„Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Rafn Ágúst Ragnarsson og Agnar Már Másson skrifa 7. október 2026 21:02 Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, ræddi við Vísi fyrir utan ráðherrabústaðinn í dag. Vísir/Rafn Formaður grænlensku landstjórnarinnar segir það svekkjandi að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kúlusúk á Austur-Grænlandi yfir vetrartímann enda hafi flugleiðin reynst vel upp á ferðamennsku og fraktflutninga á ferskvöru. Hann segir að landstjórnin leiti nú leiða til þess að tryggja flug að svæðinu á ný. „
Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samtali við Vísi að loknum blaðamannafundi með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands, og Beini Johanesen, lögmanni Færeyja. Í sumar var greint frá því að Icelandair myndi hætta flugi milli Íslands og Kulusuk yfir vetrarmánuðina en félagið Icelandair hefur um árabil sinnt farþega- og fragtflugi til afskekktrar austurstrandarinnar. „[Flugið] hefur reynst gott fyrir Grænland bæði vegna ferðamennsku en einnig vegna ferskvöru og grænmetis og svo framvegis,“ segir formaðurinn og bætir við að grænlenska landstjórnin kanni nú hvernig hægt sé að tryggja flug að svæðinu á ný. „En það er flókið,“ bætir hann við, „vegna þess að auðvitað er um einkarekstur að ræða og við erum að sjá hvað við getum gert til þess að opna leiðina á ný, vegna þess að það skiptir Grænlendinga miklu máli.“ Grænlenska ríkið geti sjálft ekki staðið í því að reka flugfélag. „Og þess vegna er mikilvægt að setja á okkur viðskiptagleraugun,“ heldur Jens-Frederik áfram. „Það eru hlutir sem við getum gert – ég get ekki lofað að við séum að því akkúrat núna – en við erum að fara í viðræður og innviðaráðherrann okkar er stendur sig vel og vinnur hart að því að finna lausnir.“ Hóteleigandi í Kúlusuk ræddi við Vísi en hann var með öllu ósáttur við það að íslenska flugfélagið hefði hætt að fljúga til Kúlusúkk á milli október og maí. „Ef við fáum enga ferðamenn þá verðum við að skjóta alla hundana,“ sagði hóteleigandinn. Blaðamannafundur ríkisstjórnaroddvitar vestnorrænu landanna þriggja var haldinn í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík í dag og var þar tilkynnt um frekara viðskiptasamstarf milli Íslands, Færeyja og Grænlands þó þjóðarleiðtogarnir greindu ekki frá smáatriðum þess samtals. Þar kom þó fram að þrímenningarnir hefðu setið hringborð með fjárfestum af Norðurslóðum og voru leiðtogarnir vongóðir að hægt væri að efla viðskiptasamstarfið í útnorðri. Eins og þekkt er hafa miklar hræringar orðið í málefnum Grænlands, þar sem nýlega var samið um nýjan varnarsamning við Bandaríkin í kjölfar hótana Bandaríkjaforseta en auk þess tilkynnti Evrópusambandið nýlega um fjárfestingarpakka fyrir Grænland.
Grænland Icelandair Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flug Ferðaþjónusta Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira