Óþekkjanleg stjarna Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. júlí 2025 15:26 Sydney Sweeney leikur boxarann Christy Martin sem er einn sigursælasti kvenkyns boxari Bandaríkjanna. Hollywood-stjarnan Sydney Sweeney mun leika Christy Martin í nýrri ævisögumynd um bandaríska boxarann. Fyrsta opinbera ljósmyndin úr kvikmyndinni sýnir óþekkjanlega dökkhærða Sweeney.
Kvikmyndafyrirtækið Black Bear Studios birti ljósmyndina fyrr í vikunni um leið og tilkynnt var að ævisögumyndin Christy yrði frumsýnd á kvikmyndahátíðinni TIFF í september. Á myndinni má sjá Sweeney, sem er þekkt fyrir sína ljósu lokku, umbreytta í miðjum boxhringnum með stutt dökkt krullað hár, góm og stælta handleggi í hvítum hlírabol, síðum stuttbuxum og boxhönskum. Þó um sé að ræða fyrstu opinberu myndina úr Christy hefur Sweeney áður sýnt baksviðs úr tökum myndarinnar á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Sydney Sweeney (@sydney_sweeney) Dóttir kolanámumannsins úr Vestur-Virginíu Sweeney tjáði sig um reynsluna af tökunum við W Magazine í júní þar sem hún lýsti því hver krefjandi það var að umbreyta sér fyrir ævisögumyndina. Leikkonan þyngdist um þrettán kíló og var í ströngu þriggja mánaða prógrammi til að fanga líkamsbyggingu Martin. Sweeney flexar byssurnar. „Ég byrjaði að borða. Ég lyfti í klukkutíma á morgnana, fór í kickbox um miðjan dag í tvo tíma og fór svo aftur á klukkutíma lyftingaræfingu um kvöldið,“ sagði Sweeney. „Líkaminn minn var gjörólíkur. En það var magnað, ég var svo sterk, alveg klikkað sterk.“ Christy Martin var einn sigursælasti kvenkyns boxarinn á tíunda áratugnum, gekk undir viðurnefninu „Dóttir kolanámumannsins“ og var um tíma heimsmeistari í sínum þyngdarflokki. Christy var fyrsti kvenkyns boxarinn til að fá inngöngu í frægðarhöll boxins í Nevada árið 2016. Christy giftist umboðsmanni sínum Jim V. Martin þegar hún var 22 ára en hann 47 og lýsti hún því síðar að Jim hefði beitt hana andlegu og líkamlegu ofbeldi um margra ára bil. Þegar Christy óskaði eftir skilnaði frá Jim árið 2010 þá stakk hann hana ítrekað, skaut hana með skammbyssu og skildi eftir illa særða. Christy lifði af árásina en Jim var handtekinn og hlaut 25 ára dóm.
Bíó og sjónvarp Hollywood Box Bandaríkin Tengdar fréttir Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Súperstjarnan Sydney Sweeney hefur bráðlega sölu á sápunni Baðvatnssæla Sydneyar sem er framleidd úr baðvatni leikkonunnar. Sweeney segir sápuna tilkomna vegna reglulegra beiðna aðdáenda um að fá sýni af baðvatni hennar. 30. maí 2025 09:51 Hætt við brúðkaupið og allt í baklás Bandaríska leikkonan Sydney Sweeney og unnusti hennar framleiðandinn Jonathan Davino eru hætt við að gifta sig. Sambandið hangir á bláþræði og þau standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þetta fullyrða nú bandarískir slúðurmiðlar. 27. mars 2025 09:21 Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira
Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Súperstjarnan Sydney Sweeney hefur bráðlega sölu á sápunni Baðvatnssæla Sydneyar sem er framleidd úr baðvatni leikkonunnar. Sweeney segir sápuna tilkomna vegna reglulegra beiðna aðdáenda um að fá sýni af baðvatni hennar. 30. maí 2025 09:51
Hætt við brúðkaupið og allt í baklás Bandaríska leikkonan Sydney Sweeney og unnusti hennar framleiðandinn Jonathan Davino eru hætt við að gifta sig. Sambandið hangir á bláþræði og þau standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þetta fullyrða nú bandarískir slúðurmiðlar. 27. mars 2025 09:21