Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 18:46 Þorgeir Bjarki Davíðsson og félagar fögnuðu frábærum sigri í dag. Olís-deildin Einu og hálfu ári eftir langþráðan Íslandsmeistaratitil hafa Framarar átt afar erfitt uppdráttar í Olís-deild karla í handbolta í haust og þeir steinlágu gegn nýliðum Víkings á heimavelli í dag, 36-28. FH vann Þór á Akureyri, 37-30.
Fram var 17-16 yfir í hálfleik og var marki yfir þegar korter var til leiksloka, 25-24. Þá skelltu gestirnir í lás og skoruðu fimm mörk í röð og unnu á endanum átta marka sigur. Hornamaðurinn Jón Karl Einarsson skoraði þrjú mörk úr hraðaupphlaupum og endaði með átta mörk úr átta skotum fyrir Víkinga. Kristján Helgi Tómasson og Elvar Otri Hjálmarsson urðu næstmarkahæstir með fimm mörk hvor. Hjá Fram var Haukur Ingi Hauksson markahæstur með sjö mörk úr þrettán skotum og Marel Baldvinsson skoraði fimm úr ellefu skotum. Sigurinn kom Víkingi upp fyrir Fram í 7. sæti en liðin eru með sex stig hvort líkt og Þór í 9. sæti. Þórsarar töpuðu 37-30 á heimavelli gegn FH-ingum sem þar með eru með 13 stig í 3. sæti, fimm stigum frá toppliði Hauka nú þegar hlé er að taka við til 12. nóvember vegna landsleikja. Einar Rafn Eiðsson og Ómar Darri Sigurgeirsson voru markahæstir FH með sex mörk hvor og Gunnar Kári Bragason skoraði fimm en alls skoruðu ellefu leikmenn FH í leiknum. Hjá Þór var Bertram Simonsen markahæstur með átta mörk og Hafþór Már Vignisson skoraði sjö.
Olís-deild karla Fram Víkingur Reykjavík FH Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira