árás á félaga Bandarískur hermaður var í gær dæmdur til dauða fyrir að hafa drepið tvo félaga sína í bandaríska hernum á fyrstu dögum innrásarinnar í Írak. Hermaðurinn, sem er múslími, henti handsprengju í átt að félögum sínum og hóf síðan skothríð með þeim afleiðingum að tveir féllu og fjórtán særðust. Saksóknarar segja trúarofstæki ástæðuna fyrir árásinni. 29.4.2005 00:01
Sofnaði undir stýri og ók út af Ökumaður slapp með skrámur þegar bíll hans flaug út af veginum í Norðurárdal í Borgarfirði í gærkvöldi og skall svo harkalega niður að hluti hjólabúnaðarins sópaðist undan honum. Bensínleiðsla rofnaði líka þannig að eldur kom upp í bílnum en ökumaður flutningabíls sem kom að gat slökkt eldinn með handslökkvitæki. Að sögn lögreglu sofnaði ökumaðurinn undir stýri en hann var að koma austan af Fjörðum eftir að hafa unnið fá því snemma í gærmorgun og síðan lagt upp í þennan langa akstur. 29.4.2005 00:01
Meiddist í vélhjólaslysi Kona hlaut slæma byltu þegar hún missti stjórn á mótorhjóli sínu og ók út af þjóðveginum á móts við Tannastaði undir austurhlíðum Ingólfsfjalls síðdegis í gær. Hún var flutt á Landsspítalann til aðhlynningar og rannsóknar. Ekki er vitað um tildrög slyssins og ekki er talið að konan hafi verið á óeðlilega miklum hraða. 29.4.2005 00:01
Mótmæltu sjálfstæðu Ísraelsríki Þúsundir strangtrúaðra gyðinga söfnuðust í gær saman fyrir utan ræðismannsskrifstofu Ísraels í New York til þess að mótmæla stefnu Ísraelsstjórnar. Það kann að hljóma undarlega að gyðingar mótmæli stefnu Ísraels en hópur bókstafstrúargyðinga neitar að samþykkja sjálfstætt ríki Ísraels þar sem í Gamla testamentinu segi að gyðingar skuli vera í útlegð uns sjálfur guð komi og frelsi þá. 29.4.2005 00:01
Hard Rock í Kringlunni lokað Veitingastaðnum Hard Rock í Kringlunni verður lokað eftir rúman mánuð og var starfsfólkinu tilkynnt um uppsögn í gærkvöldi. Það þótti nokkur viðburður þegar staðurinn var opnaður fyrir átján árum en að undanförnu hefur hann farið halloka í samkeppninni við aðra veitingastaði á svæðinu. 29.4.2005 00:01
Ráða brátt niðurlögum veiru Nú hafa meira en 250 manns látist í Angóla af völdum svokallaðrar Marburg-veiru. Sóttvarnarsérfræðingar á svæðinu telja hins vegar stutt í að þeim takist að hefta útbreiðslu veirunnar á svæðinu. Tekist hefur að hafa uppi á flestum þeirra 500 manna sem talið er að hafi ef til vill smitast af fórnarlömbum veirunnar. 29.4.2005 00:01
Friðargæsluliðum fjölgað í Darfur Afríkuráðið hefur samþykkt að meira en tvöfalda fjölda friðargæsluliða í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði í Súdan. Sem stendur eru aðeins 2200 hermenn í héraðinu, sem þurfa að gæta svæðis á stærð við Frakkland, en reiknað er með að friðargæsluliðarnir verði 7700 í september næstkomandi og þá gæti þeim jafnvel verið fjölgað í tólf þúsund áður en yfir lýkur. 29.4.2005 00:01
Vilja 7 milljarða bætur fyrir verk Borgaryfirvöld í Osló hyggjast fara fram á 700 milljónir norskra króna, andvirði sjö milljarða íslenskra króna, í bætur fyrir málverkin Ópið og Madonnu eftir Edvard Munch, sem stolið var af Munch-safninu í ágúst í fyrra. Málverkin hafa ekki enn fundist en þrír menn sitja í gæsluvarðahaldi vegna gruns um aðild að ráninu. 29.4.2005 00:01
