Innlent

Búið að opna Hellis­heiði á ný

Freyja Þórisdóttir skrifar
Langar bílaraðir mynduðust á Hellisheiði.
Langar bílaraðir mynduðust á Hellisheiði. Aðsend

Hellisheiði var lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss í gær og í nótt. Slysið átti sér stað á tíunda tímanum og var einn fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

„Það varð slys á Hellisheiði upp úr klukkan hálf tíu í kvöld,“ staðfestir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, en hann segir einn hafa verið fluttan alvarlega slasaðan á slysadeild til athugunar og aðhlynningar.

Mikil hálka hafi verið á vettvangi og Magnús segir að í fjöldi hafi umferðaróhappa orðið á vegkaflanum. Mest hafi verið um bíla sem fóru út af veginum og þá segist hann telja það allt hafa verið fólksbíla.

Hellisheiði var lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss. Skjáskot

Annað slys varð á Hellisheiði skömmu eftir klukkan 22:00 en þar var um þriggja bíla árekstur að ræða, er fram kemur í Facebook-færslu lögreglunnar á Suðurlandi. Slys voru minni háttar og enginn fluttur á slysadeild.

Þá barst lögreglunni jafnframt tilkynning um þriggja bíla árekstur við Skeiðaafleggjara á Suðurlandsvegi rétt fyrir klukkan 21:00 og voru engir alvarlega slasaðir í því slysi samkvæmt því sem fram kemur í færslunni. Eru vegfarendur hvattir til að sýna ýtrustu varúð.


Fréttin var uppfærð klukkan 23:56 eftir að lögreglan birti færslu á Facebook með frekari upplýsingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×