Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Arnar Skúli Atlason skrifar 29. október 2026 21:23 Álftnesingar fóru norður, lentu undir en öflugir komu til baka og unnu karaktersigur. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Álftanes vann Tindastól á Sauðárkróki í kvöld í 4. umferð Bónus deildar karla. Lokatölur voru 105-108 Álftanes í vil eftir framlengdan leik. Strax í upphafi leiks var ljóst að það var mikið undir. Tindastóll byrjaði töluvert betur í leiknum í kvöld og það virðist vera allt ofan í. Júlíus Orri var heitur hjá Tindastól í upphafi og var að sulla körfum á Álftanes. Álftanes vaknaði þá og þetta byrjaði að ganga betur hjá þeim varnar- og sóknarlega. Það voru allir að setja körfur hjá Álftanes, enginn einn að stíga upp heldur alvöru liðsbolti sem var leiddur áfram af Dedrick Basile sem var stórkostlegur allan leikinn. Tindastóll leiddi eftir fyrsta leikhluta 27-19. Álftanes byrjaði mjög vel 2. leikhlutann og saxaði á forystuna hjá Tindastól. Jordan Semple og Dedrick Basile voru heitir hjá Álftanes og þeir jöfnuðu leikinn. En þá vaknaði nýi leikmaður Tindastóls, Nemanja Durisic. Hann sýndi hvað hann getur og fór með hvern leikmann Álftanesar á blokkina og lagði boltann ofan í og hjálpaði Tindastól að komast aftur frá Álftanes en Dee Bost hjá Tindastól kláraði fyrri hálfleikinn með sniðskoti og Tindastóll leiddi í hálfleik 50-44. Þriðji leikhlutinn hófst með skotveislu hjá báðum liðum. Hjá Tindastól voru Dee Bost og Ade Murkey sjóðandi heitir en hjá Álftanes voru það Martins Laksa og Dedrick Basile sem voru gjörsamlega á eldi. Bæði lið skoruðu að vild í fjórðungum og hágæða körfubolti var spilaður. Tindastóll kláraði fjórðunginn með þrist og leiddu með 9 stigum fyrir lokafjórðunginn en staðan fyrir hann var 86-77. Bæði lið komu værukær inn í fjórða fjórðunginn en leikurinn fór meira fram á hálfum velli og hægðist á stigaskorinu. Álftanes náði hins vegar hægt og rólega að minnka muninn. Um miðjan fjórðunginn sauð svo allt upp úr þegar Jordan Semple og Arnar Björnsson börðust um boltann og uppkast dæmt sem endaði með slagsmálum milli Jordan Semple og Dee Bost hjá Tindastól. Í þessum slagsmálum fór svo einn varamaður Tindastóls inn á völlinn og var rekinn út úr húsi í kjölfarið en engum öðrum var hent út. Tindastólsstrákarnir koðnuðu niiður við þetta og skoruðu ekki stig í um fjórar mínútur. Þegar um tvær mínútur voru eftir af leiknum komust Álftnesingar yfir. Nemanja jafnaði fyrir Tindastól hins vegar aftur þegar um 20 sekúndur lifðu leiks. Það var í höndum Laksa að klára leikinn fyrir Álftanes en hann klikkaði skotinu og því þurfti að grípa til framlengingar og voru lokatölurnar eftir fjóra leikhluta 96-96. Tindastóll átti fyrsta högg framlengingarinnar en Álftanes tók svo við keflinu og átti auðveldara með að skora. Álftanes leiddi með einu stigi þegar Tindastóll fór í sókn þegar 24 sekúndur voru eftir af leiknum. Ade Murkey tók þá ákvörðun um að skjóta erfiðu skoti þegar um 20 sekúndur lifðu leiks og Álftanes náði frákastinu og Tindastóll þurfti að brjóta. Laksa skoraði úr tveimur vítaskotum og Álftanes var komið með þriggja stiga forystu. Tindastóll tók leikhlé og það kom í hlut Arnars Björnssonar að skjóta lokaskoti Tindastóls, að flestir héldu. Honum brást bogalistin og Laksa tók frákastið og Tindastóll braut á honum. Viðbrögð Laksa voru ekki góð og hann gaf Nemanja olnbogaskot og fékk brottvísun. Dómurinn endaði í að Álftanes fékk 2 víti og Tindastóll fékk 2 víti og boltann. Luka Gasic skoraði úr vítunum fyrir Álftanes en Taiwo Badmus fyrir Tindastól. Tindastóll fékk einn lokaséns að jafna leikinn en Dee Bost skaut langt fyrir utan þriggja stiga línuna og geigaði og sigur gestanna frá Álftanesi staðreynd í frábærum körfuboltaleik, lokatölur 105-108. Álftanes er á toppi deildarinnar og mætir KR í Forsetahöllinni í næstu umferð á meðan Tindastóll skellir sér á Egilsstaði. Atvik leiksins Jordan Semple var áhrifavaldur kvöldsins. Hann sneri leiknum með þessum slagsmálum við leikmenn Tindastóls um miðjan fjórða leikhluta og þar snerist leikurinn Álftanes í vil. Stjörnur Hjá Tindastól var Nemanja Durisic frábær með 29 stig, Dee Bost var með 18 stig og 7 fráköst og Júlíus Orri var með 18 stig líka. Nefna má Ragnar Ágústsson sem var með 9 stig og 8 fráköst en var geggjaður á varnarhelmingi Tindastóls. Hjá Álftanes var fyrrum Stólarinn Dedrick Basile gjörsamlega óstöðvandi með 26 stig og 13 stoðsendingar. Martins Laksa var með 18 stig og Jordan Semple 18 stig og 9 fráköst. Dómararnir Heilt yfir ágætlega dæmt hjá þeim. Nokkrir skrítnir dómar sem komu mjög seint og spurning hvort það hefði verið hægt að sleppa því að reka ungan leikmann Tindastóls út úr húsi. Stemningin og umgjörð Svona á þetta að vera, fullt af fólki. Mikil stemning. Margir frá Álftanesi og allt frábært í Síkinu. Körfubolti Bónus-deild karla UMF Álftanes Tindastóll