Samvinna án aðildar Bandaríkjanna Fidel Castro, forseti Kúbu, og Hugo Chavez, forseti Venesúela, hvöttu í morgun ríki í Suður-Ameríku til þess að gera með sér fríverslunarsamning án afskipta Bandaríkjanna og án alls samstarfs við Bandaríkjamenn. Leiðtogarnir funduðu í Havana á Kúbu í morgun. Chavez er þar í opinberri heimsókn í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu ríkja sem eru andvíg fríverslunarsamkomulagi sem Bandaríkjamenn fara fyrir. 29.4.2005 00:01
Múslímar hvattir til frekari árasa Minnst 22 féllu þegar fjórar bílasprengjur sprungu í Bagdad í Írak í morgun. Leiðtogi al-Qaida í Írak hvetur múslíma til að herða sóknina enn frekar gegn Bandaríkjaher. 29.4.2005 00:01
Mikill munur á þjónustugjöldum Verðmunur á þjónustu fasteignasala við sölu á íbúðum getur hlaupið á hundruðum þúsunda og hvetja Neytendasamtökin fólk til að kynna sér verðskrár fasteignasalanna fyrir fram og gera bindandi samninga við þá. 29.4.2005 00:01
Vanskil minnka hjá Félagsbústöðum Vanskil skjólstæðinga Félagsbústaða hafa minnkað um rúm tuttugu prósent frá árinu 1997. Framkvæmdastjóri Félagsbústaða telur ástæðuna vera betri innheimtu og að skjólstæðingar sjái sér ekki annað stætt en að standa í skilum. 29.4.2005 00:01
Keppast við að mæra frambjóðendur Stuðningsfylkingum þeirra Össurar Skarphéðinssonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur er hlaupið kapp í kinn og seilast þær æ lengra í samlíkingum sinna frambjóðenda við göfuga menn og málefni. 29.4.2005 00:01
Orkuskattur leiði til hækkana Fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um að leggja tekju- og eignaskatt á orkufyrirtæki, eins og nú liggja fyrir í stjórnarfrumvarpi, myndu leiða til hækkunar á raforkuverði, heitu vatni og vatnsgjaldi til almennings, að mati borgarráðs. 29.4.2005 00:01
Veltir fyrir sér framboðskostnaði Áleitnar spurningar hafa komið upp í huga Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra varðandi kostnað við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Davíð upplýsti um þetta á Alþingi í morgun þegar hann flutti munnlega skýrslu um utanríkismál. 29.4.2005 00:01
Friðargæsluliðar aldrei í fríi Friðargæsluliðar eru aldrei í fríi, segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra, í tengslum við umræðu um tryggingarmál þeirra sem særðust í árásinni á Kjúklingastræti í Kabúl í fyrra. 29.4.2005 00:01
Ofbeldi mótmælt á Akureyri Mótmæli gegn ofbeldi hefjast á Ráðhústorginu á Akureyri klukkan fimm í dag. En efnt var til mótmælanna í kjölfar hrottalegra líkamsárása sem orðið hafa í bænum að undanförnu og gefa bæjarbúar ofbeldismönnum rauða spjaldið. 29.4.2005 00:01
Árleg vorhreinsun í borginni hafin Árleg vorhreinsun í Reykjavík hófst í dag og stendur hún til 7. maí. Starfsmenn Reykjavíkurborgar verða á ferðinni þessa daga og munu fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Nánari upplýsingar um vorhreinsunina er að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar á slóðinni <em>rvk.is/fs</em>. 29.4.2005 00:01
Pútín býður Palestínumönnum aðstoð Vladímír Pútín, forseti Rússlands, bauð í dag Palestínumönnum aðstoð við uppbyggingu í landinu, en hann er nú á ferðalagi um Miðausturlönd og fundaði m.a. með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Pútín sagðist einnig styðja umbætur Abbas á öryggissveitum Palestínu og sagði Rússa tilbúna að þjálfa palestínskar öryggissveitir og selja Palestínumönnum þyrlur og samskiptatæki. 29.4.2005 00:01
Birti myndir af látnum hermönnum Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur birt tæplega 300 myndir af látnum hermönnum og kistum þeirra, en hermennirnir létust m.a í Írak og Afganistan. Þetta gerði ráðuneytið í kjölfar þess að háskólaprófessorinn Ralph Begleiter lagði fram kæru á hendur því, en hann taldi að samkvæmt upplýsingalögum yrðu bandarísk stjórnvöld að birta myndirnar. 29.4.2005 00:01
Ber ekki ábyrgð á skráningum Kosningastjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem býður sig fram til embættis formanns Samfylkingarinnar, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta undanfarna daga af skráningum í Samfylkinguna í tengslum við formannsslaginn. Þar segir:<strong> „</strong>Vegna frétta í fjölmiðlum undanfarna daga af umdeildum skráningum í Samfylkinguna vill kosningarstjórn Ingibjargar Sólrúnar taka fram að þessar skráningar komu ekki í gegnum okkar kosningamiðstöð. 29.4.2005 00:01
Fleiri látnir í tilræðum í Bagdad Tala látinna í bílsprengjutilræðunum í Bagdad í morgun heldur áfram að hækka. Nú eru að minnsta kosti 27 látnir og rúmlega 100 sárir eftir hrinu sprenginga sem beindust gegn írökskum her- og lögreglumönnum í og við höfuðborgina. Enginn hefur lýst tilræðunum á hendur sér en í ávarpi sem birt var á Netinu í dag hvatti al-Qaida leiðtoginn Abu Musab al-Zarqawi múslíma til að herða árásirnar á bandarískar hersveitir. 29.4.2005 00:01
Unnið að slitum Húsfélags alþýðu Félagsfundur Húsfélags alþýðu samþykkti að fela tveimur lögfræðingum að móta tillögur sem laga starfsemi félagsins að áliti kærunefndar um fjöleignahús og lögum um þau. 29.4.2005 00:01
Vill breytingar á fyrningarfresti Jónína Bjartmarz alþingismaður vill afnema eða lengja verulega fyrningarfrest í alvarlegri kynferðisbrotum gegn börnum. Hún telur að huga þurfi að breytingum á fyrningarfrumvarpinu sem allsherjarnefnd hefur nú til meðferðar. </font /></b /> 29.4.2005 00:01
Landnemar tókust á við lögreglu Til átaka kom á milli ísraelskra hermanna og landnema á Vesturbakkanum í dag þegar hermennirnir reyndu að handtaka landnemana fyrir að grýta palestínskan vörubíl. Ísraelskur hermaður særðist lítillega í átökunum en alls voru sjö landnemar handteknir. 29.4.2005 00:01
Mjótt á mununum í Frakklandi Naumur meirihluti Frakka er andvígur stjórnarskrá Evrópusambandsins samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í dag, mánuði áður en þjóðin greiðir atkvæði um hana. Í könnun sem gerð var fyrir dagblaðið <em>Journal de Dimanche</em> kemur fram að 52 prósent eru andvíg stjórnarskránni en 48 prósent fylgjandi henni, en aðeins tíu prósent aðspurðra höfðu enn ekki ákveðið sig. 29.4.2005 00:01
Ekki lengra gengið í aðhaldi Háskólaráð og deildarforsetar við Háskóla Íslands telja að til þess að skólinn geti áfram staðið undir þeim kröfum og væntingum sem til hans séu gerðar verði ekki gengið lengra í aðhaldi og sparnaði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun Háskóla Íslands vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um stofnunina. 29.4.2005 00:01
Ver hagsmuni sína í kjölfar dóms Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir ljóst að Síminn muni verja hagsmuni sína í framhaldi af Hæstaréttardómi yfir þremur sakborningum í Landssímamálinu sem féll í gær. Lögfræðingar fyrirtækisins eru nú að kanna málið en eftir að dómur féll í héraðsdómi á síðasta ári segir hún grunn hafa verið lagðan að bótaskyldu. 29.4.2005 00:01
