Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 30. október 2026 20:39 Dwayne Lautier-Ogunleye var langatkvæðamestur Valsmanna í leiknum í kvöld og skoraði yfir þrjátíu stig. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Valsmenn héldu sigurgöngu sinni áfram í Bónusdeild karla í körfubolta í kvöld með þriggja stiga sigri á Ármanni á Hlíðarenda, 87-84. Valsmenn voru skrefinu á undan allan leikinn og þrettán stigum yfir í hálfleik en baráttuglaðir Ármenningar gerðu leikinn meira spennandi með flottri endurkomu í seinni hálfleiknum. Ármann komst yfir í fjórða leikhlutanum en Valsliðið átti svar og landaði fjórða deildarsigri sínum í röð.Dwayne Lautier-Ogunleye skoraði 32 stig fyrir Val og Kristófer Acox var með 16 stig. Kinyon Hodges skoraði 25 stig fyrir Ármann og Adam Johansson var með 18 stig.Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Körfubolti Bónus-deild karla Valur Ármann