Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Jón Þór Stefánsson skrifar 28. júlí 2026 13:16 Ming Ting yfirgefur dómsal með Bónuspoka í hönd eftir að tólf ára dómur var kveðinn upp yfir henni. Vísir/Lýður Valberg Ming Ting Mancel hefur verið dæmd í tólf ára fangelsi í Edition-málinu svokallaða. Hún var ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi, með því að verða 29 ára gamalli dóttur sinni að bana á hótelherbergi á Reykjavík Edition í miðbæ Reykjavíkur milli 13. og 14. júní í fyrra. Dómur þessi var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt í þessu. Ming Ting var viðstödd dómsuppkvaðninguna. Hún þarf að greiða rúmar þrettán milljónir króna í laun lögmannsins og rúmar fimm milljónir í annan sakarkostnað. Hún dvaldi í gæsluvarðhaldi í um tvo og hálfan mánuð sem verður dregið af fangelsisvistinni. Mancel-fjölskyldan kom frá Frakklandi og Nýju Kaledóníu, en hafði búið á Írlandi. Því hefur verið fjallað um málið víðar um heim en bara á Íslandi. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Í ákærunni sagði að Mancel, sem er 56 ára gömul, hafi framið verknaðinn ásamt eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, sem mun hafa verið með lífshættulegan nýrnasjúkdóm. Ming Ting sagðist ekki vilja lifa án eiginmannsins, og viljað fara með honum, og vildi meina að það ætti einnig við um dóttur þeirra, Catherine Delphine Mancel. Málsvörn hennar gekk út á að um hópsjálfsvíg hafi verið að ræða, en Emeric fannst einnig látinn á vettvangi. Málið varðar atvik sem áttu sér stað á Edition-hótelinu síðasta sumar.Vísir/Anton Brink Ming Ting var gefið að sök að halda Catherine fastri, með því að grípa um upphandlegg hennar, bregða snöru um háls hennar, og þrengja að öndunarvegi hennar um drjúga stund. Jafnframt hafi hún stungið dóttur sína með hnífi tvívegis í brjóstkassann, og önnur þeirra hafnað í hjarta hennar. Catherine hafi svo látist vegna þessara áverka. Lýsti dóttur sinni sem hugrakkri Við aðalmeðferð málsins í júní sagði Ming Ting að Emeric hafi stungið Catherine, sem hafi setið í stól. Meðan hafi hún sjálf haldið í hönd dóttur sinnar og kropið við hlið hennar. „Hún var mjög hugrökk, hún lét þetta gerast, hún kvartaði ekki, hún kom fram af hugrekki,“ sagði hún. Að sögn Ming Ting var markvisst hjá þeim að byrja á dótturinni, sem hafi viljað fara fyrst. Þetta hafi verið framkvæmt inni á baðherbergi hótelherbergisins, en hún hafi svo verið færð þaðan í rúm í herberginu. Þar hafi henni verið boðið áfengi og slævandi lyf, sem þau hafi keypt á Írlandi að beiðni dótturinnar. Felldi tár þegar hún lýsti andláti eiginmannsins „Næst var komið að mér,“ sagði Ming Ting og lýsti því að næst á eftir dótturinni hafi Emeric stungið hana einu sinni, svo borið hana fram og lagt í rúmið við hlið dóttur þeirra. Einhverju seinna hafi Emeric vakið Ming Ting, sagt að þá væri komið að sér, og stungið sjálfan sig tvívegis. Þeim virðist hafa gengið erfiðlega að svipta sig lífi. Þau hafi til að mynda reynt að gefa sjálfum sér raflost, en án árangurs. Emeric hafi á einhverjum tímapunkti farið aftur inn á baðherbergið, verið mjög veikburða og fallið við. Þá hafi Ming Ting sjálf verið of máttlaus til að reisa hann við. Við lýsingar á þessu fyrir dómi felldi hún tár í fyrsta skipti. Hringdi sjálf í hótelstarfsmenn Eftir þetta hafi Ming Ting tekið sér hníf í hendi í fyrsta skipti þetta kvöld og reynt að stinga sig til bana, en það ekki tekist. Þá hafi hún reynt að stinga hárblásara í samband og fara með hann í sturtu, líka án árangurs. Að lokum ákvað hún að hringja í mótttöku hótelsins og tilkynna starfsmönnum um það sem hafði átt sér stað, en þeir hafi ekkert skilið fyrr en hún sagði þeim að hún hefði myrt tvo. Síðar dró hún þá fullyrðingu til baka og sagðist hafa gert það til að vekja athygli hótelstarfsmannanna. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Eins og dóttirin hafi streist á móti Á meðal vitna sem báru vitni var réttarlæknir sem sagði áverka á hálsi Catherine til marks um að hún hafi streist á móti, líkt og hún hafi reynt að losna úr kyrkingartaki. Líkt og áður segir er Ming Ting ákærð fyrir að bregða snöru um háls dótturinnar og þrengja að. Þá sagði geðlæknir að Ming Ting þjáðist ekki af geðsjúkdómi. Spurður um hvort hún væri sakhæf sagði hann að slíkt mat væri lögfræðilegs eðlis en að hans mati væri ekkert sem benti til þess að refsing gæti ekki borið árangur. Saksóknari vildi sextán ár en verjandi sýknu Karl Ingi Vilbergsson, sem sótti málið fyrir hönd Héraðssaksóknara, fór fram á að Ming Ting yrði dæmd í sextán ára fangelsi. Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi hennar, fór hins vegar fram á að hún yrði sýknuð. „Það er ekki hægt að slá því föstu að hún hafi með neinum hætti haft aðkomu að andláti dóttur sinnar,“ sagði hann í málflutningi fyrir dómi. Í varakröfu sinni gerði Ómar fram á að hún yrði sakfelld fyrir minniháttarhlutdeild samkvæmt 213. grein, þ.e. að svipta einhvern lífi gegn brýnni beiðni viðkomandi, en það varðar allt að þriggja ára fangelsi. Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, hélt í hönd dóttur sinnar á meðan eiginmaður hennar stakk hana í hjartað. Hún segir dótturina hafa viljað deyja en að hún hefði frekar kosið aðra aðferð. 12. júní 2026 12:02 Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Erica Mancel, systir Emeric Mancel, manns sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erica er mágkona Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við Emeric, eiginmann sinn, á hótelinu. Erica segir bróður sinn hafa verið afar stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hafi verið undirgefnar honum. Hún segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta og hún hefði átt í erfiðleikum með að búa ein. 24. júní 2026 15:06 „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Catherine Mancel, dóttir Ming Ting Mancel sakbornings í Edition-málinu, er sögð hafa skilið aðgangskort sitt og vinnutölvu eftir á vinnustað sínum í Írlandi áður en hún hélt með foreldrum sínum til Íslands, þar sem hún lést. Þetta þótti óvenjulegt að sögn fyrrverandi kollega hennar, einkum vegna þess að hún ætlaði að nota tölvuna í fjarvinnu á Íslandi. 29. júní 2026 12:06 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Dómur þessi var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt í þessu. Ming Ting var viðstödd dómsuppkvaðninguna. Hún þarf að greiða rúmar þrettán milljónir króna í laun lögmannsins og rúmar fimm milljónir í annan sakarkostnað. Hún dvaldi í gæsluvarðhaldi í um tvo og hálfan mánuð sem verður dregið af fangelsisvistinni. Mancel-fjölskyldan kom frá Frakklandi og Nýju Kaledóníu, en hafði búið á Írlandi. Því hefur verið fjallað um málið víðar um heim en bara á Íslandi. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Í ákærunni sagði að Mancel, sem er 56 ára gömul, hafi framið verknaðinn ásamt eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, sem mun hafa verið með lífshættulegan nýrnasjúkdóm. Ming Ting sagðist ekki vilja lifa án eiginmannsins, og viljað fara með honum, og vildi meina að það ætti einnig við um dóttur þeirra, Catherine Delphine Mancel. Málsvörn hennar gekk út á að um hópsjálfsvíg hafi verið að ræða, en Emeric fannst einnig látinn á vettvangi. Málið varðar atvik sem áttu sér stað á Edition-hótelinu síðasta sumar.Vísir/Anton Brink Ming Ting var gefið að sök að halda Catherine fastri, með því að grípa um upphandlegg hennar, bregða snöru um háls hennar, og þrengja að öndunarvegi hennar um drjúga stund. Jafnframt hafi hún stungið dóttur sína með hnífi tvívegis í brjóstkassann, og önnur þeirra hafnað í hjarta hennar. Catherine hafi svo látist vegna þessara áverka. Lýsti dóttur sinni sem hugrakkri Við aðalmeðferð málsins í júní sagði Ming Ting að Emeric hafi stungið Catherine, sem hafi setið í stól. Meðan hafi hún sjálf haldið í hönd dóttur sinnar og kropið við hlið hennar. „Hún var mjög hugrökk, hún lét þetta gerast, hún kvartaði ekki, hún kom fram af hugrekki,“ sagði hún. Að sögn Ming Ting var markvisst hjá þeim að byrja á dótturinni, sem hafi viljað fara fyrst. Þetta hafi verið framkvæmt inni á baðherbergi hótelherbergisins, en hún hafi svo verið færð þaðan í rúm í herberginu. Þar hafi henni verið boðið áfengi og slævandi lyf, sem þau hafi keypt á Írlandi að beiðni dótturinnar. Felldi tár þegar hún lýsti andláti eiginmannsins „Næst var komið að mér,“ sagði Ming Ting og lýsti því að næst á eftir dótturinni hafi Emeric stungið hana einu sinni, svo borið hana fram og lagt í rúmið við hlið dóttur þeirra. Einhverju seinna hafi Emeric vakið Ming Ting, sagt að þá væri komið að sér, og stungið sjálfan sig tvívegis. Þeim virðist hafa gengið erfiðlega að svipta sig lífi. Þau hafi til að mynda reynt að gefa sjálfum sér raflost, en án árangurs. Emeric hafi á einhverjum tímapunkti farið aftur inn á baðherbergið, verið mjög veikburða og fallið við. Þá hafi Ming Ting sjálf verið of máttlaus til að reisa hann við. Við lýsingar á þessu fyrir dómi felldi hún tár í fyrsta skipti. Hringdi sjálf í hótelstarfsmenn Eftir þetta hafi Ming Ting tekið sér hníf í hendi í fyrsta skipti þetta kvöld og reynt að stinga sig til bana, en það ekki tekist. Þá hafi hún reynt að stinga hárblásara í samband og fara með hann í sturtu, líka án árangurs. Að lokum ákvað hún að hringja í mótttöku hótelsins og tilkynna starfsmönnum um það sem hafði átt sér stað, en þeir hafi ekkert skilið fyrr en hún sagði þeim að hún hefði myrt tvo. Síðar dró hún þá fullyrðingu til baka og sagðist hafa gert það til að vekja athygli hótelstarfsmannanna. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Eins og dóttirin hafi streist á móti Á meðal vitna sem báru vitni var réttarlæknir sem sagði áverka á hálsi Catherine til marks um að hún hafi streist á móti, líkt og hún hafi reynt að losna úr kyrkingartaki. Líkt og áður segir er Ming Ting ákærð fyrir að bregða snöru um háls dótturinnar og þrengja að. Þá sagði geðlæknir að Ming Ting þjáðist ekki af geðsjúkdómi. Spurður um hvort hún væri sakhæf sagði hann að slíkt mat væri lögfræðilegs eðlis en að hans mati væri ekkert sem benti til þess að refsing gæti ekki borið árangur. Saksóknari vildi sextán ár en verjandi sýknu Karl Ingi Vilbergsson, sem sótti málið fyrir hönd Héraðssaksóknara, fór fram á að Ming Ting yrði dæmd í sextán ára fangelsi. Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi hennar, fór hins vegar fram á að hún yrði sýknuð. „Það er ekki hægt að slá því föstu að hún hafi með neinum hætti haft aðkomu að andláti dóttur sinnar,“ sagði hann í málflutningi fyrir dómi. Í varakröfu sinni gerði Ómar fram á að hún yrði sakfelld fyrir minniháttarhlutdeild samkvæmt 213. grein, þ.e. að svipta einhvern lífi gegn brýnni beiðni viðkomandi, en það varðar allt að þriggja ára fangelsi.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, hélt í hönd dóttur sinnar á meðan eiginmaður hennar stakk hana í hjartað. Hún segir dótturina hafa viljað deyja en að hún hefði frekar kosið aðra aðferð. 12. júní 2026 12:02 Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Erica Mancel, systir Emeric Mancel, manns sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erica er mágkona Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við Emeric, eiginmann sinn, á hótelinu. Erica segir bróður sinn hafa verið afar stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hafi verið undirgefnar honum. Hún segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta og hún hefði átt í erfiðleikum með að búa ein. 24. júní 2026 15:06 „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Catherine Mancel, dóttir Ming Ting Mancel sakbornings í Edition-málinu, er sögð hafa skilið aðgangskort sitt og vinnutölvu eftir á vinnustað sínum í Írlandi áður en hún hélt með foreldrum sínum til Íslands, þar sem hún lést. Þetta þótti óvenjulegt að sögn fyrrverandi kollega hennar, einkum vegna þess að hún ætlaði að nota tölvuna í fjarvinnu á Íslandi. 29. júní 2026 12:06 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, hélt í hönd dóttur sinnar á meðan eiginmaður hennar stakk hana í hjartað. Hún segir dótturina hafa viljað deyja en að hún hefði frekar kosið aðra aðferð. 12. júní 2026 12:02
Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Erica Mancel, systir Emeric Mancel, manns sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erica er mágkona Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við Emeric, eiginmann sinn, á hótelinu. Erica segir bróður sinn hafa verið afar stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hafi verið undirgefnar honum. Hún segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta og hún hefði átt í erfiðleikum með að búa ein. 24. júní 2026 15:06
„Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Catherine Mancel, dóttir Ming Ting Mancel sakbornings í Edition-málinu, er sögð hafa skilið aðgangskort sitt og vinnutölvu eftir á vinnustað sínum í Írlandi áður en hún hélt með foreldrum sínum til Íslands, þar sem hún lést. Þetta þótti óvenjulegt að sögn fyrrverandi kollega hennar, einkum vegna þess að hún ætlaði að nota tölvuna í fjarvinnu á Íslandi. 29. júní 2026 12:06