Sundabraut í útboð 2007 Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir að ef allt gengur að óskum verði hægt að bjóða Sundabraut út síðla árs 2007. Þetta kom fram í máli ráðherrans á borgarafundi á Akranesi í fyrrakvöld. 29.4.2005 00:01
Lögregla leitar innbrotsþjófa Lögreglan í Reykjavík leitar nú tveggja innbrotsþjófa sem staðnir voru að verki við innbrot í einbýlishús í Seljahverfi um klukkan hálfþrjú í dag. Húsráðandi kom að mönnunum sem tóku til fótanna með það þýfi sem þeir höfðu þegar tekið, skartgripi þar á meðal. Lögreglan hefur nú þegar fundið þýfið sem þjófarnir höfðu falið við ruslatunnu í sömu götu og þeir frömdu innbrotið. 29.4.2005 00:01
Tíu sveitarfélög undir eftirliti Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent tíu sveitarfélögum boð um samning um fjárstyrk vegna fjárhagsvanda. Byggist þetta á reglum sem samþykktar voru í tengslum við sérstakt 200 milljóna króna framlag ríkisins í jöfnunarsjóð sveitarfélaga. 29.4.2005 00:01
Tók áminningu til baka Ólína Þorvarðardóttir, skólastjóri Menntaskólans á Ísafirði, segir dómssátt hafa náðst í máli sem komið var fyrir Héraðsdóm Vestfjarða, en enskukennari við skólann höfðaði mál gegn Menntaskólanum á Ísafirði. Enskukennarinn ítrekaði afsökunarbeiðni og í framhaldinu felldi Ólína áminningu úr gildi sem hún hafði veitt kennaranum vegna yfirferðar á prófum. 29.4.2005 00:01
Fækkað um helming hjá varnarliðinu Hermönnum á Keflavíkurflugvelli hefur fækkað um ríflega helming frá 1990. Þá voru tæplega 3300 hermenn staðsettir hérlendis en þeir voru um 1450 í byrjun þessa árs. Íslenskum starfsmönnum varnarliðsins fækkaði um 38 af hundraði á sama tíma, úr 1086 í 674. 29.4.2005 00:01
Lengstu neðansjávargöng í heimi Færeyingar íhuga að grafa lengstu neðansjávargöng í heimi fyrir bílaumferð. Um er að ræða göng milli Straumeyjar og Sandeyjar en þau yrðu tólf kílómetra löng. Kostnaður er áætlaður um 60 milljarðar íslenskra króna. 29.4.2005 00:01
Ekki sammála um niðurstöðu Fulltrúar ítalskra og bandarískra yfirvalda, sem rannsökuðu lát ítalska leyniþjónustumannsins Nicola Caliparis sem skotinn var í Írak í byrjun síðasta mánaðar, komust ekki að sameiginlegri niðurstöðu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu beggja aðila sem bandaríska utanríkisráðuneytið sendi frá sér í dag. 29.4.2005 00:01
Súrrealískt ástand Gríðarleg bjartsýni ríkir í Fjarðabyggð nú þegar framkvæmdirnar eru þar í fullum gangi en ástandið er auðvitað ekki "eðlilegt". Stríður straumur er af þungavinnuflutningum um bæinn á hverjum degi. Fasteignaviðskipti hafa aldrei við blómlegri og samkeppni er í matvöruverslun. 29.4.2005 00:01
Kanna skaðabótamál í Símamáli Lögmenn Símans eru nú að kanna skaðabótamál gegn fjórmenningunum í Landssímamálinu svokallaða. Hægt verður að viðhalda skaðabótakröfum á þá í áratugi verði þær ekki greiddar. 29.4.2005 00:01
Fóru yfir skiptingu vegafjár Áhugi þingmanna höfuðborgarsvæðisins á vegamálum virðist hafa vaknað. Fimm ráðherrar ríkisstjórnarinnar, þeirra á meðal forsætis- og fjármálaráðherra, svo og leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins, mættu allir á skrifstofu vegamálastjóra í dag til að fara yfir skiptingu vegafjár á höfuðborgarsvæðinu. 29.4.2005 00:01
Konurnar í ríkisstjórninni Þótt ekki hafi tekist að öllu leyti vel til við skipan nýrrar ríkisstjórnar í Írak þá er sú staðreynd að sjöttungur embættanna er skipaður konum fagnaðarefni. 29.4.2005 00:01